Morgunblaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2005 B 19 Snyrtifræðingur óskast í 100% starf. Upplýsingar í síma 866 7728. Öskjuhlíðaskóli osk@oskjuhlidarskoli.is www.oskjuhlidarskoli.is Kennarar - þroskaþjálfar Öskjuhlíðarskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun. Nemendur, sem eru tæp- lega 100, eru á aldrinum 6 - 16 ára. Í vetur hafa 40 kennarar, 10 þroskaþjálfar og tveir leikskóla- kennarar ásamt stuðningsfulltrúum verið við störf í skólanum. Skólastarfið byggir á mikilli samvinnu allra sem að því koma. Ýmis þróun- arstörf eru unnin í skólanum og skólinn gegnir ráðgjafarhlutverki varðandi sérkennslu í al- mennum grunnskólum. Í skólanum er góður starfsandi og við leitum að áhugasömum kenn- urum og þroskaþjálfum til liðs við okkur frá upphafi næsta skólaárs. Nánari upplýsingar í síma 568 9740 og í skólanum. Skólastjóri. Verkefnastjóri á Tæknideild Ísafjarðarbæjar Laust er til umsóknar starf verkefnastjóra á Tæknideild Ísafjarðarbæjar. Skriflegar umsókn- ir skulu berast bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði fyrir 20. júní 2005. Á heimasíðu Ísafjarðarbæjar www.isafjordur.is má finna nánari upplýsingar um starfið. Bæjartæknifræðingur. Lögfræðingur Skrifstofa Alþingis auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögfræðings á nefndasviði. Starfið er einkum fólgið í lögfræðilegri ráðgjöf við fastanefndir Alþingis við yfirferð og af- greiðslu þingmála auk þess að veita þing- mönnum aðstoð við þingmálagerð. Starfið er fjölbreytt, það krefst færni í mannlegum samskiptum og því fylgir oft verulegt vinnu- álag. Umsækjendur skulu hafa lokið embættis- eða meistaraprófi í lögfræði. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi gott vald á íslensku, eigi auðvelt með að tjá sig í rituðu máli og geti sýnt frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Góð tungu- málakunnátta er jafnframt æskileg. Til greina getur komið að ráða fleiri lögfræð- inga til starfa tímabundið. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags starfsmanna Alþingis. Nánari upplýsingar veita Einar Farestveit, starf- andi forstöðumaður nefndasviðs, og Sigrún Brynja Einarsdóttir, aðstoðarforstöðumaður, í síma 563-0400. Umsóknir, ásamt greinargóðum upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu sendar skrif- stofu Alþingis, Kirkjustræti 8, 150 Reykjavík, eigi síðar en 20. júní nk. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið frá 1. september 2005. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Rútubílstjórar Sumarstörf Óskum eftir að ráða þjónustulundaða og sam- viskusama bílstjóra í sumar. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf við akstur á rútum um land allt. Umsóknir sendist á box@mbl.is, merktar: „R—4912“ fyrir 3. júní. Starfsmaður á skrifstofu Lögmannafélag Íslands, sem er félag héraðs- dóms-og hæstaréttarlögmanna, auglýsir eftir skrifstofumanneskju til að sinna bókhaldi félagsins og fjölþættri þjónustu við lögmenn og almenning. Leitað er að þjónustulunduðum einstaklingi með tölvu-og bókhaldsþekkingu og sem unnið getur sjálfstætt. Umsóknum ber að skila á skrifstofu Lögmanna- félags Íslands í Álftamýri 9 fyrir kl. 17:00 fimmtudaginn 2. júní nk. Nánari upplýsingar veitir Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri, í síma 568 5620.  á Grenivík. Verður að hafa bíl til umráða Upplýsingar gefur Ólöf Engilberts- dóttir í síma 569 1376.  Í afleysingar á Laugavegi Blaðbera vantar í Smáíbúðahverfi Upplýsingar í síma 569 1122  Járnsmiðir óskast Starfsmaður óskast í framtíðarstarf sem er van- ur járnsmíði, hann þarf að geta unnið sjálfstætt eftir teikningum og vera vandvirkur. Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast hafið sam- band við Björn í síma 553 5200. Norræna húsið í Reykjavík var vígt 1968. Það er hannað af hinum heimsfræga finnska arkitekt Alvar Aalto. Húsið er nálægt mið- borg Reykjavíkur og í næsta nágrenni við Háskóla Íslands. Norr- æna húsið er norræn menningarstofnun og er aðalmarkmið þess er að styrkja tengsl innan Norðurlandanna, efla og styrkja áhuga á norrænum málefnum á Íslandi og koma upplýsingum um Ísland á framfæri á hinum Norðurlöndunum. Í húsinu fer fram margs konar dagskrá, þar er rekið öflugt bókasafn og sýningar af ýmsu tagi eru í sýningarsölum hússins. Stjórn hússins er skipuð af Menningarmálaráðuneytum Norðurlandanna. Kostnaður við rekstur Norræna hússins er greiddur sameiginlega af Norður- löndunum undir umsjón Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaup- mannahöfn. Laus staða bókara (75% starf) í Norræna húsinu Norræna húsið leitar eftir öflugum einstakl- ingi í sjötíu og fimm prósent starf í bókhald fyrirtækisins. Ráðið er í starf bókara frá 1. ágúst 2005. Laus staða starfskrafts i Kaffistofu Norræna hússins (60% starf) Starfskraftur óskast í u.þ.b. 60% stöðu í kaffi- stofu Norræna hússins. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2005 Umsóknum, með persónuupplýsingum (CV) og meðmælum, sendist til Norræna hússins, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík, eða rafrænt til nh@nordice.is fyrir 10. júní 2005. Nánari upplýsingar um störfin er að finna á www.nordice.is. Iðjuþjálfun Laust er til umsóknar starf stjórnanda iðjuþjálf- unar á Droplaugarstöðum, hjúkrunarheimili, frá 1. júlí 2005 eða eftir samkomulagi. Á Drop- laugarstöðum eru 68 íbúar. Verið er að stækka heimilið og mikil áhersla lögð á þjálfun, útiveru og virkni íbúa í heimilislegu umhverfi. Ábyrgðarsvið: Skipuleggur iðjuþjálfun heim- ilismanna og ber ábyrgð á henni samkvæmt hugmyndafræði, markmiðum og gæðastefnu heimilisins. Skipuleggur og ber ábyrgð á starfi starfsmanna iðjuþjálfunar. Ber ábyrgð á að rekstur og áætlanir séu ávallt í samræmi við starfsáætlun. Hæfniskröfur: Íslenskt starfsleyfi iðjuþjálfa. Reynsla af starfi með öldruðum og stjórnun æskileg: Þáttaka í virkri símenntun. Frumkvæði í starfi, metnaður og sveigjanleiki. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og Iðjuþjálfafélags Íslands. Nánari upplýsingar veita: Ingibjörg Þórisdóttir, deildarstjóri starfsmanna og gæðamála, sími 414 9503, netfang ingibj- org.halla.thorisdottir@reykjavík.is. Jóhanna Rósa Kolbeins yfirmaður iðjuþjálfunar, sími 414 9509, netfang johanna.kolbeins@reykjavik.is Einnig á heimasíðu heimilisins, www.droplaugarstadir.is Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is HEILSUSTOFNUNIN NLFÍ HEILSUSTOFNUN Í HÁLFA ÖLD, Grænumörk 10, 810 Hveragerði. Heilsustofnun NLFÍ óskar eftir að ráða hjúkrunarforstjóra Heilsustofnun óskar eftir að ráða hjúkrunarfor- stjóra í eitt ár frá 1. september nk. Hjúkrunar- forstjóri hefur yfirumsjón með allri hjúkrun á stofnuninni og situr jafnframt í framkvæmda- stjórn HNLFÍ. Nauðsynlegt er að umsækjandi sé með hald- góða reynslu af stjórnun heilbrigðisstofnana. Einnig er óskað eftir næringarfræðingi Um er að ræða 70% stöðu, sem felst í næring- arráðgjöf og fræðslu til dvalargesta, ráðgjöf varðandi sérfæði og þátttöku í meðferðarteym- um, ásamt stjórnun í næringarráði stofnunar- innar. Umsóknarfrestur er til 20. júní 2005. Umsóknir, ásamt ferilskrá, sendist til Ingibjarg- ar Kjartansdóttur, starfsmannastjóra. Upplýsingar gefa Kristján G. Guðmundsson, yfirlæknir, kristgud@hnlfi.is og Ingibjörg Kjart- ansdóttir, starfsmannastjóri, inga@hnlfi.is . Sími 483 0300 (www.hnlfi.is) HNLFÍ er annars vegar almenn og sérhæfð endurhæfingarstofnun og hins vegar veitir hún hvíldar- og hressingardvöl. Stofnunin fylgir kenningum náttúrulækningamanna, að auka og efla þátt hugtakanna heilbrigði og heilsu- vernd í umræðu og verkum, en forðast kenni- setningar sem ekki standast vísindalega gagnrýni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.