Mánudagsblaðið - 12.11.1962, Side 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 12 nóvember 1962
Olafur Hansson menntaskólakennarí:
Það er óralangt síðan mann-
fólkið fór áð niota salt, og
greinilega er saltið ein af allra
elztu verzlunarvörum. Leidd
hafa verið rök að því, að verzl-
að hafi verið með salt í Evrópu
á yngri steinöldinni, og
kannske er saltverzlunin enn
eldri. LSklega hefur saltið í
fyrstu aðallega verið unnið úr
sjó. Notkun steinsglts, sem unn
ið er úr jörðu, er sennilega eitt
hvað yngra, en þó er hún einn-
íg mjög fom, Sagnir eru til um
það, að fomþjóðir í Frakklandi
og Norður-ltalíu hafi unnið
Balt úr trjám og sefi, og í Af-
ríku eru enn til þjóðir, sem
vinna salt úr plönitum. Á þeim
slóðum, þar sem erfitt er að
ná í salt, er það í háu verði og
talin munaðarvara. Sumir hafa
skýrt uppruna kossins þannig,
að frumstætt fólk sleiki hyað
annað til að fá saltbragð. Sé
þetta rétt hefnr kossinn í upp
hafi verið heldur órómantískur.
Hjá menningarþjóðum forn-
aldar vora saltvinnsla og salt-
verzlun talsvert mikilvægar at-
vinnugreinar Gyðingar unnu
salt úr Dauðahafinu. Forn-
grikkir fengu það einkum frá
Kýpur, en annars vom saltlind
ir í Aþenu sjálfri, t.d. lind sú,
sem sagt var að Poseidon sjáv
arguð hefði búið til á A'kró-
pólis með því að stinga þrífork
sínum í klettana þar. Rómverj-
ar unnu salt bæði úr sjó og
jörðu, og stundum hafði róm-
yerska ríkið einokun á salt-
vinnslu og saltverzlun. Fom-
Germanir. kunnu að vinna salt
úr sjó. I norrænum fornritum
er alloft talað um saltbrennur.
Örvar-Oddur segir „Þá er ég
var á unga aldri brenndum vér
ealt eigi allfáir saman“. Svo
er að sjá, að saltbrennslumenn
hafi borið sérstaka kufla og
líklega ekki snyrtilega. í Frið-
þjófs sögu frækna segir, að
Friðþjófur hafi steypt yfir sig
saltkarlskufli miklum, er hann
kom til Hrings koiuungs. Af frá
sögn þeirrar sögu má ráða, að
saltkarlar hafi verið lítt í há-
vegum hafðir og taldir með
stafkörlum. Drottning segir við
Hring konung: „Gamalær ger-
ist þú, að þú skipar saltkörlum
að sitja.“ Saltkarlar hafa senni
lega flestir verið blásnauðir
menn og starf þeirra auk þess
óþriflegt, svo að þeim hefur
ekki verið búinn hár sess í al-
tnenningsáli tin/u.
TAKNRÆN
MERKING SALTS
Með Forn-Grikkjum og Róm-
Verjum fór saltið að fá ýmsar
táknrænar merkingar. Eins og
I Austurlöndum gat það táknað
iryggð, vináttu og hlýðni og
auk þess eilífðina. Þvi að það
sem vel var saltað rotnar ekki
og forgengur. En auk þess fór
salt með þessum þjóðum að fá
nýjar táknrænar merkingar.
Það fór að tákna kýmni og háð
og stundum gagnrýni. Stundum
fékk það slæma merkingu, hjá
Rómverj. gat salsus (saltaður)
þýtt lélegur eða illa innrættur.
Ýmis forn orðtök og málshætt-
ir eru dregin af táknrænum
merkimgum saltsins. Það orða-
tiltæki af þessu tagi, sem er
lanigalgengast nú á dögum er
cum grano salis (eiginl. með
saltkorni). Að taka einhverri
sögu cum grano salis er að
taka henni með varúð, trúa
henni ekki nema mátulega vel.
Þetta orðatiltæki er dregið af
saltinu í merkingunni gagn-
rýni. Liklega er þetta orðatil-
tæki ekki mjög fomt í tákn-
rænni merkingu. Það kemur
aldrei þannig fyrir í fornlatn-
eskum ritum. Á lyfseðli hjá
Pliniusi kemur fyrir addito
grano salis (að viðbættu salt-
komi), en þar er það í eigin:
legri merkingu, það á að bæta
salti í lyfið Hin óeiginlega
merking þessa orðatiltækis, sem
niú er orðin svo algeng, er senni
lega runnin frá klerkalatínu
miðalda eða jafnvel endurreisn
artímans. En nú á dögum eru
sárafá latnesk orðatiltæki not-
uð svo mjög sem þetta.
SALTIÐ
OG TRtFARBRÖGÐIN
1 Austurlöndum fór saltið
snemma að fá dulræna og trú-
arlega þýðingu. Eif menn
neyttu salts og brauðs saman
var það tákn gistivináttu og
siðan bræðralags yfirleitt. Þá
fóra menn að neyta salts til að
staðfesta samninga og sátt-
mála. Af því er runnið hugtak-
ið saltsáttmáli í Gamla Testa-
mentinu. í fjórðu Mósesbók
stendur, að Gyðimgar hafi gert
saltsáttmála við Guð, og í ann-
arri Króníkubók stendur, að
Drottinn hafi með saltsáttmála
veitt Davíð og niðjum hans æ-
varandi konungdóm yfir Israel.
Fram eftir öllum öldum tíðkað-
ist það að neyta salts og
brauðs til að tákna höfðingjum
hollustu og undirgefni. Fram
á 19. öld neyttu rássneskir
bændur salts og brauðs til að
tákna aðalsmönnum hollustu
sína. Árið 1902 var Kristján
Danaprins (síðar Kristján kon-
ungur tiundi) á ferð í Árósum.
Þar færðu Jótar honum að forn
um sið salt og brauð. —
í Austurlöndum var það
snemma alsiða að strá salti á
fórnir, og barst venjan þaðan
til Grikkja og Rómverja. Stund
um var vín, brauð og viðsmjör
látið á fórnirnar ásamt saltinu.
„Sérhver fóm á að saltast með
salti“ segir Kristur. 1 fram-
haldi af því segir hann: „Saltið
er gott, en láti það kraft sinn,
með hverju viljið þér þá selta
það? Haldið seltunni í yður, og
verið samlyndir innbyrðis." Að
baki þessu er bæði hugmymdin
um saltsáttmálann og sú hug-
mynd, að undrakraftur búi í
saltinu. Af þessu er svo dregið
orðatiltækið salt jarðar, sem
hefur verið mikið notað allt frá
dögum Biblíunnar til vorra
daga.
Með fomaldarþjóðunum var
það algengt að strá salti á ný-
fædd börn. Var það hreinsun-
ar.icaöfn og til varraar gegn ill-
um öndum. Þettá virðist hafa
verið alsiða með Gyðingum og
goðgá að láta það undir höfuð
leggjast (Sbr. Esekiels bók).
Víða um Evrópu hefur það ver
ið algengt fram á vora daga að
láta saltkom á tungu ný-
fæddra barna, og er það eflaust
í tengslum við hina fornu siði
Austurlandabúa. Annars bendir
margt til þess, að snemma hafi
eiranig verið helgi á salti með
Fom-Germönum.
Hugmyndirnar um helgi salts
ins bárust inn í kristnina, senni
lega aðallega frá Gyðingum.
Vígt salt (sal sacerdotale) var
notað við skímarathafnir krist-
inna mantna og þegar heiðingj-
ar tóku kristna trú. Það var í
fullu samræmi við fomar hefð
ir kirkjunnar, að heiðingjarnir,
sem tóku kristni á Alþingi árið
1000 fengu salt til merkis um
siðaskiptin. „Gömlum kennum
vér nú goðanum að geifla á
saltinu“ sagði Hjalti Skeggja-
son þá um Runólf goða i Dal
1 sambandi við helgi saltsin
fékk saltkerið einnig helgí ?
sig. Með Rómverjum voru salt-
kerin talin heilagir gripir. og
saltker heldri manna þar voru
oft mjög skrautleg, úr gulli eða
silfri. Saltkerið varð tákn heim
ilis og fjölskyldu og helgi þess
blandaðist forfeðradýrkun og
trú á búálfu.
SALTIÐ
I ÞJÓÐTRtíNNI
Helgi saltsins í hinum æðri
trúarbrögðum hefur borizt inn
í alþýðutrúna á marga vegu,
og stundum hafa hugmyndirnar
afbakazt ýmislega. Víða er tals
verður tvískinnungur í þjóð-
trúnni í sambandi við saltið.
Oft er það talið heilagt og
gott til verndar gegn illum öfl-
um, en jafnhliða þessu koma
fram aðrar verri hliðar á salt-
inu. Vera má, að þær standi í
sambandi við hina niðrandi
merkir.igu latínunnar í salsus,
en annars voru víða til í fom-
eskju hugmyndir um hættulegt
eðli saltsins, sbr. söguna um
konu Lots, sem varð að salt-
Btólpa. Gömul mun sú hug-
mynd vera, að ef salti er kast-
að á menn komi á þá herfjöt-
ur, svo að þeir komist ekki úr
sporunum. Var þettá ráð stund
um notað á miðöldum, þegar
verið var að elta flóttamenn.
Náskyld þessu er hugmyndin
um að auðvelt sé að ná fugl-
um, ef salti er varpað á stél
þeirra. Sú trá er enn útbreidd.
H 1 BYLAPRYÐ I g
Höfum opnað nýja húsgagnaverzlun að
Hallarmúla, Reykjavík
Meðal aiþýóu í Evrópu hefur
salt til skamms tíma verið not-
að í varnargaldri gegn illum
öndum og svartagaldri. Það var
oft notað við sáralækningar,
menn trúðu þvi að ekki kæmi
drep í sár, ef salti væri stráð
í þau. Senniilega hefur þessi að-
ferð valdið mörgum mönnum ó-
bærilegum kvölum, en sennilega
hefur árangurinn ekki orðið að
sama skapi, þegar lækna skyldi
sárin.
Salt er stundum notað í sam
bandi viö alþýðuspár. Ungar
stúlkur í sveitum Þýzkalands
nota stundum saltspár. Á að-
faranótt Valborgarmessu setja
þær þrjár fingurbjargir með
salti í svefnherbergisgluggann
sinn. Ef ein fingurbjörgin er
oltin á hliðina að morgni gift-
ist stúlkan á næsta ári, ef tvær
eru dottnar giftist hún að vísu
á árinu, en missir manninn
fljótlega, en ef allar þrjár fing
urbjargirnar eru oltnar um koll
að morgni, deyr stúlkan á
næsta ári. Víðar í þjóðtrúnni
er saltið sett í samband við
feigð. Þessu veldur sennilega
hinn hvíti eða grái litur þess,
en þetta era oft taldir litir
feigðar og dauða.
Ólafur Hansson.
Tveir vinir hittust að mörg-
um árum liðnum.
— Hefur þú heyrt þetta ur£*
hann Bill?
— Nei, hvað hefur hent hann?
— Hann dtttt niður dauður
fyrir utan bjórkrá.
— Var hann að fara inn eða
koipa út?
— Hann var að fara inn.
— Hvaða bölvuð óheppni.
I einhverju glæsilegasta húsnæði
landsins bjóðum vér yður
fjölbreytt úrval hverskyns hús-
gagna og heimilistækja frá helztu
framleiðendum landsins.
Lítið
inn
hjú okkur óður en þér festið kaup annars sfaðar
eru híbýlaprýði
I
I
H I BYLAPR
Iiallarmúla — Sími 38177
I
I