Morgunblaðið - 11.09.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.09.2005, Blaðsíða 20
20 | 11.9.2005 Þótt fátt ef nokkuð sé nýtt undir sólinni tekur tískan stöðugum breytingum, ímynduðum eða raunverulegum. Á haust- og vetrartískusýningum þekktustu hönnuðanna þar sem línurnar eru lagðar fyrir veturinn mátti greina nokkrar vísbendingar í förðunartískunni.  Augnháralitur hefur gengið í endurnýjun lífdaga og áberandi löng augnhár flökta framan í viðhlæjendur sem aldrei fyrr. Daðurstuðullinn hækkar; ábyrgðina ber ofurmaskarinn, sem finna má í ýmsum gerðum. Áherslan er aðallega á efri augnhárin og útkoman bæði fáguð og glæsileg. Þær sem þurfa á örlítilli hjálp að halda ná landi með því að líma stök gerviaugnahár á augnlokið við gagnaugun. Ef marka má tískusýningar Donnu Karan, Roland Mouret og Soniu Rykiel eru berjalitar varir ekki lengur forréttindi Gwen Stefani. Augun eru vissulega þungamiðja förðunartískunnar í augnablikinu, en til tilbreytingar má leggja mesta áherslu á varalitinn. Dökkmálaðar varir fara til að mynda vel með löngum efri augnhárum, svo sem hindberjalitar, fúksíubleikar eða djúprauðar.  Kisuaugu kvikmyndagyðjunnar a la 1950 voru aðalþemað á sýningum Alexanders McQueen, Roch- as og Miu Miu. Svört lína frá augnkrókum sem endar með haki við gagnaugun er sígild útfærsla, en líka er hægt að nota grátt, brúnt, blágrátt og dökkgrænt. Stöðugar hendur geta leyft sér að renna fljótandi lit meðfram hárlínunni, þeim sem skjálfa eilítið gengur betur með blýanti eða augnskugga og svampbursta.  Hjá Luellu, Fendi og Ann Demeulemeister var litróf jarðarinnar allsráðandi og gráum, grábrúnum, gulbrúnum og brúnum litum blandað í reykkenndar skuggaslæður („smoky“). Mjúk, línulaus förð- un af því tagi á vel við leður-, ull- og sauðargærutískuna.  Breiðar en vel snyrtar augnbrúnir voru áberandi á sýningum Calvin Klein og Chloé. Hægt er að ná fram afgerandi boga í hárlínuna með aðstoð snyrtifræðings en galdurinn er síðan fal- inn í því að greiða gegnum hárin og halda þeim niðri með þartilgerðu geli eða vaxi.  Ísdrottningin leið fram á sjónarsviðið hjá Chanel, Max Mara og Zac Posen, þar sem frostkaldir og perlubleikir litir voru bornir á augu og út með gagnaugunum. Í djarfari útgáfunni mátti sjá tilbrigði við strauma sjöunda áratugar síðustu aldar, til dæmis hjá Chanel, með sterkum svörtum línum í kringum augun og teiknuðum neðri augnhárum sem minntu á Twiggy. Varirnar voru síðan fölbleikar eða með glæru glossi. Þá er bara að ríða á vaðið. | helga@mbl.is Sex vegvísar fyrir augu og varir TÍSKA | HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR Gylltir litir eru áberandi í haust- og vetrartískunni og bæði augu og varir máluð dökkum litum í sumum til- vikum. 1 Coromandels de Chanel, aðalkynningar- vara Chanel í augnablikinu, með augnskugga og kinnalit í svörtu, gylltu og rauðu. 2 Gyllt og bronslitt frá Guerlain, Touche de Bronze 280, 3 Ofurmaskari í tveimur þrepum frá Gosh, Eye Catching 2 Step Mascara. 4, 5 og 6 Kiss Kiss 525, 546 og 565 frá Guerlain. 7 Koparlitt glimmerduft frá Gosh. Áslaug María Sigurbjargardóttir, Sigríður Anna Sigurðardóttir og Vilborg Birna Þorsteinsdóttir voru farðaðar með haust- og vetrarlitunum frá Gosh, Chanel og Guerlain. Förðun: Guðrún Edda Haraldsdóttir og Gréta Boða. 7 2 1 6 L jó sm yn d: Á sd ís Á sg ei rs dó tt ir 4 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.