Mánudagsblaðið - 22.01.1968, Blaðsíða 6
ÚR EINU
í ANNAÐ
, Otvarpsfréttirnar enn — Jarðvinnsluvélar,
símastrengir og verkstjórar — Taugaveiklun
í bíóum — Verðlaun fyrir upplýsingar — Af-
rek Víkinga — Svar sýslumannsins
„Sjaldan bregffur mær vana sínum“, segir máltækið og á
það sannarlega við um fréttastofu útvarpsins. Sl. fimmtudag
birti það ýtarlegar fréttir um þann hluta af ávarpi Johnsons
Bandaríkjaforseta, sem fjallaði um Vietnam, en sleppti að
kalla, mikilsverðasta hlutanum, þ.e. ummælum Johnsons um
gullgengið og dollarann, þ.e. möguleikana að dollarinn byggði
ekki lengur á gullgildinu. Síðan var minnst á nokkra stúd-
entaræfla í Japan, sem mótmæltu skipskomu, mótmælum
brezkra þingmarina og smáfrétt annarri. Það er undarlegt
ef líða á svona fréttamennsku ‘hjá ópinberri fréttastofnun,
sem byggir á hlutleysi. Er ekkert ag ske í heiminum nema
Vietnam mál kommúnista, og aðrar neikvæðar fréttir um allt
sem vestrænt er. Gerist ekkert hjá sultardropunum, húsbænd-
um þeirra í austurátt?
Margir spyrja: Hafa þeir menn eða verkstjórar, sem við
jarðvinnuvélar starfa enga hugmynd um hvar símastrengir
og álíka er lagt í jörðu. Það er ekki nýtt að þessar vélar rífi
sundur vísa og aðrar lagnir, stórskemmi og valdi allskyns ó-
þægindum, svo ekki sé talað um kostnað og mannafla, sem
fer í það, að finna og gera við skemmdirnar. Vissulega má
ætla, að þessir menn sem jarðvinnslu stjórna á svona vélum
hafi a.m.k. þá lágmarksskyldu að vita hvar strengir liggja en
þjösnist ekki áfram eins og molbúar. Hvað segir borgarstjóri
um þessar skemmdir? Þag er hans að greiða ef opinberar
vélar skemma en einkafyrirtækja ef þeirra vélar eyðileggja
og trufla.
Sennilega eru íslendingar allra þjóða taugaveiklaffastir,
a.m.k. þegar til kvikmyndahúsa og umferffarljósa tekur. Strax
og séð er hversu mynd endar byrjar bíólýðurinn að ræskja
sig, kveikja í sígarettum, fara í úlpur sínar — ef þeir þá fara
úr þeim, hálfstanda upp og ropa meðan enn er ekki kveikt.
Þessi veiklun er einstætt þjóðarfyrirbrigði. Ef eitthvað stend-
ur á við umferðarljós, þá er fjöldi manna sem byrjar að væla
á flautur sínar, þótt þeim ætti að vera ljóst, að útilokað er
að leysa suma umferðarhnúta á augnabliki. Eru þarna sam-
sekir atvinnu- og einkabílstjórar. Skrítið hve víkingaþjóðin
er slæm á þessu sviði, þó róleg sé á öðrum.
©----------------------------------
Af hverju auglýsir lögreglan 'eða H-nefndin ekki há verð-
laun fyrir upplýsingar um þá, sem sagað hafa niður merkja-
stengur þær, sem nota á þegar umferðinni verður breytt?
Það er mörgum pening verr varið en svona, því vissulega væri
gaman að sjá þessar hetjur, sem í heimskulegri bræði og von-
lausri uppgjöf gera skemmdarverk til að ná sér niðri á eðli-
legri þróun umferðarmála. Og mikið væri gaman, að sjá
hversu kempulegir menn þetta eru, þegar blöðin birtu myndir
af þessum voðalegu karlmennum.
Eins og kunnugt er þá hefur knattspyrnufélagið Víkingur
ekki verið hátt skrifað í kappleikjum hér, og varla dæmi til
að það hafi unnið sigur í eldri deildum. Fyrir nokkrum árum
þegar Víkingur átti að leika á móti öðru félagi hér í borginni
stóð við miðasöluna smásnáði snaggaralegur á svip með Vík-
ingsmerki í barmi. Jafnaldrar hans hentu mikið gaman að
stráknum, stríddu honum óspart, enda átti hann fátt til varnar
og óhægt að muna hvenær Víkingur hefði sigrað síðast en um
mörg ár að ræða löngu fyrir minni snáða. Þegar strákarnir
urðu sem ósvífnastir og hæddu hann sem mest, þandi stráksi
litli brjóstið og sagði sigri hrósandi:
„Jæja, þaff voru þó aff minnstakosti Víkingar sem fundu
landiff."
Júlíus heitin Hafstein sýslumaður var í senn gott yfirvald
og vinsæll og oft manna orðheppnastur. Eitt sinn í embættis-
tíð hans á Húsavík, kom stúlka mjög í öngum sínum á skrif-
stofu sýslumanns. Þetta var alþekkt stúlka, léttlyndismann-
eskja og öll upp á að skemmta sér. Bar hún sig aumlega,
kvaðst hafa lent í raunum miklum eftir ball og verið m.a.
nauðgað. Fór hún um þetta hinum verstu orðum, en sýslu-
maður þóttist kenna að ekki væri allt með felldu um frásögn-
ina. Þegar stúlkan hafði lokið harmkvælum sínum, orðið
margsaga, og var reyndar enn hálf eftir ballið, segir Júlíus:
„Eg hlusta ekki á þetta. Öllum þykir þetta svo gott“.
James Garner og Eva Marie Saint.
Mjög athyglisverð mynd í Gamla bíói
Gamla bíó sýnir nú bandaríska
stríðsmynd — eina af þeim fáu,
sem byggir ekki á því, að þýzkir
í síðasta stríði hafi verið annað-
hvort hálfvitar, illmenni og fant
ar eða hvorutveggja. Rammi
myndar þessarar, „36 stundir“
fjallar um’íjósnir og gagnnjósn-
ir, en sjálft efnið er nýstárlegt
og spennandi. Pike major (James
Garner), fer á vegum brezka og
bandaríska herráðsins í London
1944 til Lissabon, þeirrar dásam-
legu spíónakoloniu, til að finna
út hversu þýzkum nazistum hafi
Framhald á 5. síðu.
Mánudagur 22. janúar 1968
Sjónvarp Reykjavík
Afturför — Þriðjudagsþunginn — GóSir
þættir og lélegir — Umræðuþættirnir — Tími
og vinsældir — Enn um þýðingar
Því miffur virðist svo, að sjón-
varpið íslenzka — í heild sé í
talsverðri afturför. Hin eindæma
þrjózka þess í sambandi við t.d.
þriðjudagsdagskrána, að flytja
þá ekki annað en þunga „hugs-
uffa“-þætti og klykkja út með á-
gætum en heldur endurteknum
þáttum úr fyrri styrjöldinni, veld
ur því, að allur almenningur
nennir ekki lengur að opna fyrir
þau kvöldin en kýs heldur góða
kvikmynd. Þættirnir þessi kvöld
eru, út af fyrir sig ekki lélegir,
síður en svo, en enginn nema
fáráðlingur í vali sjónvarpsefnis
þrengir slíkum þáttum á eitt
kvöld.
Val kvikmynda er hinsvegar
oft ágætt, t.d. írsku einþáttung-
arnir í s.l. viku — endurtekið
efni, Dýrlingurinn, Bragffarefim
ir, teiknimyndir etc., hafa allir
sinn sjarma og vissa áhorfénda-
hópa. Tilraun sjónvarpsins að
hafa sinn eigin „commentator",
þ.e. mann, sem velur alþjóðaefni
og stýrir stuttum þætti um aðal-
viðburði í heiminum fer mjög
hrakandi og Jemen-þátturinn í sL
viku var ekki aðeins einskonar
sutt Nasses-propaganda um „lýð
ræðisherinn" í Jemen — sem
gæti verið ágætt efni, heldur var
það og einstaklega hlutdrægt
bar oft vitni þess aff alþjóða-
mál verða ekki til hlítar skýrð
meff viðtölum við nokkra menn
framarlega á sviði heimsmálanna
— ef svo mætti kalla heihmsmála
afskipti skandinavisku þjóðanna.
Ef finnski gamanþátturinn s.l.
miðvikudagskvöld er dæmi þess,
sem við eigum að vænta
af „frændum okkar“ á Norð-
urlöndum, þá má afskrifa al-
veg þessa samvinnu sem áhuga-
vert efni. Eftir forsmánina um sl.
áramót í sambandi við „Norrænu
*
Framhald á 5. síðu.
SJÓNVARP REYKJAVÍK
í
ÞESSARI VIKU
Sunnudagur 21. janúar.
18.00 Helgistund. Séra Halldór
Gunnarsson, Holti undir
Eyjafjöllum.
18.15 Stundin okkar. Umsjón:
Hinrik Bjarnasori. Efni: 1.
Föndur — Gullveig Sæ-
mundsdóttir. 2. „Valli víking-
ur“, myndasaga eftir Ragnar
Lár. 3. Dagstund með dýra-
lækninum — kvikmynd frá
danska sjónvarpinu.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.15 Myndsjá. í þættinum er
meðal annars kynnt nýtt
slökkviefni og rætt um ýmsar
framtíðarhugmyndir rithöf.
undarins Jules Verne, sem
þóttu fráleitar á miðri síðustu
öld, en eru nú orðnar að
veruleika. Umsjón: Ólafur
Ragnarsson.
20.40 Maverick. Þessi mynd
nefnist: Fjársjóðurinn. Aðal-
hjutverkið leikur James
Garner. íslenzkur texti:
Kristmann Eiðsson.
21.30 Vindur er veðra galli.
(When the wind blows).
Brezk kvikmynd gerð fyrir
sjónvarp. Aðalhlutverk leika
Alec McCowen, Eileen Atkins
og Alison Leggatt. íslenzkur
texti: Ingibjörg Jónsdóttir.
22.30 Einleikur á píanó. Sonata
eftir Alban Berg. Alexander
Jenner leikur. (Þýzka sjón-
varpið).
22.35 Dagskrárlok.
Mánudagur 22. janúar.
20.00 Fréttir.
20.30 Tónar úr lausu lofti.
Hljómsveitin Orion skemmtir,
Söngkona er Rósa Ingólfs-
dóttir. Hljómsveitina skipa
Stefán Jökulsson, Eysteinn
Jónasson og Sigurður og
Snorri Snorrasynir.
20.55 Pangnirtung. Myndin seg-
ir frá lífi manna og starfi í
dálitlu þorpi á Baffins-eyju
norðan við heimskautsbaug,
frá sambúð hvítra manna og
Eskimóa og frá innreið sið-
menningarinnar og áhrifum
hennar. Þýðandi og þulur:
Dóra Hafsteinsdóttir.
21.25 Úr fjölleikahúsunum.
Þekktir fjöllistamenn
skemmta á ýmsum fögrum
stöðum.
21.50 Harðjaxlinn. Aðalhlut-
verkið leikur Patrick Mc-
Goohan. íslenzkur texti: Ell-
ert Sigurbjörnsson.
22.40 Dagskrárlok.
Þriffjudagur 23. janúar.
20.00 Fréttir.
20.30 Erlend málefni. Umsjón:
Markús Örn Antonsson.
20.50 Tölur og mengi. 76. þáttur
Guðmundar Arnlaugssonar
um nýju stærðfræðina,
21.10 Listamenn á ferð. Myndin
lýsir ferðalagi leikflokks frá
norska ríkisleikhúsinu langt
norður í land. Þýðandi: Vil-
borg Sigurðardóttir. Þulur:
Guðbjartur Gunnarsson. —
(Nordvision — Norska sjón-
varpið).
21.40 Almennar leiðbeiningar'
um skattaframtöl. Þáttur
þessi er gerður í samvinnu
við ríkisskattstjóra, en auk
hans koma fram prófessor
Guðlaugur Þorvaldsson, Ólaf-
ur Nílsson og Ævar ísberg.
Umsjónarmaður er Magnús
Bjarnfreðsson.
22.05 Fyrri heimsstyrjöldin.
(20. þáttur). Þessi kafli fjall-
ar um áróðursaðferðir, kaf-
bátahernað og skipulagðar
loftárásir. Þýðandi og þulur:
Þorsteinn Thorarensen.
22.30 Dagskrárlok.
Miffvikudagur 24. janúar.
18.00 Grallaraspóarnir. Teikni-
myndasyrpa gerð af Hanna
og Barbera. íslenzkur texti:
Ingibjörg Jónsdóttir.
18.25 Denni dæmalausi. Aðal-
hlutverk leikur Jay North.
íslenzkur texti: Ellert Sigur-
björnsson.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.30 Steinaldarmennirnir. —
Teiknimynd um Fred Flint-
stone og granna hans. ísl.
texti: Vilborg Sigurðardóttir.
20.55 Skaftafell í Öræfum. Rætt
við ábúendur staðarins um
sögu hans og framtíð. Um-
sjón: Magnús Bjarnfreðsson,
21.20 Kathleen Joyce syngur.
Brezka söngkonan Kathleen
Joyce syngur þjóðlög frá
Bretlandseyjum. Guðr. Krist-
insd. leikur undir á píanó.
21.35 Vasaþjófur. (Pickpocket).
Frönsk kvikmynd gerð árið
1959 af Robert Bresson með
áhugaleikurum. Aðalhlut.
verkin leika Martin Lassalle,
Pierre Lemarié, Pierre Etaix,
Jean Pelegri og Monika
Green. íslenzkur texti:. Rafn
Júlíusson. Myndin var áður
sýnd 20. janúar.
22.50 Dagskrárlok.
Föstudagur 26. janúar.
20.00 Fréttir.
20.30 Blaðamannafundur. Sig-
urður Guðmundsson, skrif-
stofustjóri húsnæðismála-
stjórnar svarar spurningum
blaðamanna. Umræðum stj.
Eiður Guðnason.
21.00 Oliver á sjúkrasæng.
Skopmynd með Stan Laurel
og Oliver Hardy (Gög og
Gokke) í aðajhlutverkum. fsl.
texti: Andrés Indriðason.
21.15 Á ferð í Kurdistan. Mynd
þessi greinir frá ferðalagi til
byggða Kúrda í íran (Pers-
íu). Kúrdar búa svo sem
kunnugt er í Litlu-Asíu þar
sem mætast Tyrkland, Sovét-
ríkin, frak og íran, og hefur
þar hver sinn skikann af því,
sem Kúrdar kalla sjálfir
Kúrdistan og ætla að verði
einhvern tíma eitt rílti. Kúrd-
ar eru orðlagðir hestamenn
og sjást nokkrir leika listir
sínar í myndinni, en einnig er
lýst sérkennilegum siðum og
háttum og fögru landslagi.
Þýðandi. Eyvindur Eiríksson.
Þulur: Guðbjartur Gunnars-
son.
21.45 Dýrlingurinn. Aðalhlut-
verk leikur Roger Moore. ísl.
texti: Ottó Jónssonr
22.35 Söngvar á síðkvöldi.
Söngvarar og hljómlistar-
menn í Tékkóslóvakíu stilla
saman strengi og flytja lög í
léttum dúr.
23.35 Dagskrárlok.
Laugardagur 27. janúar.
16.15 Leiðbeiningar um, skatta-
framtöl. A. Alm. leiðbein-
ingar áður fluttar s.l. þriðju-
dag, gerðar í samvinnu við
ríkisskattstjóra, en auk hans
koma fram prófessor _ Guð-
laugur Þorvaldsson, Ólafur
Nílsson og Ævar ísberg, B.
Skattaframtöl húsbyggjenda.
Leiðbeinandi Sigurbjörn Þor-
björnsson, ríkisskattstjóri.
Umsjón: Magnús Bjarnfreðs-
son.
17.00 Enskukennsla sjónvarps-
ins. Walter and Connie. Leið-
beinandi: Heimir Áskelsson.
10. kennslustund endurtekin.
11. kennslustund frumflutt.
17.40 Endurtekið efni. Kulingen
og frændur hans. Myndin
greinir frá teikningum
sænska skopteiknarans Eng-
ström og persónum þeim, sem
hann skóp í teikningum sín-
um. Þýðandi: Ólafur Jónsson.
Þulur: Steindór Hjörleifsson.
Áður flutt 10. jan. 1968.
18.10 íþróttir. Efni m.a.: Tott-
enham Hotspur — Arsenal.
19.30 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.30 Riddarinn af Rauðsölum.
Framhaldskvikmynd byggð á
sögu Alexandre Dumas. 7.
þáttur: Örlög ráða. íslenzkur
texti: Sigurður Ingólfsson.
20.55 Blúndur og blásýra. Ar-
senic and Old Lace). Banda-
rísk' gamanmynd. Aðalhlut-
verkin leika Josephine Hull,
Jean Adair, Cary Grant, Ray-
mond Massey og Peter Lorre.
Menzkur texti: Dóra Haf-
stemsdóttir. — Tvær indælar
rosknar konur eru haldnar
þeirri ástríðu að koma ein-
mana, rosknum mönnum fyr-
ir kattarnef. Þær lokka þá
heim til sín undir því yfir-
skini að leigja þeim herbergi.
Fráfalli „leigjandanna" er
komið um kring með vinalegu
glasi af léttu vínu, sem frúrn-
ar hafa blandað með rausnar-
legum skammti af blásýru.
Mynd þessi er gerð eftir leik-
riti Joseph Kessdring, sem
leikið var hjá Leikfélagi
Reykjavíkur árið 1947.
22.50 Dagskrárlok.