Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 30.09.1968, Blaðsíða 3

Mánudagsblaðið - 30.09.1968, Blaðsíða 3
Mánudagur 30. september 1968 Mánudagsblaðið 3 \ MYSTICUS: Fórnarlamb rœningianna Það lítur út fyrir það, að Reykja vík fari að verða eins hættuleg borg og verstu stórborgir erlendis. Hér er farinn að vaða uppi glæpalýður, sem einskis svífst, svo að maður er eiginlega aldrei öruggur um eigur sínar og jafnvel ekki líf sitt og limi. Hann Grímur kunningi minn fékk áþreifanlega að kenna á þessu núna í vor. Það er líklega óþarfi að vera að segja ykkur frá þessu, því að þið hafið víst lesið frásagnir af því í blöðunum. Það var mikið talað um þetta fyrst á eftir eins og vonlegt var því að þetta, sem kom fyrir Grím, þótti mönnum alvarlegt tím- anna tákn. Og. Grímur naut al- mennrar samúðar fólks í bænum og nýtur enn. Það eru hörð hjörtu, sem ekki fyllast meðaumkvun með meðbróður sínum, sem lendir í öðr um eins ósköpum. Grímur hafði verið að lábba of- an úr Þingholtum heim til sín vestur í bæ, þegar þetta bar við. Klukkan var að ganga tvö um nótt- ina, en þetta var yndisleg vornótt, og hann fór sér hægt. Hann gekk í gegnum Tjarnargarðinn og sá þar ekki neina lifandi sálu. En fyrr en varði sprutu fjórir menn þar upp úr runnakjarri. Þeir voru dökkir á brún og brá og harla skuggalégír' ásýndum. Einn var svo dökkur á hörund, að Grímur hélt, að hann væri hálfsvertingi eða eitthvað í þá áttina. Og þeir töluðu eitthvert framandi tungumál, sem Grímur skildi alls ekki. En þó að hann skildi ekki orðin skildi hann til- gang þeirra bara allt of vel. Þeir ætluðu að ráðast á hann og ræna hann öllu fémætu, um það var ekki að villast. Og Grímur gat ekki bor- ið hönd fyrir höfuð sér, hann er heldur smár vexti og lítill bógur í slagsmálum. Það er ekki að orð- lengja það, að þeir réðust umsvifa- laust á hann og börðu hann niður. Hann missti meðvitund, qg hann heldur að hann hafi legið í hálf- tíma eða meira. Og hann var held- ur en ekki illa til reika, þegar hann raknaði úr rotinu. Óþokkarnir höfðu fært hann úr öllum fötunum nema skyrmnni og liaft fötin á brott með sér, jakka, buxur, nær- buxur, sokka og skó. Og auðvitað var peningaveskið hans horfið líka, en í því voru á fimmta þúsund kr. Hið eina verðmætia, sem eftir var, var armbandsúrið hans, en það var á sínum stað á úlnliðnum. Af ein- hverjum ástæðum höfðu ræningj- arnir ekki tekið það, kannske höfðu þeir séð til mannaferða og orðið að flýta sér í burtu. En það vár ekki aðeins eignamissir, sem Grím- ur hafði orðið fyrir, hann var einn- ig allur lemstraður á líkamanum. Augun voru hálfsokkin í bólgu eft- ir högg, állar framtennurnar brotn- ar. Þær voru allar slegnar gulli, og haldið var að óþokkarnir hefðu ætl- að sér að koma þeim í peninga. Og síðast en ekki sízt hafði verið spark að í Grím á viðkvæmasta stað milli fótanna, og hann var lengi að jafna sig eftir það áfall. Þetta höfðu greinilega verið þorparar og ill- menni, sem hér höfðu verið að verki. Lögreglan lagði sig auðvitað í framkróka að hafa . hendur í hári árásarmannanna. Ýmsir grunsam- legir útlendingar voru yfirheyrðir, en þeir gám allir sannað, að þeir hefóu verið hvergi þarna nærri, þegar árásin var gerð á Grím. Og þetta mál er ennþá alveg óráðin gáta. Sennilegasta skýringin þykir sú, að árásarmennirnir hafi verið skipverjar á einhverju útlendu skipi, sem hafi látið úr höfn fljót- lega eftir ódæðisverkið. En samt er það svo, að óhug hefur slegið á fólk' eftir þetta, og margir hafa verið deigir við að vera einir seint á ferli af .ótta við, að þeir lendi í einhverju svipuðu og Grímur. Það er allur Varinn góður. Það varð Grími nokkur huggun í þessum raunum öllum, að hann fann samúð streyma að sér úr öllum átmm. Margir kunningjar heim- sóttu hann á meðan hann var að ná sér eftir meiðslin, og nokkrir þeirra tóku sig saman um að hefja samskot til að bæta honum tjónið, sem hann hafði orðið fyrir í rán-i inu. Hann hafði misst þarna ekki aðeins peninga, héldur einnig föt og gulltennur. En ég hugsa að kunn ingjar hans hafi bætt honum allt þetta tjón og meira tií. Meira að segja bláókunnugt fólk komst hér í spilið. Einn rausnarlegur fésýslu- maður, sem þckkti hann ekki neitt sendi honum ávísun upp á tíu þús- und krónur. Það eru ennþá til í heiminum góðir menn og hjarta- hlýir, sem hjálpa þeim, sem í raun ir rata algerlega að ósekju. Og á- rásin hefur orðið Grími til góðs að því leyti, að hann er orðinn frægur maður og vinsæll, öllum verður ó- sjálfrátt hlýtt til þessa vammlausa heiðursmanns, sem svívirðilegir ó- þokkar léku svona grátt. Það var um kvöld. núna fyrir nokkrum dögum, að ég brá mér inn á veitingastað hérna í borginni. Og þar sat Grímur í stól með glas af óblönduðu whiskyi fyrir framan sig. Eg *á strax, að han vár þétt- fullur. Sat að segja varð ég hálf- hissa, því að Grímur hefur aldrei verið neinn óreglumaður. En ég skildi það vel, að taugakerfið hefði farið úr skorðum hjá honum "við þetta allt saman, og að engin furða væri, þó að hann fengi sér stramm- ara til að styrkja það. Eg settist við borðið hjá honum. Og þá sá ég, að hann var ennþá fyllri en mér hafði sýnzt í fyrstu, hann var að verða dauðadrukkinn. Hann var að rausa eitthvað, en það var allt sundur- laust, og ég vissi varla, hvort hann var að tala við mig eða bara við sjálfan sig. Svo var, eins og svolítið bráði af honum. „Heyrðu" sagði hann, „þú ert vinur minn, er það ekki?" JÚ, ég hélt nú það. „Á ég að segja þér nokkuð? En þú verður að lofa að segja ekki nokkurri lif- andi manneskju frá því. Þú manst þetta með árásina á mig, það hefur ekki staðið svo Iítið um hana í blöð I urðu. Eg hef núna í ein þrjú ár I unum, og ég er orðinn frægur mað- haldið annað veifið við konu uppi; ur — he-he." Svo var eins og hann ‘ætlaði að hætta. „Hvað ætlarðu að segja mér?" spurði ég. „Já, þú manst þettá með árásina, sagði hann. „Það var nú reyndar gerð á- rás á mig, helvíti mikil árás. En þetta var nú ekki alveg eins og ég sagði, það var nú svoleiðis í pott- inn búið, að mér var aldeilis ó- mögulegt að segja sannleikann. Þetta var nú allt dálítið öðruvísi. Það var kvenmaður í spilinu, skil- í Þingholtunum. Maðurinn hennar er smiður, og hann er oft að vinna utanbæjar, svo að hún er hálfein- mana greyið. Eg er orðinn hund- leiður á minni eigin kerlingu, en það er þó eitt gott við hana, að hún er svo heimsk, að það er enginn vandi að halda framhjá henni, hana grunar ekki eitt. Hún trúir því allt- að statt og stöðugt, þegar ég segi henni, að ég sé á fundum eða að spila bridge hjá kunningjum mín- um, þegar ég er í rauninni að gera allt annað. Jæja, þetta með árásina. Hún vinkona mín hringdi til mín og sagði, að allt væri í lagi, maður- inn væri að vinna austur í Árnes- sýslu, og mér heyrðist, að hana langaði talsvert mikið til, að ég kæmi. Svo ég fór til hennar, enda er ég orðinn þar húsiim kunnugur. Svo háttum við og allt er í himna lagi. En hvað heldurðu? Þegar við erum þarna í rúminu og eigum ökk ur einskis ills von, snarast karl- skrattinn hennar allt í einu inn í herbergið. Hann hafði farið svo hljóðlega, að við höfðum ekkert heyrt til hans fyrr en hann stóð þarna allt í einu' við rúmstokkinn hjá okkur. Og sá varð nú ekki blíð- ur á svipinn, þegar hann sá, hvers kyns var. Hann réðst á mig brjálað ur af reiði, gaf mér glóðaraugu báðum megin, braut úr mér allar framtennurnar og endaði með því að sparka í mig, þar sem sízt skyldi, þú skilur. Svo dró hann mig svona dasaðan og meiddan að útidynm- um og sparkaði mér niður tröpp- urnar. Þarna stóð ég á skyrtunni einni, því að öllum fötunum mín- um hélt hann eftir. Mér var fyrst skapi næst að gefa upp alla von og kalla bara á hjálp úr næstu hús- um. En ég sá, hvílíkt reginhneyksli það yrði og að allur bærinn mundi hafa mig að háði og spotti það sem eftir væri ævinnar. Eg sá, að eng- inn maður var á ferli á götunni, Framhald á 7. síðu.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.