Mánudagsblaðið - 30.09.1968, Side 4
Mánudagsblaðið
Mánudagur 30. september 1968
BlaóJynr alla
VikublaS um helgar.
Ritstjóri og ábyrgðármaður: Agnar Bogason.
Verð í lausasölu kr. 15,00. — Áskriftargjald kr. 600,00 á árL
Símar ritstjómar: 13496 og 13975. Auglýsingasími: 13496.
Prentsmiðja Þjóðviljans.
Dauðateygjur kommúnismans —
Þegar berklum var útrýmt á íslandi. var starf-
semi til varnar gegn beim sjúkdómi snúið yfir í
öryrkjabandalag. Þegar kommúnisminn er að deyja
á íslandi var miklum hluta starfseminnar snúið yf-
ir í Alþýðubandalag.
Þannig verða endalok höfuðmeinsemda, en að
öllu jöfnu koma aðrar meinsemdir í staðinn, máske
ekki eins miklar og þær sem útrýmt var, en engu ao
síður hvimleiðar. Kommúnisminn í heiminum er nú
stöðugt að missa völdin, þótt ekki sé því neitað, að
ýmis form sósíalismans hafa útbreiðst og eiga stöð-
ugu fylgi að fagna. í höfuðvígi kapítalismans,
Bandaríkjunum, hefur viss tegund sósíalisma náð
nokkrum framgangi, og í V-Evrópu nær hann sífellt
traustari tökum, þótt hvergi nærri eins gífurlega og
á Norðurlöndum. f höfuðstöðvum kommúnismans
er litið á aukið frjálsræði í leppríkjum þeirra hörð-
um augum. Sannur kommúnismi þolir enga mynd
frjálsræðis og gagnrýni, jafnvel í smæsta formi
skapar frelsið hættur fyrir kommúnismann og get-
ur kollvarpað kerfinu.
Þetta er nú að koma bezt í ljós í Tékkóslóvakíu,
en þar ríkti í nokkra mánuði veikburða spegilmynd
nokkurs frjálsræðis. Nú hafa Rússar barið allt slíkt
á bak aftur, kúgað forustumenn frelsisangans, rek-
ið gagnrýnendur, lokað landamærunum og náð und-
irtökunum svo gjörsamlega að engin von er til, að
neisti þessa óburðuga frjálsræðis verði nokkúrn-
tíma að báli.
Það var skrítið hve geysileg samúðaralda reis
upp um allan hinn vestræna heim þegar Rússar her-
námu Tékkóslóvakíu. Öll önnur sjónarmið og gerð-
ir voru óhugsanleg frá sjónarmiði Rússa. Ef ofan á
óþægðina í Tító og bölvað bröltið í Rúmeníu bætt-
ist svo við að Tékkóslóvakía bryti af sér járnin, þá
var öll leppríkjablokkin í hættu og þar með her-
vald og mikill styrkur horfinn úr rússnesku sam-
stæðunni. Rússar áttu ekki annan leik. En nú í
fyrsta skipti er þeir reyndu að sýna snefil af mann-
úð, mistókst þeim og biðu alvarlegan pólitískan
hnekki á alþjóðavettvangi. Þeir höfðu ekki lepp-
stjórn tilbúna í Tékkóslóvakíu og sýndu leiðtog-
unum þar óvænta miskunn, sem reyndar varð þeim
dýrkeypt.
Alræði kommúnismans er að riðlast smátt^ og
smátt en í stað hans heldur sósíalismi innrás sína.
Vestrænir „kommar" hníga æ meira til „hægri” í
skoðunum sínum, veita meira frelsi í athöfn og
hugsun, hagnýta sér það í iðnaði og viðskiptum sem
hagstæðast hefur reynzt í hinum vestræna heimi.
Kerfi sósíalismans með öllu sínu frjálsræði eins
og hann er t.d. í Svíþjóð er skammgóður vermir,
þótt bað land njóti meiri gæða af náttúrunnar hendi
en flest önnur. Gengdarlaust eftirlæti við almenn-
ing, taumlausir almenningsstyrkir og almanna-
tryggingar er ekki hollur grundvöllur til lengdar,
eins og Svíar eru að finna. Velsældin þar byggist a
auðæfum jarðar, en ekki á sjálfu kerfinu. Danir
eru að súpa seyðið af því sama og brátt er komið að
okkur ef hvergi er spyrnt við fótum. v
Það er því aualjóst, að þótt kommúnisminn hverfi
og tegund sósíalisma ryðji sér til rúms, þá er ekki
bar með sagt, að fundin sé allsherjarlausn. Hvorugt
þessara pólitísku kerfa hefur enn reiknað með hinu
veigamesta. En það er einfaldlega mannlegt eðli.
i
I
!
!
I
KAKALI SKR/FAR:
I hreinskilni sagt
SAM og Grikkir — Sænska fordæmið — Rássar og lýðræðið — Afhroð
í Tékkóslóvakíu — Frelsishugtak Svía — Samvinnan við nazista þar til
... — Grikkir virðast ánægðir —
Hinir kúguðu og veröldin öll
vissi ekki um heppni sína og
hamingju þegar hann Sigurður
A Magnússon var í heiminn bor
inn. Ekki var þá vitað sem nú,
að þessi efnilegi piltur, alinn
upp á útskika í túni Hallgerðar
langbrókar, myndi á röskleika-
árum sínum verða einn merkasti
og um leið furðulegasti fyrir-
.svari hinna undirokuðu. Fræg-
astur varð þó SAM fyrir afstöðu
sína og baráttu í sjónvarpsmál-
inu á Keflavíkurflugvelli. Kom
þar skjótt í ljós hvílíkum reg-
inhæfileikum hann hafði á að
skipa. Þegar sextíu þúsund
manns nutu þess að skoða frítt
erlendar kvikmyndir, fræðslu-
þætti, Iistaþætti o. s. frv., en
kommar og 60-menningarnir
töldu það. hættulegt, þá greip
SAM þegar í hönd sér sverð 60-
menninganna, barðist af dáð fyr
ir lokun sjónvarpsins, sem síðar
varð. En hér barðist Sigurður
aðeins fyrir menningarmálum,
sem er ein sérgrein hans af
mörgum.
í var sáu Rússar að ekki
dyggði að láta Tékka leika Iaus-
um hala í Tékkóslóvakíu, enda
þjóðin orðin fyrir geigvænleg-
um vestrænum áhrifum og var
komin á góða Ieið að verða vel
sjálfbjarga, og vinsæl grann-
þjóð. Rússar sáu ekki aðeins, að
þessi stefna Tékka væri bein
hætta hinum rétta og sanna
kommúnisma, heldur myndi
jafnframt brölt Tékka stefna
valdablökk þeirra austan tjalds
í hættu. Eftir að hafa sett á svið
vinaheimsókn og málefnalega
fundi brostu Rússar og Tékkar
framan við Ijósmyndavélar,
kysstust og þar með reiknuðu
sumir að æfintýrið væri búið og
Tékkar fengju að leika sér á-
fram. Nú, það fór ekki betur en
svo, að fyriravaralaust réðust
Rússar á Tékka, hernámu land-
ið, bundu aðalleiðtogana hönd-
Um og fótum eins og stórgripi
og fluttu þá fangna til Moskvu.
Eftir tilhlýðilegt tiltal, komu
þeir aftur aúðmjúkir og illa
h^ldnir en síðan hljóp Jás fyrir
nægtabrunn Tékka.
Um líkt leyti og þetta skeði
rak grísk-amerískur flóttamaður,
frá Grikklandi, upp skaðræðis
og örvæntingaróp suður í Sví-
þjóð. Nálega enginn skipti sér
af ópum þessum, en þau særðu
hjarta og sál Sigurðar. Grikki
þessi er sonur kunns en aldraðs
grísks stjórnmálamanns, sem
settur var frá völdum en sonur-
inn flúði, enda hafði hann líka
dablað í stjórnmálum þar.
Nokkrrir aðrir .vinstri menn og
kommar, ásamt konungsnefn-
unni flúðu og langt. Tilefni ör-
væntingarópsins af Svíþjóðu var
eins hlálegt og það sýndi vel
hversu grískum pólitíkusum er
farið. Herforingjar og hægri
menn höfðu tekið höndum sam
an, sparkað stjórninni og tekið
sjálfir völdin. Stjórn sú, sem
sparkað var, er sennilega sú
spilltasta sem Grikkir hafa búið
við og eru þeir nú engir aukvis
ar í þeim efnum. Framfarir all-
ar voru í kaldakoli, lán og styrk
ir komu Iítið eða ekki til skila,
verkföll, og allskyns óáran þjáði
almenning og við var búið að
kommar, sem réru undir öllum
árum, myndu yfirtaka landið á
sinn lýðræðislega hátt.
Hið skjóta viðbragð hershöfð
* ingjanna, var nauðvörn, en hef-
ur þó haft þau.áhrif, að þróun
í landinu er ör, óánægja engin,
spilling hverfandi og fólkið er
farið að fá trú á öryggi og reglu
í opinberu lífi. Nokkrir óánægju
hópar gerðu usla í fyrstu, verstu
óróaseggjum'var varpað í fang-
elsi, síðan sleppt, túristar komu
og fjölgaði er á leið, en almenn-
ingur er hinn ánægðasti , vel-
megun aukin. Konungurinn
reyndi að gera uppreisn en eng-
inn sinnti því, jafnvel sumir and
stasðingar stjórnarinnar hreyfðu
sig ekki. Ferðamenn sem þaðan
koma skipta hundruðum þús-
unda segja allt rólegt og fólkið
ánægt.
Að dómi Svía og Sigurðar að
ógleymdum flóttamanninum er
þetta algjörlega óþolandi ástand.
Sigðurður gekk milli félaga hér
stofnandi Grikklandsvinafélag,
sem berðist fyrir lýðræði í Grikk
landi. í hópinn fékk hann nokk-
■ur íslenzk félög, kerlingasam-
kundu eina og allt var sniðið að
fyrirmynd Svía. Hver tilgangur
er í þessum efnum, er ómögu-
legt að segja, því sjálfur flótta-
maðurinn vill ekki hingað koma
enn sem komið er.
Ástæðan fyrir þessu skrifi
mínu er ekki sú, að ég hafi á
móri stjórnarbreytingu í Grikk-
Iandi. Mér finnast afskipti
manna eins og Svía og SAMs
svo hlægileg og óraunsæ, sem
frekast verður séð. Svía má
skilja. Þeir hafa verið að þessu
brölti árum saman, enda orðnir
að athlægi fyrir samþykktir og
kynóra. Ef heilindi fylgdu þá
myndi ég líta öðruvísi á málið
en svo er ekki. Skoðum afstöðu
Svía, sem eru fordæmi að brölti
SAMs hér heima. Spánn hefur
búið við einræði síðan 1937,
Portúgal lengur. Svíar hafa
aldrei sagt orð. Þýzkaland bjó
við einræði, Ítalía, en allt stríð-
ið fylgdu Svíar mest þýzkum,
hjálpuðu þeim í viðskipmm og
öllu öðra, en snéru við þeim
bakinu er þeir vora að tapa.
Heilindi heitir þetta á sænsku.
Eftir stríðið hrifsuðu Rússar
hvern nágranna á fæmr öðram,
án þess að Svíar hreyfðu hönd
né fót. Síðan, ekki aðeins læsm
þeir Ausmr-Evrópu inni, heldur
svipm hverja þjóðina á fæmr
annarri öllu frelsi. Við öllu
þessu þögðu sænsku friðarvin-
irnir. Síðan hófust sjálfstæðis-
baráttur í vanþróuðum Iönd-
um. Þá fóra þeir sænsku enn
á stúfana, og lenm nú í Af-
ríku. Og þá kom Svíinn enn
í Ijós. Andúð á kynþáttahatri
varð nú aðalsmerki sænskra
sympatiserara. Nú fóru Svíar að
slá sér upp í heiminum. Þeir
fylkm með nýju „lýðveldunum"
frá Afríku á þingi S.Þ. um að
fordæma S-Afríku. S.Afríku-
stjórnin bauð fulltrúum Skandi-
navíulandanna suður þangað,
frjálsar hendur, en Svíar svör-
uðu: við vimm þetta allt bemr.
Nú vita það orðið allir að S,-
Afríka, Rhodesia og eitt eða
tvö önnur ríki í Afríku hafa
langhæsm lífsskilyrði svartra
manna, svo háa, að ólíklegt má
teljast að nýju ríkin svörm komi
í grennd við þau næsrn' árin.
Vandamál S-Afríku er m.a. að
bægja innfæddum frá næsm
löndum að laumast inn í S-Af-
ríku og fá þar atvinnu. Er þetta
hreinasta vandamál. Þessi smtta
frásögn sýnir Svíann eins glöggt
í þessu hlutverki og friðarhlut-
verkinu.
En hví Grikkland. Þetta er
ein ágæt viðskiptaþjóð okkar,
hefur aldrei gert okkur mein.
Hví eigum við að elta sænska og
danska krata? Málfrelsi? Var
ekki helzti samstarfsmaður krat-
ans Krag, rekinn úr dönsku
stjórninni fyrir að hafa skoðun?
Við íslendingar ætm að láta inn
anríkismál þjóða afskiptalaus,
einkum varast allt samneyti við
sænska hræsnara. Hlutverk
SAM er algjörlega óskiljanlegt.
Hversvegna ekki mótmæla ein-
ræði um allan heim? Hví pikka
í einstök Iönd, og þá vinaþjóðir
okkar. Við erum ekki nú það
vel settir að þola gagnráðstaf-
anir af þjóðum, sem við að á-
stæðulausu höfum svívirt.
Eg skrifaði bréf um þetta í
fyrra en það birtist ekki. Máske
birtið þið þetta, því þetta er
sannleikur hvort heldur snertir
Tékka, Grikki eða S-Afríku.
(Stytt, aðsent).
BSB.
!
i
i
|
I
AUGLÝSID !
MÁNUDAGSBLADINU
»
I
/