Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 1
Sólmyrkvi
sást víða
Milljónir nýttu sér tækifærið og
fylgdust með hringmyrkva | 14
Forboðna
kvikmyndin
Hispurslaus sýn á innviði Tíbets
og vekur fólk til umhugsunar | 46
Íþróttir í dag
Peking. AFP. | Simpansa í kínverskum
dýragarði hefur tekist að losa sig úr viðj-
um tóbaksfíknar eftir að hafa reykt í sex-
tán ár, að sögn kín-
versku fréttastofunnar
Xinhua í gær.
Ai Ai, 27 ára apynja í
Shaanxi-héraði, byrjaði
að reykja árið 1989,
skömmu eftir að fyrsti
maki hennar drapst.
Hún tók síðan að keðjureykja árið 1997
þegar annar maki hennar drapst og dótt-
ir hennar fór í annan dýragarð.
„Fyrstu dagana þrábað hún stundum
um sígarettur en eftir því sem líf hennar
varð litskrúðugra tók hún að gleyma
þeim smám saman,“ hafði fréttastofan
eftir einum starfsmanna dýragarðsins.
Þeim tókst að venja apynjuna af tóbakinu
með því að breyta lífsmáta hennar, láta
hana stunda göngur og æfingar, leyfðu
henni að hlusta á popptónlist og gáfu
henni ýmislegt góðgæti í hvert mál.
Apynjan sigrað-
ist á fíkninni
MIKIÐ álag hefur verið á starfsfólki
Landspítala – háskólasjúkrahúss und-
anfarnar vikur og mánuði, yfirlagnir
hafa verið á mörgum sviðum og sjúkling-
ar lagðir inn á ganga.
Að sögn Eydísar Sveinbjarnardóttur,
sviðsstjóra hjúkrunar á geðsviði, kemur
álagið alltaf í sveiflum en hún segir að
ástandið að undanförnu megi að ein-
hverju leyti rekja til manneklu á hjúkr-
unarheimilum borgarinnar þar sem með-
al annars hafi verið lokað fyrir innlagnir.
Eydís segir yfirleitt vera mikið álag á
spítalanum en það hafi keyrt úr hófi í
septembermánuði. Hún merkir þó breyt-
ingar til batnaðar.
Mikið álag
í september
Lúxemborg. AFP, AP. | Evrópusambandið hóf seint
í gærkvöldi viðræður við Tyrki um hugsanlega
inngöngu þeirra í sambandið eftir að stjórn Aust-
urríkis féll frá andstöðu sinni við að Tyrkjum
yrði boðin full aðild að sambandinu.
Evrópusambandið samþykkti einnig að hefja
aðildarviðræður við Króatíu.
Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands,
fór á fund utanríkisráðherra ESB-landanna 25 í
gærkvöldi til að hefja aðildarviðræðurnar form-
lega eftir að tyrkneska ríkisstjórnin samþykkti
skilmála Evrópusambandsins fyrir viðræðunum.
„Við höfum náð sögulegum áfanga. Viðræður
um fulla aðild Tyrklands hefjast í nótt,“ sagði
Abdullah Gul áður en viðræðurnar hófust form-
lega í Lúxemborg. „Tyrkland verður eina músl-
ímalandið í Evrópusambandinu.“
„Sögulegur dagur“
Viðræðurnar áttu að hefjast með formlegri at-
höfn í Lúxemborg klukkan þrjú eftir hádegi í
gær en henni var frestað eftir að stjórn Austur-
ríkis krafðist þess að Evrópusambandið áskildi
sér rétt til að veita ekki Tyrkjum fulla aðild að
sambandinu, heldur sérstakt samstarf. Utanrík-
isráðherra Austurríkis, Ursula Plassnik, féll að
lokum frá þessari kröfu.
„Þetta er svo sannarlega sögulegur dagur fyr-
ir Evrópusambandið og alla heimsbyggðina,“
sagði Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands.
Hann bætti við að rúm 40 ár væru liðin frá því að
Tyrkir hefðu fyrst fengið ávæning um aðild að
sambandinu.
Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýska-
lands, fagnaði einnig samkomulaginu en tók fram
að viðræðurnar gætu tekið fimmtán ár og jafnvel
lengri tíma.
Í mörgum löndum Evrópusambandsins er
mikil andstaða við inngöngu Tyrklands í sam-
bandið. Skoðanakannanir benda til þess að aðeins
um 10% Austurríkismanna séu hlynnt aðild
Tyrklands.
Viðræður hafnar við Tyrki
Samþykktu skilmála ESB eftir að Austurríkismenn gáfu eftir
TEKJUAFGANGUR ríkissjóðs á
næsta ári verður 14,2 milljarðar
króna gangi eftir áætlun fjárlaga-
frumvarps fyrir árið 2006. Árni M.
Mathiesen fjármálaráðherra kynnti
frumvarpið í gær og lagði það fram
á Alþingi. Tekjuafgangurinn svarar
til 1,4% af landsframleiðslu.
„Þetta er gríðarlega sterk staða
sem kemur fram hjá ríkissjóði og
stenst afskaplega vel samanburð við
allt það sem er að gerast í nágranna-
löndum okkar og þeim löndum sem
við berum okkur saman við og gefur
okkur ýmsa möguleika,“ sagði Árni.
Handbært fé frá rekstri er áætlað
tæplega 11 milljarðar kr. og láns-
fjárafgangur á næsta ári 9,6 millj-
arðar. Þá er áformað að greiða niður
skuldir á næsta ári fyrir 6,6 millj-
arða kr. auk þess sem greiða á inn á
lífeyrisskuldbindingar ríkisins.
,,Staða ríkissjóðs er traust og að-
halds er gætt í útgjöldum,“ sagði
Árni í gær. Ekki er gert ráð fyrir
áframhaldandi vexti efnahagslífsins
í eins miklum mæli á næsta ári og á
yfirstandandi ári. Fjármálaráðu-
neytið spáir 4,6% hagvexti á næsta
ári og 3,8% verðbólgu. Áætlað er að
skatttekjur ríkissjóðs verði 301,4
milljarðar sem er svipuð fjárhæð og
á yfirstandandi ári án fjármagns-
tekjuskatts ríkissjóðs af söluhagn-
aði Landssímans.
Heildarútgjöld ríkissjóðs á næsta
ári eru áætluð 313,2 milljarðar
króna eða 16,8 milljörðum kr. hærri
en í fjárlögum yfirstandandi árs og
hækka um 8,8 milljarða kr. ef miðað
er við áætlaða útkomu á árinu 2005.
Útgjöldin verða aukin á nokkrum
sviðum á næsta ári, hlutfallslega
mest til menntamála eða um 12% en
einnig vegna málefna fatlaðra, lög-
gæslu og öryggismála um tæplega
11% frá fjárlögum í ár. Ráðuneytin
taka hins vegar á sig um eins millj-
arðs kr. lækkun útgjalda frá því sem
áður hefur verið gert ráð fyrir og
ríkisstjórnin samþykkti sérstaklega
rúmlega eins milljarðs kr. lækkun
útgjalda, m.a. vegna lyfja um 300
milljónir, vaxtabóta sem lækka um
250 milljónir, frestunar hafnarfram-
kvæmda um 200 milljónir og frest-
unar verkefna Ofanflóðasjóðs sem
lækkar útgjöldin um 100 milljónir.
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2006 var lagt fram á Alþingi í gær
14,2 milljarða afgangur
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fjárlagafrumvarp | Miðopna
Þjóðhagsspá | 11
AUKIN framlög til menntamála
eru boðuð í fjárlagafrumvarpi
2006. Lagt er til að rekstrargjöld
á sviði menntamálaráðuneytisins
hækki um 2.872 milljónir frá fjár-
lögum 2005 og verði 26,3 millj-
arðar.
Auk launa- og verðlagshækk-
ana er m.a. gert ráð fyrir um 400
milljóna kr. auknum framlögum
til kennslu í framhaldsskólum, 227
milljóna aukningu til rannsókn-
armála, 266 millj. kr. vegna
kennslu í háskólum og 90 millj. kr.
viðbótarframlögum vegna tíma-
bundinna verkefna sem tengjast
breyttri skipan náms til stúdents-
prófs.
Meira til menntamála
♦♦♦
FLUGVÉLIN var á leið til lend-
ingar þegar ljósmyndari Morg-
unblaðsins átti leið um Tungu-
bakkaflugvöll í Mosfellsbæ í
loftið, því að sögn þeirra sem til
þekkja hefur veður verið óvenju
vont til loftferða í smávélum
síðustu vikurnar.
og erlendis. Vafalítið eru marg-
ir flugáhugamenn á smáflug-
vélum sem grípa tækifærið
þessa dagana til að komast í
gær. Vélin er af gerðinni
Yak-52 og er hér um að ræða
rússneska flugvél sem vinsæl
hefur verið í listflugi bæði hér-
Morgunblaðið/RAX
Frjáls eins og fuglinn
STOFNAÐ 1913 268. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Víkingar hafa rætt við Loga
Meiðsli hjá Svíum Gunnar skoraði
og meiddist Sigur hjá Djurgården