Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ESB OG TYRKIR SEMJA Stjórn Tyrklands samþykkti í gærkvöldi skilmála Evrópusam- bandsins fyrir aðilarviðræðum við landið eftir að stjórn Austurríkis féll frá andstöðu sinni við að Tyrkjum yrði boðin full aðild að sambandinu. Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, hélt til Lúxemborgar til að hefja viðræðurnar formlega. Fylgst með sólmyrkva Milljónir manna í Evrópu og Asíu fylgdust með sjaldgæfum sólmyrkva sem hóf að færast yfir Portúgal og Spán rétt fyrir klukkan átta í gær- morgun að íslenskum tíma. Bush tilnefnir dómara George W. Bush Bandaríkja- forseti tilnefndi í gær helsta ráð- gjafa sinn í lögfræðilegum efnum, Harriet Miers, í embætti hæstarétt- ardómara í stað Söndru Day O’Con- nor sem hyggst láta af embætti. Fjárlagafrumvarp Aukin framlög til menntamála eru boðuð í fjárlagafrumvarpi 2006. Lagt er til að rekstrargjöld á sviði menntamálaráðuneytisins hækki um 2.872 milljónir frá fjárlögum 2005 og verði 26,3 milljarðar. Kaldur september Septembermánuður var kaldur um allt land þrátt fyrir að fyrri hluti mánaðarins hafi verið í meðallagi. Í Reykjavík mældist meðalhitinn rúmri gráðu undir meðallagi og á Akureyri 1,6 gráðum undir með- altali. Síðast var septembermánuður þetta kaldur um allt land árið 1982. Einkaneysla minnki Í þjóðhagsspá fjármálaráðuneyt- isins fyrir árin 2005 til 2010 er reikn- að með að hagvöxtur í ár verði um 6% og 4,6% á næsta ári. Einnig er gert ráð fyrir að það dragi úr vexti einkaneyslu á næsta ári. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %         &         '() * +,,,                     Í dag Fréttaskýring 8 Forystugrein 26 Úr verinu 12 Viðhorf 28 Viðskipti 12/13 Bréf 31 Erlent 14/15 Minningar 32/36 Höfuðborgin 17 Dagbók 40 Akureyri 18 Víkverji 40 Austurland 18 Velvakandi 41 Landið 19 Menning 44/49 Daglegt líf 21 Ljósvakamiðlar 50 Menning 21 Veður 51 Umræðan 24/31 Staksteinar 51 * * * ÓHÁÐIR frambjóðendur, þ.e. óflokksbundnir, sem hyggjast bjóða sig fram í stuðningsmanna- prófkjöri Samfylkingarinnar vegna borgarstjórn- arkosninganna í vor, verða að fá meðmæli frá 30– 50 félagsmönnum til þess að framboð þeirra sé gilt. Páll Halldórsson, formaður fulltrúaráðs Sam- fylkingarinnar í Reykjavík, segist reikna með að óháðir frambjóðendur geti komist að því upp á eig- in spýtur hverjir af þeirra stuðningsmönnum eru skráðir í Samfylkinguna. „Ég reikna með því að þeir geti komist að því. Ég geri nú ráð fyrir því að ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram þá byrji hann að kanna hvort hann hafi eitthvert fylgi í þessum hópum, það er nú kannski ekki svo flókið, ekki ef hann ætlar í þetta af alvöru. Og ef hann byrjar á að klikka á því, þá sé ég ekki að hann eigi von á miklu fylgi,“ sagði Páll í samtali við Morgunblaðið. Félagaskrá- in í Samfylkingunni muni ekki liggja frammi. Aðspurður sagði Páll að þessar reglur hömluðu framboðum óháðra að vissu marki, þ.e. þeir yrðu að hafa þennan stuðning flokksmanna. Hann gerði ráð fyrir því að þeir sem réðu úrslitum í prófkjör- inu væru flokksbundnir. „Ef menn ná ekki þessum lágmarksstuðningi þar finnst mér ekki mjög lík- legt að þeir nái langt í svona prófkjöri.“ Páll sagði að kosningarétt í prófkjörinu hefðu félagsmenn í Samfylkingunni og óháðir kjósendur sem hefðu lýst yfir stuðningi við Samfylkinguna með einhverjum hætti. Prófkjörið mun fara fram dagana 11. og 12. febrúar næstkomandi. Óháðir frambjóðendur verða að hafa stuðning 30–50 samfylkingarfélaga Komist sjálfir að því hverjir eru skráðir í flokkinn FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti íranska leikstjór- anum Abbas Kiarostami sérstök heiðursverðlaun á Bessastöðum í gær fyrir framlag sitt til kvikmynda- listarinnar. Kiarostami er af mörg- um talinn einn merkasti kvikmynda- leikstjóri samtímans og hefur hann hlotið fjölda verðlauna á ferli sínum, meðal annars Gullpálmann í Cannes. „Kiarostami var mjög hrærður, ánægður og þakklátur yfir þeim heiðri sem honum var hér sýndur,“ sagði Hrönn Marinósdóttir, stjórn- andi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíð- ar í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið að athöfn lokinni. Upplýsti hún blaðamann um að Kiarostami hefði framlengt dvöl sína á Íslandi sökum þess hversu hrifinn hann væri af landinu. „Hann átti bókað far heim í fyrramálið [þriðjudagsmorgun] en framlengdi dvöl sína hér um sólarhring til þess að geta ferðast meira um landið,“ sagði Hrönn og tók fram að Kiar- ostami hafi sérstaklega hrifist af náttúru landsins og notað tækifærið til að ferðast eins mikið um landið og hægt er. „Í gær heimsótti hann Þingvelli og daginn þar áður var hann á Snæfellsnesi og á morgun liggur leið hans síðan að Gullfossi,“ sagði Hrönn og tók fram að sífellt hefði þurft að stoppa bílinn á ferða- lagi Kiarostami til þess að hann gæti myndað. Langar aftur til Íslands „Hann rýkur alltaf út úr bílnum til að mynda. Hann segir raunar sjálfur að hann hafi í augnablikinu meiri ánægju af því að taka ljósmyndir en að kvikmynda,“ sagði Hrönn og upp- lýsti að Kiarostami hefði haft orð á því að hann langaði til að koma aftur til Íslands til þess að taka fleiri ljós- myndir. Eins og sagt var frá hér í blaðinu í gær var um helgina opnuð sýning með ljósmyndum Kiar- ostamis þannig að hver veit nema Ís- landsmyndir hans endi á ljós- myndasýningu úti í heimi einhvern tíma í náinni framtíð. Morgunblaðið/Kristinn Íranski leikstjórinn Abbas Kiarostami tekur við heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar. Leikstjórinn er mjög hrifinn af landi og þjóð og langar og koma hingað aftur. Framlengdi dvöl sína Leikstjórinn Abbas Kiarostami heiðraður á Bessastöðum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra segir ráðuneytið hafa verið í viðræðum við heimilislækna út af viljayfirlýsingu sem ráðherra gaf út á sínum tíma. Var ráð- herra spurður í tilefni af ályktun aðalfundar Læknafélags Íslands um aukið sjálfstæði heimilis- lækna. „Meiningin var að halda þeim viðræðum áfram í sumar. Það hefur þó dregist vegna ýmissa óviðráðanlegra orsaka og ég vona að það fari aftur af stað nú í haust. Það er ætlun okkar að halda þeim áfram,“ segir Jón. Viljayfirlýs- ing ráðherra gekk út á það að gefa fleiri möguleika og einnig að Heilsu- gæslan mæti þörfina fyrir viðbót- arlækna á höfuðborgarsvæðinu. „Við höfum gengið út frá því að hér séu sjálfstætt starfandi heimilislæknar á þessu svæði,“ segir Jón og bætir við að það hafi verið á höfuðborgarsvæðinu sem mest hafi verið kallað eftir fleiri rekstrarformum. „Og við höfum beint sjónum okkar að þessu svæði á því sviði,“ segir Jón. Viðræðum verði haldið áfram við heimilislækna Jón Kristjánsson OLÍUFÉLAGIÐ Esso hækkaði elds- neytisverð um eina króna lítrann í gær. Magnús Ásgeirsson hjá Esso sagði að þessi hækkun endurspegl- aði hækkun á heimsmarkaðsverði, sem hefði verið hærra í síðustu viku en í vikunni þar á undan. Önnur olíufélög höfðu ekki hækkað verð hjá sér seinnipartinn í gær, að því er fram kom á heima- síðum þeirra. Einnar krónu hækkun hjá Esso ÞRÍR voru handteknir vegna fjög- urra fíkniefnamála sem komu til kasta lögreglunnar í Hafnarfirði um síðustu helgi. Lagt var hald á lítilræði af hassi og amfetamíni og framkvæmdar tvær húsleitir ásamt því sem tvívegis var leitað í bílum við almennt eftirlit. Tvö málanna eru upplýst hjá lögreglu. Þrír teknir vegna fíkniefna HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur úrskurðað þrjá pilta undir tví- tugu í gæsluvarðhald vegna árás- arinnar í heimahúsi í Garðabæ aðfaranótt sunnudags. Beitt var eggvopni gegn tveimur piltum með þeim afleiðingum að annar þeirra höfuðkúpubrotnaði og hlaut fleiri áverka. Lögreglan í Hafnarfirði handtók fjóra pilta vegna árás- arinnar og krafðist gæsluvarðhalds yfir þremur þeirra til 7. október. Héraðsdómur féllst á þá kröfu varðandi einn úr hópnum en úr- skurðaði hina tvo í gæslu til 5. októ- ber næstkomandi. Þrír í gæslu vegna árásarinn- ar í Garðabæ Ólafsvík | Þær voru því miður ekki margar kindurnar sem björguðust úr fjárhúsbrunanum hræðilega á Knerri í Breiðuvík fyrir rúmu ári. Þó komst út sótugt og sviðið gimbr- arlamb frá Mávahlíð sem er norð- anfjalls í Snæfellsbæ. Þessi gimbur fékk auðvitað að lifa og hefði sam- kvæmt gamalli venju átt að hljóta nafnið Ófeig, Hetja, eða eitthvað því- umlíkt. Gimbrin var hins vegar látin heita Knörr. Þar með skákaði hún sænsk- um jafnréttissinnum sem þykja hinir hörðustu í heimi hér og gera þá kröfu þessa dagana að kvenkynið fái að skírast karlkynsnöfnum. Í byrjun maí fæddi Knörr litla lamb sem var á dögunum fargað. Kom þá í ljós að hið þriðja óvenju- lega hafði gerst því fallþungi dilks- ins hennar reyndist 25 kíló sem verður að teljast fáheyrt um dilk undan lambgimbur eða gemlingi. Stórt lamb gemlings

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.