Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍSLENSKU friðargæsluliðarnir í
Afganistan hafa nú lokið fimm daga
könnunarferð um nærsveitir Meym-
ana í norðurhluta landsins. Ekkert
óvænt kom upp á og fjallajeppar
hópsins reyndust vel, að sögn Arn-
órs Sigurjónssonar, skrifstofustjóra
Íslensku friðargæslunnar. Brynvörn
hefur ekki enn verið komið fyrir í
jeppunum en stefnt er að því að gera
það sem fyrst.
Til stóð að koma brynvörninni fyr-
ir í Kabúl og hafði tiltekið fyrirtæki
tekið það að sér. Þegar til kom var
brynvörnin hins vegar ekki til á lag-
er fyrirtækisins og er nú beðið eftir
að hún berist.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Arnór að það væri allur gangur
á því hvort friðargæslusveitir færu
um þessi landsvæði á brynvörðum
bílum. Sænsku sveitirnar hefðu slík-
an búnað en þær norsku ekki.
Sjö manns eru í íslenska hópnum
og fara sex af þeim í leiðangra hverju
sinni, auk afgansks túlks. Annar
jafnstór hópur heldur til Afganistans
um miðjan mánuðinn og verður hann
staðsettur í Chaghcharan í vest-
urhlutanum. Upprunalega var gert
ráð fyrir að átta manns væru í hvor-
um hóp, sjö karlar og ein kona sem
myndi gegna störfum þróunarsam-
vinnufulltrúa. Enn sem komið er eru
báðir hóparnir skipaðir sjö körlum
en úr því verður bætt um áramótin,
að sögn Arnórs, þegar gert er ráð
fyrir að þróunarsamvinnufull-
trúarnir bætist í hópana.
Íslensku friðargæsluliðarnir eru
hluti af svonefndum uppbyggingar-
og endurreisn-
arsveitum á veg-
um alþjóðlega ör-
yggisliðsins í
Afganistan
(ISAF). Arnór
hefur áður lýst
því að íslensku
hóparnir séu
hreyfanlegar at-
hugunarsveitir
sem er þýðing á
enska heitinu „Mobile Observation
Team“, skammstafað MOT. Af hálfu
ISAF ganga slíkar sveitir einnig
undir heitinu „Military Observation
Team“ eða hernaðarlegar athug-
unarsveitir. Andrew Elns, majór og
upplýsingafulltrúi ISAF í Afganist-
an, leiðrétti t.a.m. blaðamann í gær
þegar hann spurði um hreyfanlegar
athugunarsveitir frá Íslandi og sagði
að hið rétta heiti væri hernaðarlegar
athugunarsveitir. Þá sagði hann að
sveitir sem tækju þátt í verkefnum
ISAF yrðu að uppfylla lágmarksskil-
yrði um átakareglur (e. rules of en-
gagement). Reglurnar yrðu að kveða
á um að sveitirnar verndi líf, taki til
sjálfsvarna og verji hernaðarlegar
eigur. Að öðru leyti setji hvert ríki
sínar eigin reglur og benti hann
blaðamanni á að hafa samband við ís-
lenska varnarmálaráðuneytið til að
afla frekari upplýsinga.
Ýmist hernaðarlegar
eða hreyfanlegar
Þegar þetta var borið undir Arnór
benti á að þær þjóðir sem eiga þátt-
takendur í þessum sveitum skil-
greini þetta með mismunandi hætti.
Norðmenn og Litháar hefðu notast
við heitið hreyfanlegar athug-
unarsveitir en það væru helst Bret-
arnir sem notuðu heitið hern-
aðarlegar athugunarsveitir.
Arnór sagði að samkvæmt átaka-
reglum sem ISAF gæfi út mættu
friðargæslusveitir á þeim svæðum
sem íslensku sveitirnar verða á ein-
ungis nota vopnin til sjálfsvarnar og
sé ætlað að koma sér sem fyrst af
átakasvæðum. „Það liggur í hlut-
arins eðli að ef það er ráðist á þá
munu þeir verjast og koma sér í
burtu eins fljótt og þeir geta. En það
er ekki til nein nákvæm forskrift í
þeim efnum,“ sagði hann.
Samkvæmt meðalhófsreglu ætti
ekki að nota meira afl en nauðsyn
krefði. Vonandi þyrftu íslensku
sveitirnar þó aldrei að grípa til
vopna og hann bætti við að áhættu-
mat væri lágt á þessum svæðum.
Aldrei hefði verið ráðist á frið-
argæslusveitir í norður- og vest-
urhluta Afganistans. Arnór sagði að
hlutverk íslensku sveitanna fælist
ekki í því að verja afganska borgara
fyrir árásum. Þær myndu hugs-
anlega reyna að koma í veg fyrir
átök en þetta færi eftir aðstæðum
hverju sinni.
Aðspurður sagði Arnór að hægt
væri að senda vopnaðar hjálp-
arsveitir á vettvang ef þörf krefði en
slíkt gæti þó tekið töluverðan tíma, í
allra besta falli bærist hjálpin á 90
mínútum. Í samtali við Morg-
unblaðið í apríl sagði Arnór að frið-
argæsluliðið réði fyrir hraðsveitum
sem gætu komið athugunarsveit-
unum til hjálpar á hálftíma þegar að-
stæður væru hagstæðar. Arnór
sagði að miðað við þær upplýsingar
sem hann hefði núna væri sá við-
bragðstími óraunhæfur.
Íslenska friðargæslan tekin til starfa í Afganistan
Komnir úr fyrstu
könnunarferðinni
Brynvörnin ekki enn komin í jeppa Íslendinganna
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
Íslenska friðargæslan fór út til Afganistans með fjóra sérútbúna fjallajeppa.
Arnór
Sigurjónsson
GRÍMUR Atlason, sem varð í
fimmta sæti í prófkjöri vinstri
grænna í Reykjavík vegna borg-
arstjórnarkosninganna að vori
hefur ákveðið að taka ekki sæti á
lista flokksins.
Grímur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði stefnt
á eitt af þremur efstu sætunum og
úr því það tókst ekki hefði hann
ákveðið að taka ekki sæti á listan-
um. Hann hefði verið búinn að
gera það upp við sig fyrirfram að
taka ekki sæti neðar á listanum og
eðlilegast væri að gefa það strax
upp.
Grímur var í fjórða sæti í próf-
kjörinu ef miðað er við fjölda at-
kvæða, en var færður niður í
fimmta sætið vegna reglna um
kynjahlutfall. Hann sagði það
engu breyta í þessu efni. Hann
hefði verið búinn að gera það upp
við sig að taka ekki sæti á listan-
um nema eitt af þremur efstu sæt-
unum.
„Mér fannst hreinlegast að gefa
þetta út strax, þannig að allir
vissu það og gætu einbeitt sér að
því að búa til sterkan lista og
bursta þetta í vor. Það er nátt-
úrlega það sem fólk á að gera
núna,“ sagði Grímur ennfremur.
Grímur tekur
ekki sæti á
lista VG
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Jónínu
Benediktsdóttur:
„Ég hef ákveðið að draga
framboð mitt um 5. sætið í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykja-
vík til baka. Auk þess dregst út-
gáfa bókar minnar „Ninna Nótt“
um hríð af persónulegum ástæð-
um.
Ég fer fram á það að fjölmiðlar
í eigu Baugsmanna virði friðhelgi
einkalífs og fjölskyldulífs og
haldi sig fjarri heimili mínu og
börnum.“
Jónína dregur
framboð sitt
til baka
STJÓRN Sagnfræðingafélags Ís-
lands lýsir yfir undrun á vali for-
sætisnefndar Alþingis á höfundi til
að rita sögu þingræðis á Íslandi.
Þetta kemur fram í ályktun sem
stjórn félagsins sendi frá sér í gær.
„Sú ákvörðun nefndarinnar að
ráða til verksins Þorstein Pálsson,
sendiherra og fyrrverandi alþing-
ismann og ráðherra, frekar en að
leita til einhvers úr hópi fjölmargra
vel menntaðra og reyndra sagn-
fræðinga í landinu vekur upp alvar-
legar spurningar um viðhorf ráða-
manna til háskólanáms á þessu
sviði. Ráðning fyrrverandi for-
sætisráðherra og formanns stjórn-
málaflokks vekur einnig upp þá
spurningu hvort forsætisnefnd Al-
þingis vilji ekki stefna að því að
gæta ítrustu hlutlægni við verk þar
sem væntanlega verður fjallað um
pólitísk álitamál eins og þingrof, ut-
anþingsstjórn og synjunarvald for-
seta. Ákvörðunin vekur auk þess
undrun vegna þess að undanfarin
ár hefur Alþingi staðið að útgáfu
vandaðra rita sem viðurkenndir
fræðimenn á sviði sagnfræðirann-
sókna unnu og hlutu lof fyrir. Má
þar nefna ritverkin Kristni á Ís-
landi og Endurreisn Alþingis og
þjóðfundurinn. Þrátt fyrir allt ósk-
ar stjórn Sagnfræðingafélags Ís-
lands nýráðnum höfundi verksins
velgengni í vandasömu starfi,“ seg-
ir í ályktun stjórnar Sagnfræðinga-
félags Íslands.
Lýsa undrun á
vali forsætis-
nefndar
FRAMBOÐSFRESTUR til próf-
kjörs sjálfstæðismanna í Reykjavík
rann út sl. föstudag. Prófkjörið fer
fram 4. og 5. nóvember nk.
Eftirtaldir 24 frambjóðendur
gefa kost á sér, taldir upp í staf-
rófsröð:
Benedikt Geirsson skrifstofu-
maður, Birgir Þór Bragason dag-
skrárgerðarmaður, Björn Gíslason
slökkviliðsmaður, Bolli Thorodd-
sen, formaður Heimdallar og verk-
fræðinemi, Davíð Ólafur Ingimars-
son hagfræðingur, Eggert Páll
Ólason lögfræðingur, Gísli Mar-
teinn Baldursson, dagskrárgerðar-
maður og varaborgarfulltrúi, Guðni
Þór Jónsson sölustjóri, Gunnar
Dofri Ólafsson menntaskólanemi,
Gústaf Adolf Níelsson útvarpsmað-
ur, Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarfulltrúi, Jóhann Páll Símon-
arson sjómaður, Jórunn Frímanns-
dóttir, hjúkrunarfræðingur og
varaborgarfulltrúi, Júlíus Vífill
Ingvarsson lögfræðingur, Kristján
Guðmundsson húsasmiður, Kjartan
Magnússon borgarfulltrúi, Loftur
Már Sigurðsson sölustjóri, Marta
Guðjónsdóttir kennari, Ragnar
Sær Ragnarsson, fyrrverandi
sveitarstjóri, Sif Sigfúsdóttir, MA í
mannauðsstjórnun, Steinn Kára-
son, háskólakennari og ráðgjafi,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arfulltrúi, Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir, ráðgjafi menntamálaráð-
herra, og Örn Sigurðsson arkitekt.
24 frambjóðendur í
prófkjöri Sjálfstæð-
isflokks í Reykjavík
BROTIST var inn í apótek Lyfju á
Laugavegi klukkan rúmlega 3 í
fyrrinótt. Innbrotsþjófurinn braut
rúðu og komst inn um glugga og
var á útleið með fulla vasa af lyfjum
þegar öryggisverðir handsömuðu
hann. Einnig fór viðvörunarkerfi
verslunarinnar í gang við inn-
brotið.
Öryggisverðirnir héldu þjófinum
þar til lögregla kom á staðinn og
handtók hann. Maðurinn var látinn
gista fangageymslur fram að yf-
irheyrslum.
Braust inn í
apótek Lyfju
KONAN sem hlaut alvarleg bruna-
sár í eldsvoðanum í íbúð í Stigahlíð
27. ágúst sl. liggur enn á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi. Hún
hefur verið tengd við öndunarvél
frá innlögn og er líðan hennar
óbreytt, að sögn læknis.
Óbreytt líðan
eftir bruna
HEIMSSÝNINGUNNI EXPO 2005
sem fram fór í Aichi-fylki í Japan er
lokið eftir að hafa staðið yfir und-
anfarna sex mánuði. Sýning-
argestir urðu mun fleiri en búist
var við eða alls rúmar 22 milljónir
gesta, þar af heimsóttu 2,3 milljónir
gesta norræna skálann sem var
samstarfsverkefni Íslands, Dan-
merkur, Finnlands, Noregs og Sví-
þjóðar. Skálinn varð einn sá vinsæl-
asti á sýningunni en þar voru
Norðurlöndin kynnt að mestu sem
eitt svæði. Fjöldi íslenskra lista-
manna kom fram á sýningunni, m.a.
á þjóðardegi Íslands í sumar, og var
mjög góður rómur gerður að fram-
lagi þeirra.
Fleiri sýningar-
gestir á EXPO
en búist var við