Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ENDURGREIÐSLUR vegna refa-
og minkaveiða eru færðar í sama
horf og fyrir árið 2003 samkvæmt
fjárlagafrumvarpi næsta árs, auk
þess sem gert verður sérstakt átak í
að útrýma mink á þremur völdum
svæðum á landinu.
Sigríður Anna
Þórðardóttir um-
hverfisráðherra sagði
í samtali við Morgun-
blaðið að þessi mál
hefðu verið í ítarlegri
athugun í ráðuneytinu
í kjölfar á nefndar-
starfi í þessum efnum.
Ákveðið hefði verið að
færa endurgreiðslur
úr ríkissjóði vegna
refa- og minkaveiða í
sama form og þær
hefðu verið fyrir árið
2003. Ákvörðunin gilti
til næstu fjögurra ára
og þýddi 5,5 milljón
króna útgjöld á ári
vegna refaveiða, auk
þess sem gert væri
ráð fyrir aukafjárveit-
ingu í ár vegna þessa.
Varðandi minkinn
væri sömuleiðis verið
að hækka endurgreiðslur vegna
veiða á honum í næstu þrjú ár, en
það þýddi fimm milljón kr. árlegar
greiðslur og að endurgreiðslurnar
færu í sama form og verið hefði fyrir
árið 2003.
Sigríður Anna sagði að til viðbótar
hefði verið ákveðið að gera átak í því
að útrýma mink á þremur völdum
svæðum á landinu. Það væri gert
með veiðum, skipulagðri vöktun og
rannsóknum og til þess væru ætlað-
ar 45 milljónir króna á ári í þrjú ár.
Sigríður Anna sagði að ekki væri
búið að ákveða hvaða svæði þetta
væru. Ráðuneytið væri með það í
skoðun, en hún ætti von á því að það
yrði hægt að kynna það fljótlega.
„Við höfum fengið töluvert mikla
gagnrýni vegna þess að mink og ref
hafi fjölgað og þetta sé orðin mikill
kostnaður fyrir sveitarfélögin eftir
að þessar greiðslur voru skertar. Við
erum að koma til móts við þessa
gagnrýni og viljum
setja kraft í þetta,“
sagði Sigríður Anna
ennfremur.
Gagnagrunnur
Hún sagði að þar að
auki hefði verið ákveð-
ið að setja fjármuni í að
búa til miðlægan
gagnagrunn til að afla
betri upplýsinga um
tjón af völdum refa,
auk stofnstærðarlíkans
af refastofninum og
gerð námsefnis fyrir
veiðimenn. Heildar-
kostnaður vegna þess-
ara verkefna væri
áætlaður 6,8 milljónir
kr.
Sigríður Anna sagð-
ist telja mjög mikil-
vægt að gera átak í
þessum málum, enda
hefði hún fengið ábend-
ingar og athugasemdir alls staðar að
af landinu hvað þetta snerti.
Hún bætti því við að með svæð-
isbundna átakinu gegn mink væri
verið að kanna hvaða möguleikar
væru á því að útrýma mink og hvaða
aðferðum væri hægt að beita í þeim
efnum. Það hefðu verið uppi mis-
munandi skoðanir á því hvort hægt
væri að útýma mink úr íslenskri
náttúru, en hann væri aðskotadýr
þar. Þetta hefði verið gert erlendis
varðandi ákveðnar tegundir, eins og
til dæmis í Skotlandi, þar sem tekist
hefði að útrýma pokarottu.
Endurgreiðslur vegna refa- og minka-
veiða færðar í sama horf og fyrir 2003
Átak til útrým-
ingar á mink á
þremur svæðum
Eftir Hjálmar Jónsson
hjjo@mbl.is
„ÉG ER ennþá með gæsahúð, enda er þetta einstakt
tækifæri,“ segir Egill Árni Pálsson, tenór, sem ásamt
Jóni Leifssyni, baritón, datt í lukkupottinn nú um
helgina þegar hin heimsfræga söngkona Kiri Te
Kanawa bauð þeim að troða upp á tónleikum sínum í
Háskólabíói annað kvöld.
„Þetta er auðvitað stórkostlegt og kom rosalega á
óvart. Ég svíf eiginlega enn um á einhverju bleiku skýi.
Maður er í rauninni ekki ennþá búinn að átta sig á
þessu,“ sagði Jón í samtali við Morgunblaðið, en hann
útskrifaðist úr Söngskólanum sl. vor. „Þegar maður
byrjaði í þessu þá bjóst maður alls ekki við því að fá
tækifæri til að vinna með tveimur svona frábærum aðil-
um, þ.e. Robin Stapleton og Kiri Te Kanawa.“
Um aðdraganda boðsins segir Egill þá Jón hafa verið
svo heppna að komast að á tveggja daga „masterklass“
Kiri Te Kanawa, eða „workshop“ (söngsmiðju) eins og
hún sjálf kýs að kalla námskeið sitt.
„Við vorum átta sem vorum svo lánsöm að fá að
syngja fyrir hana og njóta leiðsagnar hennar. Að nám-
skeiði loknu þá kallaði hún á okkur Jón og bað okkur
að tala aðeins við sig og í framhaldinu bauð hún okkur
að troða upp með sér,“ segir Egill.
Afar lærdómsríkt
Spurður hvernig þeir hafi brugðist við segist Egill
eiginlega hafa orðið orðlaus. „Hvað getur maður sagt
þegar manni býðst svona einstakt tækifæri. Hún sagði
reyndar að við mættum hugsa málið til morguns, en við
þurftum ekkert að hugsa okkur um og sögðum báðir
strax já,“ segir Egill sem stundað hefur nám við Söng-
skólann síðustu ár og er á áttunda stigi.
Aðspurður segist Egill sannfærður um að bæði nám-
skeiðið og tækifærið til að syngja með Kiri Te Kanawa
á tónleikum hennar muni nýtast þeim vel í framtíðinni.
„Það hefur náttúrlega verið afar lærdómsríkt að fá að
fylgjast með Kiri syngja í návígi og þetta boð hennar
um að koma fram með sér á tónleikum er svo mikill
stökkpallur fyrir okkur sem söngvara að ég á bara ekki
orð til að lýsa því.“
Þeir Egill og Jón munu syngja hvor sína aríuna. Egill
mun syngja aríu Tamínós úr Töfraflautunni eftir
Mozart er nefnist „Dies Bildnis ist bezaubernd schön“
eða „Hve myndin undirfögur er“ og Jón aríu Renatós
úr Grímudansleiknum eftir Verdi er nefnist „Eri tu“.
Tveir ungir söngvarar með Kiri Te Kanawa á tónleikum
„Einstakt
tækifæri“
Morgunblaðið/Golli
Egill Árni Pálsson og Jón Leifsson munu syngja hvor
sína aríuna á tónleikum Kiri Te Kanawa annað kvöld.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ALÞJÓÐLEGA siglingakeppnin
Skippers d’Islande, frá Frakklandi
til Íslands og til baka, fer fram í
þriðja sinn næsta sumar og er stefnt
að því að um 20 skútur taki þátt.
„Þessi keppni hefur tekist ljóm-
andi vel og undirbúningur fyrir
keppnina næsta sumar er í fullum
gangi,“ segir Ágúst Ágústsson,
markaðsstjóri Faxaflóahafna, en að
undanförnu hefur þriggja manna
sendinefnd frá Paimpol í Frakklandi
verið hér á landi í þeim tilgangi að
vekja áhuga Íslendinga á keppninni.
Íslensk áhöfn á skútunni Bestu
tók þátt í fyrstu keppninni og nú
vilja Frakkarnir sjá sem flesta Ís-
lendinga á leiðinni frá Reykjavík til
Grundarfjarðar í keppninni næsta
sumar. „Þeir eru fyrst og fremst að
hugsa um skemmtanagildið og vilja
sjá skútur og báta af öllum stærðum
og gerðum á þessari leið sem verður
farin án tímatöku,“ segir Ágúst.
Franskra sjómanna minnst
Keppnin er haldin til minningar
um franska sjómenn sem stunduðu
fiskveiðar við Íslandsstrendur um
aldamótin 1900. 100 árum síðar datt
tveimur mönnum í franska fiski-
mannabænum Paimpol í hug að efna
til siglingakeppni þaðan til Reykja-
víkur til að minnast þessara fiski-
manna, sem margir voru frá Paim-
pol, og sambandsins við Íslands.
Keppnin fór fram í júní 2000 og auk
keppnisliðanna komu um 80 manns
frá Paimpol-svæðinu til Íslands í
tengslum við hana.
Þremur árum síðar fór keppnin
fram öðru sinni og var fyrirkomu-
lagið eins nema siglt var til Akureyr-
ar frá Reykjavík og þaðan aftur til
Frakklands. Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti, var verndari
fyrstu keppninnar og Sigríður
Snævarr, þáverandi sendiherra Ís-
lands í Frakklandi, var verndari
keppninnar 2003. Ágúst Ágústsson
segir að íslensk fyrirtæki hafi stutt
vel við bakið á keppninni og nefnir
að Icelandair, Faxaflóahafnir,
menntamálaráðuneytið, sendiráð Ís-
lands í Frakklandi og Reykjavíkur-
borg hafi verið sterkir bakhjarlar.
Ágúst segir að forsvarsmenn
keppninnar vilji kenna ungu fólki að
sigla og keppnin sé liður í því átaki.
Mikilvægt sé að keppendur skilji
sjóinn og sjómennskuna og geri sér
grein fyrir því að frönsku sjómenn-
irnir sem fiskuðu við Íslandsstrend-
ur komu að stórum hluta frá Paim-
pol.
Þriðja keppnin hefst 24. júní á
næsta ári og segir Ágúst að þegar
séu níu skútur skráðar til leiks en
skráning stendur yfir til 31. mars.
Til þessa hafi keppendur komið frá
Frakklandi og Belgíu en nú verði
líka lögð áhersla á að fá Breta, Hol-
lendinga og Þjóðverja. Allt að 15
skútur hafa tekið þátt í keppninni til
þessa en að sögn Ágústs er stefnt að
því að fá um 20 skútur fyrir utan
legginn frá Reykjavík til Grundar-
fjarðar.
Siglingakeppni milli Frakklands og Íslands í þriðja sinn
Morgunblaðið/Sverrir
Fundað um siglingakeppnina, f.v. Emile Poidvin, forseti Skippers d’Islande 2006, Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri
Faxaflóahafna, Michéle Le Reun-Gaigné, blaðafulltrúi keppninnar, og Daniel Charpentier í stjórn keppninnar.
Frönsk sendinefnd að
vekja áhuga Íslendinga
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is