Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 9
FRÉTTIR
Þri. 4/10: Persneskt sítrónukarrý
m/tveimur salötum og
hýðishrísgrjónum.
Mið. 5/10: Hnetusteik
m/valdorfsalati, tveimur salötum og
hýðishrísgrjónum.
Fim. 6/10: Spínatlasagne m/tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Fös. 7/10: Afrískur pottur
m/steiktum baunum, tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Helgin 8.-9/10: La la la lasagne
m/tveimur salötum og
hýðishrísgrjónum.
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Ull og silki
Litir: Beinhvítt og svart
Nærfatnaður frá
Haust 2005
Silkitré og silkiblóm
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin),
sími 551 2040.
Ný sending
af haustgreinum,
rósum og túlípönum
il it il i l
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Svartar samkvæmisbuxur
Svört samkvæmispils
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Töff haustvörur
Str. 38-56
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
vikan
4. okt.-
11. okt.
Haust-
vetur
2005
Opið
virka daga frá kl. 11-18
laugardaga 10-14
Sími 567 3718
RÝMINGARSALA Í 4 DAGA
Þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag
Rýmum fyrir nýrri Secret línu
20-50% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM
UNDIRFÖTUM,
HEIMASETTUM, NÁTTFATNAÐI
OG SUNDFATNAÐI
Frábær buxnasnið
KRISTINN Jóhannesson, lektor í
íslensku við Gautaborgarháskóla,
var nýlega sæmdur íslensku fálka-
orðunni í Gautaborg. Svavar
Gestsson, fráfarandi sendiherra Ís-
lands í Svíþjóð, veitti Kristni fálka-
orðuna og þakkaði honum þrjátíu
ára starf í þágu Íslands á erlend-
um vettvangi.
Kristinn lauk cand.mag.-prófi í
íslensku frá Háskóla Íslands árið
1971 en umfjöllunarefni hans var
íslensk þýðing á ljóðum sænska
skáldsins Gustaf Fröding. Kristinn
var lektor við Háskólann í Helsinki
1971–1972, við Lundarháskóla
1972–1986 og við Gautaborgarhá-
skóla frá 1972, en hann hefur búið
í Gautaborg frá þeim tíma.
Undanfarin fimmtán ár hefur
Kristinn stjórnað kór Íslendinga í
Gautaborg ásamt eiginkonu sinni
Tuulu Jóhannesson. Afhendingin
fór fram á menningarkvöldi á veg-
um íslenska safnaðarins í Gauta-
borg þar sem Sjón las úr skáld-
sögu sinni Skugga-Baldri,
Íslendingakórinn söng og Svavar
Gestsson kvaddi Íslendinga í
Gautaborg.
Sæmdur
íslensku fálka-
orðunni í Svíþjóð
Ljósmynd/Ingibjörg Pálsdóttir
Svavar Gestsson sendiherra, Tuula Jóhannesson og Kristinn Jóhannesson.
UNA María Óskarsdóttir, vara-
bæjarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins í Kópavogi og formaður
Íþrótta- og tómstundaráðs Kópa-
vogs, hefur ákveðið að gefa kost
á sér í 1. sæti framboðslista
Framsóknarflokksins við sveitar-
stjórnarkosningar n.k. vor. Una
María hefur verið þátttakandi í
uppbyggingu íþrótta- og tóm-
stundamála í Kópavogi, bæði sem
formaður ÍTK og einnig sem
varamaður í bæjarstjórn Kópa-
vogs. Hún hefur reynslu úr fé-
lagsstarfi og hefur verið virk inn-
an Framsóknarflokksins, umg-
mennafélags- og íþróttahreyfing-
arinnar og meðal foreldra. Hún
er varaformaður Freyju, félags
framsóknarkvenna í Kópavogi.
Þá var hún fyrsti formaður SAM-
KÓP, samtaka
foreldrafélaga
og foreldraráða
við grunnskóla
Kópavogs og
sat þá í Skóla-
nefnd Kópa-
vogs. Una
María hefur
meðal annars
starfað sem
verkefnisstjóri í
félagsmálaráðuneytinu og verið
aðstoðarmaður umhverfisráð-
herra.
Una María hefur áhuga á því
að vinna áfram vel að þeim mál-
efnum sem á Kópavogsbúum
brenna og býður hún sig því fram
til þjónustu þeirra, að því er seg-
ir í fréttatilkynningu.
Gefur kost á sér í
1. sæti í Kópavogi
Una María
Óskarsdóttir
NÆR tveir þriðju hlutar þjóðarinnar
eru hlynntir og rúmur þriðjungur
andvígur aðskilnaði ríkis og kirkju,
samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Er
þetta svipuð niðurstaða og síðast þeg-
ar Gallup kannaði hug fólks til máls-
ins.
Fyrrnefnd hlutföll miðast við þá
sem tóku afstöðu en ef allt úrtakið er
tekið þá er naumur helmingur hlynnt-
ur aðskilnaði, rúm 26% andvíg og ríf-
lega 24% hvorki hlynnt né andvíg.
Sem fyrr eru karlar hlynntari að-
skilnaði en konur, höfuðborgarbúar
vilja frekar aðskilnað en íbúar lands-
byggðarinnar og þeir sem styðja
Framsóknarflokkinn eru ekki eins
hlynntir aðskilnaði ríkis og kirkju og
þeir sem styðja aðra flokka.
Könnunin var gerð í síma dagana
14. til 27. september sl. Úrtakið var
1.236 manns á aldrinum 18 til 75 ára
og svarhlutfall var 61%.
Meirihluti
vill aðskiln-
að ríkis og
kirkju
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is