Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Úr verinu á morgun
„Brælan
gefur ekki
mikið“
Línuróður með
Hrólfi Einarssyni ÍS
frá Bolungarvík
HLUTFÖLL þingflokka í fjárlaga-
nefnd Alþingis breyttust eftir að
Gunnar Örn Örlygsson gekk úr
Frjálslynda flokknum yfir í þing-
flokk sjálfstæðismanna í vor. Mar-
grét Frímannsdóttir, þingflokksfor-
maður Samfylkingarinnar, segir að
Samfylkingin hafi átt fjóra þing-
menn í nefndinni, þegar Gunnar
gekk til liðs við sjálfstæðismenn.
Eftir það breyttust hlutföll flokk-
anna á þingi og þar með í fjárlaga-
nefnd. Spurningin snerist því um það
hvort Samfylkingin ætti rétt á fjórða
manninum eða Sjálfstæðisflokkur-
inn fimmta manninum, en sjálfstæð-
ismenn voru með fjóra menn fyrir.
Margrét segir að þingflokkur
Samfylkingarinnar hafi fallist á það
að láta hlutkesti ráða fjöldanum.
Fyrir nokkrum dögum hafi því hún
og Einar K. Guðfinnsson, þáverandi
þingflokksformaður sjálfstæðis-
manna, dregið númer í votta viður-
vist, og sá sem dró lægra númerið
tapaði. Margrét tapaði og því fengu
sjálfstæðismenn einn mann til við-
bótar í fjárlaganefnd í stað fulltrúa
Samfylkingarinnar. Í fjárlaganefnd
eru því fimm þingmenn sjálfstæðis-
manna, tveir þingmenn framsóknar-
manna, þrír þingmenn Samfylking-
arinnar og einn þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Samtals ellefu þingmenn.
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður Vinstri grænna, segir hins
vegar að stjórnarandstaðan hefði
getið haldið sínum fjölda í nefndinni,
ef hún hefði staðið saman og boðið
fram sameiginlegan lista.
„Okkar tilboð um samstarf í þessu
efni hefur alltaf legið ljóst fyrir frá
upphafi kjörtímabils,“ segir Ög-
mundur.
Margrét segir hins vegar að þing-
flokksformenn hinna stjórnarand-
stöðuflokkanna hafi ekki nefnt við
sig að þeir hefðu áhuga á að mynda
bandalag um þetta mál. „Þótt menn
hafi rætt í upphafi kjörtímabils um
einhverja slíka samninga þá fer
kosning fram á hverju einasta
hausti. Hafi menn áhuga á því að
breyta hlutföllunum er fyrsta skrefið
að ræða það.“ Margrét tekur þó
fram að þrátt fyrir þetta sé býsna
gott samstarf milli stjórnarand-
stöðuflokkanna á þingi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Geir H. Haarde utanríkisráðherra skoðar fjárlagafrumvarpið og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra stinga saman nefjum við upphaf þingfundar í gær.
Sjálfstæðismenn fá einn til
viðbótar í fjárlaganefnd
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, virðir fyrir sér fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.
Þingmenn kynntu sér fjárlögin
HALLDÓR Blöndal,
þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, hefur lagt
fram á Alþingi frum-
varp þess efnis að
óheimilt verði að veiða
fugla frá sólarlagi til
sólaruppkomu. Frum-
varpið felur í sér
breytingar á lögum
um vernd, friðun og
veiðar á villtum fugl-
um og villtum spen-
dýrum.
„Hér er lagt til, að
óheimilt sé að veiða
fugla frá sólarlagi til
sólaruppkomu, sem er
óhjákvæmilegt, þar sem komin er
ný tækni, nefnilega nætursjónauk-
ar,“ segir Halldór í greinargerð
frumvarpsins. „Það
hefur færst í vöxt, að
skotveiðimenn liggi
fyrir gæsum við vötn
og fljót, eftir að fer að
rökkva og dimmt er
orðið. Þegar gæsirnar
síðan koma fljúgandi
ofan af heiðunum eru
þær auðveld bráð,
sumar falla, aðrar
flögra burtu helsærð-
ar og enn aðrar sleppa
eins og gengur. At-
gangur eins og þessi á
ekkert skylt við
íþróttir eða frjálsa
útivist fremur en að skríða
eftir bökkum áveituskurða og
skjóta endur, sem þar hafa leitað
skjóls.“
Halldór Blöndal
Óheimilt verði að veiða
fugla frá sólarlagi
til sólaruppkomu
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra flytur stefnuræðu sína á
Alþingi í kvöld. Hann hefur mál sitt
kl. 19.50. Eftir það fara fram umræð-
ur um stefnuræðuna.
Hægt verður að fylgjast með um-
ræðunum í sjónvarpi og hljóðvarpi
Ríkisútvarpsins.
Stefnuræða
forsætisráð-
herra í kvöld
SEX varaforsetar þingsins voru
kjörnir á Alþingi í gær. Fyrsti vara-
forseti þingsins er Rannveig Guð-
mundsdóttir, Samfylkingu. Annar
varaforseti er Jónína Bjartmarz,
Framsóknarflokki. Þriðji varaforseti
er Birgir Ármannsson, Sjálfstæðis-
flokki. Fjórði varaforseti er Jóhanna
Sigurðardóttir, Samfylkingu. Fimmti
varaforseti er Þuríður Backman,
Vinstri grænum, og sjötti varaforseti
er Drífa Hjartardóttir, Sjálfstæðis-
flokki. Þá var m.a. kosið í fastanefndir
og alþjóðanefndir á vegum þingsins.
Varaforset-
ar kjörnir