Morgunblaðið - 04.10.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 04.10.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 11 FRÉTTIR Í ÞJÓÐHAGSSPÁ fjármálaráðu- neytisins fyrir árin 2005 til 2010, sem kynnt var með fjárlagafrum- varpinu í gær, er reiknað með að hagvöxtur í ár verði um 6,0% og að hann verði 4,6% á næsta ári vegna þess m.a. að þá byrji að draga úr stóriðjuframkvæmdum. Einnig er gert ráð fyrir því að það dragi úr vexti einkaneyslu á næsta ári. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði að meðaltali 2,5% á árunum 2007 til 2010. Þegar Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, var spurður hvers vegna gert væri ráð fyrir að drægi úr vexti einkaneyslu á næsta ári, sagði hann m.a. að búist væri við að bílainnflutningur yrði minni á næsta ári en í ár. „Við erum með 24 þúsund ný- skráða bíla í ár en erum að færa þá niður í 13 til 14 þúsund á næsta ári,“ sagði hann. Auk þess sagði hann að gert væri ráð fyrir að gengi krónunnar yrði lægra á næsta ári, en það hefði áhrif á þessi viðskipti. Minna atvinnuleysi Í þjóðhagsspá ráðuneytisins er gert ráð fyrir að atvinnuleysi verði að jafnaði um 2,2% af mannafla á þessu ári og að það lækki í 1,8% á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að verðbólgan, sem var 3,2% árið 2004, hækki í 3,9% í ár og verði svipuð á næsta ári. Í spánni er gert ráð fyrir því að gengi krónunnar og fast- eignaverð hafi náð hámarki og að gengi krónunnar lækki á næsta ári, eins og áður sagði. Þá er gert ráð fyrir að launaliður kjarasamninga taki ekki breytingum. Í skýrslu fjármálaráðuneytisins segir að helstu óvissuþættir í spánni varði frekari stóriðjufram- kvæmdir og þróun á gengi krón- unnar. „Í því samhengi má benda á að þrátt fyrir háa skuldastöðu heimila og fyrirtækja er staða rík- issjóðs með eindæmum góð og eign- ir landsmanna hafa aukist mikið. Þá eru innviðir hagkerfisins traustir og sveigjanleiki þess mikill,“ segir í niðurstöðum skýrslunnar. Þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins kynnt samfara nýju fjárlagafrumvarpi Reikna með að einkaneysla dragist saman á næsta ári Morgunblaðið/Kristinn Þorsteinn Þorgeirsson skrifstofustjóri kynnir nýja þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins í Salnum í Kópavogi. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is REKSTRARGJÖLD dómsmála- ráðuneytisins að frádregnum sér- tekjum eru áætluð rúmlega 13,7 milljarðar á næsta ári og hækka þau um 1.324 milljónir kr. miðað við fjár- lög yfirstandandi árs. Fram kemur í fjárlagafrumvarpi næsta árs að auk launa og verðlagshækkana munar hér mest um tæplega 100 milljóna kr. aukin framlög til ríkislögreglu- stjóra til að efla starf sérsveitar lög- reglunnar. Í frumvarpinu segir að gert sé ráð fyrir að sérsveitarmönnum verði fjölgað um níu hjá embætti ríkislög- reglustjóra í Reykjavík og um sex í Keflavík. Einnig er gert ráð fyrir 15 millj. kr. fjárheimild til að ráðast í skipulagsbreytingar á störfum sér- sveitarmanna hjá sýslumanninum á Akureyri. Með þeim breytingum fjölgar lögreglumönnum á Akureyri um fjóra. Sérsveitarmennirnir þar verða starfsmenn embættis ríkislög- reglustjóra en með aðsetur á Ak- ureyri og undir daglegri stjórn sýslumannsins þar. Þetta fyrir- komulag tók gildi um mitt þetta ár og verður til reynslu í eitt ár. Þá er veitt 14 millj. kr. tímabundið fram- lag til áframhaldandi kaupa á vopn- um og öðrum búnaði fyrir sérsveit- ina. Einnig er gert ráð fyrir 13 millj. kr. viðbótarframlagi til að styrkja rekstur efnahagsbrotadeildar ríkis- lögreglustjóra og fjarskiptamið- stöðvar lögreglunnar auk kostnaðar á næsta ári við formennsku Íslands í samtökum Norðurlandanna um björgunarmál. Þá er áætlað að útgjöld vegna op- inbers málskostnaðar og opinberrar réttaraðstoðar aukist um 65 millj- ónir og gert er ráð fyrir 73 millj. kr. kostnaði í tengslum við flutning Landhelgisgæslunnar í nýtt hús- næði. Varið verður 40 milljónum hvort árið 2006 og 2007 til endurnýjunar á tölvukerfum fyrir Schengen-sam- Aukin framlög til löggæslumála í fjárlagafrumvarpinu 100 milljónir króna til að efla sérsveitina Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn starfið og svonefndrar SIRENE- skrifstofu á Íslandi. 830 milljóna kr. hækkun til löggæslu og öryggismála Fram kemur í frumvarpinu að fjárheimildir stofnana og verkefna á sviði löggæslu og öryggismála hækka alls á næsta ári um liðlega 830 milljónir að undanskildum milli- færslum til annarra málaflokka og launa- og verðlagshækkunum. Að raungildi nemur hækkunin því 462 milljónum. Tímabundinn stofn- kostnaður vegna kaupa á nýjum vegabréfabókunum og framleiðslu- búnaði vegna alþjóðlegra krafna um að tekin verði í notkun ný vegabréf o.fl. nemur nærri 215 milljónum kr. Framlag til Útlendingastofnunar hækkar tímabundið á næsta ári um alls tæplega 225 millj. kr. Á hækk- unin rætur að tekja til alþjóðlegra krafna, einkum frá alþjóðaflugmála- stjórninni, Schengen-sambandinu og stjórnvöldum í Bandaríkjunum, þar sem fyrirhugað er að taka í notkun nýja tegund vegabréfa, vegabréfsáritana og dvalarleyfa sem innihalda lífkenni. Er þar m.a. um að ræða 164 millj. kr. framlag í eitt ár til endurnýjunar á vél- og hug- búnaði og til kaupa á sérstökum fingrafaralesurum hjá sýslumanns- embættum og nýjum vegabréfabók- um, sem innihalda örflögu með upp- lýsingum um lífkenni handhafa. FÉLAGIÐ Andríki hefur skorað á launagreiðendur að sundurliða á launaseðlum hvernig staðgreiðsla af launum skiptist á milli ríkis og sveit- arfélaga. Jafnframt eru ríki og sveit- arfélög hvött til þess að huga að ein- faldari og gegnsærri skiptingu á þeim tekjum sem þau hafa af launa- fólki. Fram kemur í tilkynningu af þessu tilefni að maður með 124 þús- und kr. tekjur á mánuði greiðir eng- an tekjuskatt en fullt útsvar til sveit- arfélaga. Þannig greiði tveir þriðju framteljenda skatta til ríkisins af launatekjum sínum en 97% greiði út- svar til sveitarfélaga. Í tilkynningunni segir að það sé erfitt fyrir launþega að átta sig á hversu stórtæk sveitarfélögin eru í skattheimtu af almennum launa- tekjum. „Andríki telur það mikilvægt að- hald fyrir stjórnmálamenn að þessi skipting, í tekjuskatt til ríkisins og útsvar til sveitarfélaga, sé aðgengi- leg og sýnileg fyrir hinn almenna launamann. Ekki síst nú þegar fram- undan eru kosningar til bæði sveit- arstjórna og alþingis á næstu tutt- ugu mánuðum,“ segir ennfremur. Útsvar komi fram á launaseðlum GJALDSVÆÐI leigubíla á höfuð- borgarsvæðinu og Suðurnesjum voru sameinuð í eitt um mánaða- mótin. Þýðir það að viðskiptavinir sem þurfa að taka leigubíl milli höf- uðborgarinnar og staða á Suður- nesjum borga ekki eftir tvöföldum taxta heldur venjulegt innanbæjar- gjald. Nokkur lækkun verður þann- ig á dagtaxtaverði til Keflavíkur- flugvallar. Eyþór Birgisson, formaður stjórnar leigubílastöðvarinnar Hreyfils, segir að hingað til hafi verið boðið upp á tilboð sem var nokkuð undir taxta, en þá borguðu farþegar 7.500 kr. fyrir farið. „Nú liggur gjaldið einhvers stað- ar í kringum 5.500 kr. í dagtaxta. Ég held að það sé þá kannski í kringum 7.700 krónur í kvöld- og helgartaxtanum,“ segir Eyþór og tekur fram að þar sé miðað við fjögurra farþega bíl. „Það gæti verið eitthvað meira ofan úr Mosfellsbæ, en höfuðborg- arsvæðið hefur auðvitað stækkað mikið. Við erum þó viss um að með- alkostnaður almennings á ferðum milli höfuðborgarinnar og Keflavík- ur lækkar talsvert við þessa breyt- ingu, þó upp geti komið sú staða að farið yrði dýrara fyrir þá sem eru að fara lengri leið um kvöld,“ segir Eyþór. Gjaldsvæði höfuðborgar og Suðurnesja sameinuð Ódýrara á dagtaxta milli Reykjavíkur og Leifsstöðvar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason SKIPULAG lyfjamála hjá Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi tók breyt- ingum um mánaðamótin. Deild lyfja- mála og apótek sameinuðust í eina deild, sjúkrahúsapótek LSH, undir stjórn yfirlyfjafræðings. Um- sýsludeild lyfja fluttist til innkaupa- og vörustjórnunarsviðs og þar með lyfjainnkaup, að því er segir á vef Landspítalans. Valgerður Bjarnadóttir tók við sviðsstjórastarfi af Guðmundi I. Bergþórssyni, aðstoðarmanni fram- kvæmdastjóra fjárreiðna og upplýs- inga, sem hafði gegnt því tímabund- ið á innkaupa- og vörustjórnarsviði. Í tengslum við þessar skipulags- breytingar voru tvær stöður yf- irlyfjafræðinga lagðar niður og aug- lýst eftir einum yfirlyfjafræðingi. Nýtt skipulag lyfjamála hjá LSH

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.