Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ● NÝHERJI hf. hefur sent inn af- komuviðvörun til Kauphallar Íslands. Í tilkynningu frá félaginu segir að „vegna ágreinings við viðskiptavin um túlkun samningsákvæða í um- fangsmiklum samningi um þjónustu og ráðgjafavinnu, er gert ráð fyrir því að rekstur Nýherja verði í járnum í þriðja ársfjórðungi.“ Því er áætlað að „bókuð verði til gjalda varúðarfærsla sem nemur tugum milljóna.“ Frekari upplýsingar um málið feng- ust ekki hjá Nýherja. Afkomuviðvörun Nýherja ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í Kaup- höll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,26% og er 4571 stig. Viðskipti með hlutabréf námu 2.560 milljónum króna, þar af rúmum millj- arði með bréf Landsbankans. Bréf Símans hækkuðu um 0,52% og bréf Tryggingamiðstöðvarinnar um 0,43%. Bréf Straums lækkuðu um 2,17%. Úrvalsvísitalan lækkar um 1,26% KAUPHÖLL Íslands hefur ákveðið að áminna Heklu hf. opinberlega fyrir brot á reglum Kauphallarinnar fyrir útgefendur verðbréfa í Kauphöll Ís- lands. Í fréttatilkynningu frá Kaup- höllinni segir að málavextir séu þeir að Hekla hf. birti þann 31. ágúst sl. á fréttavef Kauphallarinnar árshluta- reikning fyrir tímabilið janúar til júní 2005. Skýringar vantaði með árshlut- areikningnum og eftir ítrekanir frá Kauphöllinni var árshlutareikningur með skýringum birtur 13. september sl. Sama dag óskaði Kauphöllin skrif- lega eftir skýringum á því hvers vegna félagið sendi ekki skýringar með árshlutauppgjöri þegar fréttatil- kynning var send til birtingar eins og kveðið er á um í áðurnefndum reglum. Ekki heimild til undanþágu Í ákvæðum reglnanna segir að birta skuli niðurstöður hálfsársupp- gjörs eigi síðar en tveimur mánuðum frá lokum uppgjörstímabils, en þar sem skýringar vantaði með reikning- unum sem birtir voru þann 31. ágúst telur Kauphöllin að Hekla hf. hafi ekki fullnægt þessari skyldu sinni fyrr en þann 13. september þegar reikningurinn var birtur aftur ásamt skýringum. „Reikningurinn var fyrst birtur þann 31. ágúst, en þá rann skilafrest- ur út. Vegna mistaka vantaði skýr- Kauphöllin áminnir Heklu ALÞJÓÐASAMFÉLAGIÐ á að grípa til aðgerða gegn botnvörpu- veiðum í úthöfunum, þar sem svæðisbundnir fiskveiðisamningar eða fiskveiðistofnanir ná ekki til. Þetta kom fram í fyrirlestri dr. Monicu Verbeek um áhrif tog- veiða á lífríki djúpsjávar og neð- ansjávarfjalla á alþjóðlegu haf- svæði í Norræna húsinu í gærdag. Monica er hér á vegum Náttúru- verndarsamtakanna og DSCC, stofnunar sem berst fyrir tíma- bundnu banni á botnvörpuveiðum á alþjóðlegum hafsvæðum og von- ast eftir stuðningi íslenskra stjórnvalda þegar málið verður tekið fyrir hjá Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í næsta mánuði. Monica segir veiðar með botn- vörpum hafa gríðarleg áhrif á líf- ríki sjávar en þrátt fyrir það eru nánast engar reglugerðir sem stuðla að því að takmarka veiðar á alþjóðlegum hafsvæðum. Hún segir vandamálið vera stórt en erf- itt sé að grípa til aðgerða og til þess þurfi alþjóðlega samvinnu. Monica segir botnvörpuveiðar vera þá aðferð fiskveiða sem verst fara með umhverfið og ljóst sé eft- ir umfangsmiklar rannsóknir að lífríki djúpsjávar hafi farið illa út úr óhóflegum veiðum. Kóralrif og neðansjávarfjöll mynda ákaflega mikilvæg vistkerfi og hafa verið nefnd regnskógar hafsins og eru afskaplega viðkvæm þar sem vöxt- ur þeirra og endurnýjun er hæg. Monica segir að ekki sé verið að krefjast endanlegs banns við botn- vörpuveiðum eða úthafsveiðum yf- irleitt, en frekar að benda á hversu mikilvægt er að setja reglugerðir um veiðar til að vernda lífríkið, áð- ur en það verður of seint og lítið verður eftir til að vernda. Hún bendir á að stuðningur Íslendinga í þessum málum sé mikilvægur en um fjörutíu félagasamtök víðsveg- ar um heiminn styrkja DSCC og Monica segir að vel hafi verið tekið í hugmyndirnar þar sem þær hafa verið kynntar og býst við góðum árangri í næsta mánuði þegar Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna tekur málið fyrir. Reglugerða um veiðar í úthöfum krafist EINAR Kr. Guðfinnsson, nýbakaður sjávarútvegsráðherra, heimsótti Vestmannaeyjar í gær og sat aðal- fund Útvegsbændafélags Vest- mannaeyja í Höllinni. Í erindi sem hann hélst sagði Einar að Eyjamenn þyrftu ekki að óttast það að fá Vestfirðing í stól ráðherra, hann væri ráðherra alls landsins og kvaðst ætla að berjast fyrir hagsmun- um greinarinnar. Það væri hagur allr- ar þjóðarinnar að vel gengi í sjávar- útvegi. Vestfirðingar hafa seint verið sáttir við kvótakerfið en Einar sagði að nú væri komið leiðarlokum í mótun kerfisins. „Við eigum að geta unnið saman því þetta er niðurstaðan þó ekki séu allir sáttir,“ sagði Einar. Á myndinni eru Björn Jónsson, starfsmaður LÍÚ, Friðrik J. Arn- grímsson, framkvæmdarstjóri LÍÚ, Magnús Kristinsson formaður Út- vegsbændafélags Vestmannaeyja, Einar Kr. Guðfinnsson og Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur LÍÚ. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Ráðherra í heimsókn ÚR VERINU FÆREYSKA fyrirtækið Smyril Line, sem rekur ferjuna Norrænu, áformar að kaupa 66% hlut í norska skipafélaginu Fjord Line fyrir 50 milljónir norskra króna, jafnvirði um 470 milljóna íslenskra króna. Frá þessu er greint í frétt á fær- eyska fréttavefnum føroyski portal- urin. Thomas Magnussen, stjórn- arformaður Smyril Line, segir í samtali við fréttavefinn að kaupin muni þýða meira samstarf milli fé- laganna í framtíðinni. „Við breyt- inguna verður Smyril Line stærra og sterkara fyrirtæki en áður. Skip- in verða fleiri, flutningsnetið stækk- ar og vaxtarmöguleikar félagsins verða meiri,“ segir hann. Tilboð Smyril Line í 66% hlut í Fjord Line verður lagt fram á næsta aðalfundi síðarnefnda félagsins. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Vill kaupa Fjord Line ● LANDSBANKI Íslands hefur í hyggju að gefa út ný skuldabréf fyrir um 500 milljónir evra, sem jafngildir tæplega 37 milljörðum íslenskra króna. Skuldabréfin sem eru með breyti- legum vöxtum eru til fimm ára og það er breski risabankinn HSBC sem hef- ur umsjón með útboði bréfanna. „Það sem er sérstakt við þessa út- gáfu er að bankinn fær einn stóran banka og nokkra minni til þess að sjá um útgáfuna þar sem markmiðið er að fá aðgengi að fleiri fjárfestum og breiðari fjárfestahópum að skulda- bréfaútgáfunni,“ segir Sigurjón Árna- son, bankastjóri Landsbankans. Landsbanki gefur út skuldabréf                        !!"     # $% &$'"      

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.