Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT          C",: !$< : > 0N) <3,5 ;L-' 5"B<4-)3:-< -< 44 ' /" < 5F)-  H  0 44, >F)4 :, !",: '5- > 4$-' 5,N:-,/L 4$0))"5-' >)) ,F)-, : ,"!= ) 4 -<,F, 5"B<4-) : O"5 , ", 9B,= : : 9" ) ;"-< :0",:-< D  '   4D, $5 $,"5 1  5 /-5<B' ' : 5 '5 -.. $5 ,"B' ) ,:9F, ", ! 4B,: : 4$-' >  0,> :' : !$) < '') $44 , > )$'' : %&' "   + 44 '' * : /-5H <B' ' ", -! '' !$)'H :-, $,!-*",  *",: > , 0$,!- 5F) /F!! : -< H      (  ( ) & *#$   &      & &  + , - & *&   & ,-  ,+   &  &  # #    &' *  ' &#  & " ( "#!&  "   & ,( 7F5) ", : D 5,N:-,/L 4$0))"5-' , " ' $5 !$4D$PD: IJ L, L)94F), D ,"B!/>0-< $5 !$< ;" < D: ' 0B, , D B0 ,5"0'-< '><-< )F<-< $4D-A5 4 '-< ": = 0'*"4 D / 0 7F5) ", : 4"B  -.. D =N D <" , "' !< @. <": ;*D : '$) 4" :4-, ": ! .  5"B<) D 34)- * )'  5"B<) D )F<-< $4D-A5 4 '-<  5", , -:*"4 , : * '' <" , 5  $5 $4D- L, 'F, )F<-< 4 '-<  ,B:-, <") 'H 5  0,> !$4-<  ,B:-, 0,> E, $4D- E  !$< : 0B, , > <" , @. "'  !< ", 4$0))"5-' ' $,: ' ":4 H ;B'5, "' * )' /L' <B' , ;*D " ' !$' , )3:-* )' $5 ; : )"0-, 0B, , ;*D : /L' 4"B ) -.. D =N'-< 7-5 '4"5 ", /F5) : F4  D =N ": !$< ;*D 0B, , > / 09$)' % &   !! .&  # /  & 0    12 %  &     < 0' :    ÁSTRALARNIR Barry J. Marshall og Robin Warren hlutu í gær Nób- elsverðlaunin í læknisfræði 2005 fyrir þátt þeirra í uppgötvuninni á bakterí- unni heliobacter pylori, sem hefur áhrif á myndun magabólgu og maga- sára. Nóbelsnefndin sagði að upp- götvunin hefði verið „stórkostleg og óvænt“ og það væri Marshall og Warren að þakka að magasár væri ekki lengur krónískur og hamlandi sjúkdómur heldur kvilli sem unnt væri að lækna á tiltölulega skömmum tíma með lyfjum. Sár í maga og skeifugörn eru mjög algengir kvillar og geta stundum valdið magakrabbameini. Um rann- sóknir tvímenninganna sagði Nóbels- nefndin ennfremur: „Warren, sem er meinafræðingur frá Perth í Ástralíu, tók eftir litlum, bogmynduðum bakt- eríum sem höfðu lagt undir sig neðri hlutann í maga um 50% sjúklinga sem lífsýni höfðu verið tekin úr. Það sem úrslitum réði var að hann áttaði sig á því að merki um bólgur var í öllum til- vikum að finna í magaslímhúðinni, ör- skammt frá staðnum þar sem bakt- erían sást.“ Marshall fékk áhuga á niðurstöð- um Warrens og saman hófu þeir rannsóknir á lífsýnum úr eitt hundrað sjúklingum. „Eftir nokkrar tilraunir tókst Marshall að rækta áður óþekkta bakteríutegund – sem síðar fékk nafnið heliobacter pylori – úr all- mörgum þessara sýna. Saman kom- ust þeir að því að bakteríuna var að finna í svo að segja öllum sjúklingum sem haldnir voru magabólgum, skei- fugarnarsárum eða magasárum. Á grundvelli þessara niðurstaðna settu þeir þá fram þá tilgátu að heliobacter pylori ætti þátt í myndun þessara kvilla,“ sagði nefndin ennfremur. Lifir aðeins í mönnum Niðurstöðum Ástralanna var tekið með mikilli tortryggni fyrstu árin og fáir vísindamenn vildu samþykkja að bakteríur gætu lifað í maganum, magasýrurnar voru taldar drepa þær. Marshall var staðráðinn í að sanna mál sitt og gekk svo langt árið 1985 að hann gleypti lög með bakteríum og varð fárveikur í kjölfarið. Bakterían lifir aðeins í mönnum. Hlutfallslega eru mun færri sýktir af bakteríunni í ríkum löndum en fátæk- um en í mörgum þróunarlöndum er talið að nánast hver einasti íbúi sé með bakteríuna í iðrunum. Flestir verða þó ekki varir við nein sjúk- dómseinkenni. Marshall og Warren notuðu hefðbundna tækni á borð við magaspeglun til að komast að þeirri niðurstöðu að heliobacter pylori væri í mörgum tilvikum orsök magasára. Með því að rækta bakteríuna gerðu þeir frekari rannsóknir á henni auð- veldari. „Árið 1982, þegar Marshall og Warren uppgötvuðu bakteríuna, var almennt talið að streita og lífsstíll væru helstu orsakir magasára. Nú er aftur á móti staðfest að heliobacter pylori veldur yfir 90% skeifu- garnarsára og 80% magasára,“ sagði Nóbelsnefndin. Tvímenningarnir munu í desember skipta með sér verðlaunum sem nema nú um 1,3 milljón dollara eða um 80 milljónum króna. Marshall er 54 ára gamall og frá Kalgoorlie í Vestur- Ástralíu, hann stundar rannsóknir við QWII-læknarannsóknastöðina í Ned- lands. Warren, sem er 68 ára, fæddist í Adelaide í Suður-Ástralíu. Hann býr nú í borginni Perth og vann sem meinafræðingur við Konunglega sjúkrahúsið í Perth til 1999. Tveir Ástralar fengu Nóbelsverðlaunin Annar gleypti magasárs-bakt- eríur 1985 til að sýna að þær þyldu magasýrur Reuters Áströlsku vísindamennirnir Robin Warren (t.v.) og Barry Marshall fagna Nóbelsverðlaununum á Swan Berry Cafe-veitingahúsinu í Perth í gær. AP Smásjármynd af helicobacter pyl- ori, bakteríunni sem er helsta orsök magasára. Á innsettu myndinni er stök baktería af þessari tegund. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ASTRI Leroy, áhugakona um kóngulær, ásamt vinkonu sinni af ætt svonefndra regn- kóngulóa í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær. Á morgun hefst í Witwaterstrand- háskóla í borginni fimm daga sýning þar sem sýnt verður hvernig skordýr, plöntur og dýr lifa af í náttúrunni. Einnig verður efnt til kapphlaups milli kakkalakka og boðið upp á rétti sem blökkumenn gera úr skordýrum en þau eru rík af eggjahvítuefnum og víða vinsæll matur. Fagnaðarfundur í Jóhannesarborg AP Madrid, Teheran, AFP, AP. | Milljónir manna í Evrópu og Asíu fylgdust með sjaldgæfum sólmyrkva sem hóf að færast yfir Portúgal og Spán skömmu fyrir klukkan 10 að staðartíma í gærmorgun, eða rétt fyrir klukkan átta að íslenskum tíma. Portúgalska póstþjónustan gaf í gær út sérstakt frímerki til að minnast atburðarins. Sólmyrkvinn sást greinlega í nokkrar mínútur á milli skýja frá Reykjavík í gærmorgun, að sögn Þorsteins Sæmundssonar stjörnu- fræðings. Hann sást hins vegar mjög vel í sunnanverðri Evrópu, drjúgum hluta Afríku, í Mið- Austurlöndum og á Indlandi. Í Madríd á Spáni söfnuðust heilu fjölskyldurnar og áhugafólk saman við stjörnuskoðunarstöð borg- arinnar til þess að fylgjast með sól- myrkvanum á risastórum sjón- varpsskjá. Meðan á sólmyrkvanum stendur hylur tunglið sólina að mestu og skilur eftir mjóa ljósrönd, þannig leit sólin út í fjórar mínútur, séð frá Spáni. Þar voru veðuraðstæður eins góðar og kosið varð, heiðskír himinn. Máninn huldi um hríð 95% af sólinni og klappaði þá fólk á götum úti af hrifningu yfir þessum undrum náttúrunnar. Himinninn varð gráleitur og lofthitinn lækk- aði en allt færðist í samt horf eftir nokkrar mínútur. Ekki var um almyrkva að ræða í gær heldur svokallaðan hring- myrkva, þar sem tunglið nær ekki að hylja sólina alveg þótt það fær- ist fyrir hana miðja. Árið 1999 var um almyrkva að ræða og var þá sem skyndilega hefði skollið á nótt. Margir notuðu tækifærið í gær og horfðu á sólina í gegnum dökkt gler en stórhættulegt er að horfa á hana með berum augum. Skóla- yfirvöld í sunnanverðu Frakklandi skipuðu kennurum að halda börn- unum inni í frímínútunum til að koma í veg fyrir að þau skemmdu í sér augun. Enn lengra gengu Als- írmenn, þar var skólastofnunum lokað til að hindra slys þegar lítil börn væru á leið í skólann. Reuters Stúlka í Amman í Jórdaníu notar dökk gleraugu til að fylgjast með hring- myrkvanum. Hann sást vel í Mið-Austurlöndum og á Indlandi auk Evrópu. Milljónir manna fylgd- ust með hringmyrkva Reuters Samsett mynd sem sýnir þróun hringmyrkvans eins og hún birtist fólki í borginni Segovia á Spáni snemma í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.