Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 15

Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 15 ERLENT Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands hafa gert samning um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni og efnt til viðurkenningar sem hlotið hefur nafnið Eyrarrósin. Markmiðið með henni er að verðlauna árlega eitt afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, á starfssvæði Byggðastofnunar. Fyrstu Eyrarrósina, sem afhent var í janúar 2005, hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði. UMSÓKNUM SKAL FYLGJA: Lýsing á verkefninu Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu, umfangi þess, sögu og markmiðum. Tíma- og verkáætlun Gerð skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins og áformum á árinu 2006. Skilyrði er að verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum. Upplýsingar um aðstandendur Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem að verkefninu standa og gerð grein fyrir þeirra þætti í því. Fjárhagsáætlun Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári. Uppgjör ársins 2004 fylgi umsókn. • Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda um Eyrarrósina 2006 • Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, kr. 1.500.000 og verðlaunagrip til eignar • Viðurkenningin verður afhent í ársbyrjun 2006 á Bessastöðum • Verkefnið sem hlýtur viðurkenninguna fær sérstaka kynningu í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 2006 • Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú • Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar verður hún ekki tekin til greina • Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn, tímabundið verkefni eða menningarhátíð • Umsóknarfrestur er til 7. nóvember 2005 og verður öllum umsóknum svarað • Viðurkenningin verður veitt í janúar 2006 • Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar Eyrarrósin VIÐURKENNING TIL FRAMÚRSKARANDI MENNINGARSTARFS Á LANDSBYGGÐINNI HÉR MEÐ ER AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM UM EYRARRÓSINA 2006 Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík í síma 561 2444, eyrarros@artfest.is www.listahatid.is Laufskógar 8 - Hveragerði Tilboð óskast Lítið, eldra, einbýli á 1.259 fm gróinni lóð á góðum stað í Hveragerði. Húsið er 49,2 fm og þarfnast orðið töluverðs viðhalds inni sem úti. Um er að ræða litla stofu, 2 svefn- herbergi, eldhús og bað. Hér er tækifæri fyr- ir þá sem vilja byggja sér stærra eða stærri hús á lóðinni. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu. Reikningsskil og ráðgjöf ehf., Breiðumörk 20, 810 Hveragerði, sími 483 4550, www.adalsalan.is TÖLVUNEFND Noregs kærði í gær Redningsselskapet, fyrirtæki sem gegnir svipuðu hlutverki og Landsbjörg hér á landi, til lögregl- unnar vegna þess að yfirmenn hafa skoðað tölvupóst nokkurra starfs- manna án leyfis, að sögn fréttavefjar Aftenposten í gær. Nefndin telur að ekki hafi verið gætt nógu vel að því hvort umræddur póstur tengdist vinnunni eða væri á persónulegum nótum. Ráðamenn Redningsselskapet eru einnig sakaðir um að hafa skoðað gömul afrit af tölvupósti sem starfs- menn höfðu eytt. Munu þeir m.a. hafa skoðað póst trúnaðarmanna starfsliðsins. Málið á rætur í deilum í fyrra en þá var starfsmannastjóri fyrirtæk- isins rekinn. Skömmu síðar voru fleiri háttsettir starfsmenn látnir taka pokann sinn og hafa mörg kærumál fylgt í kjölfarið. Í sumar kom í ljós að forstjórinn, Monica Kristensen Solås, hafði ráðið tölvu- fyrirtæki til að fara yfir alls 37.000 tölvupósta sem tengdust sex eða sjö starfsmönnum sem hún treysti ekki nógu vel. Ekki var sótt um leyfi hjá Tölvunefnd og starfsmenn fengu enga viðvörun. Nokkru síðar voru margir starfs- menn kallaðir á teppið og þeim sýnd- ur póstur sem yfirmenn töldu sýna skort á hollustu við fyrirtækið. Fyrir þrem vikum ætlaði Lin Einarsdóttir, sem er ritari deildar Rednings- selskapet í Tromsø, að mæta í vinn- una eftir leyfi en þá var búið að skipta um lás. Hún var kölluð á fund þar sem henni var sagt upp störfum. Tölvupóst- deila í Noregi GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti tilnefndi í gær helsta ráðgjafa sinn í lögfræðilegum efnum, Harriet Miers, í embætti hæstaréttardómara í stað Söndru Day O’Connor sem hyggst láta af embætti. Sagðist for- setinn þess fullviss að Miers myndi eingöngu „miða lagatúlkanir sínar við stjórnarskrána og lögin“. Repúblik- anar hafa oft gagnrýnt demókrata í hæstarétti fyrir ganga of langt í túlk- unum og reyna að beita réttinum til að hafa áhrif á stjórnmál í stað þess að láta duga að halda sig við lögin eins og þau eru rituð og dómafordæmi. Öldungadeild þingsins þarf að staðfesta tilnefninguna en Miers hef- ur aldrei gegnt embætti dómara, að sögn AP-fréttastofunnar. Er því erf- itt að ráða í það hver afstaða hennar til umdeildra hitamála er og ekki hægt að benda á fordæmi þar sem hún hefur komið við sögu. Fyrstu við- brögð meðal margra íhaldsamra repúblikana við tíðindunum voru já- kvæð en sumir þeirra telja sig ekki geta fullyrt að hún muni verða hlið- holl sjónarmiðum þeirra í sumum hitamálum. „Það er ekki hægt að segja að við vitum ekkert [um skoðanir Miers] og það litla sem við vitum veldur von- brigðum,“ sagði Troy Newman sem veitir forstöðu þrýstihópnum Rescue er berst gegn fóstureyðingum. „Hún er til dæmis suðurríkjameþódisti og alræmd fyrir stuðning við fóstureyð- ingar.“ Þingleiðtogi demókrata hliðhollur Miers Repúblikanar hafa meirihluta í öld- ungadeildinni en demókratar geta hins vegar beitt ýmsum aðferðum til að tefja fyrir staðfestingu á skipan dómara, m.a. málþófi. O’Connor, sem var skipuð í tíð Ronalds Reagans forseta á ní- unda áratugnum, reyndist ekki vera sú íhaldskona sem sumir höfðu spáð og greiddi ýmist atkvæði með repúblikanavængnum í réttinum eða demó- krötum en níu dómarar skipa hæstarétt í Washington. Heimild- armenn segja að Harry Reid, leiðtogi demó- krata í öldungadeild- inni, hafi hvatt Bush forseta til að íhuga að tilnefna Miers. Mun Reid hafa sagt að ýmsir aðrir sem nefndir hafa verið gætu valdið harkalegum deilum í þingdeildinni. Reid gaf út yfirlýsingu í gær og sagðist vera ánægður með Miers og bætti við að hæstiréttur myndi hafa gagn af „dómara sem hefur raun- verulega reynslu af almennum lög- mannsstörfum“. Ekki er þó víst að demókratar muni beinlínis styðja Miers og ljóst að þeir muni reyna eft- ir megni að leiða skoðanir hennar í ljós í yfirheyrslum. Frá Texas og afar trygg Bush Miers er sextug að aldri og frá Tex- as, hún er annar repúblikaninn sem tekur sæti í hæstarétti á árinu. Áður hafði John Roberts verið samþykktur á þingi sem forseti réttarins í stað Williams Rehnquists sem lést fyrir skömmu. Átti Miers mikinn þátt í tryggja að Roberts hlyti samþykki þingmanna. Þeir sem gagnrýna að Miers skuli koma úr innsta hring Bush fá þau svör frá 1933 hafi 10 af alls 34 hæstaréttardómurum verið starfsmenn þess forseta sem tilnefndi þá. Hollusta hennar við Bush er sögð vera mikil og fékk hann hana m.a. til að fara yfir feril sinn er hann hóf af- skipti af pólitík í upphafi tíunda ára- tugarins og bauð sig fram til ríkis- stjóra í Texas. Átti Miers að leita uppi allt sem hægt væri að nota gegn frambjóðandanum til þess að ekki væri hægt að koma honum á óvart. Bush tilnefnir lagaráð- gjafa sinn í hæstarétt Talsmenn andstæðinga fóstureyðinga tortryggnir í garð Harriet Miers en fyrstu viðbrögð demókrata vinsamleg Reuters Harriet Miers í Hvíta húsinu ásamt George W. Bush forseta eftir tilnefninguna í gær. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ORSÖK skilnaðar jafnaðar- mannsins Jens Otto Krag, for- sætisráðherra Danmerkur á sjö- unda og áttunda áratugnum, og eiginkonu hans, leikkonunnar Helle Virkner, var áberandi og óforskammað ástarævintýri hans með dönsku þingkonunni Lene Bro á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík. Þetta kemur fram í bókinni „Kodeord Søsser,“ sem dóttir Krag heitins, Søsser Krag, hefur skrifað um föður sinn ásamt fjölskylduvininum Peter Salskov. Í grein í danska Ekstra Bladet segja þær mæðgurnar að framhjáhaldið í Reykjavík hafi verið toppurinn á stærri ísjaka. „Pabbi hafði nóg að gera,“ segir Søsser og Helle tekur undir orð hennar. „Já, honum fórst vel að blanda geði við fólk.“ Samkvæmt bókinni, sem Søsser segir sjálf vera kærleiksjátningu til föður hennar, sem ætlað sé að sýna Krag í mannlegu ljósi, segir m.a. að forsætisráðherrann hafi látið ástarbréf ástkvenna sinna liggja á skrifborðinu og boðið konu sinni að lesa. „Það var eins og honum væri alveg sama, og svo las mað- ur bréf frá hinum og þessum. Þetta var alveg bilað, svo ég hætti þessu, þetta var líka leiðinleg lesning fyrir mig,“ segir Helle. Søsser Krag segist alltaf hafa vitað af ástkonum föðurins. „Ég get hins vegar ekki sagt neitt eða röflað yfir því, vegna þess að sem betur fer upplifði ég hann sem af- ar ástríkan föður.“ Ferill Jens Otto Krag, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur Framhjáhaldið í Reykjavík olli skilnaði Helle Virkner og Jens Otto Krag, forsætisráðherra Danmerkur. Með þeim er Hilmar Baunsgaard úr flokknum Radikale Venstre. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.