Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 16

Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 16
Málstofa Landbúnaðarháskóla Íslands Málstofan hefst kl. 14:30 í Ásgarði (nýja skóla) á Hvanneyri. Allir velkomnir. Miðvikudaginn 5. október mun Dr. Helgi Björnsson jöklafræðingur við Raunvísindastofnun HÍ vera í Málstofu og ræða um “Sambýli við jökla og búskaparhorfur”. Klæddu þig vel Kápur, jakkar, stakkar, bolir, buxur, peysur Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Sími 462 3505 Opið virka daga 10-18 laugardaga kl. 10-16 Reykjavík | Þeir hefðu ekki mikla afsökun fyrir því að vera á eftir áætlun þessir vösku menn sem vinna nú við að reisa nýja brú yfir nýju Hring- brautina, enda kirkjuklukkan á Hallgrímskirkju í baksýn. Undirstöðurnar fyrir brúna eru nú óðum að rísa og þess eflaust ekki langt að bíða að brúargólfið verði lagt yfir göt- una. Morgunblaðið/Golli Göngubrú sprettur upp Brúarsmíð Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Ágúst- og septermbermánuðir hafa verið hundleiðinlegir í veðurfarslegu tilliti og það haustaði snemma. Óneitanlega set- ur þetta örlítinn svip á samfélagið og ekki til þess fallið að hressa menn og uppörva. Það eru líka haustvindar í atvinnumálum héraðsins og víðar á landsbyggðinni. Þessi framsækna þjóð, þessi hugprúða þjóð með sína ótrúlegu snerpu og sveigjanleika til að bregðast skjótt við í útrásarsamfélagi stendur aðeins frammi fyrir einu vanda- máli. Vandamálinu að í þessu landi býr fólk misjafnlega margt eftir mikilvægi landsvæðisins í augum þeirra sem ferðinni ráða bæði í pólitísku og efnahagslegu til- liti.    Þetta fólk sem ekki fellur inn í formúlu arðsemiskröfunnar á í vök að verjast um stundarsakir en einhvers staðar segir: „Réttlætið sigrar að lokum.“ Okkur sem þraukum enn í a-húnvetnskum byggðum er brugðið við uppsagnir þriggja starfs- manna hjá Símanum á Blönduósi. ÁTVR hefur stytt afgreiðslutíma sinn á þessu svæði til mikilla muna sem þýðir að tapast hefur starf og þjónustustig okkar sam- félags hefur lækkað og fleira mætti telja.    Þetta sem hér er talið er einungis eins árs atburðarás. Ef litið væri lengra aftur yrði myndin dekkri. Hvert eitt starf sem tapast í litlu samfélagi hefur víðtæk áhrif og kvíði fyrir framtíðinni laumast inn í sérhverja sál. Þótt allt virðist svart og framtíðin óræð eru enn nokkrir sem ekki gefast upp og spýta í lófana. Má þar nefna fyrirtækin Krák, til þess að gera nýstofn- að byggingarvöru- og þjónustufyrirtæki með kjarkmikla stjórnendur; Stíganda, gamalreynt og traust trésmíðafyrirtæki með augun á tækifærunum; og Kjalfell, nýstofnað fyrirtæki á Blönduósi sem sæk- ir fram. Vélsmiðja Alla, sem er til þess að gera ungt fyrirtæki að árum, lætur sitt heldur ekki eftir liggja og er opið fyrir tækifærum. Meðan við höfum þessi öflugu fyrirtæki í samfélaginu, bæði til að halda uppi kjarki og atvinnutækifærum, má ró halda en lítið má út af bregða til að grunn- urinn hrynji. Til að treysta þennan grunn þurfum við að tala einni röddu og standa saman sem einn maður. Úr bæjarlífinu BLÖNDUÓS EFTIR JÓN SIGURÐSSON FRÉTTARITARA Gísladóttir blessaði turninn. Aðrir sem fluttu ávarp við opn- unarathöfnina voru Guð- björn Charlisson, um- dæmisstjóri Flugmálastjórnar, Þor- geir Pálsson flug- Tekinn var í notkunnýr flugturn áÍsafjarðarflugvelli sl. laugardag. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra var viðstaddur athöfnina og flutti ávarp, en séra Stína málastjóri, Haukur Hauksson, frá Flug- málastjórn og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði. Margir gestir voru viðstaddir og var boðið upp á veitingar í tilefni dagsins. Nýr flugturn tekinn í notkun Líður að vetri ogágætt að finna tilhlífðarfötin. Að minnsta kosti áður en far- ið er með vísu eftir ókunnan höfund: Dimmt er úti, drífur él, – Drottinn styrki trúna. Þann ég kalla vísan vel sem villist ekki núna. Í Vísnahorni á laug- ardag var rifjuð upp haustvísa Illuga Ein- arssonar Sumri hallar, hausta fer. Arnfríður Sig- urðardóttir lærði saman vísu Illuga og þessa vísu eftir Kristínu Andr- ésdóttur á Hofsstöðum: Fýkur mjöllin feiknastinn, fegurð völlinn rænir. Hylja fjöllin sóma sinn, silungshöllin skænir. Fyrst farið er að tala um stinnleika í veðurlýs- ingu má fara með vísu eftir ókunnan höfund: Velkjast í honum veðrin stinn, veiga mælti skorðan. Kominn er þefur í koppinn minn, kemur hann senn á norðan. Íslenska veðrið pebl@mbl.is Grímsnes | Garðar Kjartansson, eigandi skemmtistaðarins Nasa í Reykjavík, og Fjölnir Þorgeirsson athafnamaður taka við rekstri Þrastalundar í Grímsnesi um ára- mót. Hjónin Snorri Sigurfinnsson og Sigrún Ólafsdóttir, sem rekið hafa staðinn síðast- liðin tvö ár, eða síðan nýtt hús var reist yfir starfsemina, seldu reksturinn í Þrasta- lundi að undangengnum samningaviðræð- um við þá Garðar og Fjölni. UMFÍ er eig- andi hússins og hefur félagið samþykkt yfirtöku nýs rekstraraðila á leigusamning- um þeim sem eru í gildi. Um ástæðu sölunnar segir Snorri í við- tali við sudurland.net að þeim hjónum hafi borist tilboð í reksturinn og í kjölfar samn- ingaviðræðna ákveðið að selja. Rekstur Þrastalundar seldur ♦♦♦ Fréttasíminn 904 1100 ÞING Alþýðusambands Norðurlands skorar á félagsmálaráðherra að sjá til þess að sett verði lög um starfsmannaleigur, að stjórnvöld sjái til þess að réttarstaða starfsfólks leiganna verði bætt, og tryggt að af því verði greidd lögboðin gjöld. „Óþolandi er að engin lög skuli ná yfir svo yfirgripsmikla starfsemi sem við- gengst nú hér á landi. Ljóst er að erlent verkafólk fær í mörg- um tilfellum lægri laun og lakari starfskjör en íslenskir kjarasamningar og lög kveða á um. Kvartanir og áskoranir stéttarfélaga og annarra aðila hafa einungis þau áhrif á leigurnar að þær skipta um starfsfólk,“ segir í ályktun AN um starfsmannaleigur. „Í skjóli þessarar stöðu þrífast starfs- mannaleigur sem græða á því að greiða út- lendingum sem vinna hér á landi smán- arlaun. Þessi fyrirtæki stinga í sinn vasa sköttum starfsmanna sinna til ríkis og sveitarfélaga, því þau halda hvorki eftir staðgreiðslu skatta né greiða önnur opin- ber gjöld.“ Lög verði sett um starfs- mannaleigur Morgunblaðið/Margrét Þóra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.