Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 17
MINNSTAÐUR
• Fjölskyldan heldur sínu lífsmynstri fló fyrirvinna hverfi frá vinnu.
• Tryggingartaki ákve›ur tryggingarfjárhæ›ina sjálfur.
• Bætur eru greiddar út í einu lagi.
• Börn frá 2 til 18 ára eru sjálfkrafa trygg› me› tryggingu foreldris
• Bætur eru skattfrjálsar.
• I›gjöld eru s‡nileg og sker›a ekki vi›bótarlífeyrissparna›.
Trygg›u afkomu flína og fleirra sem treysta á flig.
LÍFÍS, flví fyrr, flví betra!
Útgefandi Lífístrygginga er Líftryggingafélag Íslands
Vi› flurfum öll a› standa undir væntingum í lífinu. Alvarleg veikindi gera sjaldnast
bo› á undan sér. fiú getur vernda› fjölskyldulíf flitt og fjárhag fyrir áföllum sem
fylgja veikindum me› LÍFÍS sjúkdómatryggingu.
Lífís/Vátryggingafélag Íslands
Ármúla 3 · 108 Reykjavík
fijónustuver 560 5000 · www.lifis.is
Mamma
er alltaf til í a›
gera eitthva›
skemmtilegt me› mér
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
4
3
3
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Breiðholt | Viðhaldi opinna leik-
svæða í Reykjavíkurborg er víða
ábótavant og dæmi um leiktæki sem
eru hættuleg fyrir börn vegna
skemmda. Til að vekja athygli á
þessu tók Ragnar Sær Ragnarsson,
sem tekur þátt í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík, sig til við
þriðja mann og lagfærði eitt af um
250 opnum leiksvæðum borgarinnar
á laugardag.
Ragnar, sem er fyrrverandi sveit-
arstjóri í Bláskógabyggð og mennt-
aður leikskólakennari, segir að Ólaf-
ur Gylfason, varaformaður ÍR, hafi
bent á þennan vanda í sumar og tek-
ið um 60 ljósmyndir sem sýndu
ástandið í Breiðholtinu. Borg-
arfulltrúum hafi verið bent á þetta
mál en þeir ekkert aðhafst enn.
Ragnar tók því til hendinni á leik-
svæðinu við Arnarbakka í Breiðholti
ásamt tveimur smiðum og garð-
yrkjumanni á laugardag og tók það
mennina fjóra um 7 klukkustundir
að gera við það sem aflaga hafði far-
ið á þessu eina leiksvæði. Bæði
þurfti að laga net í fótboltamörkum
og gera við trékastala sem var orð-
inn afar illa farinn.
„Það virðist sem það sé reynt að
halda leiktækjum sem eru á lóðum
leikskóla við og fara yfir öryggis-
atriði þar, en svo eru í borginni um
250 opin leiksvæði, samkvæmt þeim
upplýsingum sem ég hef, og þeim
hefur víða ekki verið sinnt nógu
vel,“ segir Ragnar. Hann segir að í
raun þyrfti að skoða ástand leik-
tækjanna um ársfjórðungslega og
gera við það sem hefur skemmst. Ef
ekki standi til að halda leiktækj-
unum við sé e.t.v. betra að sleppa
því að setja þau upp þar sem þau
geti í einhverjum tilvikum valdið
hættu.
Ástandið verst í eldri hverfum
Ragnar segir að ástandið sé trú-
lega ekki eins slæmt í nýrri hverfum
borgarinnar, þó leiktækin þurfi alls-
staðar viðhald, en í eldri hverfum
borgarinnar sé ástandið víða slæmt.
Spurður um kostnað við að gera við
leiktækin segir hann að hann geti
verið frá 50–100 þúsund krónum á
hvert leiksvæði, og jafnvel allt að
500 þúsund krónum á þeim leik-
svæðum sem verst séu farin.
Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokks í framkvæmdaráði
Reykjavíkur, lagði fyrir helgi fram
tillögu í ráðinu um að ráðist verði í
átak til þess að bæta leiksvæði, opin
svæði, íþróttasvæði og skólalóðir í
Breiðholti, enda hafi fjölmargar
kvartanir borist frá íbúum hverf-
isins. Í tillögunni segir að vinna
þurfi greinargerð um svæðin þar
sem fram komi hverju er ábótavant,
fara yfir hvernig viðhaldi hefur ver-
ið sinnt hingað til og koma með til-
lögur til úrbóta. Afgreiðslu tillög-
unnar var frestað til næsta fundar
framkvæmdaráðs, að ósk fulltrúa
Reykjavíkurlistans.
Skortir viðhald á leiksvæðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ástandið kannað Gunnar Freyr, fjögurra ára snáði, kannar ástand tré-
kastala við Arnarbakka ásamt Ragnari Sæ Ragnarssyni.
Grafarvogur | Umdæmisþing Kiw-
anishreyfingarinnar fór fram ný-
lega. Þar kynnti Jakob Marinósson
forseti Kiwanisklúbbsins Höfða í
Grafarvogi, stofnun svokallaðs
„Byggjendaklúbbs“ í Engjaskóla í
Grafarvogi. Forseti Byggj-
endaklúbbs Engjaskóla er Jóhann
Dagur Auðunsson og er það fyrsti
klúbburinn sinnar tegundar á Ís-
landi, segir í fréttatilkynningu.
Kiwanisklúbburinn Höfði og Sig-
urð Jóhannsson fyrrverandi svæð-
isstjóri hafa undanfarið ár staðið
fyrir fræðslu og kynningu og leið-
beint 55 krökkum í Engjaskóla
vegna stofnunar þessa Byggj-
endaklúbbs. Höfði verður móð-
urklúbbur hins nýstofnaða klúbbs.
„Byggjenda-
klúbbur“
Kiwanis
♦♦♦
Rússnesk menningarhátíð |
Kópavogsbær mun standa fyrir
rússneskri menningarhátíð dagana
15.-23. október í samstarfi við lista-
og menningarstofnanir í bænum.
Meðal efnistaka verða tónleikar
heimsþekktra tónlistarmanna í
Salnum, og sýningin Tími Rom-
onov-ættarinnar í Rússlandi í Lista-
safni Kópavogs. Einnig verða sýnd
íkon í einkaeigu auk nýrra íkona
frá Rússlandi. Haldin verður rúss-
nesk messa, kvikmyndasýningar,
ljósmyndasýningar, bókmennta-
kynningar, málþing og fjöl-
skylduhátíð, að ógleymdu rúss-
nesku diskóteki.
♦♦♦