Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 18
BÍL var ekið út af þjóðveginum, gegnt Húsasmiðjunni, skammt norðan Akur- eyrar um miðjan dag í gær. Ökumaður var einn í bílnum, var á norðurleið og virðist hafa misst vald á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hann fór út- af, valt og lenti á hvolfi yfir læk sem þarna er. Bíllinn náði yfir á hinn bakkann þannig að ökumaður slapp við bleyt- una. Við fyrstu skoðun reyndist hann lítið meiddur samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Akureyrar. Farið var með vatnabjörgunarbún- að á staðinn og kafari kallaður út, en fyrsta lýsing frá slysstað var á þann veg að ökumaður væri á kafi í læknum. Svo reyndist ekki vera. Bifreiðin er töluvert mikið skemmd. Á hvolfi yfir læk Morgunblaðið/Kristján 18 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI AUSTURLAND Seyðisfjörður | Aðalfundur Samtaka áhugafólks um jarðgöng á Mið-Aust- urlandi var haldinn í september á Seyðisfirði. Í fréttatilkynningu segir að á fundinum hafi orðið formanns- skipti þar sem Guðrún Katrín Árna- dóttir, Seyðisfirði, gaf ekki kost á sér áfram og tekur Kristinn V. Jóhanns- son, Neskaupstað, þar með við for- mennsku. Var Guðrúnu mjög þökkuð viðhorfsbreyting til jarðgangagerðar- innar, sem hún er talin hafa fengið áorkað með ötulli formennsku sinni. Auk hefðbundinna aðalfundar- starfa sögðu Þorvaldur Jóhannsson framkvæmdastjóri SSA og Tryggvi Harðarson bæjarstjóri á Seyðisfirði almennt frá niðurstöðum skýrslu sem unnið er að á vegum SSA hjá Rann- sóknarstofnun Háskólans á Akureyri. Niðurstöðurnar voru kynntar nýverið á aðalfundi SSA á Reyðarfirði. Þykir það renna enn frekari stoðum undir það sem hefur þó legið fyrir allt frá 1993 að jarðgöng á Mið-Austurlandi eru mikilvægasti valkostur til eflingar íbúaþróunar og byggðar í fjórðungn- um svo og til stuðnings þeirrar at- vinnuuppbyggingar sem þar á sér nú stað. Á fundinum var samþykkt sam- hljóða eftirfarandi ályktun: Aðalfundur Samtaka áhugafólks um jarðgöng á Mið-Austurlandi skor- ar á þingmenn kjördæmisins að beita sér fyrir nauðsynlegum fjárveitingum og áframhaldandi vinnu við undirbún- ing að jarðgöngum á Mið-Austurlandi sem byggi m.a. á kynningu á skýrslu RHA „Jarðgangatengingar á Austur- landi, samfélags- og arðsemimat“. Þingmenn beiti sér fyrir jarðgangagerð Tekjuskipting | Sambandi sveitar- félaga á Austurlandi (SSA) þykir rýr niðurstaða tekjustofnanefndar um breytingar á tekjustofnun sveitarfé- laga og fjármálalegum samskiptum ríkisins og sveitarfélaga er koma til framkvæmda í áföngum á árunum 2005 til 2008. SSA lítur svo á að ein- göngu sé um tímabundna ráðstöfun að ræða og þörf sé á varanlegri leið- réttingu á tekjustofnum sveitarfé- laga sem taki mið af þeim auknu verkefnum sem sveitarfélög hafa fengið á undanförnum árum, án þess að tekjustofnar hafi fylgt með. Um þetta var ályktað á aðalfundi SSA nýverið.    Tilflutningar | Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði, hyggst starfa hjá Tollstjóraembættinu í Reykjavík fram til 1. maí á næsta ári. Ástríður Grímsdóttir, sýslumaður á Ólafsfirði, leysir Lárus af frá 15. októ- ber nk. Þessir tímabundnu tilflutn- ingar á embættismönnum byggjast á tilraunaverkefni ráðuneyta um tíma- bundin vistaskipti ríkisstarfsmanna og hreyfanleika þeirra. Seyðisfjörður | Afmælismót Lá- varða 2005 í Golfklúbbi Seyð- isfjarðar (GSF) fór fram um helgina. Tvær deildir eru í GSF, Lávarðadeild fyrir 60 ára og eldri og Riddaradeild fyrir aðra en lá- varða. Glæsileg verðlaun voru í boði og keppt um þrjá titla og eina útnefningu. Formaður Lávarða- deildar GSF, Þorvaldur Jóhanns- son, segir afmælismót Lávarða GSF nokkurs konar uppskeruhátíð golfara á Seyðisfirði í lokin á góðu golfsumri. Meistari Lávarða GSF 2005 varð Jósep Sigurðsson. Meistari Ridd- ara GSF 2005 varð Ómar Bogason og Þorvaldsbrautarbani 2005 (9. braut par 3) varð Hjörtur Unn- arsson. Besti vinur Lávarða GSF 2005 var útnefndur Mikael Jóns- son. Þorvaldur segir keppendur hafa verið 23 talsins, veður á mótsdag var að sögn hans svalt og hvítt yfir fyrst um morguninn en létti til er leið á daginn. Um kvöldið að loknu móti buðu Lávarðar GSF til glæsi- legrar uppskeru og afmælisveislu í golfskálanum á Hagavelli. Láverðir og riddarar slá þá hvítu Ljósmynd/GKS Neskaupstaður | Þátttakendur á landsmóti Samfés, sem haldið var í Neskaupstað um helgina virtust skemmta sér konunglega. Um þrjúhundruð unglingar og um- sjónarmenn frá félagsmiðstöðvum víðsvegar af landinu sóttu mótið. Meðal margra atriða sem voru til fróðleiks og skemmtunar á mótinu var kajakróður og var ekki annað að sjá en að það væri mjög gaman saman á landsmóti Samfés. Fjör hjá Samfés Morgunblaðið/Ágúst Blöndal HÉRAÐSDÓMUR Norð- urlands eystra féllst í gær- morgun á ósk lögmanns Slippstöðvarinnar um að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Í kjölfar- ið var Sigmundur Guð- mundsson héraðsdómslög- maður skipaður skipta- stjóri þrotabúsins. Sig- mundur átti fund með starfsmönnum fyrirtækis- ins í gær en hann sagðist eftir fundinn lítið getað sagt um stöðu mála. „Ég er að reyna að fá heild- armynd af verkefnastöðu, skuldastöðu, útistandandi kröfum og annað slíkt. Það er þó ljóst að búið tekur ekki við neinni starfsemi hér í dag, hvað sem síðar verður. Það er hugasan- legt að einhverjir aðilar sýni þessu áhuga en hef ekki fengið nein við- brögð þar að lútandi enn sem komið er,“ sagði Sigmundur. Alls störfuðu um 100 manns í Slippstöðinni og eiga starfsmenn inni þriggja vikna eða mán- aðarlaun hjá fyrirtækinu. Talið er að ógreidd laun starfsmanna nemi um 20 milljónum króna. Fyrirtækið hafði áður fengið þriggja vikna greiðslustöðvun, sem renna átti út í dag, 4. októ- ber. Hákon Hákonarson formaður Félags málm- iðarmanna sagðist harma að þessi staða væri komin upp. „Sem betur fer er hópur vaskra manna hér á Akureyri að vinna að endurreisn þessa fyrirtækis. Ég vona að það taki sem styst- an tíma, þannig að sú röskun sem hér hefur orðið verði sem minnst. Ég bind vonir við það að það verði komnir nýir rekstraraðilar að fyrirtækinu áður þessi vika er liðin. Það skiptir öllu máli, í því eru fólgin þau verðmæti að þetta fólk fari ekki að leita sér að vinnu annars staðar,“ sagði Hákon. Þorsteinn Haraldsson trúnaðarmaður í Slipp- stöðinni sagði að þar sem þrotabúið ætlaði ekki að halda úti áframhaldandi rekstri væri ekkert annað gera en að bíða. Starfsmenn ætla að hitta fulltrúa verkalýðsfélaganna og atvinnumiðlunar í dag og skrá sig atvinnulausa. „Framhaldið er mjög óljóst og mér skilst að það geti tekið viku til hálfan mánuð að einhver geti tekið við rekstr- inum. En okkar starfi hjá Slippstöðinni ehf. er lokið frá og með deginum í dag.“ Morgunblaðið/Kristján Gjaldþrot Sigmundur Guðmundsson, skiptastjóri þrotabús Slippstöðv- arinnar, ræðir við starfsmenn fyrirtækisins. Óvissa með framhald- ið hjá Slippstöðinni Vilja annan sýslumann | Bæjarráð Ólafsfjarðar hefur skorað á dóms- málaráðherra að skipa annan sýslumann með aðsetur í Ólafsfirði í stað sýslu- manns, sem nú hefur kosið að hverfa til annarra starfa áður en skipunartímabili lauk. „Þá skorar bæjarráð á ráðherra, vegna fyrirhugaðrar fækkunar lögreglu- umdæma, að sjá til þess að öryggi íbúa í Ólafsfirði verði ávallt tryggt með áfram- haldandi staðsetningu þeirra lögreglu- manna sem hér eru. Einnig skorar bæjarráð á ráðherra, að tryggja það, að sú þjónusta sem verið hefur hjá sýslumannsembættinu skerðist ekki frá því sem nú er,“ segir í ályktun bæjarráðs Ólafsfjarðar.    Lengri flugbraut | Þing Alþýðusambands Norðurlands, sem haldið var um liðna helgi skoraði á samgönguráðherra og þingmenn að beita sér fyrir lengingu flugbrautarinnar á Akureyri, þannig að reglulegt millilanda- flug geti hafist frá Norðurlandi. „Hluti lífs- gæða fólks felst í möguleikum til að ferðast til annarra landa. Því er Norðlendingum það mikið kappsmál að millilandaflug verði tekið upp frá Norðurlandi. Slíkt hefði í för með sér eflingu byggðar og mikinn sparnað fyrir íbúa og fyrirtæki á Norðurlandi.“ Hvatt til húsbygginga | Meirihluti skipulags- og umhverfisnefndar Ólafs- fjarðar samþykkti tillögu Helga Jóhanns- sonar á fundi í vikunni, þess efnis að nefnd- in hvetji bæjarráð til þess að auglýsa á landsvísu til umsóknar einbýlishúsalóðir við Mararbyggð. Einnig að Ólafsfjarðarbær styrki út- hlutun um allt að 500 þúsund krónur í formi afsláttar af gatnagerðargjöldum. Tilgangur með þessu yrði að hvetja fólk til húsbygginga í Ólafsfirði á fögrum stað með frábæru útsýni.   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.