Morgunblaðið - 04.10.2005, Page 19

Morgunblaðið - 04.10.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 19 MINNSTAÐUR LANDIÐ Selfoss | Ásýnd Selfoss breytist mjög verði tillögur að breyttum miðbæ að veruleika, en Fasteigna- félagið Miðjan kynnti á dögunum hugmyndir um tvær 15 hæða byggingar, auk tveggja fjögurra hæða, í miðbænum. Vel á þriðja hundrað manns mætti á kynningarfund á laug- ardag þar sem fulltrúar fasteigna- félagsins kynntu tillögur sínar, og segir Einar Njálsson, bæjarstjóri í Árborg og fundarstjóri fundarins, að þótt skiptar skoðanir séu ef- laust innan bæjarins hafi flestir sem tjáðu sig á fundinum verið já- kvæðir gagnvart hugmyndunum. Hugmyndirnar ganga út á að byggð verði tvö 15 hæða háhýsi með samtals um 120 íbúðum, og tvö fjögurra hæða hús að auki. Gert er ráð fyrir verslunum á neðstu hæðum, og að sunnan við nýbyggingarnar verði almennings- garður, göngugata, íþróttavellir og svið. Auka lífsgæði íbúa Einar segir að miðbærinn á Sel- fossi hafi í raun aldrei verið klár- aður, og þótt hann hafi haft sínar efasemdir í byrjun sé hann nú þeirrar skoðunar að tillögurnar geti sett nýjan og spennandi svip á bæinn, og orðið til þess að auka lífsgæði íbúa í bæjarfélaginu. Spurður hvort hann telji þörf fyrir svo margar íbúðir í fjölbýli í sveitarfélaginu segist Einar telja svo vera. „Það hefur verið ótrúleg íbúafjölgun í sveitarfélaginu, á síð- ustu 12 mánuðum hefur íbúum fjölgað um 426, og í byrjun októ- ber voru 6.876 íbúar í sveitarfé- laginu.“ Undanfarið hefur talsvert verið byggt af raðhúsum og parhúsum en minna í fjölbýli. Einar bendir þó á að nýlega hafi verið teknar í notkun 45 íbúðir sem hugsaðar séu fyrir 50 ára og eldri, og vel hafi gengið að selja þær íbúðir. Mikil eftirspurn sé eftir íbúðum í ódýr- ari kantinum, og stefnan virðist vera sú að hafa íbúðirnar í mið- bænum í verðflokki sem flestir ættu að ráða við. Ingólfur færður Fasteignafélagið Miðjan hefur þegar keypt meirihlutann af þeim húsum sem standa nú á reitnum, en það er einkum verslunarhús- næði. Einar segir að einhver hús verði rifin, en vonir standi til þess að þær verslanir sem þar eru finni nýtt húsnæði í bænum, e.t.v. í nýju húsunum þegar fram líða stundir. Reiknað er með því að húsið Ing- ólfur verði fært til en ekki rifið. Í framhaldi af kynningarfund- inum á laugardag verður unnin til- laga um breytt deiliskipulag, sem svo fer til formlegrar afgreiðslu í skipulags- og byggingarnefnd sveitarfélagsins. Samþykki nefndin tillöguna verður hún auglýst og leitað eftir athugasemdum íbúa og annarra hagsmunaaðila við henni áður en hægt er að samþykkja hana endanlega. Tillögur að breyttum miðbæ Selfoss kynntar á fjölmennum íbúafundi á laugardag Vilja reisa tvö háhýsi í miðbænum Tölvuteikning/Arkitektastofan 3xN Hæstu húsin Háhýsin tvö gætu orðið áberandi þegar ekið er inn í bæinn enda langhæstu húsin í bænum, eins og sjá má á þessari tölvuteiknuðu mynd. Ættu þau að blasa vel við þegar ekið er eftir brúnni yfir Ölfusá. Háhýsi Verslanir verða á neðstu hæð en íbúðir á hæðunum þar fyrir ofan. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Samtals um 120 íbúðir auk verslunarhúsnæðis á jarðhæð Húsavík | Haninn Skúmur hefur af- ar gaman af því að fara í bíltúra um Húsavík með Héðni Helgasyni eig- anda sínum, enda eru þeir miklir félagar og fuglinn vel taminn. Héð- inn fékk nýlega heimilishænsni af íslensku kyni og var skrauthaninn Skúmur í þeirra hópi ásamt nokkr- um hænum. Í bíltúrunum situr Skúmur ýmist í aftursætinu eða stendur í báða fætur og galar mikið, og segir Héð- inn að þetta sé eins og að eiga tam- inn páfagauk. Haninn virðist hafa gaman af bílferðunum, og ekki spillir fyrir að fá eitthvað gott í gogginn þegar farið er út úr bíln- um. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Haninn Skúmur skemmtir sér í bíltúr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.