Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 23

Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 23
MJÖG skiptar skoðanir eru á Suð- urnesjum um sameiningu Garðs, Reykjanesbæjar og Sandgerðis. Bæjarstjórnir Garðs og Sandgerð- is hafa hvor um sig samþykkt að leggjast gegn sameiningu sveitar- félaganna. Að sögn Reynis Sveinssonar, formanns samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga á Suður- nesjum og fulltrúa Sandgerðis í nefndinni, endurspeglast þessi af- staða í sameiningarnefndinni. Fulltrúar Garðs og Sandgerðis eru andvígir sameiningu en fulltrúar Reykjanesbæjar henni meðmæltir. Samstarfsnefndin fékk ParX, viðskiptaráðgjöf IBM, til að gera skýrslu um samanburð á fyrir- komulagi málaflokka í sveitar- félögunum þremur og að leggja mat á hugsanleg áhrif sameiningar þeirra. Skýrslan kom út fyrr í þessum mánuði. Reynir taldi að niðurstöður skýrslunnar hefðu m.a. orðið til þess að bæjarstjórn Sandgerðis varð einhuga um að hafna sameiningu að þessu sinni. Hagkvæm sveitarfélög Haldnir hafa verið þrír kynningarfundir á Suðurnesjum um sameininguna. Að sögn Reynis mættu um 65 manns á fyrsta fundinn, sem haldinn var í Stapanum í Reykjanesbæ. Um 70 manns mættu á annan fundinn í Samkomu- húsinu í Garði og á síðasta fundinn, í Samkomuhúsinu í Sandgerði, komu 70–80 manns. Að sögn Reyn- is hafa margir tekið til máls á fundunum, umræður verið mál- efnalegar og fundarmenn séð bæði kosti og galla á sameiningartillög- unni. „Við í Sandgerði og Garði teljum okkur vera að reka mjög góð og hagkvæm sveitarfélög. Við óttumst að verða jaðarsvæði Reykjanes- bæjar við sameiningu,“ sagði Reynir. Hann nefndi t.d. að Garður og Sandgerði hefðu boð- ið upp á töluvert lægri gatnagerðar- gjöld en Reykjanes- bær, til að laða að húsbyggjendur. Á sameiningarfundun- um hefði komið fram að yrði sameinað yrðu gatnagerðargjöldin samræmd. Taldi Reynir að þar með tæki að mestu fyrir húsbyggingar í Garði og Sandgerði. „Þeir sem vilja sameinast horfa til framtíðar og telja að sameinað sveitarfélag verði öflugra og hæfara til að taka við nýjum verkefnum frá ríkinu. Andstæðingarnir segjast fyrst vilja sjá hver þessi verkefni séu og hvaða fjármagn eigi að fylgja þeim. Fólki finnst ekki búið að setja í þessar tillögur frá félags- málaráðuneytinu hvað á að koma til okkar. Fólkið veit hvað það hef- ur, en vill fá að vita hvað gerist eftir sameiningu.“ Reynir sagði ýmsa hafa bent á að Hafnir hefðu runnið inn í Reykjanesbæ fyrir tíu árum. Sumir teldu að það hefði ekki orðið uppbyggingu í Höfnum til framdráttar. Lagt til að Garður, Reykjanesbær og Sandgerði sameinist Reynir Sveinsson Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Skiptar skoðanir um sameiningu Morgunblaðið/Eyþór Í dagsins önn; unnið að viðgerðum í slippnum í Reykjanesbæ. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 23 KOSIÐ UM SAMEININGU Í VESTUR-Húnavatnssýslu er eitt sveitarfélag, Húnaþing vestra, sem var myndað með sameiningu sjö hreppa árið 1998. Í sveitarfélaginu búa tæplega 1.200 manns. Íbúa- skipting er þannig að tæplega helmingur íbúanna býr í dreifbýli og rúmlega helmingur í byggða- kjörnunum á Hvammstanga og Laugarbakka. Vestan megin við Hrútafjörð liggur sveitarfélagið Bæjarhreppur í Strandasýslu. Þar eru nú rúmlega eitt hundrað íbúar. Byggð í sveitar- félaginu nær yfir um 40 km af strandlengjunni upp með strönd- inni, en lítill byggðakjarni er á Borðeyri þar sem búa um 25 manns. 4 *  &  -# 5 &!! 8 '  0,, & 5 "&!!  #$ 5 "&!!  ,  & 5 "&!! 9& "&!! 5 !! ) 9 5 "&!! 0 ,$ )  , 4    0 ,  4$   ) $8  & 6         '$( %##& 12   ??A   # ,   <?A; 3   ?=  Húnaþing vestra – Bæjar- hreppur „Fyrst ber það að nefna að það verkefni sem við erum í er sameig- inlegt viðfangsefni Sambands ísl. sveitarfélaga fyrir hönd sveitar- stjórnarmanna um allt land annars vegar og félagsmálaráðuneytisins fyrir ríkisins hönd hins vegar. Það er sameiginlegt mat þessara að stærri og öflugri sveitarfélög séu betur til þess bær að veita íbúunum þá þjónustu sem lög kveða á um og þeir gera kröfu um. Það er sömu- leiðis álit þeirra að mörg þeirra verkefna sem ríkið nú sinnir séu betur komin í höndum sveitarfélag- anna þar sem um nærþjónustu- verkefni sé að ræða. Þar má nefna verkefni eins og heilsugæslu, heimahjúkrun, smærri sjúkrahús, málefni fatlaðra ofl. Það er ekki lagt upp í þetta ferðalag með það að markmiði að spara fé en það má hiklaust gera ráð fyrir að ákveðin samlegð náist fram, t.d. í þeim verk- efnum sem hér hafa verið nefnd sem dæmi. Það má sömuleiðis gera ráð fyrir að þjónustan verði betri og einstaklingsmiðaðri með því að ábyrgðin á þeim verði á hendi sveit- arstjórnanna.“ Þá kom fram hjá ráðherra að verði sameiningartillög- ur felldar í stórum stíl geti það haft áhrif á flutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga því grundvallarfor- senda þess sé stærri sveitarfélög. „Um framhaldið hefur hins vegar ekki verið tekin nein ákvörðun enda vonumst við til þess að sem flestir taki þátt í kosningunni á laugardag og að verkefnið nái þeim árangri sem að er stefnt, þ.e. eflingu sveit- arstjórnarstigsins.“ Er hægt að endurtaka kosningu? Þá var spurt um Barðastrand- arsýslu þar sem kjósa á um samein- ingu tveggja sveitarfélaga: Er inni í myndinni að endurtaka þá kosningu eða einhverja aðra undir einhverjum kringustæðum, til að mynda ef annað sveitarfélagið samþykkir en hitt fellir tillögu um sameiningu? Annað. Nú er það svo að verkefni sem sveitarfélögum hafa verið falin en voru áður á könnu ríkisins eru allnokkur. Hins vegar hafa tekjustofnar til að standa undir verkefnunum verið nokkuð skornir við nögl. Nú er boð- uð frekari tilfærsla verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Verður haldið áfram á sömu braut varðandi nauma tekjustofna frá ríki til að sinna þeim verkefnum? Ráðherra svaraði því til að yrði sameining felld væri ekki gert ráð fyrir að kosning yrði endurtekin. Hins vegar væri ekkert í vegi fyrir því að íbúar og sveitastjórnarmenn gengju til annarra kosninga um aðr- ar tillögur síðar en það væri ákvörð- un heimamanna. Einnig sagði hann um tekjustofnana að verkefni yrðu ekki færð milli stjórnsýslustiga nema fyrir lægi samkomulag um tekjustofna. „Frá því borði ætti enginn að standa upp ósáttur.“ Á SUÐURNESJUM búa rúmlega 17.000 manns í fimm sveit- arfélögum með sex byggðakjarna. Svæðið nær yfir Reykjanesið, frá Straumsvík að Garðskaga, og er starfssvæði Sambands sveitarfé- laga á Suðurnesjum (SSS). Íbúar Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs, þar sem eru 13.674 íbúar, munu greiða at- kvæði um sameiningu sveitarfélag- anna þriggja í eitt sveitarfélag í kosningum 8. október næstkom- andi. % ,  &  ) , & %  B#   &    4   .       '$( %##&    ?=:;     , ?=  4 +  ?:@   # ,   <?=>A@ Suðurnes „VIÐ göngum öll óbundin til kosninga og tökum því sem að höndum ber,“ sagði Guðný Þorsteinsdóttir á Borð- eyri og formaður samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Vest- ur-Húnavatnssýlu og Strandasýslu. Hún sagði að sveitarstjórnir á svæð- inu hefðu ekki ályktað sérstaklega um málið og að ákvörðun um hvort sam- eina eigi sveitarfélögin eða ekki sé al- farið í höndum íbúanna. Á meðal þeirra séu skoðanir skiptar og því ómögulegt að spá um niðurstöðuna. „Ég hef ekki verið með neinar pre- dikanir, á hvorugan veginn og gef ekki upp mína afstöðu.“ Guðný sagði að helstu kostir sam- einingar að sínu mati sneru að stjórn- sýslunni en að helstu gallarnir séu þeir að litlu sveitarfélögin missi ákveðið forræði. Hún sagði að Bæj- arhreppur stæði vel fjárhagslega og hefði haldið uppi þeirri þjónustu sem beðið hafi verið um. „Skólamálin brenna mjög á fólki hér, enda mikið af ungu fólki í sveitarfélaginu og fullt af börnum, sem varla sáust á tímabili. Fólkið vill halda sínum skóla, enda ef kæmi til þess að keyra þyrfti börn frá nyrsta bæ í sveitarfé- laginu og til Hvamms- tanga, er vegalengdin 81 km hvora leið. Þá eru 50 km frá Borðeyri til Hvammstanga.“ Guðný sagði að undirbúningur hefði staðið yfir frá því í byrjun apríl þegar samstarfsnefndin var kosin. Á hennar vegum störfuðu þrjár undir- nefndir, sem unnu að framtíðarsýn í hinum ýmsu málaflokkum í nýju sveitarfélagi. Undirnefndirnar skil- uðu af sér skýrslum í júlí til sam- starfsnefndar og í framhaldinu var útbú- inn kynningarbækling- ur á grundvelli þeirra. Guðný sagði að strax í júní hefðu undirnefnd- irnar haldið fundi með- al almennings, bæði til að kynna hugmyndir sem voru í gangi og eins til að fá fram frekari hugmyndir. Kynningafundir hafa verið á Borðeyri og Hvammstanga og sá þriðji verður í Ásbyrgi í Miðfirði á morgun, 5. október. Guðný sagði að um 30 manns hefðu verið á hvorum fundi. Samstarfsnefndin fékk Glax viðskiptaráðgjöf til liðs við sig og Garðar Jónsson ráðinn verkefnis- stjóri. Að sögn Guðnýjar vann Garðar mjög gott starf með nefndunum en hann sá einnig um undirbúning funda, útgáfu- og kynningarmál. Bæjarhreppur á Ströndum og Húnaþing vestra sameinist Guðný Þorsteinsdóttir Eftir Kristján Kristjánsson krkr@mbl.is Alfarið í höndum íbúa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.