Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 25
UMRÆÐAN
Í AUGLÝSINGU 30 ungra
Sjálfstæðismanna í Morgunblaðinu
á laugardag eru fráfarandi stjórn
Heimdallar og formaður Bolli
Thoroddsen borin þungum sökum
vegna vals fulltrúa á SUS-þing, en
um valið sagði í yfirlýsingu stjórn-
ar Heimdallar: Horft var til virkni
í starfi Heimdallar á liðnu starfs-
ári, kjörinna fulltrúa flokksins,
fyrrum forystumanna félagsins,
auk núverandi aðalstjórnar SUS.
Voru venjur
og reglur brotnar?
Í auglýsingunni er sagt að
stjórn Heimdallar hafi við val á
fulltrúum á SUS-þing brotið venj-
ur og reglur sem samþykktar voru
1987 og fylgt hafi verið „æ síðan“.
Því er haldið fram að í þeim
reglum hafi falist að á SUS-þingi
eigi „sjálfkrafa seturétt“, þeir sem
sl. 5 ár hafi setið í stjórn SUS eða
Heimdallar.
Í stjórn SUS sitja á hverjum
tíma frá Reykjavík 10 aðal- og 5
varamenn. Á 5 árum gætu þetta
verið allt að 30 aðal- og 15 vara-
menn. Í stjórn Heimdallar sitja 12
manns. Á 5 árum gætu þar verið
allt að 60 manns. Þetta eru sam-
tals um 2/3 aðalfulltrúa Heimdall-
ar, sem þá væru í eins konar lá-
varðadeild, sem hefði sjálfkrafa
seturétt á þingum SUS.
Samkvæmt lögum SUS ákveða
aðildarfélög fulltrúa sína á SUS-
þing. Æðsta vald í félögum milli
aðalfunda er hjá stjórn. Ef fé-
lagsmenn, í þessu tilfelli Heimdall-
ar, una ekki ákvörðunum stjórnar
geta þeir skotið þeim til fé-
lagsfundar.
Stjórn Heimdallar fór fyrr-
greinda leið við val á SUS-
fulltrúum eins og henni er heimilt
samkvæmt lögum Heimdallar og
SUS. Fráleitt er að halda fram
hún sé bundin af samþykktum
fyrri stjórna eða viðmiðunar-
reglum sem einhverjir kunna að
hafa stuðst við fyrir 18 árum.
Þessi stjórn Heimdallar er ekki
sú eina sem telur sig aðeins
bundna af lögum SUS, hvað þetta
varðar. Í grein í Morgunblaðinu í
ágúst 1999 rökstuddi þáv. formað-
ur Heimdallar Ingvi Hrafn Ósk-
arsson val stjórnar á SUS-
fulltrúum í svari við grein Rúnu
Malmquist sem gagnrýnt hafði
valið, m.a. vegna þess að fyrrver-
andi stjórnarmenn væru ekki að-
almenn. Þar segir Ingvi: „þeir sem
virkir eru í starfi Heimdallar verði
fulltrúar félagsins ef þeir sækja
um.“ Og Ingvi Hrafn vísar á
heimasíðu Heimdallar „þar sem
fjallað er um hvað ráði vali fulltrú-
anna. Þar getur Rúna séð að meg-
ináherslan liggur á virkni fé-
lagsmanna í starfi félagsins“.
Enginn vafi er á því að stjórn
Heimdallar fór að lögum SUS og
Heimdallar við val sitt. Vísanir í
óformlegar vinnureglur frá árinu
1987 hafa enga þýðingu í þessu
sambandi. Enda væri slík lávarða-
deild fráleitt fyrirbrigði, þar sem
stór hópur gæti gengið að full-
trúasæti án nokkurrar þátttöku í
starfi Heimdallar.
Var sagt „ósatt“
um virkni fulltrúa?
Í auglýsingunni er okkur enn-
fremur borið á brýn að hafa sagt
ósatt um virkni hluta þeirra full-
trúa sem við tilnefndum. Það er
rétt að hluti þeirra gerðist nýlega
félagar í Sjálfstæðisflokknum. Við
spyrjum ekki ungt fólk, sem mætir
á fundi eða tekur annan þátt í okk-
ar starfi um flokksskírteini. Við
vonumst hins vegar eftir því að því
lítist á starfið, líði vel þar og gangi
í flokkinn.
Var félagsfundurinn
„ólöglegur“?
Í auglýsingunni er fullyrt að fé-
lagsfundurinn 22. september hafi
verið ólöglegur og við sagt ósatt
um fjölda fundarmanna.
Félagsmenn geta skotið tilnefn-
ingum stjórnar Heimdallar á SUS-
fulltrúum til félagsfundar. Það var
gert með undirskriftalistum sem
afhentir voru síðdegis 21. sept-
ember. Í texta var félagsfundar
„krafist við fyrsta tækifæri“ og
beðið um upplýsingar „án tafar
hvar og hvenær stjórnin hyggst
boða til fundarins“. Í lögum Heim-
dallar segir að stjórnarfundi skuli
„að jafnaði“ boða með tveggja
daga fyrirvara, ekkert segir um
fyrirvara á boðun félagsfunda, að-
eins að „þá skuli boða eins vel og
kostur er“.
Vegna kröfu um að félagsfund-
inn skyldi boða „við fyrsta tæki-
færi“, var haldinn stjórnarfundur
strax um kvöldið, eins og lög
heimila og ákveðið að halda fé-
lagsfundinn síðdegis næsta dag.
Þegar var haft samband við þá
sem afhentu undirskriftalistana og
tilkynning sett inná heimasíðu
Heimdallar. Ávallt má deila um
hvort fundir séu „boðaðir eins vel
og kostur er“. Víst er að Valhöll
fylltist síðdegis 22. september. Að
mati okkar voru þar ríflega 300
manns, troðfullur fundarsalur í
kjallara, gangar og einhverjir
stóðu úti eða urðu frá að hverfa.
Við teljum að tölur um fjölda fund-
armanna, sem formaður félagsins
(á fjórða hundrað) og gjaldkeri
(ríflega 300) nefndu í blaðagrein-
um séu réttar. Ekki er venja að
telja fjölda fundarmanna í Heim-
dalli, né að krafist sé persónuskil-
ríkja, nema á aðalfundum. Engin
ósk kom fram um slíkt og við
treystum því að þeir sem mættu
hafi verið fullgildir félagsmenn.
Þessi félagsfundur var boðaður
með lögmætum hætti, niðurstaða
hans var skýr, yfirgnæfandi meiri-
hluti staðfesti val stjórnar á
fulltrúum félagsins á SUS-þing.
Að kunna að tapa
Sá hópur sem undanfarið hefur
haft uppi rætnar árásir á rétt-
kjörna stjórn Heimdallar er hvorki
sjálfum sér né Sjálfstæðis-
flokknum til sóma. Við höfum tek-
ist á í kosningum og þeir urðu
undir. Það er gangur lýðræðisins,
þar er mikilvægt að kunna að taka
bæði sigri og ósigri.
Stjórn Heimdallar valdi
SUS-fulltrúa á grundvelli
laga SUS og félagsins
Ásta Lára Jónsdóttir, Bolli
Thoroddsen, Davíð Ólafur
Ingimarsson, Drífa Kristín
Sigurðardóttir, Guðrún Pálína
Ólafsdóttir, Helga Kristín
Auðunsdóttir, Óttar Snædal,
Stefanía Sigurðardóttir, Tómas
Hafliðason, Ýmir Örn
Finnbogason skrifa um val á
fulltrúum á SUS-þing.
’Brigsl um lögbrot og ósannindi eru
auðhrekjanleg og
andstæðingum okkar
ekki til sóma.‘
Höfundar sátu í fráfarandi stjórn
Heimdallar.