Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 26

Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FORSETINN OG FJÖLMIÐLARNIR Ólafur Ragnar Grímsson forseti Ís-lands fjallaði um fjölmiðla á Ís-landi í ræðu sinni við setningu Al- þingis sl. laugardag. Forsetinn sagði meðal annars: „Áður fyrr fengu allir sömu fréttir, útvarpið var með eina rás, dagblöðin voru í föstum skorðum flokkakerfis. Nú ræður fjölbreytileikinn fréttum dagsins, margar stöðvar keppa um hylli fólksins og flokkarnir eiga ekki lengur á vísan að róa í fjölmiðlunum. Lýðræðið er í vaxandi mæli vettvangur fólks með ólíka reynslu, mismunandi upp- lýsingar, fréttir sem berast úr mörgum áttum. Enginn miðill nær lengur til allra. Nettæknin hefur í auknum mæli fært hverjum og einum tækifæri til að láta í sér heyra; miðlarnir geta í sjálfu sér orðið jafn margir mannfólkinu. ... Frjálsræði hvers og eins til að velja sér upplýsingar er nú meira en nokkru sinni og forræði valdsmanna á fréttum og umræðuefnum nánast horfið.“ Allt er þetta út af fyrir sig rétt hjá for- seta Íslands. Ítök stjórnmálaflokka og einstakra stjórnmálamanna í fjölmiðlum eru langtum minni en á tíma flokksmál- gagnanna. Fjölmiðlunum hefur fjölgað og Netið hefur vissulega opnað nýja mögu- leika í skoðanamyndun og skoðanaskipt- um. Hins vegar má draga í efa að tölvan sé orðin öflugra áhrifatæki en ræðustóll Al- þingis, eins og forsetinn velti fyrir sér í ræðu sinni. Pólitískar vefsíður ná enn sem komið er til fremur þröngs hóps og áhrifa- máttur þess, sem þar er skrifað, er ekki verulegur nema stærri fjölmiðlar taki það upp. Hins vegar gleymir forsetinn að ræða það, sem auðvitað blasir við þegar fjöl- miðlaumhverfið á Íslandi er skoðað. Sama fyrirtækjasamsteypan, sem jafnframt er umsvifamikil á mörgum öðrum mörkuð- um, ræður yfir tveimur dagblöðum, net- miðli og fjölda sjónvarps- og útvarps- stöðva. Þegar forseti Íslands segir að forræði valdsmanna á fréttum og umræðuefnum sé nánast horfið, er það rétt hvað stjórn- málamenn varðar. En hann nefnir ekki hina nýju valdsmenn í íslenzku samfélagi; menn sem hafa eða geta haft gífurleg áhrif og völd í krafti peninga og fyrirtækjaeign- ar. Það hefur komið skýrt í ljós á und- anförnum vikum hvernig hægt er að beita fjölmiðlasamsteypu í þágu hagsmuna eig- enda hennar. Alþingi sjálft hefur að sumu leyti skap- að hinar nýju aðstæður á fjölmiðlamark- aðnum; með því að samþykkja margvís- lega löggjöf, sem dregur úr völdum og áhrifum stjórnmálamanna en færir fjár- málamönnum meiri áhrif og völd. En ekki má gleyma því að Alþingi hefur líka sjálft síðasta orðið um það hvernig þessum mál- um er skipað. Þingið getur sett lög, sem setja valdi þeirra, sem eiga fyrirtæki og peninga, sambærilegar skorður og settar eru valdi stjórnmálamanna með stjórnar- skrá og öðrum lögum. Ólafur Ragnar Grímsson varð fyrir réttum áratug líklega fyrstur íslenzkra stjórnmálamanna til að vekja athygli á nauðsyn lagasetningar um eignarhald á fjölmiðlum. Hann sagði í ræðu á Alþingi 13. febrúar 1995 að það væri mjög mik- ilvægt í lýðræðislegu samfélagi „ekki að- eins að tryggja mannréttindi í stjórnar- skrá og eðlilegar aðferðir við skipan löggjafarvalds og framkvæmdarvalds heldur einnig að tryggja að fjölmiðlakerf- ið í hverju lýðfrjálsu landi sé opið og frjálst.“ Þáverandi þingmaður Alþýðubanda- lagsins bætti við: „Hringamyndanir á sviði fjölmiðla ganga þannig þvert á nú- tíma hugsun á vettvangi lýðræðis. Þannig hafa í ýmsum lýðræðisríkjum eins og í Bandaríkjunum og Evrópu verið sett í lög margvísleg ákvæði sem koma í veg fyrir hringamyndanir, ákvæði sem koma í veg fyrir það að sömu aðilarnir geti haft ráð- andi vald á dagblöðum, á sjónvarpsstöðv- um og á útvarpsstöðvum. Engin slík lög eru til hér á Íslandi.“ Hann ályktaði sömu- leiðis: „Ef álíka hringamyndun verður í fjölmiðlum og orðið hefur á þeim sviðum atvinnulífsins sem kennd eru við kol- krabbann og smokkfiskinn þá er verið að stefna lýðræðislegu eðli íslenskrar fjöl- miðlunar í hættu.“ Erfitt er að sjá hvernig þessi tíu ára gömlu varnaðarorð Ólafs Ragnars Gríms- sonar koma heim og saman við áferðarfal- lega lýsingu hans á íslenzku fjölmiðlaum- hverfi í dag í áðurnefndri þingsetn- ingarræðu. Núverandi forseti Íslands hefur verið manna duglegastur að vekja í ræðum sín- um athygli á ýmsu því, sem betur má fara í þjóðfélagi okkar og vara við ýmiss konar hættulegri þróun. Af hverju er hann hættur að taka eftir hættunum, sem felast í samþjöppun á fjöl- miðlamarkaðnum? LESBÓK 80 ÁRA Í dag eru liðin áttatíu ár frá því aðfyrsta tölublað Lesbókar kom út, 4. október 1925. Blaðið er elsta fylgirit Morgunblaðsins og eitt af elstu tímarit- um á landinu. Eins og kom fram í grein Þrastar Helgasonar umsjónarmanns Les- bókar á laugardaginn nýtur blaðið líka sérstöðu að því leyti að það er eina viku- ritið sem fjallar um menningu hérlendis. Hann bendir líka á að utan Morgunblaðs- ins sjálfs og Ríkisútvarpsins fjalli nú eng- ir fjölmiðlar um menningu af einhverjum þunga. Þetta er satt að segja umhugs- unarefni en undirstrikar jafnframt mik- ilvægi Lesbókarinnar. Eins og sagði í grein Matthíasar Jo- hannessen á forsíðu Lesbókarinnar um helgina var henni „aldrei ætlað að verða það sem kallað er menningartímarit, heldur var ætlunin að hún yki upplag Morgunblaðsins með afþreyingarefni eins og nú er sagt; fróðleik og skemmti- efni ýmiss konar.“ Þannig var Lesbókin í upphafi, en þar kom að hún tók stakka- skiptum: „Og nú er Lesbók orðin aka- demískasta blað landsins og fyllir þannig upp í tómarúm í hávaðasömu, fjölnis- mannalausu og lágreistu poppsamfélagi síðustu ára, þar sem holtaþokuvælið og lágkúran eru hafin til skýja, jafnvel verð- launuð í auglýsingaskruminu, og gaspr- andi pólitíkusar (og ýmsir aðrir) stynja í fjölmiðlum af undirgefni við kjaftfora, ósvífna nýkapitalista,“ sagði Matthías í greininni og vitnaði í bók sína Málsvörn og minningar. Lesbók Morgunblaðsins hefur skapað sér sérstöðu og á nú fastan sess í ís- lenskri blaðaútgáfu. Hún hefur ávallt borið svip af umsjónarmanni sínum og að því leyti verið frábrugðin öðrum hlutum Morgunblaðsins. Í Lesbókinni er nú fjallað um menningu af öllum toga – án þess að gert sé upp á milli menningar- strauma og -stefna. Ekkert efni er blaðinu óviðkomandi, þótt vissulega gildi ekki einu um efnistök. „Það er þó ekki neitt markmið hjá Lesbók að vera erfið eða flókin í framsetningu eða hugsun,“ skrifaði Þröstur. „Þvert á móti er fylgt þeirri hefð sem skapast hefur í íslenskri blaðamennsku jafnt sem hugvísindum að hugsa og skrifa á íslensku sem lesendur skilja.“ Lesbók Morgunblaðsins hefur á 80 árum markað djúp spor í íslenska menningarumræðu og blaðamennsku. Hún hefur ekki aðeins haldið velli, heldur vaxið hvað sem líður öllum þjóðfélags- umbrotum, sem orðið hafa frá því að hún kom fyrst út. Og hún á mikið eftir enn. TEKJUAFGANGUR ríkissjóðs á næsta ári verður 14,2 milljarðar króna gangi eftir áætlun fjárlaga- frumvarps fyrir árið 2006. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra kynnti frumvarpið í gær og lagði það fram á Alþingi. Tekjuafgangurinn svarar til 1,4% af landsframleiðslu. 6,6 milljarðar í að greiða niður skuldir Handbært fé frá rekstri er áætl- að tæplega 11 milljarðar kr. og lánsfjárafgangur á næsta ári 9,6 milljarðar. Þá er áformað að greiða niður skuldir á næsta ári fyrir 6,6 milljarða kr. auk þess sem greiða á inn á lífeyrisskuldbindingar ríkis- ins. Sé litið yfir tveggja ára tímabil mun ríkissjóður greiða niður skuld- ir fyrir samtals 64,3 milljarða kr. á því tímabili gangi áætlanir eftir. Hrein skuldastaða ríkissjóðs verð- ur þá 7,1% af landsframleiðslu. Alls lækka vaxtagjöld ríkisins á næsta ári um tvo milljarða kr. miðað við fjárlög yfirstandandi árs. Sé litið yfir tíu ára tímabil munu hreinar skuldir ríkissjóðs lækka úr 35% af vergri landsframleiðslu ári 1996 í 7% á næsta ári. Frestun vegaframkvæmda skilar tveimur milljörðum Fjármálaráðherra leggur áherslu á að megineinkenni fjár- lagafrumvarpsins sé áframhaldandi aðhald í ríkisfjármálum. „Þetta er gríðarlega sterk staða sem kemur fram hjá ríkissjóði og stenst af- skaplega vel samanburð við allt það sem er að gerast í nágrannalöndum okkar og þeim löndum sem við ber- um okkur saman við og gefur okk- ur ýmsa möguleika,“ sagði Árni. Við gerð fjárlagafrumvarpsins var ákveðið að grípa til aðgerða sem eiga að skila samtals fjórum milljörðum króna lægri útgjöldum á næsta ári en annars hefði orðið. Þar af skilar frestun framkvæmda í vegamálum tveimur milljörðum. Þá var ráðuneytum og stofnunum gert að taka á sig samtals eins milljarðs kr. lækkun útgjalda, sem þau mættu ýmist með því að falla frá áformuðum verkefnum eða með því að draga úr fjárveitingum til verk- efna sem fyrir voru. Því til viðbótar ákvað ríkisstjórnin að lækka út- gjöldin um einn milljarð, m.a. með lækkun lyfjaútgjalda um ónir frá því sem hefði óbreyttu, vaxtabætur læ 250 milljónir, framlög ti framkvæmda lækka um 2 ónir með frestun verkefna stofnkostnaðarverkefni er niður um 250 milljónir. Me efna sem hér um ræðir e verkefna Ofanflóðasjóðs milljónir, frestun á stofn háskóla um 100 milljónir o framkvæmda við flugv nemur um 50 milljónum k Barnabætur aukn um 1,2 milljarða Annar áfangi í lækku skatts einstaklinga kemur kvæmda á næsta ári en þ tekjuskattur einstaklinga prósentustig sem jafngild milljörðum kr. á næsta ári tilliti til skatttekna af auki að því er fram kemur í f inu. Barnabætur verða j auknar um 1,2 milljarða kr eignarskattar niður á n ásamt því að svonefndur skattur fellur niður. Á hinn bóginn er áhers aukin framlög til mennta rannsókna í fjárlagafru en þau aukast um 12% lögum yfirstandandi árs tæplega 2,9 milljarða kr. Skatttekjur verð 301 milljarður „Tekjuáætlun fjárlagafr fyrir árið 2006 gerir ekki áframhaldandi vexti efn ins í eins miklum mæli irstandandi ári. Spá fjárm neytisins gerir ráð f hagvöxtur verði 4,6% á ár samanborið við 6% í ár. E gert ráð fyrir að verðbó um 3,8% og kaupmáttur unartekna aukist um 2,7% um forsendum er áætlað tekjur ríkissjóðs verð milljarðar króna sem e fjárhæð og á yfirstandan fjármagnstekjuskatts ríki söluhagnaði Land Óbreyttar skatttekjur m þrátt fyrir 5% hagvöxt meðal annars af lækku skattshlutfalls einstakling eignarskatta og veruleg tekjum af stimpilgjöldum gjöldum af ökutækjum. Á að heildartekjur ríkissjó 327,4 milljarðar króna eða örðum króna lægri en t Fjármálaráðherra segir áh „Gríðarl stenst sa  4 milljarða niðurskurður með sérstökum aðgerðum  Vaxtabætur eiga að lækka um 250 milljónir króna  Framlög til menntamála verða aukin um 12%  Útlit fyrir tæplega 30 milljarð tekjuafgang í ár Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is BOÐUÐ eru aukin framlög í menntamálum í fjárlaga- frumvarpi næsta árs. Lagt er til að rekstrargjöld á sviði menntamálaráðuneytisins verði 26,3 milljarðar og hækki um 2.872 milljónir frá fjárlögum yfirstandandi árs. Auk launa- og verðlagshækkana er gert ráð fyrir um 400 milljóna kr. auknum framlögum til kennslu í fram- haldsskólum, 227 milljóna aukningu til rannsókn- armála, 266 millj. kr. vegna kennslu í háskólum og 90 millj. kr. viðbótarframlögum vegna tímabundinna verk- efna sem tengjast breyttri skipan náms til stúdents- prófs. Loks er gert ráð fyrir 50 millj. kr. hækkun vegna verkefna á aðalskrifstofu. Á móti vega hins vegar lækkanir um samtals 90 millj- ónir kr urfelli 280 m „Fr um 75 Fyrir m.kr. h m.kr. t m.kr. t vegna samba mennt Fra Rekstrargjöld menntamál ÁÆTLAÐ er að tekjur ríkissjóðs af eignarskatti verði 14,2 milljarðar á yfirstandandi ári eða um 5 millj- örðum kr. meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Þessi hækkun stafar að mestu leyti af auknum tekjum rík- issjóðs af stimpilgjöldum sem hafa orðið 4 milljörðum kr. meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Á næsta ári er gert ráð fyrir um 7 milljarða tekjum af eignarsköttum eða um 7 milljörðum kr. minni tekjum en í ár. Munar þar miklu um afnám skattlagningar á hreina eign ein- staklinga og fyrirtækja sem tekur gildi á næsta ári. Áætlað er að virðisaukaskattur skili um 114,4 milljörðum í rík- issjóð á næsta ári og er það hækk- un um 5,5% frá yfirstandandi ári. Í spá fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að laun á vinnumarkaði hækki um 5% og að skattgreið- endum tekjuskatts á einstaklinga fjölgi um 1,5%. Er því gert ráð fyr- ir að tekjuskattur einstaklinga nemi tæplega 70 milljörðum á næsta ári eða um 1,5 milljörðum kr. meira en á þessu ári. Á næsta ári lækkar tekjuskattur ein- staklinga um 1%. 4 milljörðum meiri tekjur af stimpilgjöldum RÍKIÐ greiðir samtals 8,2 millj- arða króna með landbúnaðarfram- leiðslu á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2006. Er þetta hækkun um 450 milljónir króna frá gildandi fjár- lögum að meðtöldum hækkunum vegna áætlaðra verðbóta. Gert er ráð fyrir 4.841 milljónar króna greiðslu vegna mjólk- urframleiðslu sem er 253 millj- ónum meira en á þessu ári. Þær breytingar hafa orðið, að stuðn- ingurinn er ekki lengur ákveðið hlutfall af verði mjólkur heldur hefur verið samið um fastar heild- arfjárhæðir beingreiðslna. Þá er gert ráð fyrir 2.983 millj- óna króna greiðslum vegna sauð- fjárframleiðslu, sem er hækkun um 140 milljónir króna milli ára. Loks nema greiðslur vegna grænmetisframleiðslu 355 millj- ónum króna á næsta ári, sem er hækkun um 60,8 milljónir króna. Þar af er lagt til að fjárveiting til niðurgreiðslu á raforkuverði til garðyrkjubænda hækki um 55,2 milljónir króna. 8,2 milljarðar í landbúnaðar- framleiðslu FRAMLAG til eflingar þróun- armála á sviði utanríkisráðu- neytisins eykst um 527,8 millj- ónir kr. á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2006. Einnig er óskað eftir 50 milljóna kr. framlagi vegna flutninga fyr- ir NATO. Alls nemur framlag til þróun- armála og alþjóðlegrar hjálp- arstarfsemi 658,9 milljónum á næsta ári. Meðal þess sem þar um ræðir er 121,9 milljóna kr. fjárveiting til almennra framlaga á sviði þróunarmála, s.s. til al- þjóðastofnana og verkefna á sviði þróunarsamvinnu, til að kosta veru íslenskra starfsmanna hjá alþjóðastofnunum, samstarfs við alþjóðastofnanir á sviði orku- mála o.fl. Sótt er um 49,9 millj- óna kr. framlag til mann- úðarmála og neyðaraðstoðar og 20 milljóna kr. fjárveitingar vegna jarðhitanámskeiða í Afr- íku og Mið-Ameríku. Alls nemur framlag til al- þjóðastofnana á næsta ári 1,4 milljörðum kr. og hækkar um rúmlega 20 milljónir. Sótt er um 72 milljóna kr. fjárveitingu til ís- lensku friðargæslunnar. 527 milljónir til eflingar þróunarmála

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.