Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 27

Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 27 300 millj- orðið að ækka um il hafnar- 200 millj- a og ýmis ru skorin eðal verk- er frestun um 100 fnkostnaði og frestun velli sem kr. nar a un tekju- r til fram- þá lækkar a um eitt dir um 4 i að teknu inni veltu, frumvarp- jafnframt r. Þá falla næsta ári r hátekju- sla lögð á amála og mvarpinu frá fjár- eða um ða r frumvarps ráð fyrir ahagslífs- og á yf- málaráðu- fyrir að rinu 2006, Einnig er ólga verði r ráðstöf- %. Á þess- að skatt- ði 301,4 er svipuð ndi ári án issjóðs af dssímans. milli ára t skýrast un tekju- ga, afnámi ga minni og vöru- Áætlað er óðs verði a 6,7 millj- tekjur yf- irstandandi árs án eignasölu. Meg- inskýring þeirrar lækkunar er eins og áður sagði minni tekjur af fjár- magnstekjuskatti sem ríkissjóður greinir og minni arðgreiðslur eftir sölu Landssímans. á móti kemur að vaxtatekjur af innistæðu ríkissjóðs í Seðlabankanum hækka,“ segir í greinargerð fjárlagafrumvarpsins. Útgjöldin verða 313 milljarðar Heildarútgjöld ríkissjóðs á næsta ári eru áætluð 313,2 millj- arðar króna eða 16,8 milljörðum kr. hærri en í fjárlögum yfirstandandi árs og hækka um 8,8 milljarða kr. ef miðað er við áætlaða útkomu á árinu 2005. Er þá ekki tekið tillit til áhrifa af sölu Landssímans. Að raungildi þýðir þetta að útgjöldin lækka um 1% á milli ára og verða 29,8% af vergri landsframleiðslu en útgjöldin í ár eru áætluð 31,5% af landsframleiðslu. Sé litið á rekstrarútgjöld ríkisins á næsta ári kemur í ljós að þau hækka um tæplega 11% frá fjár- lögum 2005 m.a. vegna málefna fatlaðra, löggæslu og öryggismála. Þá hækka rekstrargjöld sjúkra- stofnana og heilsugæslu um 7-8%. Svonefndar tekjutilfærslur aukast um 8,3 milljarða og er það 2,8% raunhækkun frá fjárlögum miðað við almennt verðlag. Þar af eru tveir milljarðar vegna áætlana um afskriftir skattkrafna sem ekki koma til greiðslu úr ríkissjóði. Þá hækka framlög til þróunarað- stoðar um tæplega 500 milljónir eða um tæp 20%. Fjárfesting og viðhald lækkar hins vegar um tæp- lega 900 milljónir frá fjárlögum eða um rúmlega 4,5%. Munar þar mestu um tímabundna lækkun framlaga til framkvæmda í sam- göngumálum auk þess sem tíma- bundnu átaki í uppbyggingu hjúkr- unarheimila lýkur. Vaxtagjöldin lægri en tekjur af vöxtum í fyrsta sinn Í fréttatilkynningu fjármálaráðu- neytisins um meginniðurstöður frumvarpsins segir að samanlagður tekjuafgangur ríkissjóðs frá 1999 til 2006 verði um 100 milljarðar kr. Þar af eru 57,5 milljarðar vegna hagnaðar af sölu Landssímans. Lánsfjárafgangurinn verður 150 milljarðar á sama tímabili. „Sterk staða ríkissjóðs hefur skilað sér í mikilli lækkun á hreinni skulda- stöðu í hlutfalli af landsframleiðslu, sem lækkar úr 35% af landsfram- leiðslu frá árinu 1999 í um 7% árið 2006 gangi áform frumvarpsins eft- ir. Um síðustu áramót námu upp- safnaðar fyrirframgreiðslur ríkis- sjóðs til LSR [Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins] um 80 millj- örðum ásamt vöxtum og eru þær áætlaðar um 100 milljarðar króna í árslok 2006. Áformað er að greiða skuldir niður um 57,7 milljarða króna á þessu ári og 6,6 milljarða króna á næsta ári. Lækkun skulda skilar sér í lægri vaxtagjöldum sem nú eru í fyrsta sinn lægri en vaxta- tekjur ríkissjóðs í frumvarpinu.“ Framlög til framkvæmda verða aukin á ný á árinu 2007 Í fjárlagafrumvarpinu er nú í þriðja árið í röð lögð fram stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum til næstu fjögurra ára. Helstu markmið hennar eru að áfram verði fylgt aðhaldssamri stefnu í ríkisfjármálum. þannig verði árleg- ur vöxtur samneyslunnar ekki um- fram 2% að raungildi og tilfærslu- útgjalda ekki umfram 2,5%. Dregið verður úr framkvæmdum um 2 milljarða á næsta ári eins og fyrr segir en framkvæmdir verða svo auknar á ný um tvo milljarða á árinu 2007 og tvo milljarða á árinu 2008 en því til viðbótar koma svo framlög samkvæmt ákvörðun rík- isstjórnarinnar um ráðstöfun á söluandvirði Landssímans. 35 milljarð lánsfjárafgangur í ár Fjármálaráðherra kynnti einnig í gær horfur í ríkisfjármálum á yf- irstandandi ári. Nú er áætlað að tekjuafgangur ríkissjóðs verði tæp- lega 30 milljarðar kr. á þessu ári en hann var áætlaður um 10 milljarð- ar á fjárlögum. Er hér ekki meðtal- inn söluhagnaður af Landssíman- um. Ef tekið er tillit til hans nemur tekjuafgangur ríkissjóðs á yfir- standandi ári um 85 milljörðum kr. Lánsfjárafgangurinn í ár verður skv. endurskoðaðri áætlun tæplega 35 milljarðar án tillits til söluand- virðis Landssímans og rúmir 98 milljarðar að því meðtöldu. herslu verða lagða á áframhaldandi aðhald í fjárlagafrumvarpi 2006 lega sterk staða sem amanburð við útlönd“ m a ða Morgunblaðið/Sverrir Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra kynnir sitt fyrsta fjárlaga- frumvarp í Salnum í Kópavogi í gær, með bros á vör, en tekjuafgangur ríkissjóðs er mikill um þessar mundir. D < 44=3,:-< !,1 > *",:4 5 /*", >, J TF)4-' : 0,>)34-< >/, 0-< 0 34- 6 'D< ' /01 J TF)4-' : <":)34-< >/, 0-< 0 34- 6 'D< ' /01 J S"!), ,4 : , "< "!! / 0 >/, 0 > =N:),"B< 1 "!=-, +=34 &##  S"!), ,4 : , 4 ,- &  =>,<-' /,"B0 '5 , 4&   ##    #$ @C =>,435  TF)4-'  TF)4-' J  ,-<* ,.    ?D U CD: ?D?   ;D U D>  =@D>   ;=D U D@ :;D? S" !' '5-,    D U C?D: =D    ?@D U ?DA U :D> 0&'  "&  5   #  D < 44=3,:-< !,1 > 03)- *",:4 5 "'') <>4 4< '' ),1 $5 *"40",: ,<>4 7" 49, 5: <>4 6355F4 $5 3,B55 <>4 4<"'' $. '9", ;=N'-) <53'5-<>4 ?''-, L)5=34 $5 *"P) ,      U U . + # , &"  .6 ?::;C V  V V V V V V V V          r. á ýmsum liðum vegna aðhaldsaðgerða og nið- ing á 74 milljóna kr. tímabundnum framlögum. milljóna kr. hækkun til LÍN ramlag til neyslu- og rekstrartilfærslna hækkar 2 m.kr. [milljónir króna] og verður 11.899 m.kr. utan verðlagsbreytingar munar mest um 280 hækkun til Lánasjóðs íslenskra námsmanna, 84 til eflingar sjálfsmats í framhaldsskólum, 60 til rannsóknarmála, 34 m.kr. til Ríkisútvarpsins tekna af afnotagjöldum og 30 m.kr. til sér- anda ÍSÍ,“ segir m.a. í greinargerð um útgjöld tamálaráðuneytisins. am kemur að á sviði háskólanna munu framlög til rannsókna og tengdra verkefna aukast um 279 millj- ónir kr. fyrir utan launa- og verðlagshækkanir. Þar af fara 137 millj. kr. til háskóla og 142 millj. kr. til rann- sóknasjóða, stoðkerfis rannsókna og alþjóðlegs sam- starfs. „Framlög til rannsókna og annarra verkefna en kennslu í háskólum eru áætluð 2.617,5 m.kr. og er stefna menntamálaráðuneytisins sú að skólar fái ákveð- ið grunnframlag til rannsókna og innra þróunarstarfs en að öðru leyti fjármagni þeir rannsóknir með sér- tekjum, meðal annars úr samkeppnissjóðum á sviði rannsókna. Miðað er við að aukin framlög til sam- keppnissjóða skapi háskólunum sóknarfæri um leið og samkeppnin veitir aðhald,“ segir í greinargerð frum- varpsins. Útgjöld til framhaldsskóla aukast um 1,5 milljarða Heildarútgjöld á sviði framhaldsskólanna eru áætluð 14.788 milljónir kr. á næsta ári á rekstrargrunni og hækka útgjöldin um rúmlega 1,5 milljarða kr. eða um 11,5% frá fjárlögum yfirstandandi árs. Áætlað er að sértekjur nemi um 707 milljónum kr. sem er hækkun um 86,4 milljónir frá fjárlögum 2005. Rekstrarframlag til framhaldsskólanna hækkar um 400 milljónir eins og áður segir, þegar tekið er mið af spá um nem- endafjölgun. Á móti kemur að gerð er krafa um hag- ræðingu í rekstri skólanna og eru af þeim sökum fram- lög til tiltekinna skóla lækkuð um 14,3 milljónir. la aukin um 2,9 milljarða króna HEILBRIGÐISRÁÐHERRA mun leggja fram frumvarp á Alþingi sem kveður á um að uppbót á elli- og örorkulífeyri og svonefndur örorkustyrkur vegna reksturs bif- reiðar (oft nefndur bensínstyrkur) verði felld niður frá og með 1. jan- úar næstkomandi en styrkurinn er áætlaður 720 milljónir kr. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Af þessum fjármunum er á hinn bóginn lagt til að 100 milljónir verði millifærðar til að efla starfs- endurhæfingu sjúkratrygginga og 393 milljónir til að hækka tekjutryggingarauka hjá elli- og örorkulífeyrisþegum. 226 millj- ónir verði notaðar til að mæta hagræðingarkröfu, eins og það er orðað í greinargerð frumvarpsins. Í frumvarpinu kemur fram að útgjöld bóta samkvæmt lögum um félagslega aðstoð munu lækka að raungildi um 581,8 milljónir kr. að raungildi á næsta ári frá fjár- lögum yfirstandandi árs. Bætur lífeyristrygginga al- mannatrygginga eru áætlaðar 34,2 milljarðar á næsta ári og aukast að raungildi um 1.488 milljónir á milli ára, skv. fjárlaga- frumvarpinu. Meginskýringin á aukningunni er fjölgun bótaþega en þessi fjárlagaliður hækkar um 1.094 millj. kr. af þeim sökum. Heildarútgjöld sjúkratrygginga eru áætluð 15.581 millj. kr. á næsta ári og hækka um 575 millj- ónir á milli ára að raungildi og vega þar þyngst áhrif gengis á lyfjakostnað og kaup á erlendri sjúkrahússþjónustu. Þá kemur fram í fjárlaga- frumvarpinu að næstu fjárveit- ingar í tryggingamálum aukast um 30 milljónir vegna aukinna framlaga til að efla starfsend- urhæfingu og 8 milljónir vegna framlaga sem varið er til að efla tannlæknaþjónustu barna. Bensínstyrkur elli- og ör- orkulífeyrisþega felldur niður Bætur lífeyristrygg- inga hækka um 1.488 milljónir króna  Rekstur Landspítala – háskóla- sjúkrahúss mun kosta 28 milljarða á næsta ári gangi spár eftir og aukast útgjöldin um 260 milljónir að raungildi. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gerð tillaga um 77 milljóna kr. framlag til að mæta veikleikum í rekstri á þessu ári og 40 milljónum til að mæta kostn- aðarauka í tengslum við fjölgun sjúklinga með illkynja sjúkdóma.  Gert er í fyrsta skipti ráð fyrir útgjöldum vegna sendiráðs í Nýju- Delhi á Indlandi í fjárlaga- frumvarpinu fyrir árið 2006. Um er að ræða 23 milljóna króna framlag vegna innréttinga og tækjabúnaðar sendiráðs á Indlandi.  Sótt er um heimild fyrir lands- virkjun til að taka 41 milljarð kr. að láni á næsta ári í fjárlagafrumvarp- inu fyrir árið 2006.  Framlag til Tækniþróunarsjóðs hækkar um 120 milljónir á næsta ári verði tillaga þar um í fjárlaga- frumvarpinu að lögum. Heildar- framlag yrði þá 460 milljónir í sam- ræmi við stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í rannsóknar- og þróunarmálum.  Áætlað er að útgjöld Fæðing- arorlofssjóðs hækki um 250 millj- ónir kr. á næsta ári í ljósi endur- skoðaðrar áætlunar um þróun útgjalda það sem af er þessu ári. Skv. fjárlagafrumvarpinu verða út- gjöld sjóðsins 7.041 milljónir á næsta ári.  Félagsmálaráðuneytið ætlar að verja 10 milljónum á næsta ári til að þróa nýjungar í meðferðarstarfi fyrir börn og unglinga og til að efla forvarnir. Þá verður 6,5 milljónum varið tímabundið til að bjóða með- ferð þeim körlum sem beita eig- inkonur sínar eða sambýliskonur ofbeldi.  Sótt er um heimild í fjárlaga- frumvarpinu fyrir fjármálaráð- herra til að kaupa hverasvæði Geysis í Haukadal. Einnig er sótt um heimild til að kaupa sum- arbústaði í þjóðgarðinum á Þing- völlum. Sótt er um heimild til að selja fasteignir í Flatey á Skjálf- anda og heimild til að kaupa jarðir innan fyrirhugaðs Vatnajök- ulsþjóðgarðs.  Félagsmálaráðuneytið sækir um þriggja milljóna kr. fjárheimild vegna minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur í fjárlaga- frumvarpinu, 10 milljónir sem veita á vegna nýjunga í meðferðarstarfi fyrir börn og unglinga og 15 millj- ónir sem veita á til Sjónarhóls.  Framlög til Listdansskólans munu lækka umtalsvert á næsta ári skv. fjárlagafrumvarpinu. Í ár er gert ráð fyrir 59,2 milljóna kr. framlagi til skólans á rekstr- argrunni en á næsta ári lækkar fjárveitingin í 34,5 milljónir skv. fjárlagafrumvarpinu.  Gerð er tillaga í fjárlaga- frumvarpinu um að Alþingi verði veitt 5 milljóna kr. tímabundið framlag í tvö ár til að undirbúa NATO-þing sem haldið verður hér á landi á árinu 2007.  Listasafn Íslands fær 6 milljóna kr. hækkun á framlögum á næsta ári skv. fjárlagafrumvarpinu vegna listaverkakaupa. Stofnkostn- aðarframlag til Víkinganausts í Reykjanesbæ hækkar um 20 millj- ónir á næsta ári en miðað er við að alls nemi framlagið 120 milljónum á árunum 2006 til 2011. Tímabundið 5 milljóna kr. framlag til Galdra- sýningar á Ströndum fellur hins vegar niður á næsta ári skv. fjár- lagafrumvarpinu.  Iðnaðarráðuneytið setur fram ósk um 30 milljóna kr. tímabundið framlag á næsta ári til olíu- leitarmála. „Á vegum samráðs- nefndar um landgrunns- og olíu- leitarmál hefur verið unnið að undirbúningi fyrir veitingu leyfa til rannsókna og vinnslu á olíu. und- irbúningurinn felur í sér breyt- ingar á lögum, nýjar reglugerðir og mat á efnahags- og umhverfis- áhrifum,“ segir í greinargerð. Molar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.