Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 29

Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 29 UMRÆÐAN Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan sið- blindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma. Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu trú- lega aldrei ná þeim greind- arþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyrirheit um. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Fjölmiðlaumfjöllun liðinna vikna um mál- efni eldri borgara ber að fagna. Það er sannarlega þakkarvert að fjöl- miðlar skuli fjalla um þessi málefni frá sem víðustum sjónarhóli, en sannast sagna er þar í mörg horn að líta. Vönduð og víðtæk um- fjöllun er vitanlega af hinu góða, því enn er það í gildi að orð séu til alls fyrst. En því fólki sem nú á á brattann að sækja varðandi kjör öll duga ekki orðin ein, þar er það fram- kvæmd og efndir sem gilda eiga. Einn stjórnarmanna Félags eldri borgara í Reykjavík, Hinrik Bjarna- son, vakti á því verðuga athygli á fundi fyrir nokkru að furðu sína vekti í sambandi við umræðu um ráðstöfun allra milljarðanna af síma- sölunni, að þar heyrðist engin rödd um að skila einhverju af þeim til þess fólks sem byggði símann upp og gjörði hann að þeirri söluvöru sem hann varð, til eldri borgara sem enn eiga ógreidda mikla samfélags- skuld – og mun menn hafa sett hljóða. Ekki hafa þessi tímabæru orð Hinriks náð nógu langt upp í stjórnvaldsstigann því nokkru síðar komu æðstu valds- menn okkar og tilkynntu um ráð- stöfun milljarðanna, eflaust allt til ágætra verkefna, en morgunljóst að ekki hafa þeim kjör eða aðbúnaður eldra fólks verið ofarlega í huga, því til þeirra málaflokka beint kom eng- in króna. Það gladdi hugann samt nokkuð þegar forsætisráðherra lýsti því yfir að einmitt þessi ráðstöfun til svo margra verkefna skapaði svig- rúm til að gjöra betur á öðrum svið- um og við sem bjartsýnina eigum, settum strax samasemmerki milli þessa svigrúms forsætisráðherra og aðgerða í þágu eldra fólks. Undirrit- aður fékk að segja fáein orð í sjón- varpi þetta varðandi, en í svörum vinar míns heilbrigðisráðherra kom svo sem ekkert annað fram en það að við aldraðir hlytum að vera ánægðir með þau verkefni sem fjár- magnið fengu og þ.a.l. eflaust einnig ánægðir með það að málefni eldra fólks skyldu þar hvergi á blað kom- ast s.s. einn aldurhniginn kunningi sagði við mig. En hvað sem því líður er málið grafalvarlegt. Það er hrein óhæfa að eldra fólki sem skilað hefur sínu og vel það til samfélagsins skuli af þessu sama samfélagi vera skammtaðar tekjur sem eru við hrein fátæktarmörk, en þetta gildir um þúsundir því miður. Þetta fólk spyr eðlilega: Hvar er góðærið, því framhjá þeirra garði hefur það gengið? Hvar er hin mikla og marg- rómaða þjóðhagslega blessun útrás- arinnar miklu, ekki er hinar dýrð- legu afleiðingar hennar að finna í heimilisbókhaldi þessa fólks. Og til fleiri þátta skal litið. Formaður okk- ar, Margrét Margeirsdóttir, hefur kynnt sér aðbúnað og valkosti eldri borgara í búsetumálum í Danaveldi, greint okkur frá og mun kynna ít- arlega og samanburðurinn vægast sagt okkur átakanlega í óhag. Fjöl- miðlaumfjöllun liðinna vikna hefur sannað þennan mismun, þetta ástand, sem hreinlega er til vanza. Krafan um endurskoðun og í raun uppstokkun laganna um málefni aldraðra er því umfram allt mann- réttindakrafa, þar sem að svo mörgum þáttum þarf að huga og því verið hjá okkur á odd- inn sett ásamt hinum beinu kjaramálum. Okkur þykir alltof oft sem ekki sé hlustað á augljós rök, augljósar staðreyndir um kjör sem aðbúnað allan og jafnvel ekki hlýtt á einföld- ustu atriði til úrbóta. Ég nefni það aðeins að við höfum kynnt ráðherra hógværa kröfu okkar um hækkun ráðstöfunartekna fólks á dval- arstofnunum, meðan engin breyting verður á fjárræði fólks þar, vel tekið í hvívetna, kostar sáralítið fyrir rík- issjóð, en ekkert gerist. Aðeins í lok- in skal þess svo vissulega vænzt að svigrúmið góða verði nú í eins ríkum mæli og unnt er nýtt til þess að koma til móts við sanngjarnar kjara- kröfur eldri borgara svo og verði markvisst unnið að því að stytta bið- lista eftir hjúkrunarrýmum. Og eitt vitum við nú: Það er svigrúm fyrir þetta. Vilji er allt sem þarf. Í efndir skal orðum breyta Helgi Seljan skrifar um málefni aldraðra ’Krafan um endur-skoðun og í raun upp- stokkun laganna um málefni aldraðra er því umfram allt mannrétt- indakrafa…‘ Helgi Seljan Höfundur er varaformaður Félagseldri borgara í Reykjavík. ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Dalvegi 28 – Kópavogi Sími 515 8700 BLIKKÁS – fiskisagan flýgur arnÞÓr gunnarsson kristinn benediktsson fiskisagan flýgur Einstök bók um líf og störf íslenskra sjómanna. Glæsilegar ljósmyndir og hnitmiðaður texti veita fágæta innsýn í lífið um borð í íslenskum fiskiskipum. Saga sjávarútvegs á Íslandi á 20. öld rakin í stuttu máli. Bók handa öllum sem láta sig varða íslenska sjómenn og sjávarútveg. Úr ritdómi: Frásögnin er fjörug og fróðleg; myndirnar grípandi og lýsandi. Við finnum sælöðrið nánast skella á okkur ... Þessi bók er happadráttur. Hún ætti að vera til á hverju sjómannsheimili og ekki síður í húsakynnum okkar borgarbarnanna sem höfum gott af því að fræðast aðeins um það hvernig þjóðartekjurnar verða til. – Guðni Th. Jóhannesson, Frbl. 21. sept. SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.