Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 32

Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Franz E. Pálssonfæddist á Akur- eyri hinn 22. júlí 1917. Hann lést á Landakotsspítala að morgni 26. septem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Páll Einarsson borgar- stjóri og síðar hæsta- réttardómari (f. 1868, d. 1954) og seinni kona hans Sigríður, fædd Siemsen (f. 1889, d. 1970). Systk- ini Franz eru Einar Baldvin verkfræðingur (f. 1912), Sig- ríður (f. 1913, d. 1941), Þórunn (f. 1915, d. 1927), Ólafur verkfræðingur (f. 1921) og Þórunn Soffía húsfreyja (f. 1932). Hálfsystkini Franz af fyrra hjónabandi Páls með Sigríði Thor- steinson (f. 1872, d. 1905) voru Árni verkfræðingur (f. 1897, d. 1970) og fræðingur, kvæntur Margréti G. Ormslev gæðastjóra. Börn þeirra eru Gunnar Páll, Hildur og María. 4) Bogi, skógverkfræðingur, kvæntur Rögnu B. Sigursteinsdóttur ræktun- arstjóra. Börn þeirra eru Sævar Kári, Halldór og Páll Bjarni. Franz bjó fyrstu ár ævi sinnar á Akureyri þar sem Páll faðir hans var sýslumaður, en fluttist til Reykjavík- ur er hann var skipaður hæstarétt- ardómari. Að loknu prófi frá Verzl- unarskóla Íslands 1935 vann hann í nokkur ár á skrifstofu tollstjórans í Reykjavík, en réðst 1941 til Olíu- verzlunar Íslands og starfaði þar sem deildarstjóri. Lét hann af störf- um þar 1996 eftir 55 ára starf. Franz var afar félagslyndur og tók þátt í margs konar félagsstarf- semi. Má þar nefna skíðadeild KR, sem byggði sinn fyrsta skíðaskála í Skálafelli, Reykvíkingafélagið og Lionshreyfinguna. Hann var mikill náttúruunnandi og voru ferðalög um óbyggðir Íslands honum afar hug- leikin. Útför Franz verður gerð frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Kristín (f. 1898, d. 1940). Árið 1943 kvæntist Franz eftir- lifandi eiginkonu sinni Jóninnu Margréti Pálsdóttur, f. í Stykk- ishólmi (17.3. 1920), dóttur Páls V. Bjarna- sonar sýslumanns (f. 1873, d. 1930) og Margrjetar Árnadótt- ur (f. 1884, d. 1985). Börn Franz og Jón- innu eru: 1) Páll (f. 21.10. 1945), deildar- stjóri. Sambýliskona hans er Þórhildur Ó. Guðmundsdótt- ir tanntæknir, og börn hennar Hlyn- ur Örn Björgvinsson og Linda Hrönn Björgvinsdóttir. 2) Hjalti (f. 10.9. 1947), jarðfræðingur, kvæntur Fríði Eggertsdóttur ljósmyndara. Börn þeirra eru Skúli Franz, Heið- rún og Árni Bragi. 3) Leifur, lyfja- Franz afi var besti afi sem hægt var að hugsa sér. „Jæja, hvað eigum við nú að bralla?“ er setning, sem okkur er enn í fersku minni. Sköpunargáfan var rík í honum afa og fékk hann mikla útrás fyrir hana með okkur barnabörnunum. Farið var í fjöruferðir út á Gróttu til að leita að efnivið í listaverk sem skapa átti. Gler- brotum, hvalbeinum, skeljum, steinum og þangi var umbreytt í skemmtilegar kynjamyndir þegar heim var komið. Þetta brall fór allt fram á smíðaverk- stæðinu í kompunni niðri í kjallara. Þarna sýndi hann okkur hvernig hægt væri að breyta marklitlum hlutum í eitthvað sem bjó yfir ævintýralegum ljóma. Afi var líka óendanlega útsjónar- samur þegar kom að því að ala upp í barnabörnunum hollt líferni. Til dæmis var „afalýsið“ mun betra á bragðið en þorskalýsið sem við fengum heima. Gulrætur úr garðinum, vínber úr gróð- urhúsinu, jarðarberin úr beðinu og „bílanammið“, sem til að mynda sam- anstóð af apríkósum og þurrkuðum eplum, eru bara nokkur dæmi um vel heppnaðar árásir á sælgætisiðnaðinn. Okkur er öllum sérstaklega minnis- stætt þegar afi las um ævintýri Óla Al- exanders fílí bomm bomm bomm fyrir svefninn. Afi fékk okkur til að lifa okk- ur inn í sögurnar á einstakan hátt, og við tengjum þá alltaf saman, Óla Alex- ander og hann afa. Gönguferðir með afa voru ekki bara að setja annan fótinn fram fyrir hinn, heldur voru oft reynslu- og þjóðsögur með í ferðunum, auk fjölda ótrúlega spennandi fróðleiksmola um heima og geima. Hann hafði líka mjög gaman af því að hreyfa sig með okkur í alls kyns bolta- og eltingaleikjum. Barnatíminn og teiknimyndir voru algerlega óþörf uppfinning ef afi var nálægt. Við eigum stóran fjársjóð af minn- ingum um elskulegan, þolinmóðan, hugmyndaríkan, orkumikinn, glaðan og yndislegan mann sem við erum svo óendanlega heppin að hafa átt að sem afa. Við söknum þín, elsku afi, en við vit- um að þú ert á góðum og ástríkum stað, já, líklega að bralla eitthvað snið- ugt með honum Óla Alexander fílí bomm bomm bomm. Skúli Franz, Heiðrún og Árni Bragi. Það eru áttatíu og átta ár síðan hann bróðir minn var borinn í þennan heim. Það er vissulega langur tími sem nam staðar við andlátið hans að sunnudags- morgni. Eftir það lá leiðin hans til þess tilverustigs sem hann verðskuldaði. En örlögin vildu hafa þetta svona. Við þessi vegamót er gott að hlusta á rödd hins liðna. Hann var alinn upp í foreldrahúsum við gott atlæti svo það var engin tilviljun að dygðirnar voru honum gefnar, ekki síður en augun bláu. Já, tíminn leið í áhyggjuleysi og hann varð fullorðinn, gekk í Verslunar- skólann, starfaði á skrifstofu Tollstjór- ans, en varð síðar deildarstjóri fram að aldursmörkum hjá Olíuverslun Ís- lands. Um störf hans má margt gott segja en erfitt verður að finna réttu orðin. Frístundirnar notaði hann fyrir áhugamálin sem mörg voru. Lengi stundaði hann skíðaiðkun og átti þar marga vini sem flestir eru nú komnir undir græna torfu. Skrifaði sögur skíðaferðanna, tyllti tánum á ýmsa af jöklum landsins, svo orti hann kvæði og málaði mörg málverk sem hann gaf vinum sínum og frændliði og ekki má gleyma kenningum hans um bús- áhyggjur goðanna í Ásgarði sem aðrir eiga vafalaust eftir að fjalla um. Hvar sem hann fór um landið las hann fjöllin, hlustaði á söng fuglanna og heima við ræktaði hann blómin, allt frá fjólum og vínberjum upp í dalíur sem hann færði vinum sínum á hátíð- arstundu. En hann var hamingjumaður sem leiddi ástríka brúði sína Jóninnu Mar- gréti fram á gólfið fyrir sextíu og tveim árum og með henni eignaðist hann fjóra syni, allt myndarmenn. Fjöl- skyldan var honum afar mikils virði og ég veit að hann var afar þakklátur konu sinni fyrir þá umhyggju og alúð sem hún sýndi honum í hans löngu baráttu allt þar til yfir lauk. Öllum sem þekktu hann þótti vænt um hann, enda var hann af hjarta lít- illátt ljúfmenni og rödd hans var svo hlý að ástæða var til að spyrja: Hvaða heillastjarna var það sem beindi för hans hingað til okkar? Ólafur Pálsson. Nú hefur Franz frændi okkar kvatt þennan heim eftir langa og farsæla ævi. Ef við systkinin ættum að lýsa hon- um föðurbróður okkar í fáum orðum myndum við gera það þannig: ,,Hann Franz var góður og heilsteyptur mað- ur og lifði lífinu einstaklega fallega.“ Franz var glæsilegur maður og gæddur mörgum hæfileikum. Hann var ákaflega hógvær og hafði lag á að láta aðra njóta sín án þess að trana sér nokkurn tíma fram. Franz var mikill náttúruunnandi, ræktaði sinn garð af alúð og smekkvísi og stundaði fjallaferðir fram á efri ár. Hann fékkst við listir í frístundum sín- um, málaði og teiknaði og liggja eftir hann mörg falleg myndverk sem munu verða afkomendum hans dýrmæt. Bræðurnir Franz og faðir okkar áttu sumarbústaði ásamt konum sín- um að Ási við Ástjörn í Hafnarfirði þar sem þau dvöldu með okkur börn sín á sumrin á þeim árum þegar Reykjavík var enn ógróin og rykmettuð. Á vorin var pakkað niður öllu því sem þurfti til að geta dvalið þarna fram á haust eða þar til hver berjaþúfa var fullnýtt. Franz ræktaði skóg í hinu hrjóstr- uga landi kringum rauða bústaðinn sinn, smíðaði handa okkur börnunum leiktæki, hús búið húsgögnum og ekki síst heilmikla flugvél, Ásfaxa, með sæt- um fyrir marga farþega. Þarna skap- aðist heill ævintýraheimur sem var engu líkur, og þótt flugvélin hefði ekki þá eiginleika sem þyrfti til að lyftast frá jörðu, flaug hún hugarflug um víða veröld með allan krakkaskarann, sam- anlagt ellefu bræðrabörn auk ótal gesta. Franz hefur verið okkur fyrirmynd að því hvernig er hægt að lifa lífinu fal- lega með því að njóta alls þess góða sem lífið veitir og gefa af því sem mað- ur getur sjálfur veitt. Hann gaf okkur dýrmætar æskuminningar sem munu verma okkur þegar árin færast yfir. Fyrir allt þetta og trygga vináttu þeirra hjóna viljum við þakka. Systkinin í Brekkugerði 4, Björn, Sigríður, Marta, Unnur, Páll, Kjartan og Sveinn. Vinur minn Franz Pálsson er látinn. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir sjötíu árum eða veturinn 1935 í skíða- ferðum í KR-skálann í Skálafelli. Við tengdumst síðan traustum vináttu- böndum, þegar við unnum að stækkun KR-skálans árið 1939. Við fórum þá ásamt öðrum félögum öll þriðjudags- kvöld og allar helgar upp í Skálafell til þess að bera efnivið í skálann á bakinu upp fjallið og síðan til smíðavinnu. Franz hélt nákvæma dagbók um lífið og starfið í Skálafelli á þessum árum enda bæði vel ritfær og hagmæltur. Þessar bækur eru nú merk heimild um fyrstu ár starfsemi Skíðadeildar KR. Á þessum árum fengum við áhuga á óbyggða- og jöklaferðum ásamt þeim bræðrum Árna og Þórhalli Stefáns- syni, sem báðir eru látnir. Fyrstu ferð- ina fórum við á Tindfjallajökul árið 1939. Útbúnaðurinn var ekki upp á marga fiska á þeim árum. Við fórum með tjald en áttum hvorki botn í það né vindsængur. Notuðum við búta af tjörupappa sem undirlag undir svefn- pokana á snjónum. Tindfjallaferðir urðu síðan fastur liður í tilverunni í áratugi í góðra vina hópi. Ég minnist þess alltaf, þegar við Franz gengum á tindinn í tuttugasta sinn. Þá dró Franz kampavínsflösku og ekta kristalglös upp úr bakpokanum. Kampavín skyldi ekki drukkið úr neinum glerglösum við slíkt tækifæri. Á ferðum okkar var aldrei slæmt veður. Annað hvort var útiveður eða spilaveður. Oft var spilaður bridge heilu sólarhringana í þessum ferðum og við héldum spilaklúbbnum áfram fram á síðustu ár. Síðasta ferð okkar Franz var farin vestur í Aðalvík. Sonur Franz, Páll, stýrði för en hann var þá fyrir löngu orðinn fastur félagi í spilaklúbbnum. Ég sendi Jóninnu og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur og þakka mikla vináttu þeirra alla tíð. Blessuð sé minning Franz E. Páls- sonar. Einar Sæmundsson. Mér finnst við hæfi að ég kveðji Franz Pálsson samstarfsmann minn til margra ára með nokkrum orðum. Við hittumst fyrst 1. marz 1987 daginn sem ég hóf störf hjá Olís. Samstarf okkar var í fyrstu ekki náið fyrr en um ára- mótin 88-89 þegar ég tók við starfi hans í nokkrar vikur þegar hann fór í langferðalag ásamt Páli syni sínum, m.a til Nýjasjálands. Þá fyrst kynntist ég verkum hans hjá Olís og tel ég að ég hafi haft mikinn lærdóm af því. Á þess- um fyrstu árum kynna okkar voru tölv- ur ekki orðnar eins snar þáttur í starfi okkar eins og þekkist í dag en samt var nokkuð fullkomið tölvukerfi í Olís og fannst mér Franz vera algjör töfra- maður í að notfæra sér þessa tækni þó að hann væri á þessum árum orðin sjö- tugur. Franz eyddi ekki deginum í snakk eða óþarfa símtöl, hann sökkti sér í vinnuna af krafti og stundum þeg- ar ég þurfti eitthvað mikið að segja fékk ég vinsamlega ábendingu um að hann þyrfti að fara að vinna. Franz var mikill útivistarmaður og þekkti land sitt betur en flestir. Í starfi sínu sem innkaupastjóri var hann í samskiptum við erlenda aðila og voru þar helst sölumenn frá BP og Mobil sem komu oft til landsins og eins fór Franz til útlanda í erindum Olís. Oft komu fyrir alls konar villur í reikning- um frá þessum risafyrirtækjum en Franz var með vakandi auga fyrir því og man ég oft eftir að sölumennirnir kvörtuðu undan heimsóknunum hing- að, ekki vegna þess að illa væri tekið á móti þeim því það kunni Franz, hann fór með gestina út og suður og kom fyrir að hann fór með þá í fjallgöngur og var hann þá sprækastur allra en þegar gestirnir sem oftast voru vanari sléttum götum borganna komust á toppinn beið Franz eftir þeim og hafði þá kastað mæðinni og beið eftir gest- inum og verðlaunaði hann með brjóst- birtu. Aðalumkvörtunarefni sölumann- anna var þegar Franz lagði fyrir gestina allar villurnar sem gerðar höfðu verið í reikningum síðasta árs og man ég mest eftir mörg þúsund dollara kröfu sem Mobil varð að endurgreiða til viðbótar við kostnaðinn við að senda mann til Íslands. Franz var með græna fingur og átti góðan garð sem hann var duglegur við að hugsa um og þegar hann vissi að ég væri að byggja mér bústað var hann strax tilbúinn með hríslur fyrir mig og kom með mér til að pota þeim niður og hafa þær vaxið vel. En nú er komið að leiðarlokum Franz hefur kvatt þennan heim eftir langan og heillaríkan starfs- dag. Hann skilur eftir sig góðar minn- ingar um heilsteyptan og samvisku- saman samstarfsmann. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Að- standendum öllum sendi ég samúðar- kveðjur. Ingólfur Kristmundsson. Það var mín heppni að fá að kynnast Franz Pálssyni er hann slóst í för með okkur Hjalta syni hans í nokkrar ferðir á gullleitarárunum í byrjun síðasta áratugar. Franz var einkar ljúfur í við- kynningu, vanur fjallamaður og ferða- garpur af gamla skólanum sem lét ekki árin aftra sér þátttöku í miserfiðum gönguferðum í Hoffellslandi í Horna- firði og víðar, heldur naut líðandi stundar og miðlaði af reynslu sinni. Svo tók hann sér dagshvíldir á milli og dvaldi með sjálfum sér og list sinni í guðsgrænni náttúrunni. Afrakstursins fengum við svo á njóta í náttstað að kveldi, hvort heldur var í naturskúlp- túr í tré og stein, glettnu ljóði um gull- leitarmenn eða góðum sögum. Franz var sannkallaður lífskúnstner í þessum ferðum, gleðigjafi með glettni í lista- mannsauga. Svo barst það eitthvað í tal varðandi skúlptúr náttúrunnar að einn staður á landinu væri öðrum merkari í þeim efnum, því þar mætti sjá sjálfa Valhöll, Bifröst, einherjana og öll helstu goðin, Óðin í Hliðskjálf með hrafnana báða, hafra Þórs og gölt- inn Freys, og geitina Heiðrúnu á þak- inu. Það er nú reyndar svo með jarð- fræðinga að þeir horfa með öðrum augum á náttúruna en aðrir dauðlegir menn, og þurfa því að setja sig í alveg sérstakar stellingar til að sjá listaverk- in í klettum og klungri, sífellt með ein- faldar og heldur flatar skýringar á flestu því sem andinn nemur og augað sér, og allt annað af þeim talið hálfgert fimbulfamb. Fór þó svo að við bund- umst fastmælum við Franz að hann hitti okkur síðar um sumarið, eða hvort það var hið næsta, norður í landi, til að sýna okkur jarðfræðingunum öll her- legheitin í goðheimum, og hvar annars staðar en við sjálfan Goðafoss. Franz keyrði á móti okkur að mig minnir, alla leið úr bænum norður í land, og hitt- umst við austan við Skjálfandafljót, því þar gefst betri sýn í goðheima. Við jarðfræðingarnir búnir að taka niður jarðfræðingsgleraugun og stilla á aðra bylgjulengd. Og viti menn þar var Hliðskjálfin, Óðinn og hrafnarnir. Ein- herjar spjótum prýddir, vestan ár, hersing mikil í stuðluðu berginu. Bif- röst á sínum stað, æstæð í sólskini. Og svo fengum við litið Aurboðu Gymis, eða hvort það var hann sjálfur, því svo var hún forkunnarfögur hún Gerður að annað gleymdist um stund, þarna í sjálfu hásætinu sem Freyr forðum. Og inntakið hjá Franz, skyldi ekki höfund- urinn hafa þurft fyrirmynd að goð- heimum. Ógleymanleg stund og inni- haldsrík, hálfgerð Gylfaginning fyrir okkur alsjáandi. Og svo settum við gullgrafararnir upp jarðfræðingslins- urnar á ný og héldum norður á Flat- eyjardal, en Franz sína leið. Það var gott að kveðja góðan mann á björtum degi með þökk í huga. Innilegar samúðarkveðjur til að- standenda allra. Guðmundur Ómar Friðleifsson. Komið er að kveðjustund, elsku afi. Við minnumst samverustunda okk- ar sem bæði voru fjölbreyttar og gef- andi. Þar má nefna fjörugar fjöruferð- ir, skemmtilegar skákstundir og spennandi sparkleiki sem fram fóru úti í garði. Þangað var ávallt ljúft að koma, enda nostraðir þú við garðinn af svo mikilli alúð, að jafnvel eplatréð bar ávöxt! Að auki kynntumst við hinni list- rænu hlið sem áberandi var í fari þínu. Gaman var að sjá hvernig þú nýttir þér náttúruna og fegurð hennar við að skapa hin ýmsu listaverk, líkt og Granaskjólið ber vitni um. Við vorum lánsöm að taka þátt í því sköpunar- ferðalagi og var ímyndunarafl okkar virkjað með myndlist og hvers kyns föndri í kjallaranum góða. Elsku afi, við þökkum þér fyrir þess- ar stundir og munum við varðveita þær í hjarta okkar. Nú ert þú á nýjum slóðum og við vitum að þú munt fylgj- ast með okkur þaðan. Þar sem goðafræðin var þér afar hugleikin þykir okkur við hæfi að birta eftirfarandi ljóð úr Völuspá: Sal sér hún standa sólu fegra, gulli þaktan á Gimlé. Þar skulu dyggvar dróttir byggja og um aldurdaga yndis njóta. Þín barnabörn Gunnar Páll, Hildur og María. Kveðja frá skíðadeild KR Skipulögð skíðaiðkun KR-inga hófst með stofnun ferðanefndar árið 1934 og að frumkvæði stjórnar fóru félagar, bæði karlar og konur, að æfa reglulega og keppa fyrir hönd félagsins. Skíða- deild KR var formlega stofnuð 1936 og tók hún þá við starfi ferðanefndar og aðalstjórnar. Fyrsta stórátakið var bygging skíðaskála í Skálafelli haustið 1936. Myndaðist þar harður og fjöl- mennur kjarni, allt að hundrað ein- staklingar, sem héldu hópinn og lögðu grunninn að skíðaíþróttinni hjá KR. Á meðal þessara einstaklinga var Franz Pálsson verkfræðingur. Skíðadeildin hefur löngum verið ein af styrkustu stoðum KR. Ekki aðeins vegna þess að þegar best hefur gengið hefur hún átt nokkra af bestu skíða- mönnum Íslands heldur fyrir fé- lagslegan þroska og styrk. Franz til- heyrir þeim hópi karla og kvenna sem gaf okkur grundvöll og stolt. Hann var brautryðjandi og baráttumaður í mál- efnum skíðaíþróttarinnar ekki bara innan KR heldur allrar íþróttahreyf- ingarinnar. Í merkilegum dagbókarskrifum Franz frá skíðaferðum í Skálafellið á árunum 1936–1940 kemur skýrt fram hversu samhentur og sterkur hann var sá hópur karla og kvenna sem byggði upp og mótaði alla aðstöðu sem við öll njótum í Skálafellinu í dag. Nokkrir fé- lagar Franz tóku sig til og gáfu þessar dagbækur út fyrir nokkrum árum síð- an. Þar skín í gegn sú samheldni og sú gleði sem einkennt hefur starfið síðan. Franz tók þátt í því að opna augu landsmanna fyrir óumdeildum kostum skíðaiðkunar sem fjölskylduíþróttar og sem hollrar útivistar. Félagar hans í skíðadeild KR votta honum virðingu og þakklæti fyrir ómetanleg störf í þágu skíðaíþróttar- innar í landinu. Fyrir hönd allra félaga í skíðadeild KR vil ég votta aðstand- endum hans innilega samúð við fráfall þessa merka manns. Jóhannes Þórðarson, formaður skíðadeildar KR. FRANZ EDUARD PÁLSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.