Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 41

Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 41 DAGBÓK Sími 594 5000 - Fax 594 5001 Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir OPIÐ HÚS 18.00–19.00 Í DAG FANNAFOLD 174 - 112 RVÍK Stórglæsilegt og vandað einbýli á einni hæð, alls 195,5 fm, þar af rúmgóður bílskúr 38,5 fm. Glæsilegur arinn og vönduð gólfefni, falleg timburverönd. Aðkoma falleg. Hús í sérflokki. VERÐ 49,8 millj. Viggó Sigursteinsson, sölufulltrúi, sími 824 5066, Akkurat ehf., tekur á móti þér og þínum milli kl. 18.00 og 19.00 í kvöld. Norræna nýsköpunarmiðstöðin hefurnýlega lokið fimm verkefnum ertengjast stefnumótun til að styrkjanýsköpun. Til að kynna niðurstöður eins þeirra bjóða nýsköpunarmiðstöðin, sem ber opinbera heitið Nordic Innovation Centre, og Rannís til morgunverðarfundar á fimmtudaginn, kl. 8.30–10 á Hótel Loftleiðum, þingsal 1. Á fund- inum mun Dominic Power, dósent við háskólann í Uppsölum í Svíþjóð, kynna niðurstöður verk- efnisins „Framtíðin í hönnun – samkeppnishæfi og aðlögunarhæfni í norrænum hönnunariðnaði“. Sigríður Þormóðsdóttir er ráðgjafi hjá Nor- ræna nýsköpunarsjóðnum, sem að fundinum stendur. Hvert er meginhlutverk Norrænu nýsköp- unarmiðstöðvarinnar? „Markmið hennar er efla nýsköpun á Norð- urlöndunum með því að fjárfesta í norrænum samstarfsverkefnum sem hafa það að markmiði að styrkja iðnað og atvinnulíf. Útgangspunkt- urinn er sú trú að norrænt samstarf skili betri árangri en að hvert land vinni fyrir sig. Með því að deila þekkingu og reynslu aukist samkeppn- ishæfnin.“ Hverjar eru meginniðurstöður verkefnisins sem kynnt verður á fundinum? „Nýsköpunarmiðstöðin styrkir árlega verk- efni sem tengjast stefnumótun í nýsköpun, þar sem leitast er við að draga fram þætti sem stefnumótandi aðilar í hverju Norðurlandanna fyrir sig geta nýtt sér. Verkefnið „Framtíðin í hönnun – samkeppnishæfi og aðlögunarhæfni í norrænum hönnunariðnaði“, sem kynnt verður á fundinum, var eitt af þeim fimm verkefnunum sem styrkt voru innan þessa verkefnaflokks eða þema. Markmið verkefnisins var að skoða samkeppnishæfi norræns hönnunariðnaðar. Niðurstöðurnar voru meðal annars þær að hönnun er lítil en mikilvæg og vaxandi iðn- grein. Að mikilvægt er að styrkja netverks- myndun og annað frumkvæði sem felur í sér aukin tengsl og samstarf á milli smárra fyr- irtækja í hönnun. Það þarf að styrkja menntun í hönnun og að lokum þarf iðnaðurinn sjálfur að vera meðvitaðri um hverju hönnun getur skilað í rekstri fyrirtækja.“ Fundarstjóri verður Sveinn Þorgrímsson, skrifstofustjóri skrifstofu iðnaðarmála hjá iðn- aðar- og viðskiptaráðuneytinu. Fundurinn er ætlaður öllum þeim sem koma að eða hafa áhuga á stefnumótun og nýsköpun í iðnaði. Hægt er að skrá sig hjá Sigríði Þormóðsdóttur, s.thormodsdottir@nordicinnovation.net, eða Páli Vilhjálmssyni hjá Rannís, pall@rannis.is. Hönnun | Norræna nýsköpunarmiðstöðin kynnir niðurstöður verkefnis Lítil en mikilvæg iðngrein  Sigríður Þormóðs- dóttir fæddist 21. sept- ember 1966 á Selfossi. Uppalin á Fljótshólum í Gaulverjabæjarhreppi. Útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 1986, lauk BS-prófi í líffræði frá HÍ 1991 og síðan MBA- prófi frá BI Norwegian School of Management 2001. Gæðastjóri í Blóðbankanum til ársins 2000, gæðastjóri í NorChip 2001–2003, for- stöðumaður deildar gæðamála og innri endur- skoðunar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi 2003–2005. Starfar nú sem ráðgjafi hjá Nor- ræna nýsköpunarsjóðnum. Hecht-bikarinn. Norður ♠8542 ♥1095 A/Enginn ♦G9 ♣ÁKG9 Vestur Austur ♠KD ♠10 ♥DG862 ♥ÁK743 ♦Á1043 ♦D652 ♣97 ♣D64 Suður ♠ÁG9763 ♥– ♦K87 ♣10832 Suður spilar fjóra spaða doblaða og fær út hjartadrottningu. Keppnin um Hecht-bikarinn fór fram í sjötta sinn í Kaupmanna- höfn í septemberlok og unnu Norðmennirnir Boye Brogeland og Eric Sælensminde með nokkr- um yfirburðum. Peter Hecht- Johansen er kostari mótsins, en skipulagning og undirbúningur er í höndum Lars Blakset og félaga hans í Blaksets Bridgecenter. Að þessu sinni tóku 54 pör þátt í mótinu og í þeim hópi voru margir þekktir farandspilarar. Spilið að ofan kom upp í fyrstu umferð og víða varð suður sagn- hafi í fjórum spöðum dobluðum, sem ýmist unnust eða fóru einn niður. Flestir þeir sagnhafar sem stóðu spilið fengu hjálplega vörn, en Daninn Steen Möller þurfti að vinna fyrir tíu slögum með þá Zia Mahmood og Howard Weinstein í andstöðunni: Vestur Norður Austur Suður Zia Boesgaard Weinstein Möller – – 1 hjarta 1 spaði 2 spaðar * 3 lauf 3 hjörtu 4 lauf 4 tíglar 4 spaðar Pass Pass Dobl Pass Pass Pass Zia kom út með hjartadrottn- ingu og Möller trompaði. Það er augljóst að samningurinn fer nið- ur ef sagnhafi svínar í laufi og spilar tígli á kónginn. En Möller valdi aðra leið: Hann lagði niður spaðaás, spilaði laufi á ás og trompaði hjarta. Fór aftur inn í borð á laufkóng og trompaði síð- asta hjartað. Sendi svo vestur inn á tromp og lagði upp – Zia varð að spila tígli frá ásnum eða hjarta í tvöfalda eyðu. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Bd3 Rgf6 6. Rf3 Rxe4 7. Bxe4 Rf6 8. Bd3 Bg4 9. Be3 e6 10. c3 Bd6 11. h3 Bh5 12. De2 Da5 13. a4 0–0 14. Dc2 Bxf3 15. gxf3 Dh5 16. 0–0–0 Rd5 17. Kb1 b5 18. Hdg1 f6 19. axb5 cxb5 20. Bc1 Hab8 21. De2 Hfe8 22. De4 Kh8 23. h4 f5 24. De2 Df7 25. Hg2 Bf4 26. Hhg1 Hg8 27. Be3 Dd7 28. Dd2 Bd6 29. Bc2 Db7 30. Bg5 b4 31. c4 b3 32. Bd3 Bb4 33. De2 Da6 34. Bh6 Í San Luis í Argentínu fer þessa dagana fram heimsmeistarakeppni FIDE í skák þar sem átta af öfl- ugustu skákmönnum heims etja kappi. Viswanathan Anand (2.788) er talinn sigurstranglegur í keppninni og í stöðunni hafði hann svart gegn ung- versku skákdrottningunni Judit Polg- ar (2.735). 34. … Rc3+! 35. bxc3 Bxc3 36. Kc1 Da3+ 37. Kd1 Da1+ 38. Bc1 b2 39. De3 Bxd4 40. Dd2 bxc1=D+ 41. Dxc1 Da2 og hvítur gafst upp enda fátt til varnar. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Staða íslenskrar tungu STAÐA íslenskrar tungu í dag er ýmsum nokkurt áhyggjuefni. Nýjar málvenjur skjóta upp kollinum, og oft eru íþróttafréttaritarar gagn- rýndir. Það hlýtur að vera þreytandi að lýsa stöðugt sömu viðburðarás- inni og því vill lýsandinn stundum fara á nokkurt flug. Eitt af því sem lætur illa í eyrum er þegar sagt er að þetta og hitt liðið hafi verið að spila vel eða illa. „Hann er bara ekki að skilja þetta,“ heyrist líka. Oft er gamalt og gott málfar klætt í nýjan búning, oft með slæmum ár- angri. Í Njáls sögu er þess getið að Hrappur hafi fíflað Hallgerði lang- brók, þ.e. dregið hana á tálar. Hitt er þó öllu verra þegar íþrótta- fréttamenn halda því fram að ein- hver ákveðinn leikmaður sé farinn að fífla andstæðingana. Þá er það sjálfstraust leikmanna. „Ég var með sjálfstraustið í botni, og þess vegna gekk allt,“ sagði hróð- ugur leikmaður eftir sigurleik. Ekki passar þetta alveg við almennan málskilning. Hér í eina tíð var talað um að „brenna af“ þegar leikmenn hittu ekki markið. Nú er þetta oft sagt þegar markmaður ver t.d. víta- spyrnu. Stundum taka illskiljanlegir frasar völdin. „Þetta er gargandi snilld, nú, nú, það er bara allur pakk- inn og leikmaðurinn fagnar þessu að hætti hússins.“ Eitt er þó sem tröllriðið hefur málfari upp á síðkastið, orðið alfarið. Hér áður fyrr gilti það um fólk sem fluttist alfarið til Vesturheims eða fjarlægra landa. Nú er þessu orði skotið inn á ólíklegustu stöðum. „Ég er alfarið á móti þessu.“ „Sérð þú ekki alfarið um þetta?“ Þessi ljóta málvenja er þess einkennilegri fyrir það að við eigum prýðilegt orð í stað- inn, nefnilega orðið algjörlega. „Sérð þú ekki algjörlega um þetta“ eða „ég er algjörlega á móti þessu“ hljómaði ólíkt betur. Kvintus. Fréttablaðið óþolandi UNDANFARIÐ hefur fólk verið að kvarta undan útburði á Frétta- blaðinu. Er ég því sammála og finnst útburðurinn orðinn fyrir neðan allar hellur. Ég bý í 32 íbúða blokk í Kópavogi og Fréttablaðinu er ýmist hent á gólfið eða á ofnana. Ég er bú- in að marghringja og kvarta hjá Fréttablaðinu en það virðist ekki duga. Fyrir skömmu kom ég heim og þá var einhver búinn að dreifa blöðunum um alla lóð og 83 ára gam- all maður sem býr í blokkinni var að tína þetta saman. Þetta er óþolandi ástand og ekki hægt að líða svona. Blaðið er látið í kassana og ekkert út á það að setja, fólk ræður þá hvort það les það eða hendir. Reið kona. Janus er týndur JANUS er fress sem týndist frá Lerkiási 7 í Garðabæ. Hann var ómerktur. Þeir sem vita um Janus eru beðnir að hafa samband í síma 567 1647 eða 895 3813. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 50 ÁRA afmæli. Í dag, 4. október,er fimmtug Hrafnhildur Stef- ánsdóttir, kaupmaður og fóstra. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS, efnir í dag til annarrar málstofu í röð þriggja þar sem hópar vísindamanna eru boðaðir til umræðu um áhrif loftslags- breytinga á norðurslóðum. Fjallað verður um atvinnulíf, skipulag og byggðaþróun. Með málstofunum fylgir Rannís eftir ráðstefnunni Ís- land og norðurslóðir – tækifæri í breytilegu umhverfi alþjóða- samstarfs og náttúrufars 25. febr- úar sl. Fyrsta málstofan um líf- ríki, auðlindir og náttúru var haldin 7. júní sl. Í þriðju málstof- unni verður fjallað um heilbrigði, lífsgæði og menntun. Frummæl- endur í málstofunni á morgun verða Grétar Þór Eyþórsson frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst, Bjarni E. Guðleifsson frá Land- búnaðarháskóla Íslands, Trausti Valsson frá Háskóla Íslands og Berglind Hallgrímsdóttir frá Impru. Hans Kristján Guðmundsson, forstöðumaður Rannís, segir að með málstofunum sé Rannís að sinna miðlunarhlutverki sínu varð- andi stefnumótun. „Við stefnum hér vísindamönnum saman í því skyni að safna saman áliti og upp- lýsingum um þróun, framtíð- aráherslur og fjármögnun svo eitthvað sé nefnt. Rannís mun í framhaldi koma niðurstöðunum til stjórnvalda og Vísinda- og tækni- ráðs í tengslum við stefnumótun til framtíðar.“ Hann staðfestir að mælingar á bráðnun jökla og hækkandi loft- og sjávarhita gefi sterkar vísbend- ingar um hlýnandi loftslag á Norðurhveli. „Við verðum engu að síður að fara varlega í því að draga ályktanir um framhaldið af mælingum yfir stutt tímabil. Miðað við jarð- söguna er saga vísinda og mæl- inga í rauninni mjög stutt. Íslend- ingar eiga reyndar samfelldar mælingar lengra aftur í tímann heldur en flestar aðrar þjóðir sem byrja með skráningu áhugamanns í Stykkishólmi snemma á 19. öld,“ segir hann og tekur fram að hlýn- unin geti haft bæði jákvæðar og neikvæðar afleiðingar í för með sér. „Hlýnunin getur haft í för með sér rask í lífríkinu sem gæti bæði verið jákvætt og neikvætt. Ýmis tækifæri gætu legið í opnun nýrra siglingaleiða, lagningu há- lendisvega og fleira mætti telja. Meðal neikvæðra áhrifa sem þeg- ar liggja fyrir má nefna að minnk- andi frost í freðmýrum norð- urslóða hefur haft neikvæð áhrif á aðgengi og framkvæmdir á nyrstu búsetusvæðum heimsins.“ Hans Kristján bendir á að til grundvallar málstofunum þremur liggi m.a. nýútkomnar skýrslur Norðurskautsráðsins (Arctic Cli- mate Impact Assessment (ACIA)) og Arctic Human Development Report (AHDR). Á málstofunni verði m.a. fjallað um hvaða þýð- ingu upplýsingar í skýrslunni hafi fyrir Ísland. Jákvæð og neikvæð hlýnun Hans Kristján Guðmundsson GRAFÍSKI hönnuðurinn Xiao Yong heldur fyrirlestur í dag kl. 17 í Skip- holti 1, stofu 113. Xiao Yong er kín- verskur og hlaut menntun sína í Kína, Þýskalandi og Danmörku og lauk MA-gráðu frá Listaakademíunni í Helsinki 1994. XiaoYong hefur tekið þátt í þekkt- um alþjóðlegum sýningum og hlotið margvíslega viðurkenningu og verð- laun fyrir verk sín. Logo hans og plaköt eru eftirsótt af söfnum og fyr- irtækjum. Hann er prófessor við listaháskóla í Beijing og hefur gefið þar út blað um myndlist og hönnun og bækur um grafíska hönnun. Hann hefur haldið fyrirlestra víða um heim og verið gestakennari við alla helstu hönnunarskóla í Asíu, Bandaríkj- unum og Evrópu. Í fyrirlestrinum fjallar hann um eigin verk. Fyrirlestur Xiao Yong

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.