Morgunblaðið - 04.10.2005, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert stórhuga í dag og matarlystin eft-
ir því. Megrunin fær að fjúka út í veður
og vind ásamt fjárhagsáætluninni. Það
sem í raun á hug þinn eru demantar og
önnur djásn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert skýrari í hausnum þessa dagana
en oftast gerist, svo nýttu þér það. Eng-
inn annar getur, mun eða ætti að segja
þér fyrir verkum. Og ef einhver reynir
það, forðaðu þér þá.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það væri frábært ef allar góðar gjörðir
þínar og allar þær slæmu gætu þurrkað
hver aðra út. Þá gætir þú alltaf bætt um
eitthvað slæmt sem þú hefur gert með
því að gera eitthvað gott. En þar sem
málið er flóknara en svo, reyndu þá að
haga þér almennilega.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Satt er að æfingin skapi meistarann. En
stundum getur maður líka verið góður í
því sem maður hefur aldrei áður prófað.
Stundum eru hæfileikarnir meðfæddir –
einsog á við um þig í dag ef þú prófar
eitthvað nýtt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú grennist ekki við að borða sellerí
frekar en að þú verðir að dýrlingi af því
að fara í kirkju. En það er ný byrjun, og
þú þarfnast hennar. Um leið og þú fellur,
stattu þá strax upp aftur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú getur reynt að þurrka út einhvern at-
burð en það bara gengur ekki. Allt sem
gerðist, gerðist í alvöru. Eina leiðin til að
losa sig við fortíðina er að sjá hana í nýju
ljósi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú er víðsýn/n en samt eru fjarstæðu-
kenndustu hugmyndir alls ekki svo um-
deilanlegar. Líkast til ertu í svo miklu
jafnvægi að þér er það lífsins ómögulegt
að móðga einn eða neinn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú getur ekki annað en tekið eftir öllu
yfirborðskennda plastdótinu í kringum
þig. Í miðjunni ert þú, gimsteinninn
fagri og óslípaði. Tjáðu þig, og komdu
upp um allt leynimakkið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þitt helsta sérkenni eru ferðalög. Þú hef-
ur alltaf verið á sveimi og verður það
alltaf, jafnvel þótt það sé bara í hverfinu
þínu. Þar af leiðandi veistu líka hluti um
hverfið sem enginn annar veit.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nóg er víst af freistingum. Þú getur
fengið útrás fyrir forvitnina með því að
vinna trúnaðartraust hinna föllnu sála.
Passaðu þig svo að gera ekki einsog þær.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Stjörnurnar kunna að jafna út hlutina.
Þær gera fjarstæðukenndustu óskir þín-
ar alls ekki svo fjarstæðukenndar. Þú
ert hreinlega alltaf á réttum stað á réttri
stund. Kannski lendirðu í partíi með einu
aðalátrúnaðargoðinu þínu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú getur ekki hamið gleði þína. En
ómóðins! Einhver sem skiptir miklu máli
mun laðast að þessum mikla eldmóði
þínum. (Svo ekki reyna að hemja þig.)
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Samspil Merkúrs og Júpi-
ters hafa haft áhrif síðan 1.
október og munu gera það
áfram til sjöunda. Hjá sumum hvetur
þetta til samræðna sem minna á æsku-
hnoð: „Pabbi minn er sterkari en pabbi
þinn!“ En aðrir verða gagnteknir af góð-
um fréttum. Og hvers vegna ekki? Því
betri sem fréttirnar eru, þeim mun meiri
ástæða til að fagna.
Hlutavelta | Tveir strákar úr Smára-
hverfi, Hilmar Jökull Stefánsson og
Sindri Þór Sigurðsson, afhentu Kópa-
vogsdeild Rauða krossins ágóða af
tombólu sem þeir héldu fyrir skömmu.
Strákarnir söfnuðu samtals 4.071 kr.
sem fer í að styrkja börn í neyð í gegn-
um verkefni Rauða krossins erlendis.
Sudoku
© Puzzles by Pappocom
Lausn síðustu gátu
Þrautin felst í því
að fylla út í reit-
ina þannig að í
hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar
1-9. Það verður
að gerast þannig
að hver níu reita
lína bæði lárétt
og lóðrétt birti
einnig tölurnar
1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu
í röðinni.
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 hreyfing-
arlausa, 8 setur, 9 hæfi-
leikinn, 10 eldiviður, 11
víðáttu, 13 flanaði, 15
rok, 18 svikull, 21 ekki
gömul, 22 endar, 23 synji,
24 meta á ný.
Lóðrétt | 2 illkvittni, 3
heykvíslar, 4 gretta sig, 5
slitna, 6 krampakast, 7
röski, 12 stúlka, 14 veið-
arfæri, 15 vers, 16 fár-
viðri, 17 smásilungs, 18
hótum, 19 illt, 20 kyrrðin.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 volks, 4 fíkja, 7 dómur, 8 ömmur, 9 ger, 11
aurs, 13 saur, 14 álinu, 15 sjór, 17 mett, 20 sló, 22 nakin,
23 vinda, 24 afmáð, 25 tíðka.
Lórétt: 1 vodka, 2 lemur, 3 sorg, 4 fjör, 5 komma, 6 aðr-
ar, 10 erill, 12 sár, 13 sum, 15 sinna, 16 óskum, 18 ennið,
19 trana, 20 snið, 21 óvit.
Tónlist
Iðnó | Tangósveit lýðveldisins með tangó-
kvöld. Boðið er upp á leiðsögn í dansinum kl.
20 en kl. 21 stígur Tangósveit lýðveldisins á
svið og leikur til kl. 23. Miðaverð er 1.000 kr.
Kringlukráin | Guðmundur heitinn Ingólfs-
son lék mikið á Kringlukránni og þar hélt
bandaríski píanistinn Jon Weber tónleika
honum til heiðurs á RÚREK djasshátíðinni
1992. Nú er Jon hér í heimsókn í tilefni af
þrjátíu ára afmælis Jazzvakningar og lék
með hollenska píanistanum Hans Kwak-
kernaat á Hótel Sögu á stórglæsilegum tón-
leikum s.l. föstudagskvöld. Í kvöld og annað
kvöld mun hann leika með hljómsveitinni
Guðmundarvöku á Kringlukránni. Hljóm-
sveitina skipa auk Jons þeir Björn Thorodd-
sen gítarleikari, Gunnar Hrafnsson bassa-
leikari og Guðmundur Steingrímsson
trommari. Á efnisskránni eru verk eftir Guð-
mund, klassísk djasslög sem hann lék oft og
íslensk sönglög sem hann fór næmum
höndum um.
Myndlist
101 gallery | Sigurður Árni Sigurðsson til
22. október.
Byggðasafn Árnesinga | Á Washington–
eyju – Grasjurtir í Norður-Dakóta. Sýning og
ætigarðs-fróðleikur í Húsinu á Eyrarbakka.
Opið um helgar kl. 14–17. Til nóvemberloka.
Café Karólína | Margrét M. Norðdahl „The
tuktuk (a journey)“ til 4. nóv.
Gallerí 100° | Guðbjörg Lind, Guðrún Krist-
jánsdóttir, Kristín Jónsdóttir. Til 25. október.
Gallerí Húnoghún | Anne K. Kalsgaard og
Leif M. Nielsen til 21. okt.
Gallerí I8 | Ólöf Nordal til 15. okt.
Gallerí Sævars Karls | Völuspá, útgáfusýn-
ing á myndum Kristínar Rögnu við ljóð Þór-
arins Eldjárns.
Garðaberg | Árni Björn Guðjónsson með
málverkasýningu 31. okt. Opið alla virka
daga kl. 12.30–16.30, nema þriðjudaga.
Gerðuberg | Þórdís Zoëga til 13. nóv. Einar
Árnason til 6. nóv.
Grafíksafn Íslands | Helga Ármannsdóttir
sýnir verk sín.
Listasafn ASÍ | Anna Þ. Guðjónsdóttir og
Kristleifur Björnsson. Til 9. okt. Opið alla
daga nema mán. kl.13–17.
Háskólabíó | Sýning á ljósmyndum Bjarka
Reys, í samvinnu við Alþjóðlega kvik-
myndahátíð. Til 23. október.
Hrafnista Hafnarfirði | Sesselja Halldórs-
dóttir sýnir verk sín. Til 4. okt.
Ís-café | Bjarney Sighvatsdóttir með mynd-
listarsýningu.
Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir til 22.
október.
Kirkjuhvoll Listasetur | Erna Hafnes sýnir
til 9. okt.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum
Jóns Laxdal til 23. október.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1945–
1960 Frá abstrakt til raunsæis.
Listasafn Reykjanesbæjar | Eiríkur Smith
og konurnar í baðstofunni til 16. okt.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guðrún
Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til 23.
apríl.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Hraun-
blóm: Else Alfelt og Carl-Henning Pedersen.
Einnig Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafs-
son. Til 27. nóv.
Listhús Ófeigs | Gunnar S. Magnússon til
26. október.
Listvinafélagið Skúli í túni | Sýningin „Skúli
í vinnunni“ í Skúlatúni 4, 3. hæð. Til 9. okt.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Lars Tun-
björk til 20. nóvember.
Næsti Bar | Áslaug Sigvaldadóttir sýnir olíu
á striga. Til 14. okt.
Orkuveita Reykjavíkur | Ljósmyndasýn-
ingin The Roads of Kiarostami. Til 28. okt.
Safn | Ólafur Elíasson „Limbo lamp for Pét-
ur“ fram í nóvember. Stefán Jónsson „Við
Gullna hliðið“ fram í miðjan október.
Skaftfell | Bryndís Ragnarsdóttir til 8. okt.
VG Akureyri | Sex ungir listamenn sýna
verk sín til 14. okt.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson og
17. öldin í sögu Íslendinga. Sýningin stendur
til áramóta.
Þjóðmenningarhúsið | Sýning á tillögum að
tónlistarhúsi. Til 5. okt.
Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á Þili til 23.
okt.
Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor-
grímsson til 5. okt.
Listasýning
Húfur sem hlæja | Bergljót Gunnarsdóttir
sýnir mósaíkspegla til 22. okt.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið kl. 10–
17 alla daga nema mánudaga í vetur. Hljóð-
leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning og
gönguleiðir. Nánar á www.gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Aðgangur er ókeypis
að öllu húsinu í tilefni sýningar á tillögum
um byggingu Tónlistarhúss og ráðstefnu-
miðstöðvar við Austurhöfnina í Reykjavík
ásamt skipulagi aðliggjandi svæða. Opið alla
daga kl. 11–17. Veitingar á veitingastofunni.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Eldur í
Kaupinhafn – 300 ára minning Jóns Ólafs-
sonar úr Grunnavík er samvinnuverkefni
Þjóðminjasafnsins og Góðvina Grunnavíkur-
Jóns og fjallar um fræðimanninn Jón Ólafs-
son (1705–1779), ævi hans og störf. Til 1.
des.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni Ís-
lands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu og
þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstárlegar
og vandaðar sýningar auk safnbúðar og
kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og
miðla þekkingu á menningararfi Íslendinga
frá landnámi til nútíma. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11–17.
Kvikmyndir
Kvikmyndasafn Íslands | Fyrsta myndin af
þremur pólskum kvikmyndum sem eru á
vetrardagskránni verður sýnd kl. 20 í Bæj-
arbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Þetta er
myndin Czlowiek z zelaza eða Járnmað-
urinn frá árinu 1981 eftir Andrzej Wajda.
Myndin verður endursýnd laug. 8. okt. kl. 16.
Fréttir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Skrif-
stofa Al-Anon hefur verið opnuð í nýju hús-
næði á Grandagarði 14, 3. hæð. (Gamla
Slysavarnahúsið við hlið Kaffivagnsins).
Sími og netfang það sama.
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi kl. 12–17.
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Esso í Grundarfirði á morgun kl. 10–13 og við
Shell í Ólafsvík kl. 14–17.
Fundir
Bókasafn Reykjanesbæjar | Félagar af Suð-
urnesjum í Ættfræðifélaginu halda fund kl.
20 á Bókasafni Reykjanesbæjar. Nánri upp-
lýsingar í síma 421 1407. Allir velkomnir.
Safnaðarheimili Langholtssóknar | Kven-
félag Langholtssóknar fundar kl. 20 í safn-
aðarheimilinu.
Háteigskirkja | Kvenfélag Háteigssóknar
fundar kl. 20. Venjuleg fundarstörf. Bingó
og kaffi.
ITC Korpa | Kynningarfundur á morgun kl.
20 í Safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þver-
holti 3, Mosfellsbæ, 3. hæð. www.simnet.is/
itc.
Kraftur | Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks
sem greinist með krabbamein og aðstand-
endur, heldur fræðslufund kl. 20, í húsnæði
Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8.
Gestur fundarins er Ágústa Erna Hilm-
arsdóttir hjúkrunarfræðingur. Hún ræðir um
mismunandi hlutverk, aðstæður og rétt að-
standenda þeirra sem greinast með krabba-
mein.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði |
Fundur kl. 20.30 í safnaðarheimilinu v/
Linnetsstíg.
OA-samtökin | OA, karladeild, fundar á
Tjarnargötu 20, Gula húsinu, kl. 21–22.
www.oa.is.
Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju | Fjall-
konur funda kl. 20 í Safnaðarheimilinu.
Kynning á heilsu- og snyrtivörum.
Seljakirkja | Fundur kl. 20, tískusýning og
kaffiveitingar.
UNIFEM | UNIFEM á Íslandi og Mannrétt-
indaskrifstofa Íslands standa fyrir opnum
umræðufundi með Elle Flanders, leikstjóra
myndarinnar Enginn aðskilnaður, um frið-
arhreyfingar í Ísrael og Palestínu. Fundurinn
verður haldinn í Miðstöð Sameinuðu þjóð-
anna, Skaftahlíð 24, kl. 17.15–18.30.
Fyrirlestrar
Askja – náttúrufræðihús HÍ | Dr. Klaus von
See greinir frá þeirri reynslu sem hann hef-
ur orðið fyrir sem norrænufræðingur á
starfsævi sinni í fyrirlestri sem er í boði hug-
vísindadeildar HÍ og fer fram í Öskju, nátt-
úrufræðihúsi Háskóla Íslands, sal 132, og
hefst kl. 16. Fyrirlesturinn er á þýsku.
Gerðuberg | Geðteymi Reykjalundar býður
almenningi upp á fræðsluerindi í Gerðubergi
kl. 14–16.30. Erindin nefnast „Áhrif depurðar
á daglegt líf“, „Jafnvægi í daglegu lífi“,
„Áhrif hreyfingar á andlega líðan“, „Viðmót
skapar viðmót“ og „Samskipti og fé-
lagsfærni“.
Kennaraháskóli Íslands | Guðmundur B.
Kristmundsson, dósent í íslensku við KHÍ,
og Elísabet Arnardóttir talmeinafræðingur
halda fyrirlestur á morgun kl. 16.15 í Bratta,
Kennaraháskóla Íslands. Fyrirlesturinn ber
titilinn Lesið í menn og konur. Nokkrar nið-
urstöður rannsóknar á læsi fullorðinna.
Maður lifandi | Sigurlín Guðjónsdóttir jóga-
kennari og ayurvedískur heilsuráðgjafi held-
ur fyrirlestur um ayurveda kl. 18–19.30. Hún
fjallar m.a. um hvað einkennir vata-, pitta-
og kapha-líkamsgerðirnar. Sjá www.mad-
urlifandi.is.
Opni Listaháskólinn | Xiao Yong, grafískur
hönnuður, flytur fyrirlestur um eigin verk kl.
17 í Skipholti 1, stofu 113.
Málstofur
Alþjóðahúsið | Heimspekikaffihús kl.
20.30–22, á Café Cultura. Almenn sam-
ræða um spurninguna „hvar er tilgang lífs-
ins að finna? Stjórnandi er heimspeking-
urinn Róbert Jack, í samstarfi við Félag
áhugamanna um heimspeki og Alþjóða-
húsið.
Seðlabanki Íslands | Málstofa kl. 15 í fund-
arsal Seðlabankans, Sölvhóli. Málshefjandi
er Jana Eklund og ber erindi hennar heitið:
„Forecast combination and model averag-
ing using predictive measures“.
Námskeið
Áttun | Námskeið í streitustjórnun verður
8. október kl. 10–16, á Suðurlandsbr. 10, 2
hæð. Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðingur
fjallar um aðferðir við höndlun streitu og að
ná jafnvægi undir álagi. Skráning á:
info@life–navigation.com eða gsm
663 8927. www.lifenavigation.com.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Fréttir á SMS