Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 45

Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 45 MENNING ER orðstír yngri blásarasveitabók- mennta verri en ástæða er til? Svo gæti kannski virzt eftir aðeins kvart- setnum Salnum að dæma á sunnu- dagskvöld. En líklega vegur viðkynn- ingarleysið þyngra. Verk fyrir blásarahópa eru einfaldlega ekki daglegt brauð í okkar litla tónleikalífi þegar klassík og snemmrómantík sleppir, hvað þá af bitastæðara tag- inu. Til þess þarf a.m.k. að leita lengra og kafa dýpra en vanalega. En það var einmitt það sem Blás- arasveit Reykjavíkur hafði gert fyrir þetta kvöld, þar eð hvert atriði reyndist öðru skemmtilegra. Eini hængurinn var augljóslega hvað þau voru lítið þekkt hér um slóðir meðal lárviðarhneigðari tónlistarunnenda. Kæmi m.a.s. ekki á óvart ef eitt eða fleiri hafi hér verið flutt í fyrsta sinn á Íslandi – þó hvergi kæmi það fram af annars greinargóðri tónleikaskrá, frekar en venja er á þeim vettvangi. Sem aftur bendir til að auglýsingar- gildi þess arna þykir almennt ekki réttlæta ómakið við að kanna tón- sögulegar staðreyndir. Hvað þá þeg- ar markaðssmæð okkar býður sjaldnast upp á ítrekaðan flutning. Fyrst var Lítil sinfónía nr. 5 Op. 75 úr „Dixtour“, sex verka blásarabálki Dariusar Milhauds frá 1917–23. Hið örstutta en hnitmiðaða þríþætta stykki undir nýreistum gunnfána ný- klassíkur var hljómhvasst en samt gegnsætt og áheyrilegt; svolítið Vor- blótsskotið í miðju og með ágengan gróteskan mars í lokin. Líkt og Berlínarsálumessa Weills á eftir ágætlega spilað, þó að síðari verkin tvö þar á eftir nytu heyranlega góðs af undangenginni upphitun. „Das Berliner Requiem“ frá 1928, pöntunarverk í minningu heimsstyrj- aldarloka (og upphaflega af hálfu Brechts um m.a. Rósu Luxemburg), var þrefalt stærra í sniðum [20’]. Það birtist sögumeðvituðum sem napurt tímahylki um lævi blandið Weimar- lýðveldið, þar sem grunnt var á raun- verulegu tjáningarfrelsi, enda herinn enn ríki í ríkinu og illt að vera vinstra megin – þótt eftir ætti að versna við valdatöku nazista. Karlsöngvararnir þrír skiluðu ádeilutexta Brechts með prýði miðað við sennilega nauman samæfingartíma, og mæddi mest á Jóhanni Friðgeiri í fyrri hluta og Davíð í þeim seinni. Þokkafyllsta verk kvöldins, og eitt hið skemmtilegasta, var þríþættur Konsert Jacquesar Iberts fyrir selló og 10 blásara frá 1925. Kvað hér við allt annan tón en austan Rínar, þótt frá svipuðum tíma væri. Konsertinn geislaði allur af gallísku „bon vivant“ andríki, og hreint út sagt virtúós ein- leikur Sigurgeirs Agnarssonar efldi greinilega blásarana til frekari dáða undir markvissri stjórn Kjartans Óskarssonar. Sá dampur hélzt áfram uppi í síð- asta verkinu, sexþættri Svítu hins sorglega skammlífa bandaríska Roberts Kurka (1921–57) úr óperu hans „Góði dátinn Svejk“, þar sem 16 spilarar fóru á þvílíkum kostum að maður ók sér af kæti. Hér vantaði sannarlega hvorki kraft, lipurð né ná- kvæmni, og þó að ofurlítið djassleitt tónmálið væri stundum stílblendnara en góðu hófi virtist gegna í fyrstu, þá fór öguð spilagleði Blásarasveitar- innar langt með að sannfæra hlust- endur um snillingsneistann undir niðri. Kannski lengst í hinum glæsi- dulúðuga Marsi (III) og Pastoral (V) er nær væri að kalla sveitamartröð en sælu. Hér fengu óþarflega fáir að heyra dagskrá og spilamennsku sem send- andi væri til útlanda. Sendilegur blástur TÓNLISTSalurinn Verk eftir Milhaud*, Weill, Ibert** og Kurka. Blásarasveit Reykjavíkur ásamt Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni T*, Bene- dikt Ingólfssyni Bar.*, Davíð Ólafssyni B* og Sigurgeiri Agnarssyni selló**. Stjórnandi: Kjartan Óskarsson. Sunnu- daginn 2. október kl. 20. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Hair play frá Rakarastofan Klapparstíg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.