Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”
Must Love Dogs kl. 6 - 8 - 10.10
The 40 Year Old Virgin kl. 8 og 10.20 b.i. 14
Strákarnir Okkar kl. 10 b.i. 14
Charlie and the... kl. 5.45
LANG VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
VARÚÐ: Þú gætir farið úr
kjálkaliðum af hlátri
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
29. september til 9. október
Kissed by winter -
Sýnd kl. 6
37 and a half - Sýnd kl. 8
George Michael :
A different story - Sýnd kl. 10
FYRSTI HLUTI AF ÞRÍLEIK.
DÚDUR FÓTBOLTAMYND SEM
HITTIR Í MARK OG MIKLA
MEIRA EN ÞAÐ.
SÉRHVER DRAUMUR
Á SÉR UPPHAF
VARÚÐ: Þú gætir farið úr kjálkaliðum af hlátri
Frábær rómantísk gamanmynd sem
steinliggur fyrir stefnumótið. Með þeim
stórgóða John Cusack og hinni fallegu
Diane Lane.
Erfi ðasta brellan er að fá þá til að staldra við.
Diane Lane John Cusack
S.V. / Mbl.
! "
#
!
$!
%&!'
(
)*
+*
,*
-*
.*
/*
0*
1*
) # *
'' 4 )
'' D
<)
,0 * : E4
5 !* !<B'
/L
ÞAÐ má með sanni segja að kvik-
myndasumrinu sé lokið. Síðasta
stóra myndin Charlie and the
Chocolate factory hangir að vísu
enn í fjórða sætinu en annars stað-
ar á topp tíu listanum sitja til-
tölulega nýjar myndir. Í toppsæt-
inu þessa vikuna er gamanmyndin
The 40 year old virgin með gam-
anleikaranum Steve Carell í aðal-
hlutverki. Steve hefur áður sýnt
frábæran leik í myndum á borð við
Anchor Man og Bruce Almighty en
hann var líka atkvæðamikill í þætti
bandaríska háðfuglsins Jons Stew-
art þar sem hann fór á kostum í
hlutverki fréttaskýranda. Rúmlega
11 þúsund Íslendingar hafa þegar
séð þessa grínmynd sem getur ver-
ið að staldri enn um sinn á toppn-
um.
Í öðru sætinu er flugvélatryll-
irinn Red Eye eftir hrollvekju-
meistarann Wes Craven sem leik-
stýrði meðal annars Scream
kvikmyndunum frægu. Myndin var
frumsýnd um helgina en hingað til
hefur á fjórða þúsund gesta sótt
hana í kvikmyndahús.
Disney myndin Valiant er í
þriðja sæti en hún fjallar um hug-
rakkar dúfur sem taka málin í sín-
ar hendur. Það er skoski leikarinn
Ewan McGregor sem ljær sögu-
hetjunni rödd sína.
Aðrar nýjar myndir á listanum
eru knattspyrnumyndin Goal!sem
fer vel af stað, rómantíska gam-
anmyndin Must Love Dogs með
þeim Diane Lane og John Cusack í
aðalhlutverkum og síðast en ekki
síst er það skandinavíska æv-
intýramyndin Óskar og Jósefína.
Það eru svo Strákarnir okkar sem
reka lestina, sína fimmtu viku á
lista.
Bíóaðsókn | Kvikmyndaveturinn kominn
Stever Carell er fyndinn fýr.
Ennþá hreinn sveinn
BANDARÍSKA fjöllistatvíeykið
The Shneedles mun halda sýningu
hér á landi í byrjun næsta árs í
Austurbæjarbíói. Ísleifur Þórhalls-
son hjá Event sem hefur áður staðið
fyrir vinsælum sýningum á borð við
dávaldinn Sailesh, Pilabolus Dance
Theatre og Sirkus Jim Rose, stend-
ur fyrir komu listamannanna. Segir
hann að hér sé um að ræða stór-
furðulega sýningu sem blandi sam-
an færni loftfimleikamanna, hisp-
urslausum fáránleika Monty Python
og grínsnilli Busters Keaton til að
skapa eigin bræðing af fjölleikasýn-
ingu, sirkus, töfrum, undarlegri tón-
list, gagnvirkum kvikmyndum og
taumlausum líkamlegum gamanleik
fyrir áhorfendur á öllum aldri.
„Ég sá þessa sýningu fyrst í
Þýskalandi og fylltist strax trú á
henni þar. Hún er rosalegt augna-
konfekt og þeir leika á sviðinu listir
sem maður trúir varla að séu mann-
inum mögulegar. Tvímælalaust ein
fyndnasta og skemmtilegasta sýn-
ing sem ég hef séð. Það var líka
mjög merkilegt að það virtust allir
skemmta sér óháð aldri, allt frá
litlum krökkum til eldra fólks. Enda
er sýningin í raun handan tungu-
málsins.“
The Shneedles er skipað þeim
Wolfe Bowart og Bill Robison en
þeir búa báðir yfir áratuga reynslu í
hinum ýmsu listgreinum, svo sem
leiklist, leikritun og grafískri hönn-
un.
Um sýninguna sagði þýskur
gagnrýnandi hjá Süddeutsche Zeit-
ung meðal annars: „Það er söngur
og það er dans; diskar fljúga og
kústum er sveiflað á nefum. Mýs
gerðar úr pappír lifna við. Tveir
kokkar rífast um bestu salat-
dressinguna. Tveir aular verða ást-
fangnir af sömu konunni í áhorf-
endahópnum. Já, og svo kemur
ruslatunna og étur annan þeirra,
tyggur hann og spýtir honum svo
aftur út úr sér. Ef ég ætti að geta
lýst þessari sýningu þá þyrfti ég á
orðum að halda sem hoppa og
skoppa og stökkva af síðunni syngj-
andi beint í fangið á þér.“
Sýning The Shneedles verður 27.
janúar í Austurbæjarbíói og ráðgert
er að miðasala hefjist í lok október.
Aðeins verða um 500 miðar í boði og
miðaverði verður haldið í lágmarki.
Þeir sem eru skráðir á póstlista
Event munu fá tækifæri til að
tryggja sér miða á undan öllum öðr-
um. Gjafakort verður einnig í boði.
Leiklist | The Shneedles væntanlegir á næsta ári
Sýning handan tungumáls
The Sheedles er skipað þeim Wolfe Bowart og Bill Robison.
www.event.is
SPENNUMYNDIN Flightplan,
með Jodie Foster í aðalhlutverki,
hélt efsta sætinu á aðsóknarlista
bandarískra bíóhúsa um helgina
en þar leikur Foster móður, sem
týnir dóttur sinni í farþega-
flugvél.
Talið er að það hafi aukið
áhuga á myndinni, að stéttarfélög
flugliða hvöttu félagsmenn sína til
að sniðganga hana vegna þess að
í henni séu starfsmenn flugþjón-
ustu sýndir í neikvæðu ljósi.
Vísindaskáldsagan Serenity,
sem byggist á sjónvarpsþáttunum
Firefly, fór beint í 2. sætið á list-
anum. Tölvuteiknimyndin Corpse
Bride, eftir Tim Burton, fór úr 2.
sæti niður í það þriðja. Spennu-
myndin A History of Violence,
með Viggo Mortensen og Maria
Bello, fór upp um 14 sæti í það 4.
Brimbrettamyndin Into the Blue,
með Jessica Alba og Paul Wal-
ker, fór beint í 5. sætið. Þá fór
Disney-myndin The Greatest
Game Ever Played, um áhuga-
kylfing sem vann bandaríska
opna meistaramótið árið 1913,
beint í 9. sætið.
Kvikmyndir | Flightplan enn vinsælust í Bandaríkjunum
Foster flýgur hátt
Jodie Foster má una sæl við sitt.