Morgunblaðið - 04.10.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 49
og “Bruce Almighty”
KRINGLAN KEFLAVÍKAKUREYRISýningartímar sambíóunum ÁLFABAKKI
VARÚÐ: Þú gætir farið úr
kjálkaliðum af hlátri
GOAL! kl. 6 - 8 - 10.15
VALIANT m/- Ísl tali kl. 6
40 YEAR OLD VIRGIN kl. 8 - 10.15
GOAL! kl. 8
THE CAVE kl. 8
Erfi ðasta brellan er að fá þá til að staldra við.
Frábær rómantísk gamanmynd sem steinliggur fyrir stefnumótið.
Með þeim stórgóða John Cusack og hinni fallegu Diane Lane.
Diane Lane John Cusack
VARÚÐ: Þú gætir farið úr kjálkaliðum af hlátri
A.G. Blaðið
GOAL! kl. 5.30 - 8 - 10.30
MUST LOVE DOGS kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
THE 40 YEAR OLD... kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
THE 40 YEAR OLD..VIP kl. 5.30 - 8 - 10.30
VALIANT m/Ísl tal. kl. 3.40
SKY HIGH kl. 3.45 - 6
CHARLIE AND ... kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
STRÁKARNIR OKKAR kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
RACING STRIPES m/Ísl tal. kl. 3.30
GOAL kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE CAVE kl. 10.30 B.i. 16 ára.
VALIANT m/ Ísl tal. kl. 6
VALIANT m/ensku tali. kl. 8
CHARLIE AND THE... kl. 8
STRÁKARNIR... kl. 10 B.i. 14 ára.
V.J.V. TOPP5.IS
R.H.R. MÁLIÐ
D.V.
S.V. MBL
kvikmyndir.is
LANG VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
SUMARSÆLUNNI lýkur skyndi-
lega í lífi Monu (Press), sextán ára
stúlku í sveitaþorpi í Yorkshire. Þá
er hún mikilvægri reynslu ríkari og
búin að uppgötva ótal margt um
sjálfa sig og tilveruna. Móna, sem á
lítið sameiginlegt með þorpsbúum,
hefur gaman af að skottast um á
vélarvana skellinöðru, í slíkum hjól-
reiðatúr út fyrir bæinn kynnist hún
Tamsin (Blunt), sem býr á sum-
arsetri foreldra sinna í útjaðri bæj-
arins. Stúlkurnar laðast hvor að
annari þrátt fyrir að vera algjörar
andstæður á flestan hátt. Mona er
hæfileikaríkur villingur, frísk og
heillandi náttúrubarn, full af und-
irliggjandi hæfileikum. Hún er búin
að missa móður sína og býr ásamt
Phil (Considine), bróður sínum, á
hæðinni yfir kránni sem móðir
þeirra rak. Phil hefur breytt henni í
aðstöðu fyrir kristilegar samkomur
en hann hefur frelsast í fangelsinu
þar sem hann sat af sér dóma fyrir
rán, ofbeldisbrot og annan djöf-
ulskap. Hann er snarruglaður og á í
sálarstríði og finnst Mónu sem hún
sé algjör einstæðingur. Jafnvel
náunginn sem hún er í slagtogi við,
lætur hana róa.
Tamsin er á hinn bóginn á beinu
brautinni til frægðar og frama, hún
er stödd í sumarhúsinu í fríi frá
skólanum, hún á allt af öllu og hefur
til að bera klassíska fegurð. Um-
hverfið er þó ekki eintómt sólskin
því Tamsin er nýbúin að missa syst-
ur sína sem var jafnframt hennar
besta vinkona og pabbi hennar hef-
ur meiri tíma fyrir viðhöldin en að
sinna dótturinni.
Það sem við tekur er falleg og
heilsteypt ástar- og þroskasaga.
Stúlkurnar laðast hvor að annarri,
þær eiga ekkert sameiginlegt með
öðrum þorpsbúum en uppgötva þess
í stað ævintýraljóma æskunnar sem
tekur óvænta stefnu er þær hefja
lesbískt ástarsamband. Bróðurnum
til mikilla sárinda, en í vel gerðu og
fyndnu lykilatriði flettir Tamsin of-
an af þunnildislegri falsspámennsku
hans og samtímis sjálfri sér.
Það er erfitt að ljúka slíkri sögu,
engu að síður er endirinn besti hluti
Sumarástar, enn einnar skrautfjaðr-
arinnar í hatti hátíðarinnar. Mónu
er skyndilega ljóst hvar hún stendur
og gerir tilhlýðilegar ákvarðanir til
að komast frá þessu brothætta
sumri með lágmarksskaða. Það er
alveg ljóst að hún er sigurvegarinn,
búin að snúa atburðarás sumarsins
sér í hag, hún á eftir að bjarga sér.
Press og Blunt eru stóruppgötv-
anir í leikkvennastétt og eiga örugg-
lega eftir að koma mikið við sögu í
framtíðinni. Blunt, sem skilar sínu
óaðfinnanlega, á sjálfsagt eftir að
verða meira áberandi. Það er alltaf
nóg pláss fyrir sætar stelpur á borð
við Kieru Kingsley & Co., kvik-
myndaheimurinn hefur úr mun
minna að moða fyrir sjarmatröll
eins og Press. Hvort hún nær að
feta í fótspor Sissy Spacek og Cate
Blanchett, svo nefndar séu leik-
konur sem hún minnir á, er ekki
ólíklegt og óskandi að þessi hæfi-
leikaríka og heillandi stúlka fái að
gleðja kvikmyndahúsgesti sem
lengst og mest.
Pawlikowski, pólskættaður leik-
stjóri og handritshöfundur sem
starfar á Bretlandseyjum, hefur
tekist að skapa eftirminnilega mynd
um gjörólíkar stúlkur á leið út í
heim fullorðinsáranna, fulla af ólg-
andi tilfinningum, hádrama og húm-
or. Hann leikstýrir ungu leikkon-
unum sínum með styrkri hönd, en
báðar eru að fara með aðalhlutverk í
fyrsta sinn. Considine er traustur
sem jafnan og myndin á vonandi
lengra líf hérlendis en örfáar sýn-
ingar á hátíðinni.
Eldskírn ungfrú Mónu
KVIKMYNDIR
Regnboginn: AKR 2005
Leikstjóri: Pawel Pawlikowski. Aðalleik-
endur: Nathalie Press, Emily Blunt,
Paddy Considine, Dean Andrews, Mic-
helle Byrne.85mín.Bretland. 2004.
Sumarást (My Summer of Love)
Sæbjörn Valdimarsson
Í gagnrýni segir að myndin sé falleg og heilsteypt ástar- og þroskasaga og
enn ein skrautfjöðrin í hatti hátíðarinnar.
SPENNUMYNDA- og hroll-
vekjusmiðurinn Wes Craven er mað-
ur sem kann til verka. Hann hefur að
vísu aldrei fengist við „stórmyndir“ á
sínu sviði, þess fimari er hann á sín-
um bás, í ódýrum en ágengum tauga-
trekkjurum. Red Eye er til vitnis um
fagmennskuna, Craven veit upp á hár
hvenær hann á að kynda undir spenn-
unni og slaka á.
McAdams leikur hótelstýruna
Lísu, unga konu sem tekur starf sitt
alvarlega og er á heimleið til Miami
eftir að vera viðstödd jarðarför ömmu
sinnar norður í Texas. Hún á bókað
flug sem hefur seinkað vegna veðurs
og á flugvellinum rekst hún sí og æ á
Jackson Ripper (Murphy), ungan og
viðfelldinn mann sem er á sömu leið
og hún. Þegar þau lenda síðan hlið við
hlið í flugvélinni, kemst hún illilega að
því að nærvera hans er engin til-
viljun, Ripper er harðsvíraður glæpa-
maður sem ætlar sér að nota Lísu til
að gera aftöku framkvæmanlega.
Eitt aðalsmerkja mynda Cravens
er hárrétt leikaraval og honum
bregst ekki fundvísin frekar en fyrri
daginn. Red Eye þarf á burðarstólpa
að halda, átökin eiga öll sér stað í ná-
vist Lísu og hin unga og eftirtekt-
arverða McAdams (Mean Girls, The
Wedding Crashers), stendur sig trú-
verðuglega í hlutverki skelfingu lost-
innar ungrar konu en kjarkmikillar
og tilbúnari í slaginn en Ripper grun-
aði, þar sem hún hefur áður gengið í
gegnum hremmingar.
Murphy er ekki síður vel valinn í
hlutverk þorparans Ripper. Myndin
þarf á leikara að halda sem bæði get-
ur verið manna geðugastur jafnt sem
ónotalegastur. Eftir upphafsatriðin
geislar af honum fólskan, jafnvel svo
að bíógesti langar að ganga í skrokk á
honum. Red Eye er víðsfjarri þekkt-
ustu myndum Cravens, líkt og hroll-
vekjunum kenndum við Scream og
Elm Street. Að þessu sinni heldur
hann sig við spennu byggða á nátt-
úrlegri aðstæðum en engu að síður
óþægilegum. Ég mæli með Red Eye
fyrir flesta aðra en flughrædda sem
eru að leggja í loftið.
Háskagripur í háloftunum
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Wes Craven. Aðalleikarar:
Rachel McAdams, Cillian Murphy, Brian
Cox. 85 mín. Bandaríkin. 2005.
Red Eye
Sæbjörn Valdimarsson
„Eitt aðalsmerkja mynda Cravens er hárrétt leikaraval og honum bregst
ekki fundvísin frekar en fyrri daginn,“ segir m.a. í dómi.
FJÖLDI aðstandenda mynda verð-
ur viðstaddur sýningar á Al-
þjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykja-
vík. Á eftir sýningum myndanna
gefst áhorfendum kostur á að
spyrja þá spjörunum úr. Í kvöld
verða tveir leikstjórar viðstaddir
sýningar á myndum sínum.
María Próchaskova verður á sýn-
ingu Shark in the Head í Regnbog-
anum kl. 22. Svo er Zero Degrees of
Separation sýnd í Tjarnarbíói kl. 21
og þar verður Elle Flanders.
Leikstjórar svara
spurningum
www.filmfest.is
Glamúrgellan Paris Hilton hef-ur slitið trúlofun við kærasta
sinn og nafna, Paris Latsis.
Segir hún ástæðuna vera að
henni finnist hún ekki tilbúin í
hjónaband. „Ég hef séð fólk sem
er ástfangið en hefur flýtt sér í
hjónaband of snemma hætta sam-
an, og ég vil ekki gera þau mis-
tök,“ segir hún. Parið opinberaði
trúlofun sína í
maí á þessu ári.
Paris segist
enn vera ung og
að hún sé ekki
tilbúin að gefa
upp á bátinn
glæstan feril
sinn. Hún segist
hafa lagt mikið á
sig til að komast þangað sem hún
sé í dag, en segir Paris frábæran
mann og að þau muni takast á við
breytinguna með reisn og virð-
ingu.
Fólk folk@mbl.is
01.10. 2005
7
6 8 6 9 2
3 7 7 5 1
18 24 35 36
10
28.09. 2005
1 13 21 25 26 33
12 28 21
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4741-5200-0012-5404
4507-4500-0029-0459
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.