Mánudagsblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 6

Mánudagsblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 6
6 Mánudagsblaðið Miðvikudagur 20. desember 1978 HÓTELIN BJÓÐA ÞEIM ÓTRÚLEGT LÚXUSLlF Wayne Newton: Hann fær lífvörð/ barþjón og ókeypis lúxusíbúðir fyrir vini sína. Sammy Davis jr.: Lífverð- ir og „vikadrengur" til að annast öll innkaup. Einkaþotur...snekkjur.. .einbýlishús.. .einka- matreiðslumenn.. lúxusibúðir... Þetta er aðeins hluti þeirra þæginda sem Las Vegas — og Lake Tahoehótelin bjóða heimsfrægum skemmtikröftum, sem þangað koma til að skemmta hótelgestum. Þegar Dean Martin leggur land undir fót til að skemmta á MGM Grand Hotel, fær hann einbýlis- hús tii afnota og vitaskuld stendur það rétt við golf- völlinn, þvi Mattin er mikill áhugamaður um golf svo ekki sé meira sagt. Umboösmaöur söngvarans seg- ir aö hann vilji helst leika átján holur, hvorki fleiri né færri, áöur en hann treöur upp til aö skemmta. Þess vegna er húsiö staösett alveg sérstaklega meö tilliti til þess, aö Martin þurfi ekki aö ganga langt til aö leika sinar á- tján holur. Þar er vitaskuld mat- reiöslumaöur til staöar ailan sól- arhringinn og ekki færri en f jögur svefnherbergi. Martin þarf ekki aö koma fram nema einu sinni á kvöldi, en flestir aörir skemmti- kraftar eru ráönir til aö koma fram tvisvar. í stuttu máli sagt, eigendur hótelsins bera hann á höndum sér og gera allt sem i þeirra valdi stendur til aö þjóna duttlungum hans, hverjir sem þeir kunna aö vera. Þá fær Frank Sinatra ekki lak- ari móttökur, þegar hann skemmtir gestur Lake Tahoe. Hann fær til afnota iburöarmikla Ibúö sem snýr út aö ströndinni, þjóna hefur hann á hverjum fingri og snekkju, sem hann getur gripiö til hvenær sem honum þóknast. Og til þess aö honum leiöist ekki vistin, fær hann til af- nota litla einkaþotu, svo hann geti brugöiö sér milli bæja. Osmonds-systkinin koma ó- sjaldan á Hilton hótelinu i Las Vegas á feröalögum sinum, og skemmta þá gjarnan gestum viö góöar undirtektir. Þvi biöur þeirra ævinlega fimm herbergja lúxuxíbúö uppi á 30. hæö, og þarf vart aö taka þaö fram, aö þaö er langglæsilegasta Ibúöin sem hót- eliö hefur yfir aö ráöa. Eitt af fáu, sem systkinin láta eftir sér er aö spila fótboltaspil og þvi hefur einu sllku veriö komiö fyrir i Ibúöinni til aö þau geti gripiö I þaö þegar þau langar til. En MGM Grand — hóteliö gerir vel viö fleiri en Dean Martia. Þegar Tenille og The Captain koma þar viö, fá þau til afnota Cadillac, milljón dollara einbýlis- hús og matsvein, sem sér um aö i engu sé brugöiö út af I lögun grænmetisfæöu þeirrar, sem par- iö neytir einungis. Húsiö sem þau fá til afnota, leigir hóteliö af Engilbert Hump- erdinck söngvara og eru þar sex svefnherbergi og auövitaö sund- laug. Þegar Sammy Davis jr. kemur tilCaesars Palace er honum takiö meö kostum og kynjum. Hann býr auövitaö i stærstu lúxusibúö hótelsins og hefur á sinum snær- um mann, til aö annast öll inn- kaup, en sem kunnugt er, er Sammy afskaplega kaupglaöur maöur og verslar mikiö, hvar sem hann er staddur I heiminum. Hann hefur einnig mjög gaman af aö elda og þvi er öllum möguleg- um tegundum hráefnis og eldhús- tækja komiö fyrir i Ibúöinni, þeg- ar von er á kappanum. Dean Martin: Hús við golf- völlinn/ svo hann geti leikið golf á hverjum degi. Wayne Newton sem nýlega hef- ur undirritaö samning upp á margar milljónir dollara viö þrjú hótel I Las Vegas, þar sem hann setur þau skilyröi aö hafa einka- barþjón, lifveröi og lúxusibúöir til afnota fyrir vini sina. Umboös- maöur söngvarans segir hann ekki vera mikinn drykkjumann, enhugmyndin sé, aö barþjónninn Donný og Mary: Fótboltaspil f hvert Captain og Tennille: Búa í milljón-doll- herbergi. ara húsi meö einkamatreiðslumanni veröi i búningaherbergi Newtons og sjái um aö vökva gesti sem kynnu aö heimsækja hann þang- aö. Hjónin Steve Lawrence og Eydie Gorme reka svo lestina hjá okkur aö þessu sinni. I hvert sinn er þau koma á Hilton hóteliö I Las Vegas eru þeim færöar gjafir. Vitaskuld fá þau svo lúxuxibúöir og annaö þaö sem hóteliö hefur Frank Sinatra: Hús við hafið/ starfsfólk/ snekkja og einkaþota. best upp á aö bjóöa. En er þaö spuröist út aö þau væru aö safna spiladósum, brugöu hóteleigend- ur hart viö, og nú fá þau hjóneina spiladór i hvert sinn sem þau láta sjá sig. Og auövitaö eru gjafirnar ekkert hversdagslegar, heldur eru keyptar dýrustu og sjaldgæf- sutu spiladósir sem völ er á hverju sinni. Giafir sem ylia: MOKKA húfur og lúffur í mikluúrvali Lúffur fyrir konur og karla: Stærðir Smail — Extra large. Barnastærðir frá 0-12. Mokkahúfur: Barnahúfur í stærðum 49-54 Fullorðins stærðir 55-62. Lítið vlð í verslun okkar. Gjafaúrvalið hefur aldrei verið fallegra RAtltlAGERD HAFNARSTRÆT119

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.