Mánudagsblaðið - 23.11.1981, Qupperneq 1
MANUDAGSBLMID
Mánudagur 23. nóv. 1981, 8. tbl. 31. árg.
Verð 6 kr.
ii
„SVARTA
HÖNDIN
Sagan um
Mafíu-
gangstera
og
gleðikonur
BLS. 5
BÓKAÚTGEFENDUR ERU ORÐNIR LANGÞREYTTIR
PRENTVERK
■ HYTJAST
Rokkarnír
eru þagnaðir
Nú er talið fullvisst, að þolinmæði
bókaútgefenda sé loksins alveg á þrotum
gagnvart prentarastéttinni. Með árvissum
verkföllum og hótunum ef ekki sé gengið
að kröfum þeirra, hefur prenturum tekist
að flæma iðngrein sína á erlendan
vettvang.
Gera má ráð fyrir að bókaútgefendur
vilji ekki lengur taka þá áhættu ár eftir ár, í
nóvember eða desemberbyrjun, að allt
útgáfustarf þeirra stöðvist vegna kenja
stéttarinnar og óheyrilegra krafna.
Það er staðreynd að talsvert af
bókunum er nú prentað erlendis
t.d. barnabækur og sama máli gildir
um hin vandaðri tímarit eins og
Iceland Review o.s.frv. Hefur
þessum aðilum blöskrað svo hinn
yfirgengilega heimtufrekja inn-
lendra prentara, að þeir hafa ekki
séð önnur úrræði. Þá er verðlagið úr
hófi fram t.d. eins og litgreining,
sem hér á landi er bæði dýr og léleg.
Ovíst um heimkomu
Það er dálítið neyðarlegt að heil
iðngrein skuli lögð í hættu vegna
þeirra manna sem vinna við hana,
því fari svo að bókaútgefendur, að
einhverju ráði komast uppá bragðið
erlendis, er allsendis óvíst, að þeir
snúi í bráð á heimaslóðir og mega þá
prentiðnaðarmenn bíta í það súra
epli nefnilega atvinnuleysið.
Því það geta prentarar bókað
að þetta verkfallsbrölt þeirra er
ekki til annars en að skerða
þeirra atvinnumöguleika og
gjarna mega þeir minnast hinna
grimmu orða hagfræðingsins,
að best er að hafa að staðaldri
3% (þrjú prósent) atvinnuleysi
til þess að allt gangi cins og i
sögu.
Ef þetta er vilji prentarastétt-
arinnar þá er kannski dálítil
von um að henni verði að ósk
KVENNA-
FRAMBOÐ
Á bls. 3 skrifar Smá- með góða kosningu úr
borgari um kvenna- prófkjörum flokkanna
framboð. Hann segir munu krefjast betri
„Það er ljóst, að konur embætta í borgarstjórn.”
Glannalegiii' akstur
bílstjóra a
bílum
Upp er runninn sá tími árs,
þegar umferð á vegum og
strætum er hvað hættulegust
og slysin tiðust. Eftir því, sem
bílum fjölgar og umferð
verður hraðari, gerist erfið-
ara fyrir þá, sem ekki hafa
þeim mun meiri æfingu í
borgarakstri að komast leiðar
sinnar á höfuðborgarsvæð-
Ein mesta hættan fyrir gang-
andi jafnt sem akandi stafar af
glannaakstri. Sagt er, aðbílstjórar
á bílum með G-númerum séu
staðnir að slíku athæfi oftar en
aðrir. Auðvitað er slík alhæfmg
Hafnarfjarðarvegur
hættulegastur á íslandi
varhugaverð, en við lauslega
könnun, sem blaðið gerði, kom
hið sama í ljós. Það er tæplega
tilviljun, því farnar voru nokkrar
ferðir.
Bögglast fyrir
brjósti
Einkum er það akreinaakst-
urinn, sem virðist bögglast
fyrir brjóstinu á sumum
ökumanna G-bílanna, og
auðvitað fleirum. Menn svína
á milli akreina á svívirðileg-
um hraða hreint eins og þeir
væru I rallakstri á bersvæði.
Þeim, sem verða fyrir barð-
inu A þessum ófögnuði er
eindregið ráðlagt að sveigja
þegar út í kant, hægja á sér og
jafnvel nema staðar þar til
rallkappinn er farinn hjá.
Glæpaakstur
Þeir, sem hafa með umferðamál
að gera, hafa ekki viljað gera því
skóna, að bílar með utanbæjar-
númerum yllu hlutfallslega fleiri
umferðaróhöppum en R-bílarnir.
Það væri þó í sjálfu sér ekkert
skrýtið og ósköp eðlilegt, þar sem
ökumenn éru margir alls óvanir
akstri í mikilli umferð. En öðru
máli gegnir um G-bílana, en aðra
utanbæjarbíla. Þeir eru allir af
höfuðborgarsvæðinu eða næsta
nágrenni og ökumenn þeirra eiga
að vera vanir akstri í umferð. en
allir þurfa þeir að aka til
borgarinnar eftir malbikuðum
hraðbrautum og spýta þá rækilega
í, eins og sést á glæpaakstrinum á
Hafnarfjarðarvegi, sem líklega má
teljast hættulegasti staður á
ísiandi á annatímum dagsins.
Kannski gleyma þeir svo bara að
slá af þegar þeir eru komnir til
borgarinnar. Líka getur hluta
orsakarinnar verið að leita í þeirri
staðreynd, að íslenskt pólití hefur
aldrei verið staðið að því að
áminna eða taka mann fyrir
venjulegt umferðarbrot. Það
þykir því ekki ómaksins vert að
vera að læra umferðarreglur eða
fara eftir þeim, ef hægt er að leika
lausum hala án þeirra.