Mánudagsblaðið - 23.11.1981, Page 7
Mánudagur 23. nóv. 1981 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 7
SVARTA HÖNDIN
frh. á bls. 5
öru fólksfjölgunar, því að margir af
viðskiptavinum hóruhúsanna voru
innflytjéndur, sem skilið höfðu
eiginkonurnar eftir í gamla landinu,
meðan þeir reyndu að vinna sér inn
peninga til að geta sent eftir þeim,
Slíkir menn þöfnuðust kvenmanns
öðru hverju og það var ekki nema
rökrétt að þeir sæktust eftir konum,
sem líktust þeirra eiginkonum, eða
töluðu að minnsta kosti sama
tungumál. margar af stúlkunum í
þessum húsum voru dætur innflytj-
enda sem ekki höfðu getað krækt sér
í eiginmann og sneru sér því að
vændi til að ná sér í pening og betra
líf. Aðrar voru tældar til þessa lífs
af „ropers”, sem flekuðu þær eða
lofuðu að útvega þeim vellaunuð
störf í fjarlægum borgum. I sumum
bórgum eins og t.d. Chicago var
komið upp svokölluðum „æfinga-
búðum” til þess að þjálfa eða
„temja” nýjarstúlkur. Sérfræðingar
voru fengnir til að nauðga ófúsum
stúlkum æ ofan í æ, þangað til þær
voru orðnar andlega niðurbrotnar.
Stúlkur, sem voru laglegri og
forhertari en gengur og gerist, fengu
sérstaka þjálfun og var útvegað starf
á fínni hóruhúsunum, þar sem
viðskiptavinirnir voru efnamenn.
Öðru hverju voru haldin „uppboð”
í hinum ýmsu „æfingaskálum” og
tugir stúlkna seldar hæstbjóðend-
um.
Til þess að hafa uppá og klófesta
nógu margar ungar konur, svo að
hægt væri að anna eftirspurn, þurfti
töluverða skipulagningu um landið
þvert og endilangt, og það er hér
sem er að finna fyrsta vísinn að
hinum stóru glæpahringum fram-
tíðarinnar.
Þrælasálar
Frægastur allra hvítra þrælasala
kannski mest vegna þess, að hann
undirbjó jarðveginn fyrir John
„The Fox” Torrio og A1 Capone -
var James „Big Jim” Colosimo.
Hann var fæddur á Ítalíu 1871 og
kom til Bandaríkjanna tíu ' ára
gamall, árið 1881. Faðir hans settist
að í einu melluhverfí Chicago, og
Big Jim giftist einni frægustu
mellumóður borgarinnar árið 1902,
en þá var hann búinn að afla sér þó
nokkurra áhrifa í stjórnmálum
borgarinnar. Ekki leið á löngu áður
en hann hafði á sínum snærum
mörg hóruhús, að hann varð að
koma sér upp flokki „veiðimanna”
til að hafa húsin byrg af ferskum
kroppum. Það var þá sem hann
kvaddi til sín bróðurson sinn Torrio
frá New York og gerði hann að
framkvæmdastjóra sínum. en hinn
ungi fraændi hans yfírtók smám
saman öll viðskiptin og reistu á
þeim heilt stórveldi. Torrio, ásamt
Amold Rothstein og Meyer Dansky
voru höfuðsmiðir glæpasambands-
ins, sem óx og dafnaði næstu hálfa
öldina, þangað til það náði yfir allt
landið. Snilligáfa þessara manna var
aðallega í því fólgin að sjá í tíma,
þegar ein arðbær tekjulind á sviði
glæpa, var í þann veginn að víkja
fyrir annrarri.
Þannig var Torrio fljótur að sjá,
að þó að hvíta mannsalið mundi
ávallt vera arðvænlegt í einhverri
mynd, þá voru hinar sérstöku
ástæður sem á sínum tíma hafði gert
það rökrétt, ekki lengur fyrir
hendi. Framundan blöstu við ný
tækifæri í ólöglegri sölu áfengra
drykkja. Þegar Colosimo var ófær
eða að minnsta kosti ófús til að
breytast með breyttum tímum, lét
Torrio einfaldlega myrða hann,
þann 11. maí 1920. og tók sjálfur við
stjórntaumunum. A sinn hátt var
hann táknrænn fyrir uppreisn
innflytjenda af annarri kynslóð, sem
nú risu gegn hinni eldri kynslóð,
sem þeir uppnefndu „Mustache
Petes”.
Árið 1913 var Arthur B. Mickey”
McBride ráðinn sem útbreiðslu-
stjóri blaðsins Cleveland News.
Bandamaður hans var James Ragen,
útbreiðslustjóri blaðsins Cleveland
Leader. Bæði blöðin voru í eign
fjölskyldu Marks Hanna, sem nú
var látinn, en hafði verið áhrifamik-
ill pólitíkus. A öndverðum meiði við
McBride og Ragen var útbreiðslu-
TVÆR VIKUR FYRIR
AÐEINS 4.955.00 KRÓNUR.
stjóri blaðsins Cleveland Plain
Dealer, Thomas J. McGInty.
McBride var fæddur í Chicago
árið 1886 og hafði á sér orð sem
harðjaxl með skipulagsgáfu. A
komandi árum átti hann oftar en
einu sinni eftir að sýna, að það orð
sem fór af harðneskju hans, var ekki
óverðskuldað þegar hann hætti
blaðamennskunni, gerðist hann
konungur leigubílstjóra í Cleveland
og molaði alla mótstöðu með sama
harðfengi og hann hafði stjórnað
blaðsölunni. Árið 1940, þegar
Moses Annenberg, sem stofnað
hafði símaþjónustu fyrir alla
veðbanka landsins, var settur inn,
tóku McBride og hans gamli vinur
Ragen stjórnina á þessu fyrirtæki í
sínar hendur og gáfu því nýtt nafn
Continental Press. Þegar Ragen var
myrtur, varð McBride einn saman,
eigandi þessa víðfeðma félags og
stjórnaði því, þangað til Kefauver-
nefndin lét loka því, árið 1951.
McBride sannaði enn einu sinni
skipulagsgáfu sína með því að stofna
eitt besta og harðfengasta knatt-
spyrnulið Bandaríkjanna, The
Cleveland Browns þar kom þó, að
hann seldi liðið Saul Silkerman,
eiganda viðhlaupabrautar í Miami,
og dró sig hlé.
Keppinautur hans McGinty var
fæddur í Cleveland árið 1892 og var
yngstur af átta börnum.
SKIÐAPARADIS I
ÍTÖLSKU ÖLPUNUM í SUÐUR-TYROL.
Flugleiðir íljúga gestum sínum
til Innsbruck, en þaðan er aðeins 1 1/2
klst.akstur til Val Gardena.Þar bíður
gisting á Hotel Sun Valley, sem er
ákaílega vistlegt hótel með hálíu
íœði inniíöldu í verðinu. Sun Valley er
stjómað aí margíjöldum Ítalíumeist-
ara á skíðum, þannig að þar er vel
búið að skíðaíólki!
bjóðum við líka Hotel Savoy,
hálíu íœði inniíöldu!
Þá er einnig boðið upp á gistingu á
gistiheimilinu „Pension Elvis".Hjá Elvis
er morgunmatur inniíalinn.
í Gardenadalnum má finna
skíðabrekkur og leiðir við allra hœfi,
jafnt byrjenda sem kunnáttuíólks.
Rúmlega 90 skíðalyftur tengja saman
Selva, Badia og Fassa, en Selva er í
hjarta Dolomiti skíðasvœðisins, sem
býður uppá u.þ.b. 400 skíðaleiðir. Á
staðnum er skíðaskóli fyrir börn, ungl-
inga og fullorðna.
Fyrsta ferðin heíst 9. janúar 1982,
en síðan verða vikulegar íerðir í
janúar, íebrúar og mars. Tveggja
vikna íerð til ítölsku Alpanna kostar
frá kr. 4.995 , en vikuferð írá kr. 4.157
Sérstakur afsláttur fyrir böm.
Leitið upplýsinga um verð íyrir hópa.
Haíið samband, pantið strax hjá
Flugleiðum, umboðsmönnum Flug-
leiða eða hjá íerðaskriístoíunum.
Kynnið ykkur greiðslukjör.
FLUGLEIDIR
Traust fólk hjá góóu félagi
Flugleiðum heíur tekist að ná
góðum samningum við tvö prýðileg
skíðahótel í draumalandi allra skíða-
manna, Dolomiti í ítalska hluta Suður
Týról. Svœði þetta er þekkt íyrir íram-
úrskarandi skíðalönd með rúmlega
90 skíðalyítum og aðstöðu fyrir
byrjendur jaínt sem lengra komna. Til
marks um ágœti Dolomiti er hluti af
heimsmeistarakeppni í Alpagreinum
haldin þar árlega.
Svœði þetta býður upp á það
besta úr tveim heimum. Austurrískt
andrúmsloft og ítalska glaðvœrð.
Suður Tyról var eitt sinn austurrískt en
er nú innan ítölsku landamœranna.
ítölsku alparnir haía löngum verið
rómaðir fyrir náttúmfegurð, en Selva
Val Gardena er talið eitt íegursta
Alpasvœðið og eitt glœsilegasta
skíðasvœði Evrópu.