Tíminn - 25.02.1970, Blaðsíða 10

Tíminn - 25.02.1970, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. febrúar 1970 TIMINN 23 dálítið innar í ganginum. Eftir ör- stutta stund kom hún aftur í fylgd með yfirihiúkrunarkonu. Levallois kynnti hana fyrir Madame Aubry • og Murat, sem Madamoiselle Mauriac. — Vilduð þið gera svo vel, að koma hér inn augnablik? sagði hún og vísaði þeim inn í lítið en vel upplýst herbergi, sem að nofckru var skrifstofa og móttöku herbergi. — Við verðum því miður að biðja ykkur um að bíða enn um stund. — Maðurinn sem þið ætl- ið að sjá, er enn á skurðarborð- inu. En ég heid að það verði að- eins stutta stund ennþá. Vilduð þið gera svo vel að fá ykfcur sæti. — Hefur hann nokkuð kom- ið til meðvitundar? spurði Mad ame Aubry. — Ekki ennþá. Þegar hún var að draga fram stól fyrir Madame Aiuibry, hrópaði hún allt í einu: — Ó, Madame, hvað hefur komið fyr- ir? Hún horfði niður á fætur henn- ar. Madame Aubry leit einnig nið- ur á fætur sína. Þeir voru risp- aðir og storknað blóð á þeim. Allt frá því að hún hafði rispað sig á runnanum í garði Achmed Aly, hafði hún fundið til sviða, en ebki hirt um það af áhyggjum um alvarlegri hluti. -LÞetta er ekkert, sagði hún. — Ég hef aðeins hruflazt á fót- unum við að stíga út í runna. En Mademoiselle Mauricas sætti sig ekki við slífct. Bióð kom úr sári, og sár varð að hreinsa. Hún náði í skál með volgu vatni og sótthreinsunarlyfi, kraup niður við stóiinn og þvoði r.ijúklega með vatni fætur Madame Aubry, hún hreinsaði einnig tvo þyrna sem sátu enn í holdinu, með sáratöng. Þegar hún var búin, sáust að- eins smárispur eftir. — Hvað með yður Murat? haf- ið þér ekki rifið yður? Murat lyfti upp annarri buxna- skálminni og sýndi fótlegg hvítan eins og spik. — Ég er of seigur í húðinni, p.igði hann brosandi. Þyrnarnir höfðu sezt í buxna- skálmar hans, og hann fór nú að týna þá úr. Meðan þetta stóð yfir, hafði Leavallois staðið í dyragættinni og fylgzt með umferð á ganginum, um leið og hann hugleiddi hvað þau yrðu að bíða lengi. Hann hafði þegar skýrt þeim frá öllu sem hann vis.si, á leið- inni til spítalans. Bifreiðarstjóri hafði fundið manninn liggjandi út í vegarkantinum. Aðrir bif- reiðastjórar hefðu sennilega einnig orðið ihans varir, án þess að skipta sér nánar af því. Ef til voll aðeins dregið úr hraðanum, og svo haldið áfram. Þetta gat ver- ið drukkinn maður, og þá var að- eins um vandræði að ræða. Eða að bifreið hefði keyrt á manninn, og í því tilfelli áttu maður á hættu, að verða ásakaður um að hafa gert það sjálfur! Nei, það var bezt að láta þetta afskiptalaust. Loks hafði einn stanzað, lagt manninn í aftursætið hjá sér og ekið honum á sjúkrahúsið. Árangurinn varð sá, að þessi hjálpsami einstaklingur varð að eyða heiium klukkutíma í það að sannfæra tvo unga óvinsamlega lögregluþjóna um að maðurinn sem hann var að hjáipa, hefði ekki orðið fyrir hans bíl! Svo vel vildi þó til. að hinn hjálpsami maður kannaðist við Le- vallois, og hafði loks krafizt þess, að boð væru send eftir honum. Það var Levailois, sem eftir að hafa kynnt sér á spítalanum að hinn slasaði var ekki með neitt í vösum sínum, sem gaf til kynna hver hann væri, minntist þess að hafa fyrr um daginn heyrt til- kynninguna um leit að Lenoir, og því samstundir hringt sjálfur til lögreglunnar í París. Þau biðu og biðu. Á meðan hafði Madame Aubry skroppið í síma niðri í inngang- inum og hringt til Michaels. Þá var komið fram yfir miðnætti. Með erfiðleikum tókst henni að sannfæra hann um, að fara að hátta, og hafði lofað að hringja til hans strax um morguninn. 3íðan fór hún aftur upp, þar sem þau héldu áfram að bíða, .reykjandi ótai sígarettur, og ræddu öðru hverju hljóðlega sam- an í alltof sterkt lýstu herbergi yfirhjúkrunarkonunnar. Öðru hvoru voru hjúkrunarkon- ur að koma inn, til þess að sækja eitt eða annað og fóru strax út aftur en örlágt skóhljóð frá gúmmíhælum þeirra á glansandi parkettgólfinu hvarf út. Loks kom dálítill hópur í Ijós i enda gangsins. Tvær hjúkrunai konur óku vagni inn í eitt her- bergið í ganginum. Læknirinn, roskinn maður gekk til þeirra. Dr. Lanthenay, sagði Levallois, um leið og hann kynnti hann. Ilann var mjög hæverskur, og kom beint að efninu. — Ég veit til hvers þið eruð komin, sagði hann. — Mér þykir leitt að þið hafið orðið að bíða svona lengi. Við skulum koma hér inn í annað herbergi. Hann bauð þeim inn í tóma sjúkrastofu og kveikti ljós. Þau stóðu við uppbúið tómt sjúkra rúm og hlustuðu á frásögn hans. Maðurinn var milli fimmtugs og sextugs, ef tii vill nær sextugu. Hann var mjög mikið slasaður. Læknirinn var ekki viss um að hann myndi lifa. — Dökkt hár? spurði Madame Aubry. — Já. Dökkt hár, og dökk augu. Góðar tennur, Meðalhár. — Getum við fengið að sjá hann? — Samkvæmt vesjulegum regl- um væri ekkert því til fyrirstöðu, en það er annar vandi í því sam- bandi---------hann var sem sagt, mjög mikið slasaður. — Álítið þér að bifreið hafi ekið á hann? — Nei. Það tel ég alls ekki. Læknirinn leit augnablik þegjandi tii þeirra. Svo hélt hann áfram: — Ég held að hann--------------að hann hafi fallið út úr bifreið. — Fallið út? spurði Madame Aubry og Murat samtímis. - Já. — Þér áldtið, að honum---------- að honum hafi verið hrint út úr honum? Það var Levallois, sem spurði. —Það er ekki mitt, að segja til um neitt slákit, oig að sjálf- sögðu er það ómögulegt. Það sem ég get sagt með fullkominni vissu er, að þessi maður er með höfuð- kúpubrot aftan á höfðinu, sem er afleiðing af höggi, með þungu vopni nokkrum klukkustundum áður. Þeir áverkar sem hann heíur fengið við að falla út úr bifreiðinni — eru ekki næm því eins alverlegir, og þeir hafa kom- ið talsvert siðar. Eftir að ha-- fengið þessar ógn- vekjandi upplýsingar, gengu þau hljóðlega inn ganginn, að stof- unni þar sem máðurinn lá. Strax þegar þau komu í dyrn- ar skildist þeim hvað læknirinn hafði átt við með því, að það væri erfiðleikum bundið að þau fengju að sjá hann. Höfuð sjúklingsins var gersam- lega hulið af sjúkrabindum, að- eins nasaholurnar voru sýnilegar. Jafnvel einnig handleggir hans og hendur, sem lágu ofan á sænginni. Eina eða tvær mínútur stóðu þau orðiaus. Svo hvíslaði Madame Aubry: — Gæti ég fengið að sjá fötin hans? — Að sjálfsögðu, Madame. Læknirinn gaf hjúkrunarkommni vísbendingu, sem strax gefck að innbyg-gðum skáp í einu horni stofunnar. Madame Aubry og Murat fylgdu henni hljóðlega. Hjúkrunarkonan tók jakka Len- oirs fram úr skápnum. Það var enginn vafi ögulegur. Madame Aubry þekkti hann samstundis, þó að hann væri -ii'inn og blettaður blóði — það voru fotin sam Len- oir hafði verið í um morguninn, — dökkgrá röndótt föt. Hálsbindi Lenoirs var á herðatrénu með jakkanum. Hálsbindi sem hún kannaðist alltof vel.við. H-ún sneri sér undan augnablik. Hugsunin um, að undir ölluai þessum sára-bindum vaeri Lenoir stórslasaður og ef tii viH deyj- andi, setti áð hennj svima. Hún dró djúpt andann til þess að forðast ta-ttgaáfall, Góóar bækur Gamalt verð Afborgunarskilmálar BÚKA- MARKAÐURINN ^iðnskólanum er miðvikudagur 25. febr. — Victorinus Tungl í hásuðri kl. 4.14 Árdegisháflæði í Rvík kl. 8.36 HEILSUGÆZLA SLÖKKVTLIÐIÐ og sjúkrabifrciðii Símj 11100 SJÚKRABIFREID t Bafnarfirði sima 51336. SLYSAVARÐSTOFAN t Borgar spítalanum er opin allan sólar- hringinn. Aðeins móttaka slas- aðra. Sími 81212- Nætur og helgidagavörzlu apóteka í Rvík, vikuaa 21.—27. febr., annast Laugavegs-apótek og llolts-apótek. Næturvörzlu í Keflavík 25. febr. annast Guðjón Klemenzson. FÉLAGSLÍF Kvenfélag Ilreyfils. Heldur sfeemmtifund að Hallveigar stöðum fimimtudaginin 26. febrúar fcl. 20,30. Bingó. Ta-kið með ykfcur gesti. Kvenfélag Ásprestakalls. Aðalfiundurin-n verður n.k. fimmtu dag 26. febrúar kl. 8 í Ásheimilinu. Mætið vel og stundvíslega. Stjórn- in. Frá Barðstrendingafélaginu. í tilefni af 20 ára afmælis mál- fumdafélagsins Barðstrendingur, verð-ur h-átíðafundur haldinn ' Domus Medica miðvikudaginn 25. þ. m. kl. 8,30. Tónabær Tónabær Tónabær Félagsstarf eldri borgara. Á morgun er opið hús frá M. 1,30 — kl. 5,30. Þar verðúr meðal a-rnn- ars spilað, telft, lesið, kaffiveit- in-gar, upplýsingaþjónusta, bóka- úfclán, kvikm-ynd. KIRKJAN Hallgrúnskirkja. Föstumessa fellur ni'ður vegna for- falla. Laugarneskirkja. Föstumessa í kvöld kl. 8.30. Safn- aðarfund-ur að loki-nni guðsþjón- ust-u, rætt verður um sóknargjöld. Séra Gax'ðar Svavai'sson. Dómkirkjan. Föstumessa kl. 8.30. Séra Jón Auðuns. Langholtsprestakall. Föstumessa kl. 8,30. Séra Sigurður Haukur Guð.iónsson. Neskirkja Föstumessa kl. 8. 30 Séra Magnús Guðmundsson fyrrv. prófastur annast messuna. Séra Jón Th. ORÐSENDING Bágstadda konan, þakkir fyrir vcitta aðstoð. Nokkru fyrir jólin skrifaði ég h.jálparbeiðni fyrir sjúka konu, sgm þurfti að kornast utan til fi'ekari læknislijálpar. Margir brugðust vel vilð þessari beiðni og safnaðist alls á sjötta tu-g þúsunda króna. Morgðunblaðið og Tíminn tóku á móti gjöfum og au-k þess bárust -gjafir til mín, m.a. allstór fjárhæð í bréfi. Vil ég þa-kka allar þessar gjafir og þann góða hug, sem á bak við þær liggur. Það er af sjúku konunni að segja, að hún fór utan fyrir nokkr- um dögum og m-un dveljast á er- lendu heilsuhæli um nofckurra vikna skeið. Vonandj fær hún þar einhverja bót meina sinna. Ferð þessi hefði ekki verið möguleg, nema hjálp kæ-mi tii. Hjartans þakkir, Gu® blessar glaðan gjafara. Ragnar Fjalar Lárusson. AA-samtökin: Fundir AA-samtakanna i Reykja- vík: I félagsheimilinu Tjarnargötu 3C á mánudögum ki 21. miðviku- dögum kl 21, fimmtudögum kl. 21. I safnaðarheimili Neskirkju á föstudögum kl 21 I safnaðarheim- ili Langholtskirkju á föstudögum Skrifstofa AA-samtakanna Tjarn- argata 3C er opin alla virka daga nema laugardaga 18—19 Sími 16373. Hafnai-fjarðardeild AA-samtak- anna: Fundir á föstudögum kl 21 í Góðtemplarhúsinu. uppi Vestmannaevjadeild AA-sam- takanna: Fundir á fimmtudögum ki 20.Í30 i húsi KFUM. Heyrnarhjálp: Þjónustu við heyrnai'skert fólk hér á landi er mjög ábótavant Skii- yrði til úrbóta er sterkur félags- skapur þeirra. sem þurfa á þión- ustunni a-ð halda — Gerist þvl fé- lagar. Félag Heyrnarhjálp Ingólfsstræti 16, síiul 15895- Z / 0 v zzmzmzZ 12 ]'■ ,v 3005 Krossgáta Nr. 503 Lóðrétt: 2 Verkur 3 Vafi 4 Stei-kja 5 Borða 7 hreinka 8 Ætt 9 Kemst 13 Verkfæri 14 Hifcunartæki. Ráðnin-g á gáfcu nr.: Lárétt: 1 Æfing 6 Náttföt 10 Ær 11 Na 12 Rigning 15 Aftan. Lárétt: 1 Atvi-nnu 6 Hundurinn Lóðrétt: 2 Föt 3 Nöf 4 10 Hasar 11 Vein 12 Segir satt 15 Snæri 5 Staga 7 Ari 8 Tin Gljái. 9 Önn 13 Gæf 14 Iða. SOLNING H.F. s í M I 8 4 3 2 0 BIFREIÐASTJÓRAR FYRIRTÆKI — KAUPFÉLÖG Látið okkur gera hjólbarðana yðar að úrvals SNJÓHJÓLBÖRÐUM. Sólum allar tegundir vörubifreiða-hjólbarða. Einnig MICHELIN vírhjólbarða. SQLNING H.F. Baldurshaga v/Suðurlandsbraut. SÍMJ 84320 Pósthólf 741.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.