Tíminn - 19.03.1970, Page 9

Tíminn - 19.03.1970, Page 9
miMTUDAGUR 19. marz 1970. TÍMINN 9 Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas Kerfsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Ritstjórnar- sikrifstofur i Edduhúsinu, símar 18300—18306. SkrifstofUT Bamkaetræti 7 — Afgreiðslusími: 12323 Auglýsingasimi: 19523. Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskrifargjald kr. 165.00 á mán- uði, innanlands — í lausasölu kr. 10.00 eint. Prentsm Edda hf. Skoðanakönnunin í Reykjavík Undanfarnar vikur hafa farið fram í mörgum bæjar- og sveitarfélögum skoðanakannanir um skipun á fram- boðslistum flokkanna við bæjar- og sveitarstjórnarkosn- ingarnar í vor. Það eru fyrst og fremst Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn, sem hafa fylgt þess- ari vinnuaðferð, en Alþýðuflokkurinn og Alþýðubanda- lagið hafa einnig fylgt henni á nokkrum stöðum. Ákveð- ið mun af hálfu þeirra að beita henni ekki í Reykjavík, hvað, sem veldur. Skoðanakannanir þessar hafa farið fram með ýmsum hætti, sem ekki er óeðlilegt, þar sem hér er um vinnu- brögð að ræða, er ekki hefur verið beitt áður við skip- an framboðslista og ekki eru heldur fyrir hendi erlend fordæmi, nema í sambandi við kosningar í einmennings- kjördæmum. Hér er því verið að þreifa sig áfram með nýja starfsaðferð, sem á að gefa óbreyttum flokksmönn- um og kjósendum bætta aðstöðu til að hafa áhrif á mannaval flokkanna. Skoðanakönnunum þeim, sem fara fram á vegum Framsóknarflokksins að þessu sinni, er nú flestum lokið. Um seinustu helgi fór fram skoðanakönnun um skipan sex efstu sætanna á fromboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík, en að borgarstjórnarkosningunum þar mun mestri athygli beint. Þeir Einar Ágústsson og Kristján Benediktsson, sem verið hafa borgarfulltrúar flokksins undanfarin átta ár, hlutu langflest atkvæði, og hafa þannig hlotið maklega viðurkenningu fyrir störf sín í borgarstjórninni. Sigríður Thorlacius, sem var í þriðja sætinu í seinustu borgarstjórnarkosningum, gaf ekki kost á sér aftur, en í það sæti hlaut nú Guðmundur Þórarins- son verkfræðingur langflest atkvæði. Guðmundur er þrítugur að aldri, er þekktur úr íþróttahreyfingunni og skátahreyfingunni og hefur starfað sem verkfræðingur hjá Reykjavíkurborg undanfarin ár- Hann kann því góð skil á skipulags- og framkvæmdamálum borgarinnar. í fjórða sæti hlaut annar ungur maður, Alfreð Þorsteinsson íþróttafréttaritari, langflest atkvæði, en hann er manna kunnugastur íþróttamálum borgarinnar. í fimmta sætið valdist ung menntakona, Gerður Steinþórsdóttir, og í cjötta sætið þekktur iðnrekandi, Kristján Friðriksson. Það var áberandi, að þátttaka ungs fólks var hlutfalls- lega mun meiri en eldra fólksins í skoðanakönnuninni. Því fór þó fjarri, að fylgi þeirra Guðmundar, Alfreðs og Gerðar væri einskorðað við það. Eins og kunnugt er, er þessi skoðanakönnun ekki bind- andi fyrir uppstillingarnefnd fulltrúaráðsins, eða full- trúaráðið sjálft, heldur til leiðbeiningar af hálfu flokks- manna. Óhætt er að segja, að skoðanakönnunin hafi farið vel fram og auðveldað stórum starf uppstillingar- nefndarinnar og fulltrúaráðsins. Mikilsverð kjarabót Tvö stærstu félögin 1 Alþýðusambandi íslands, Dags- brún og Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, hafa skorað á Alþingi að samþykkja frv. Framsóknarmanna um að láta skattvísitöluna fylgja framfærsluvísitölunni. Það er bersýnilegt, að launþegasamtökin telja þetta mikilsverða kjarabót, og því ætti Alþingi að vera búið að samþykkja þetta frumvarp Framsóknarmanna áður en kaupgjaldssamningainir hefjast. Þ.Þ. JAMES RESTON: Stjórnlist Nixons sýnir hæfni hins æfða, klóka atvinnumanns En nægir það til að leysa hin stóru viðfangsefni? NIXON AÐFARIR ríkistjórnar Nix- ons forseta þessa dagana minrna dálítið á fótboltalið, sem leik- ur góðan vamarleik. Nixon vek ur ekki mikla hrifningu eða eftirvæntingiu, en honum tekst að trufia jafnvægi andstæðing- anna og er snjaill í því að hörfa skipulega þegar á þarf að hallda. Tvennit, sem nýlega hefir gerzt, má heita táknrænt fyrir þetta. Kennedy fjármálaráð- herra var sakaður um að hall- ast að samþykkt, sem hefði gef- ið fyrrverandi starfsmanni í Hvíta húsiuu milljón dollara gróða. Fonsetinn brá skjótt við og var búinn að koma sam- þykktinni fyrir kattarnef innan fáeinna klukkustunda. Forsetinn var nokkru 6einni til viðbragða, þegar hann var sakaður um að heyja leyniiega styrjöld i Laos. Von bráiðar lagði hann þó fram tvær yfir- lýsingar, þar sem hann gaf upp tölu hermannanna, sem þátt tækju í bardögum þarrna, og eins hverjar hernaðarathafnir þeirra væru og í hvaða tilgangi. ANDSTÆÐIN GARNIR eru ekki ávallt ánægðir með ráðstaf anir forsetans til þess að koma í veg fyrir rangar ákvarðanir eða verjast háska, — og voru það til dæmis ekkj í þeim tveimur tilvikum, sem getið var hér á undan. Þessar ráðstafan- Iir draga þá úr háiska og tjóni og koma í veg fyrir að mein- semdin — (eðia sannleikurinm ef einhver kýs beldiur að kom- ast þannig aið orði) — grafi um sig og breiðist út. Nærri liggur, að þessi við- brögð séu einíkennandi fjrir ríkiisstjórnina. Stöku sinnum nær hún boltamun og spyrinir langt fram (svo að aftur sé gripið til samlíkingarinnar við fótboltann), eins og tii dæmis ímyndaðri sókn hennar á vel- ferðarvígstöðvanum. Hitt er þó algengara, að ríkisstjórnin sé í vöim, h-örfi aftur til fortíðar- innar, hafj nánar gætur á sókn andstæðinganna til beggja handa og reyni að verjaist alvar- legum áfölilum. NIXON forseti er ekki sér- lega likur Lyndon Johnson, sem hætti til að beita þráa, þegar á hann var ráðizt og slakaði ekki til í neirau fyixi en hann varð að gefa allt upp á bátinn, — þar á meðal Hvíta húsið. Nixon forðast alvarlega á- rekstra, þegar hann er veikur fyrir og hörfar þá til hagfelld- ari vígstöðu, og fullyrðir um leið, að hann hafi sótt veruiega fram. Þetta gerðist til dæmis þegar fast var að honum lagt og hann hóf að flytja bandaríska her- menn frá Víetnam. Hann laekk- aði fjárframlög til varnarmála. dró úr áætlun um eldflauga- varnir, minnkaði sbuldbindingar Bandaríkjamanna erlendis, minnkaði . meirihluta frjáls- lymdra í hæstarétti — og læfck- aði röddina. SEGJA má að nart og skrik sóu höfuðeinkemnin á stefimu forsetans. Hann er snillingur í að hagnýta sér óánægju og í- haldshneigð samtímans og þok- ar þjóðinni til hægri, en tetour afar sjaldan stökk, s.em komið gætu þjóðinni á óvænt eða vakið hjá hemni ótta. Flestu er í hóf stiilt, — ofurlítið minni hernaðuir en áður, örlitið hæg- ari verðbólga, lítið eitt minni atvinna, dálítið minni samein- ing kynþáttanna, — og um allt er f jallaið af stakri eimlaagmi og látið sem um verulegar framfar ir væri að ræða. Þessar aðferðir bera vott um einstaka snilli í augium þeirra, sem eru hrifnir af list stjórn- málanna framar öllu öðru, — og þeir eru margir í höfuðborg Bandaríkjanna. Forsetinn sýnir slíka fimi atvinnumannisins í að velja sér réttan tíma og mátu- legar athafnir að hann hlýtur ekki aðeins lof fyrir göfuglyndi og samvinnuilipurð, heldur ligg- ur við að honum sé þökkuð hug myndin um frið í Víetnam, vin áttu við Rússa, hreint vatn, hreint loft o-g hreinleika í líferni heima fyrir. FARNIST Nixon forseta vel, verður hann síðar talinm einn af snjöllustu stjórnmálamönnum þessarrra aldar. Hann glimir við tvö mjög svo mikilvæg og vandmeðfarin viðfangsefni, eða annars vegar að draga úr tjóni Bandaríkjamanma i Víetnam og skuldbindingum þeirra hvar- vetna annars staðar, án þess að leiða þjóðina imm i nýtt eim- angrumartímabil, og hins vegar að berjast gegn verðbólgunmi heima fyrir, án þess að lenda í nýrri efnahagskreppu. Forsetinn þarf sannarlega á að halda allri þeirri hæfni og snilli, sem honum er og verður tiltæk, ef homum á að lánast að vailda þessum tvetmur erfiðu og vandmeðförnu viðfangsefn- um heima fyrir og erlendis, eimkum þegar þess er gætt, að meirihluti fulltrúadeildar þings ins er homum andstæður, Repu- blikafiokkurinn klofinn, til vinstri berjast herskáir stúd- entar og blöktoumenn, en ó- ánægðir umbótamenn til hægri. R TIL þessa hefir forsetamum tekizt með fótfimi að sneiða hjá háskalegustu gildrunum. Varn- ahleikni hans hefir varið hann falli og það er ekki svo lítið af- rek. Það er þó efcki þungamiðja málsins, að hann hefir dxegið lítið eitt úr hernaðinum í Víet- nam, hægt ofurlítið á verðbólg unni heima fyrir, birt sumar af staðreynduinum um stríðið í Laos og bjargað Pompidou for- seta á Waldorf. Hitt kann að reynast þyngra á metunum að hamn situr fastur bæ-ði í Víet- nam og Laos, á bæði við að stríða vaxandi verðbólgu og at- vinnuleysi og aukna erfiðleika vegna vaxandi afla og áhrifa Sovétmanna í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins. Öllum kemur saman um, að Nixon forseta farnist betur en þeir bjugigust við, en það sann- ar einungis, hverju umliðin ax- arsköft hafa til leiðar komið, — og bagfellt undanhald hrek- ur naumast nema aið vissu marki. Einhverntíma verður forsetinn að ná boltanum, ná undirtökumum í leiknum og valdi á sótonimii.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.