Tíminn - 21.03.1970, Blaðsíða 1
il—
{111
; „^i v frf
■Mf&M
<*
fwtmi
67. tbl. — Laugardagur 21. marz 1970. — 54. árg.
M INN
Uppreisn hjá
íslenzkum
skipstjóra
EJ-Reykjjavík, föstudag.
f gær var gerð uppreisn á
norsku flutningaskipi, sem ís-
lenzkur skipstjóri stjórnar. Gerðu
kínverskir sjómenn, sem á skip-
inu eru, árás á skipstjórann, Helga |
Óskarsson, og aðra yfirmenn, sem I
eru norskir, og hlaut einn yfir-
mannanna nokkurn áverka. Helga |
og öðrum yfirmönnum skipsins I
tókst þó að bæla uppreisnina nið |
ur, og var allt rólegt um borð í ,
dag.
Skipið. „Nego Anne“, var í flutn
ingum á Kyrrahafi og í þetta sinn
á leið frá Japan til Filippseyja.
Var Nego Anne komin á móts við
hinar þekktu Iwo Jima-eyjur, þeg
ar japanska landhelgisgæzlan
heyrðj veikt kall frá skipinu. Var
sendingin mjög óljós, en þó heyrðu
Japanirnir a'ð loftsikeytamaðurinn
néfndi orðið „uppreisn". Á skip-
inu var íslenzki skipstjórinn, 9
norsikir yfirmenn og 31 kínverskur
háseti.
Japanir sendu landhelgisbát þeg
ar í átt til skipsins og komst brátt
i loftskeytasamiband við það. Kom
þá í Ijós, að nokkrir Kínverjanna
höfðu ráðizt á Helga, 1. stýrimann
og loftskeytamanninn og gert
tilraun tiJ að ná skipinu á
sitt vald. Tókst yfirmönnum, umd
ir forystu Helga, að bæla upp-
reisnina niður, en ekki liggur
ljóst fyrir hversu margir Kínverj
anna stóðu að upprcisnartilraun-
inni .
Framhald á bls. 14
Loftleiðamálið:
Jákvæðum við
ræðum lokið
KJ—Reykjavík, föstudag.
Frá því á mánudag, hafa stað-
ið yfir í Washington viðræður
milli íslenzkra og bandarískra*
embættismanna um flugmál, og
fóru vúðræður þessar mjög vin-
samlega fraim, en þeim lauk í dag.
Á þessum fundum kornu fram
tillögur, sem lagðar verða fyrir
rfkisstjórnir landanna á næstunni,
og síðan hefur aftur verið boðað
ur fundur embættismannanna 27.
apríl n. k.
Hús Vátryggingafélagsins h.f., sem nú hefur verið lýsf gjaldþrota.
(Tímamynd — Gunnar).
Er gjaldþrot Vátrygginga-
félagsins h.f. 30 milljónir?
KJ—Reykjavík, föstudag. I skuldir þess nema tugum milljóna. I gjaldþrotum, sem orðið hafa hér
Er upphæðin 30 milljónir nefnd á landi, og þetta mun í fyrsta
Vátryggingafélagið h. f. hefur í þessu sambandi. Mun óhætt að sinn í sögunni, að tryggingafélag
verið lýst gjaldþrota, og munu | fujlyrða, að þetta sé eitt af stærstu I verður gjaldþrota á fslandi.
Kynna íslenzkt lamba-
kjöt í Svíþjóð í dag
Mikil auglýsingaherferð í dagblöðum ákveðin
EJ—Reykjavik, föstudag.
Á morgun, laugardag, fer
fram kynning á 12—14 réttum
úr íslenzku lambakjöti í Gauta
borg og er það upphaf að mik-
illi auglýsingaherferð í Sví-
þjóð, að sögn Skúla Ólafsson-
ar hjá Saimbandi ísl. samvinnu
félaga. Er það Sambandið og
Stéttarsaniband bænda, sem
standa að þessari kynningu.
Kynningin á lambakjötsrétt-
unum, og um leið á fjölmörg-
um íslenzkum ostaréttum, fer
fram í hádeginu á morgun í
Hotel Park Avenv í Gautahorg.
Þar verða mættir Agnar
Tryiggvason, framkvæmdastjóri,
og tveir brytar frá Hótel Sögu,
þeir Bragi Ingason og Eiríkur
Viiggósson.
Gestir á vörukynningu þess-
ari verða aimbassador íslands í
Svííþjóð, Haraldur Kröyer, ís-
lenzki konsúllinn í Gautaborg,
fréttamenn frá ölLuim helztu
dagblöðunuim í Svíþjóð, sjón-
varpi og útvarpi. Einnig verða
þarna ferðaskrifstofumenn og
fullitrúar veitingahúsa og gisti
húsa.
Gullfoss fór með 220 tonn
af íslenzku la'mhafcjöti til Gauta
bongar, en þar var fanmurinn
losaður á þriðjudaginn. Vænt-
anlega verða 300 tonn til við-
bótar send ti'l Svíþjóðar inn-
an skiaanms, en tollfrjálsi inn-
flutningurinn á lamibakjöti héð-
an á sænska markaðinn giidir
aðeins á tímabilinu frá 1. febrú
ar til júní.
Skúli sagði, að verð á lamiba
kjöti væri nú mjög hagstætt
í Svíþjóð og um 5—6% hærra
en óniðurgreitt verð hérlend-
is.
Eins og áður segir verður
kynningu þessari fylgt eftir
með auglýsingaherferð í sænsk
um blöðum, og sagði Skúili að
SÍS og Stéttarsambandið vænti
góðs árangurs af þessari starf-
semi. Innflutningskvótinn í
Svfþjóð er nú 500 tonn. Fari
magnið umfarm kvótann verð-
ur að greiða toll af kjötinu.
KAUPMÁTTUR ÖRORKU- OG ELULAUNA
HEFUR MINNKAÐ UM 16,2?. SlÐAN ’67
TK—Reykjavík, föstudag.
Síðan 1967 hefur taupmáttur
örorku- og elllauna' minnkað um
16,2% miðað við neyzluvöruvísi-
töluna. í dag var fellt á Alþingi,
að hækka örorku- og ellilaun um
15% til að vega upp á móti rýrn-
un kaupmáttar öryrkja og ellilíf-
eyrisþega, en samþykkt tillaga
Alþýðuflokksins um að hækka
þessar bætur aðcins um 5,2%.
FramsögU'maður meiri'hlutans,
Bragi Sigurjónsson. Alþfl., sagði
að þrátt fyrir þá staðreynd. að
kaupmáttur hefði rýrnað svo mjög
teldi meirihlutinn það hæfi'legt að
hæjcka þessi laun um 5,2%.
Minnihlutinn bar fram lillögu
um að örorkubæturnar yrðu
hækkaðar um 15%. Sú tillaga var
felld að viðhöfðu nafnrhalli með
19 atkvæðum ge-gn 18.
5,2% hækkun elli- og örorku-
lífeyris svarar til ( króna á dag.
Sigurviti Einarsson benti á í
umræðuhiim, að þegar reikna ætti
út rýrnun kaupmáttar ellilauna
væri eðlilegast að miða við hækk-
u_ matvæla, nauðsyn.iavörur, því
að tekjur þessa fólks nægðu vart
til þess a® menn hefðu til hnífs
og skeiðar hvað þa meira, og mat-
vörurnar hafa hækkað mun meira
en framfærsluvisitalan og kaup-
mátturinn því í rauninni rýrn-
að miklu meira en vísitalan gæfi
tii kynna.
Eins og Tírninn hefur skýrt
frá áður, þá hefur félagið áitt
í mifclum fjárhagserfiðleikum, og
fyrir skömmu var félagið svipt
leyfi tii að annast ábyrgðartrygg-
ingar bifreiða, og þá yfirtók nýtt
tryggingafélag nýlega hluta starf-
seminnar. Vintist þá aðeins tíma-
spursmál bvenær félagið jrrði gjald
þrota, eins og komið er nú á dag-
inn. Það mun hafa verið á föstu-
daginn í síðustu viku, að foráða-
menn félagsins lýstu félagið gjald-
' þrota hjá borgarfógetaembættinu
í Reykjavik. Að því er Unnsteinn
Beek borgarfógeti tjáði frétta-
manni Tímams í dag, þá munu úti-
standandi kröfur á félagið vera
miklar, en hve mifclar, er ekki
ná'kvæmiega vitað. Allavega er
um stórar upphæðir að ræða, og
má búast við að gjaldþrotamál
félagsins verði lengi til meðferð-
ar, þar sem fcröfur á trygginga-
félög eru oft lengi á leiðinni.
Bráðabirgða efnahagsyfirlit var
gert yifir stöðu félagsins í októ-
ber, en þá voru farnar að berast
kröfur í einnar miltjón fcróna
tryiggingafé Vátryggingafélagsins
sem var í vörzlu dómsmálaráðu-
neytisins.
í síðustu viku var húseign Vá-
tryggingafélagsins að Borgartúni
1, slegin hæstbjóðanda á nauð-
ungaruppboði, en 16 veð hvfldu á
húseigninni. Guðmundi Péturssyni
hrl. var slegin éignin fyrir. hönd
dánarbús Guðmundar Ásmundsson
ar hrl. á 3,6 milljónir, en dánar-
búið mun hafa verið með um
tveggja milljóna kröfu í husið.
í sambandi við nauðungaruppboð
þetta, vakti það nokkra athygli,
að ekkja nokkur var með um einn
ar millj. króna kröfu í húsið,
sem var líftry'ggingafé manns henn
ar, er hún hafði fengið greitt með
veðskuldabréfi, og með tryggingu
í 10. veðrétti hússins.
Lögum sam'kvæmt er skylt að
láta fara frarii sakadómsrannsókn
verð-' aðili gjaldþrota. Fæst þá
kannski svar við þeirri spurningu
hvað orðið hefur um sjóði Vátrygg
ingafélagsins, en þeir munu hafa
verið miklir á sínum tíma.