Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 24
Heimili, fjölskylda og tengd málefni eru efst á baugi.
Byrjaðu upp á nýtt í tilfinningalífi þegar nýtt tungl
verður í sporðdreka 2. nóvember. Endurnýjaðu tengsl
og leystu gömul vandamál og settu þér markmið í
einkalífinu. Breytingar eða nýjar áherslur í starfi eða
ábyrgðarhlutverki gæti hrundið þeim af stað. Ekki
búast við of miklu strax og gerðu þér grein fyrir því að
ný stefna kallar líka á nýjar áskoranir. Ljónið er í
tímabili breytinga og aukins þroska og maki eða nánir
samstarfsmenn eru hugsanlega óánægðir eða upp á
kant við einhvern. Vandræði í samskiptum við starfs-
fólk eða samstarfsmenn eru hugsanleg.
Ljón 23. júlí – 23. ágúst
Umsýsla með fjármuni verður í brennidepli á næst-
unni. Kannski veltir þú því fyrir þér hvað þú vilt raun-
verulega fá út úr því sem þú hefur verið að fást við og
ert tilbúinn að endurskoða tekjuleiðir þínar. Hrintu
nýjum hugmyndum í framkvæmd á nýju tungli í sporð-
dreka 2. nóvember, hrúturinn er þurfandi eða eirð-
arlaus, en þarf að fara að öllu með gát. Sættu þig við
hindranir eða endurskoðun á einu sviði, svo þú getir
beint kröftum þínum að öðru. Þú getur komið að því
aftur síðar. Farðu yfir það sem þú hefur áorkað áður
en þú tekst á við framtíðina. Spennandi möguleikar
láta á sér kræla, en ekkert er öruggt nema breytingar.
Hrútur 21. mars – 20. apríl
Samskipti og tjáskipti eru meyjunni efst í huga í nýj-
um mánuði. Hún verður á faraldsfæti og aflar sér
upplýsinga, menntun og ferðalög eru á döfinni. Búðu
þig undir aukin samskipti við nágranna og systkini.
Settu nýja áætlun eða hugmynd í framkvæmd þegar
nýtt tungl verður í sporðdreka 2. nóvember. Atburðir í
annarri viku mánaðarins hafa áhrif á heilsu eða rútínu
í vinnunni. Lagaðu þig að breyttum aðstæðum og
sýndu þolinmæði og þrautseigju andspænis hindrun-
um. Ekki reyna að beita afli. Daglegt líf gæti orðið
fyrir truflunum vegna frétta eða breyttra aðstæðna,
en heppni eða tækifæri gætu líka haft sitt að segja.
Meyja 23. ágúst – 23. september
Fjármunir og eignir eru efst á baugi hjá voginni, hentu
reiður á bókhaldinu. Byrjaðu upp á nýtt á nýju tungli í
sporðdreka 2. nóvember. Þú þarft hugsanlega að
sinna lagfæringum eða takast á við vandamál í upp-
siglingu. Farðu vel með. Erótísk ákefð liggur í loftinu,
beindu sjónum þínum ekki í ranga átt og ekki láta
freistast. Láttu ekki spurningar um lífsstíl afvegaleiða
þig í eyðslunni og veltu heldur fyrir þér hvern og hvað
þú vilt í lífinu. Kannski er ný leið framundan. Veltu
möguleikum í stöðunni fyrir þér, en ekki gera ráðstaf-
anir að sinni. Heimili og sambönd veita þér gleði í
annarri viku nóvembermánaðar.
Vog 23. september – 22. október
Einbeittu þér að heildarmyndinni og beindu sjónum
þínum að námi og ferðalögum. Framandi vinir eða
staðir kalla. Nú er kominn tími til þess að breyta rút-
ínunni. Nýtt tungl í sporðdreka 2. nóvember gæti
breytt sýn þinni á heiminn og það hvað er mikilvægt.
Gæfan brosir við þér í annarri viku mánaðarins en allt
eins líklegt að það sem þú reynir að gera verði fyrir
töfum. Eitthvað gott gæti komið út úr óvæntum breyt-
ingum, forðastu ágreining. Þú gætir átt erfitt með að
skilja hvað vakir fyrir öðrum og einhvers konar mis-
skilningur gæti gert vart við sig um miðjan mánuðinn.
Kannski þarftu að fara aftur yfir stöðuna.
Fiskar 20. febrúar – 20. mars
24 | 30.10.2005
Allt sem tengist samböndum og samvinnu er í brenni-
depli. Hnýttu lausa enda, einhver úr fortíðinni gæti
bankað upp á og krafist úrlausnar. Leggðu þig fram í
samstarfi á nýju tungli í sporðdreka 2. nóvember.
Innsæi í gamlan ágreining eða erfiðleika er lykillinn
að því að kveða niður drauga og ná samkomulagi.
Spenna eða ágreiningur vegna vinnu eða í samskipt-
um við yfirboðara gæti komið upp. Kannski þarftu að
draga þig í hlé, leggja á ráðin og gera áætlun. Einhver
streitist hugsanlega á móti þér svo þú þarft að fara
vandlega yfir og útskýra alla þætti. Víkkaðu sjón-
arhornið og ráðfærðu þig við utanaðkomandi.
Naut 20. apríl – 21. maí
Verkefni tengd vinnu, heilsu og daglegri rútínu eru
meginviðfangsefnið núna. Farðu rétt að og einföld-
ustu leiðina, en vertu á varðbergi gagnvart vanda-
málum sem gætu komið upp skyndilega. Þú þarft
hugsanlega að sýna mikinn sveigjanleika. Á nýju
tungli í sporðdreka 2. nóvember er tími kominn fyrir
nýja byrjun eða aukinn kraft. Athugaðu hvort þú getur
breytt vinnuaðferðum þínum eða hugsanlega skipt um
starf. Nýtt heilsuátak kemur þér að gagni og tengist
jafnvel hreyfingu eða breyttu mataræði. Þú þarft að
hressa þig við með nýjum viðfangsefnum eða með því
að takast á við eitthvað sem þú hefur frestað.
Tvíburi 21. maí – 20. júní
Til hamingju með afmælið dreki! Sól og Júpíter eru í
þínu merki og boða tímabil breytinga og útfærslu.
Nýjar aðstæður á heimili, í tilfinningalífi eða parsam-
bandi eru fyrirboði þeirra. Búast má við fjaðrafoki,
forðastu árekstra, leystu ágreining og láttu lítið á þér
kræla ef þannig ber undir. Vinátta gæti veitt þér
stuðninginn sem þú þarfnast, en nánir vinir eru hugs-
anlega í óstuði eða á kafi í eigin vandamálum. Fullt
tungl verður 16. nóvember og leiðir hugsanlega til
uppljóstrana af einhverju tagi. Haltu einbeitingunni
og stilltu þig um að taka af skarið eða reyna að leysa
vandamál. Hlustaðu á það sem sagt er við þig.
Sporðdreki 23. október – 21. nóvember
Farðu gætilega, bogmaður. Sól og Júpíter hafa þann-
ig áhrif í þínu merki núna að best fer á því að gaum-
gæfa sinn innri mann og bíða og sjá. Þú græðir all-
nokkuð á þögn og þolinmæði, sem yfirleitt eru ekki
einkenni eldsmerkjanna. Ígrundun og andlegur þroski
eru meginviðfangsefni yfirstandandi árs. Nýtt tungl
verður í sporðdreka 2. nóvember og boðar breytingar
á heilsu, vinnurútínu og daglegum venjum. Ótilgreind-
ar truflanir dreifa athygli þinni, reyndu að vinna þig í
gegnum hindranir. Vertu athugull og farðu að öllu
með gát í annarri viku mánaðarins. Smáatriði tengd
atvinnurekstri eða heilsufari þarfnast úrlausnar.
Bogmaður 22. nóvember – 21. desember
Starfsferill, vinnusamskipti og skyldur þarfnast at-
hugunar. Á nýju tungli 2. nóvember má búast við krefj-
andi samskiptum við kvenmann, annað hvort innan
fjölskyldunnar eða í gegnum vinnuna. Vatnsberinn
þarf hugsanlega að stemma stigu við ójafnvægi milli
heimilis og starfs, breytingar á skyldum eða aukin
ábyrgð reynir verulega á hann. Farðu vel með þig í
annarri viku mánaðarins, skapsmunir eða viðbrögð
þín eða ástvina þinna gætu reynst óáreiðanleg. Eitt-
hvað liggur í loftinu og erfitt að átta sig á hvað best er
að taka til bragðs. Blástu aðeins áður en þú reynir að
leysa eða vinna bug á vandamálum. Haltu þig til hlés.
Vatnsberi 21. janúar – 19. febrúar
Árstími Sporðdrekans er mitt haustið. Gróðri hnignar, lauf eru fallin
af trjám, frost sest í jörð og veður versnar. Sálræn áhrif eru þau að fólk
leitar inn á við. Hjá flestum er það tímabundið, en fyrir Sporðdrekann er þessi tími mótandi og setur mark sitt á
sálina. Hann er því heldur dulur og lifir töluvert í eigin heimi, segir Gunnlaugur Guðmundsson á stjornuspeki.is.
N ó v e m b e r
RÝNT Í STJÖRNURNAR
Ást og peningar eru í spilunum hjá krabbanum í byrj-
un nýs mánaðar. Taktu þér samt tíma til þess að kanna
hvað er raunverulega á ferðinni áður en þú skuldbind-
ur þig. Kláraðu líka verkefni sem þú hefur byrjað á
eða eru hálfunnin. Á nýju tungli 2. nóvember er tími
fyrir nýja drauma eða áætlun, en gættu þín á óþol-
inmæði. Ekki vera fljótfær eða flýta þér, ekki síst í
annarri viku nóvember. Nú er ekki rétti tíminn til þess
að kasta peningum í eitthvað í þeirri veiku von að það
muni batna. Gáðu hvað er að fyrst. Óvissa og rugl-
ingur gæti gert vart við sig um miðjan mánuð, láttu
hann líða hjá áður en þú metur stöðuna.
Krabbi 21. júní – 22. júlí
Vinir, vonir og þrár eru í brennidepli í lífi steingeit-
arinnar. Farðu út og blandaðu geði. Kynnstu nýju fólki
og einbeittu þér að draumunum. Ræddu þá við fólk
sem hugsar á svipaðan hátt og þú. Farðu yfir stöðuna
á nýju tungli í sporðdreka 2. nóvember, breytingar
gætu orðið tengdar leiðinni sem þú hefur valið eða
fólki sem þú hefur náð sambandi við. Bíddu eftir nýju
mynstri áður en þú ákveður hvað best sé að taka til
bragðs. Spenna er í loftinu varðandi peninga eða ást-
arsamband í annarri viku nóvember. Ekki taka áhættu
eða reiða þig of mikið á innsæið eða skyndihugdettur,
þær gætu reynst gallaðar eða villt þig af leið.
Steingeit 22. desember – 20. janúar