Morgunblaðið - 05.11.2005, Side 24
24 lifun
Einn sá iðnhönnuður sem hvað mestrar hylli nýtur þessi misserin er Argent-
ínumaðurinn Alfredo Häberli. Hann hefur víða komið við undanfarin ár og
hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun fyrir húsgögn, borðbúnað
og glervöru. Vinsældir hans fara sífellt vaxandi og allt sem hr. Häberli send-
ir frá sér virðist samstundis verða það heitasta heita.
Alfredo Häberli fæddist í Buenos Aires árið 1964 en fluttist aðeins 13 ára til
Sviss. Þar býr hann enn þann dag í dag og hönnunarstofa hans, Design
Development, er í Zürich. Of langt mál væri að útlista allt það sem hann
hefur hannað en aðeins verður tæpt á nokkrum fallegum hlutum; af nægu
er sannarlega að taka.
Essence fyrir Iittala Það er ekki ofsögum sagt að heimsbyggðin hafi
heillast af glerlínu Häberli fyrir finnska framleiðandann Iittala, hér er ein-
faldlega komin ein mest spennandi línan af glösum sem birst hefur um
langa hríð. Um er ræða heilan flokk af glösum, mismunandi að stærð eftir
því hvaða veigar þau eiga að hýsa, en öll hafa þau í grunninn sama ómót-
stæðilega formið sem er í áttina að því að vera tígullaga og með algerlega
flötum fæti eða grunni – sannarlega nýstárlegt en sömuleiðis um leið klass-
ískt. Rúsínan í hinum margfræga pysluenda er karaflan, jafn dæmalaust
glæsileg og glösin og með fölbleika litaslikju í neðri hlutanum.
Origo fyrir Iittala Ekki hefur spenningurinn verið minni með leirvörulínuna
Origo, sem er sömuleiðis hönnuð fyrir Iittala. Það er hægur vandi að klúðra
svo ríkulegri litasamsetningu sem hér má sjá, en Häberli prjónar saman
litarendur af slíkri smekkvísi að ómögulegt er að hrífast ekki með. Takmark
hönnuðarins með línunni? Að hanna praktískt hversdagsleirtau sem væri
allt annað en hversdagslegt. Óumdeilt er að það tókst með glans.
Segesta fyrir Alias Hvíta plaststólinn Segesta hannaði Häberli árið 2002
og sló hann undireins í gegn. Fyrir utan frumlegt útlitið er stóllinn þeim
kostum gæddur að hann má nota jafnt úti sem inni, bakið á honum er sér-
staklega sveigjanlegt og loks má hæglega stafla honum. Stóllinn hefur ver-
ið jafnvinsæll í fyrirlestrarsali sem og við borðstofuborð
Hypnos fyrir Classicon Häberli hafði löngum þótt svefnsófar upp til hópa
ópraktískar og heldur ljótar mublur. Taka pláss á við sófa, þó ekki sé verið
að nota þá til þess að sofa í og svo kemst jafnan aðeins einn fyrir þegar
háttatíminn kemur. Hypnos ræður á þessu sniðuga bót; þegar enginn er að
sofa í honum er hann bara stællegur hægindastóll sem má svo breyta í eins
manns rúm þegar húma tekur.
hönnuðurinn
alfredo häberl i
Origo-skálarnar frá Iittala eru einstaklega litríkar og
skemmtilegar ásýndar.
Rautt, hvítt og kampavín eiga sér óneitanlega öll glæsilegan framleiðslumáta í
Essence-glasalínunni frá Iittala.
Hypnos. Hægindastóllinn verður að
svefnbekk. Gulltryggð slökun.
Argentínski iðnhönnuðurinn Alfredo Häberli er sannarlega að gera góða
hluti þessa dagana og vinsældir hans raunar slíkar að flest það sem hann
sendir frá sér virðist samstundis slá í gegn.
Te
xt
i J
ó
n
A
g
na
r Ó
la
so
n.
Alfredo Häberli hefur hlotið margvíslegar
viðurkenningar fyrir hönnun sína.
Hinn vinsæli Segesta. Jafn tilvalinn í fundar-
herbergið, ráðstefnusalinn og borðstofuna.