Morgunblaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 46
46 lifun
fyrir 4
gnocchi:
400 g kartöflur
2 egg
2 dl parmesan, rifinn
2 tsk. salt og örlítill hvítur pipar
u.þ.b. 2 dl hveiti
sósa:
¼ dl truffluolía
½ dl olía
3 msk. sítrónusafi
steinselja og pipar
½ dl parmesan, rifinn
3 litlar trufflur
Afhýðið kartöflurnar og vigtið eftir að þær hafa verið af-
hýddar. Sjóðið kartöflurnar í léttsöltu vatni og látið renna af
þeim. Pressið þær með kartöflupressu, eða í gegnum sigti,
og blandið eggjum, parmesan, salti, pipar og hveiti út í þar
til deigið klessist ekki lengur. Rúllið í langar mjóar lengjur
sem eru u.þ.b. 1 cm á þykkt. Skerið rúlluna í 0,5 cm stóra
bita. Hitið léttsaltað vatn í stórum potti og setjið gnocchi-
bitana út í þegar vatnið sýður. Sjóðið þar til bitarnir fljóta
upp á yfirborðið og takið upp með spaða. Skiptið á fjóra
diska. Blandið saman truffluolíu, olíu og sítrónusafa og
dreypið yfir gnocchi-bitana ásamt nýrifnum osti og trufflum.
Stráið smásteinselju og pipar yfir og berið fram með góðu
brauði og ítölsku rauðvíni af bestu tegund. Einnig má nota
soðið tagliatelle-pasta í stað þess að búa til gnocchi.
matur
ferskt gnocchi með r jómatruff lum