Morgunblaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 38
Mjúkt og endingargott. Sterkt en sveigjanlegt. Lýsingar á borð við þessar eiga einkar vel við leðurhúðir og því ekki að undra að þær séu jafn vinsæll efniviður við híbýla- og húsgagnahönnun og raun ber vitni. Leðrið felur líka í sér vissan munað, þrátt fyrir að vera – í einhverri mynd a.m.k. – á færi flestra. Langvarandi vinsældir leðursófasettsins eru e.t.v. besti vitnisburðurinn. En leður er ekki bara leður og gæðin mismunandi eins og bitur reynsla hefur efalítið kennt mörgum. Sé hins vegar vel til vandað getur sígild hönnun og slitsterkt efni skilað af sér grip sem áratugum saman reyn- ist sannkölluð heimilisprýði. Slitnir fletir mublu sem hefur svo gott sem öðlast sess eins úr fjölskyldunni, eða a.m.k. kærkomins fjöl- skylduvinar, auka jafnvel enn á sjarma gripsins fyrir tilstilli atburðaríkr- ar sögunnar sem að baki liggur. Hægindastóll þeirra Ray og Charles Eames er gott dæmi um slíkt hús- gagn. Sjálfur sagði Charles Eames markmið sitt með hönnun stólsins, sem varð þekktur sem stóll No670, vera að ná fram „hlýju, móttæki- legu útliti vel notaðs hanska hafnaboltaleikmannsins“ – nokkurs konar umvefjandi skjóli frá áreiti hins daglega lífs. Það segir svo sitt um gæðalega hönnun þeirra hjóna að við gerð stóls þar sem jafn mikið er lagt upp úr þægindunum skuli útlitsþátturinn í engu vera látinn líða fyrir. Mjúk leðurbólstrun sem aðeins batnar með aldrinum er heldur ekkert til að kvarta yfir. Því fer þó fjarri að leður þurfi eingöngu að vera bundið við setfleti, enda hefur það á sl. árum verið notað í sívaxandi mæli við gerð hinna margbreytilegustu innanstokksmuna. Leðurklæddir borðfletir njóta þannig sívaxandi vinsælda og raunar líka vegg- og gólfflísar úr leðri. Leðurgólf kann að hljómar nokkuð mótsagnakennt í fyrstu, en að sögn þeirra sem til þekkja er leður góður gólfefniskostur sem hentar hinum leður Hægindastóll frá Rolf Benz sem láta má þreytuna líða úr sér í. Exó, Fákáfeni Afo Central og borðplatan úr leðri. Natuzzi, Askalind. í hól f og gólf Leður getur óneitanlega kallað fram sannkallaða munaðarstemningu innan veggja heimilisins. Efni- viðurinn er líka einkar sveigjanlegur og algjör óþarfi að binda hann eingöngu við sófasett. Stóllinn Tolouse frá Natuzzi, Askalind, er mjúkur ásýndar. Te xt i A nn a Si g rí ð ur E in ar sd ó tt ir. L jó sm yn d ir A rn al d ur H al ld ó rs so n. 38 lifun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.