Tíminn - 04.04.1970, Page 6
6
4.
Aðalfundur
SAMVINNUBANKA ÍSLANDS H.F.,
verður haldinn í Sambandshúsinu, Reykjavík,
laugardaginn 11. apríl 1970 og hefst kl. 14.
Dagskrá samkvæmt 18. gr. samþykktar fyrir bank-
ann.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands h-f.
TILKYNNING
frá lífeyrissjóði fyrir. Verkamannafélagið
Dagsbrún og Verkakvennafélagið Framsókn,
um greiðslur lífeyrissjóðsgjalda.
Þeim vinnuveitendum, sem hafa haft verkafólk í
vinnu, 16 ára og eldra, eftir 1. janúar 1970, og
greitt þeim laun samkvæmt samningum við ofan-
nefnd verkalýðsfélög, ber að greiða iðgjöld til líf-
eyrissjóðsins frá áramótum.
Þeir, sem hafa ekki enn gert skil á iðgjöldum,
eru beðnir að greiða þau fyrir 10. apríl 1970 og
framvegis fyrir 10. dag hvers mánaðar eftir á, í
sparisjóðsreikning sjóðsins nr. 129980 í Lands-
banka íslands eða nr. 35178 í Sparisjóð alþýðu.
Eyðublöð fyrir skilagrein með áprentuðum leið-
beiningum um greiðslu iðgjalda erut fáanleg á
skrifstofum félaganna og samtaka vinnuvéitenda.
Stjórn lífeyrissjóðsins.
AÐVENTKIRKJAN
Svein B. Johansen flytur erindi
sunnudaginn 5. apríl kl. 5 síð-
degis, sem nefnist:
„NAUÐSYN LEGT
TIL LÍFS"
Einsöngur: Anna Johansen.
Tvísöngur:
Marín S. Geirsdóttir og
Díana Magnúsdóttir.
Allir velkomnir.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
%Ji ÆÆÆZL
• JLi«jC ■*« »(■■ 'JL
BILALEIGA
HVPRFISGÖTU 103
V-WíSendiferðabííreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW 9 manna - Landrover 7 manna
TIMINN
LAUGARDAGUR 4. apríl 197«.
GRÓÐUR OG GARÐAR
DROTTNINGARBLÓM, VERKAMANNABLÓM
Nellikur hafa jafnan þótt
fögur blóm og tiginmannleg —
og hafa verið uppáhaldsskraut
við krýningar margra drottn-
inga, o.fl. hátíðleg tækifæri.
Stúdentar hafa öldum saman
gengið með nelliku eða rós á
jakkahorninu, nýútskrifaðir.
Rithöfundurinn Óskar Wilde
gekk jafnan með nelli’ku í
hnappagatinu. — Á dögum
frönsku stjórnbyltingarinn-
ar 1789—1793, báru franskir
aðalsmenn rauða nelliku á
barmi, sem merki óttaleysis,
er þeir stigu á höggstokkinn.
Skelfingarnelli'ku kölluðu þá
borgararnir hana. En öld síð-
ar báru verkamenn nelliku á
barmi, eða festu hana á húfu
sina 1. maí. Napóleon valdi
eldbjarmalit nellikkunnar á
band heið ursf y lki n garmerXds-
ins. Fáni kommúnista er líka
nellikurauður og sami litur
sést oft á austantjaldsfrímerkj
um. — Dökkrauða nellikan var
uppáhaldsblóm Staunings for-
sætisráðherra Dana. Þegar nýja
austurríska þingið kom sam-
an eftir kosningar haustið
1949, höfðu hægrimenn alpa-
fífil (Edelweiss) í merki sínu
en rauða nellikan var tákn
jafnaðarmanna. Sagt er að her
menn Garibalda hafi barizt
undir merki nellifcunnar árið
1849 í frelsisstríði Ítalíu. — Á
heimsstyrjaldarárunuin var tal
ið varasamt að bera rauða nell
i!ku í hnappagatinu — í Nor-
egi og Hollandi — því að
Þjóðverjar vissu vel að þjóð-
höfðingjarnir Hákon og Bern-
hárð höfðu mætur á henni. . .
Árið 1907 var nellikan fcjör-
in blóm mæðradagsins í Banda
ríkjunum. Saga nellikunnar er
löng. Árið 1565, (voru nokkur
blóm ræktuð til skrauts þá á
íslandi?) fengu hollenzkir
flóttamenn hæli í Norwich á
Englandi og fluttu með sér
blómafræ og lauka. Hollend-
ingar voru margir hverjir dug
legir iðnaðarmenn, einkum vef
arar, og dreifðust brátt til
ýmissa iðnaðarbæja. Og hvar
vetna tóku þeir að rækta blóm
í hinum nýju heimfcynnum sín
um því að blómarækt voru þeir
vanir í Hollandi. Þeir stofn-
uðu brátt blómafclúbba, héldu
sýningar og veittu verðlaun.
Oft voru 1. verðlaun, garð-
hrífa, spaði, eða 1—3 fcr. í pen
ingum. Verðgildi peninga var
þá annað, 30 kr. þóttu sæmi-
leg vikulaun. Á 18. öld voru
nellikur orðnar svo vinsælar
að jafnvel fátæklingar rækt-
uðu þær í smágörðum og í
jurtápottum innanhúss í Belg-
íu, Frakklandi, Englandi, og
sumum héruðum Þýzkalands.
Nellikan varð blóm almenn-
ings, en yfirstéttunum leizt
miður á þessa þróun málanna.
í garðyrkjukveri frá 1824 seg-
ir t.d.: Margar fín-ar blómateg-
undir, sem einu sinni prýddu
hina stóru garða Englands,
hafa nú lækkað um set og eru
orðnar handvcrksmanna'-
blóm. Verkamenn voru þá
famir að rækta mikið af blóm
um og jafnvel stunda úrval og
jurtakynbætur. Algengustu
verkamannablóm þeirra tíma
voru nellikur, maríulyklar (pri
múlur), anemónur, goðaliljur
og túlípanar. Oft vann nær
öll fjölskyldan úti og vinnu-
tíminn var 16 tímar á dag, en
samt ræktuðu verkamenn
skrúðgarða sína. — f mörgum
klúbbum var nellikan vinsæl-
asta blómið .Frá bænum Pais-
ley einum komu um 300 nel-
ikuafbrigði fraan á sjónarsvið-
ið, þ.á.m. eitt mjög sérkenni-
egt. Krónublöðin íkrítar-
hvít með dökkri rönd, en
miðja blómsins nærri svört.
Sum gömul afbrigðin hafa ver-
ið up-pgötvuð á ný í görðum
og þykja verðmæt. Dæmi voru
til þess að verkamenn fyrri
tíma gáfu hálf vikulaun, eða
eina geit, fyrir sjaldgæfa nell-
iku. Um vefarana á dögum
Viktoríu drottningar var sa-gt
að þeir lesi mikið, yrki ljóð,
temji dúfur og eyði peningum
í nýjar blómategundir, enda
viti allir að þeir stundi garð-
yrkju af lífi og sál. Já, sumir
tækju jafnvel rúmteppið ofan
af sér og breiddu yfir blómin
úti í garðinum á kaldri nóttu,
þótt þeir ættu þá á hættu að
fá kvef. Árið 1875 sögðu Eng-
lendingar að undanfarið hefði
engum gengið be-tur að rækta
blóm en vefurunum í Lanca-
skíri. Nú séu tignar stéttir farn
ar að rækta ,,verkamanna-
blóm“, en þær skorti enn
reynzlu á við vefarana. —
Fyrsti sljúpublómræktar-
klúbburínn var stofnaður á
Englandi árið 1841. í Belgíu
og víðar voru verkamenn á-
áhug-asamir um blómarækt
snemma á tímum og ræktuðu
t.a.m. mjög fagrar nellikur.
Þeir vökvuðu þær stundum
með vatninu, sem þeir höfðu
notað til að skola af sér kola-
rykið úr námunum — og töldu
blómin hafa gott af því. Til
eru líka konur sem vökva
gluggablómin með skeggrafcst-
ursvatni bænda sinna — og
telja áburðarígildi. Jæja, horn
spónum er líka stundum bl-and
að í pottamold. — De Gaulle,
fyrrum Fraklandsforseti, hef-
ur mikið dálæti á nellifcum.
En franskir nellikuræktunar-
menn segja söluna minni síð-
an Pomoidou tók við völdum.
Frú hans kvað nefnilega litl-
ar mætur hafa á nellikum.
Tízkan nær greinilega til blóm
anna. Hvernig skyldi blóma-
smekkur Nixons forsetafrú-
ar vera, og hver eru „verka-
mannablómin“ á íslandi?
Ingólfur Davíðsson.
ODYRUSTU GOLFTEPPIN MIÐAÐ VIÐ GÆÐI
★ ISLENZK ULL
★ NYLON EVLAN
★ ECING CORTELLE
Ný tækni skapar
AukinD braða aukln afköst,
meiri gæði og betra verð.
Afgreiðum með stuttum fyrirvara.
Komið við í Kjörgarði.
Hvergi meira úrvai af húsgagnaáklæðum.
illtíma
Sími 222U6 — 3 linui.