Tíminn - 04.06.1970, Side 3

Tíminn - 04.06.1970, Side 3
FIMMTUDAGUR 4. júní 1970 TIMINN 3 Hitaveiturörin komin til Húsavíkur í>etta eru rörin, sem eiga aS leiða heita vataið til Húsvíkinga, þegar þeir fá hitaveituna, sem nú er verið að hefja framkvæmdir við. Rörin eru samtals 19 km að lengd. Þau eru úr asbest og þver- mál þeirra er 25 sm. Ms. Mælifell kom með þennan álitlega stafla til Húsavíkur um hvítasunnuna frá Þýzkalandi. (Tímamynd SB). Ferðalög Farfugla \ Útsvör á Akureyri hækkuðu um 20 milljónir frá í fyrra i sumar Eins og undanfarin ár, efnir Farfu'gladeild Revkj avíkur til ferðalaga um hverja helgi sumars ins. Auk þess eru sumarleyfisferð ir dagana 19—26. júlí og 8.—19. ágúst. Fyrri ferðin er í Lakagíga, en sú síðari utn miðhálendið. Um verzlunarmannahelgina eru tvær ferðir, önnur í Þórsmörk oig hin um Fjallabaksveg nyrðri og í Eld- gjá. Fyrsta ferð sumarsins var 3. maí. Lagt er af stað í allar ferðir frá bifreiðastæðinu við Arnarból, og brottfarartími í dagsferðir er kl. 9.30 árd., en í lengri ferðir kl. 2 á laugardögum. Skrifstofa Farfugla er að Lauf- ásvegi 41 og síminn þar er 24950. SB—Reykjavík, miðvikudag. Skattskrá Abureyrar var lögð fram í morgun. Að þessu sinni greiða bæjarbúar alls 94.585.900 kr. í últsvar, sem er rúmum 20 milljónum kr. meira en í fyrra. ASstöðu'gjöld nema fcr. 21.966. 500,00, en voru í fyrra 17.546. 700,00. Lagt var á eftir gildandi útsvarsstiga og hvorki 'hækkað né laakkað, en í fyrra voru útsvör hækkuð um 3.5%. Sex einstaklingfir bera ,nú yfir 200 þúsund krónur í útsvar: Snorri Kristjánsson, bakari, 454.000. Baldur Ingimarsson, lyfjafræðing- ur, 267.100. Oddur C. Thorarensen, lyfsali, 259.200. Sigurður Ólasan, læknir, 219.800. Ásmundur Jóhannsso.n, lögfræð- ingur, 216.300. Baldur Jónsson, læknir, 200.600. Af fyrirtækjum eru einnig sex með yfir 200 þús. í úitsvar: Kaffibrennsla Akureyrar, 1.033.700. Kaupfélag Eyfirðinga, 530.400. Möl og Sandur, 417.700. Smjörlíkisgerðin, 238.400. Byggingavöruverzlun T.B., 223.000. Brjótur s.f., 209.000. Fimm einstaklingar bera yfir 100 þús í aðstöðugjald: Oddur C. Thorarensen, ’heildsali, 226.000. Valdimar Baldvinsson, heildsali, 123.000. Dánarbú Valtýs Þorsteinssonar, 120.100. Leó Sigurðsson, útgerðarmaður, 113.700. Snorri Kristjánsson, bakari, 103.200. . Þrjú fyrirtæki á Akureyri greiða yfir eina milljón í aðstöðu- gjald: Kaupfélag Eyfirðinga, 5.200.500,00. Samband ísl. samvinnufélaga, 2.587.300,00. Útgerðarfélag Akureyringa h.f., STJÖRNENDUR UNGLINGA- VINNU ÞINGA1REYKJAVÍK OÓ—Reykjavík, miðvikudag. f dag var haldinn fundur í Reykjavík að firumkvæði Sam- bands ísl. sveitarfélaga. með stjórn endum unglinigavininu í kaupstöð um og bauptúnum. 20 full'trúar sót'tu fundimin' og er-u þeir firá ýms uim stöðum á landinu. Flutt voru tvö framsöguerindi á fundinum. Hafliði Jónsison kvæmd'astjóri Skólagarða Reykja víkurborgaT og Ragnar Júlíusson, forstöðumaður Vinnuiskóla Reykja víkurbofrgar, kynmtu starfsemi þeirra stofinana sem þeir veita for stöðu. Síðan voru almennar um- ræður um starfsemi skólagarða á vegum sveitarfélaga. Á síðasta sumri var U'nglinga vinna í öllium kaupstöðum lands ims og í nokferum kiauptúnahrepp um og tóku um 4600 börn og u.ngl ingar á aldrinum 9—16 ár.a þátt í starfi við skólagarða. Á fundinum var rætt um helztu verkefini sem Trabant eyði- lagðist í árekstri SB—Reykjavík, miðvikudag. Allharður árekstur varð á mót- um Hafnarfjarðarvegar og Hlíðar- vegar í Kópavogi um hálf sex-leytið í kvöld. Trabantbifreið úr Kópa- vogi og stór vörubifreið úr Reykja vík, rakust þar saman, með þeim afleiðingum, að Trabantinn eyiði- la^?ist, en ökumaður hans slapp þó"lítt meiddur. Stjórnendur skólagarða og unglingavinnu á vegum sveitarfélaga skoða Garðyrkjustöðina f Laugardal. fTímamynd Gunnar) fyirir Hiiggja í sumar, og umræður I unglinga fyrir vinnu á vegum bæj urðu um samræminigu á launum I arféliaigan'nia. 1.376.400,00. VILJA STARFS- MIÐSTÖÐ OG VINNUMIÐLUN í MIDBÆJAR- SKÖLANUM EJ—Reykjavík, miðvikudag. Eins og fram hefur komið, hafa Hagsmunasamtök skólafólks hugs- að sér, að koma á fót félagslegri og menningarlegri starfsmiðstöð í Miðbæjarskólanum í sumar fyrir atvinnulaust skólafólk, samtímis því. sem skipulögð verður sameig- inleg vinnumiðlun fyrir skólafólk. Hafa samtökin sent menntamála- ráðuneytinu bréf, þar sem fari® er fram á afnot af skólanum í þessu skyni. Ráðuneytið óskaði eftir greina- gerð frá samtökunum um, hvemig 'þau hygðust haga þessári starf- semi, og í svari samtakanna segir að hugmyndir þeirra séu í stórum dráttum þessar: I. Leiðsögutilgáta okkar er sú, að frumskilyrði lífrænnar starfs- miðstöðvar atvinnulausra skóla- nemenda sé að frumkvæði og skap- andi hæfileikar einstaklinga og hópa fái að njóta sín á sem óþving- aðastan hátt innan starfsmiðstöðv- arinnar. Fólk þarf að geta skipt sér frjálslega niður í smáar ein- ingar til að rækta sérstök áhuga- mál sín og þarfir. Hins vegar þuria nemendur, að hafa aðstöðu til að geta sameinast um almennari verk- efni og áhugamál, og þess vegna leggjum við áherzlu á uppbygg- ingu einnar starismiðstöðvar í rúmgóðu og hentugu húsnæði. Mið bæjarskólann teljum við fullnægja þessum kröfum umfram aðra skóla, þar sem hann hefur stóran fundar- sal, loka'ð port og stendur á hent- ugum stað í borginni. n. Æðsta vald um skipulagn- ingu starfsmiðstöðvarinnar eiga að vera allsherjarfundir, sem haldnir séu daglega á föstum túnum. Að sjálfsögðu er okkur fullljóst, að fræðsluyfirvöld hafa síðasta orð- ið. Við óskum eftir afnotum af hús næði en ekki yfirráðarétti. En at- hugasemdir frsöðsluyfirvalda við skipulagninigu starfsmiðstöðvarinn ar ætti að leggja fram til umræðu á allsherjarfundum miðstöðvarinn- ar, áður en kemur til endanlcgrar ákvörðunar. III. Kostnaðarhliðina af rekstri starfsmiðstöðvarinnar óskum við eftir að bera sjálf. IV. Varðandi vinnumiðlun munu Hagsmunasamtökin sérstaklega reyna að nýta þá möguleika, sem skyndiþjónusta getur veitt atvinnu- lausu skólafólki. Vinnumiðlunar- skrifstofa okkar gæti útvegað fólki vinnu til stutts tíma, allt niður í nokkra klukkutíma, barnagæzlu o. s. frv. Meinum við hér að sjálf- sögðu ekki að vi'ð munum ekki miðla allri vinnu, heldur hitt að möguleikar skyndiþjónustu eru enn ónýttir í Reyfejavík og hér er skarð fyrir skildi í þjónustu við almenning og atvinnuvegina. Hagkvæmni þess að setja upp sameiginlega vinnumiðlun fyrir alla skólanemendur í Reykjavík þarf ekki að ræða. V. Við óskum eftir svari sem allra fyrst. A meðan verkföllin standa, er stór hluti skólanemenda ofurseldur stefnulausum slæpings- hætti og ömurlegum gerviþörfum, sem veitingahúsin og aðrir afþrey- ingarstaðir rækta upp hjá fólki,' Gegn þessu ástandi krefjumst ;ið valkostar pegar í stað.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.