Tíminn - 04.06.1970, Page 5

Tíminn - 04.06.1970, Page 5
WMMTUDAGUR 4. júní 1970 TIMINN MEÐ MORGUM KAFFINU Á kosningaferðalagi um Bandarikin hitti Nixon gamlan ekta Indíána og spurði hann að heiti. — Ég heiti Svarti örn og sonur minn heitir Þrumufugl- inn. — Á hann enga syni? — Jú, tvo. Þeir heita DC-7 og DC-8. Einu sinni var sýslumaður á Jótlandi, sem átti konu, sem alltaf þurfti að blanda sér í málefni hans. Hann var eitt sinn að koma á sættum milli tveggja aðila, þegar hún greip sífellt fram í, en þá þoldi sýslu maðurinn ekki meira, stóð upp i öllu sínu veldi og þrumaði: — í laganna nafni. Haltu kjafti, Matthildur! — Hvað gerið þið við drykkj- arvatnið hérna í búðunum? spurði eftirlitsmaðurinn í heim sókn. — Fyrst síum við það. — Stórfínt! ■ — Svo sjóðum við það. — Framúrskarandi! — Og til að vera alveg ör- uggir, þá drekkum við bara bjór! Nú já, rommbúðingur í dag. Hermennirnir voru sí og æ kvartandi yfir, að maturinn í herskálanum væri ekkj nógu góður, en það bar engan árang- ur. Einn daginn, þegar kap- teinn gekk framhjá um hádegis bilið, sá hann einn hermanninn koma þjótandi út, með allan herskarann á eftir sér, vopn- aðan hnífum og göfflum. —Stanz, þrumaði kapteinn- inn. — Hvað gengur eiginlega á? Þegar mennirnir voru búnir að ná sér nokkurn veginn, gat einn þeirra stuniö upp: — 67 fiainn rúsínu í sætsúpunni sinni og hann vildi ekki skipta henni á milli okkar. Siðan hefur maturinn í her- mannaskálanum verið snöggt um betri. — Eg er prófessor í sögu. — En gaman. Viltu ekki segja okkur eina? DENNI D/EMALAUSI Fyrirgefðu, að ég æpti svona, ég hélt að þú værir afturgauga. ;:!!! m Einu sinni var varla hægt að fletta vikubla'ði, án þess að sjá mynd af Bettínu. Fyrst fóru að birtast myndir af henni í tízbu- blöðum Parísarborgar, en síðan tóku slúðurdálkarnir og síðurn- ar við, því þá var hún fylgikona Aly Khans. Síðar, þegar Aly Khan var látinn, hvarf Betdna með öllu úr sviðsljósinu, hún dró sig al- gjörlega í h|é. En gamla starf- ið laðar að, nú upp á siðkastið er Bettina farin að láta taka af sér myndir aftur. Mikið mun hafa verið um að vera við Signubakka, er mynd- in er hér fylgir með, var tek- in. Öll hugsanl. ljósmyndatæki höfð til taks, því Bettína neit- aði að láta smella af nema einu sinni, Qg þá mynd átti banda- rískt tízkutímarit að fá. Hárgreiðslumeistarinn Alex- andre sá um greiðslu hennar, Cardin útvegaði peysu, Ungaro pils, St. Laurent kom með skó og bezti ljósmyndari sem hægt var að hafa uppi á flaug aust- ur yfir Atlap.tshafið. Bettína fékk svo fyrir snúð sinn 1000 dollara, sem hún svo nennti ekki að taka við. heldur lét gefa til líknarmála. Mandy Rice-Davies er nafn sem flestir kannast við. en Mandy er ein aðalpersóna Pro- fumo-hneykslisins í Bretlandi í byrjun sjöunda áratugsins. Nú heitir Mandy ekki lengur Riee- Davies að eftirnafni, heldur Shauli og hún býr í Tel Aviv í ísrael ásamt manni sínum, ísraelítanum Rafi Shauli. Mandy er ákaflega hamingju söm í ísrael, einkum nú eftir að hún ól manni sínum dóttur sem þau kalla Dönu. Þau Shauli-hjónin hafa otað sér vel áfram í skemmtiiðnaði ísrael. Þau reka saman diskótek sem kallað er „Mandy’s“, og mun sitaðurinn mjög vel sóttur. Þá ei'ga þau stóran hliut í svoköll- uðum Mandy-klúbb í Jerú- salem og segjast hafa mikinn hug að ná fótfstu í tízkuverzl- un og snyrtivörum. Mandy nýtur nútíðarinnar í fyllsta mæli, en hatar tilhugs- unina um fortíðina. Hún hefur lært að tala hebresku og bíður nú eftir a@ verða tekin inn i Gyðingdóminn. ■k Sú hæfiieiikarílka leikkona Geraldína Chaplinsdóttir held- ur sig mest á Spáni. Hún virð- ist hafa tekið miiklu ástfóstri við það land, en þar getur hún verið í næði fyrir ágengnum fréttamönnum og leiðinlegum leikaraveizlum, eða svo segir hún sjálf. Reyndar liggur Ger- aldina ekki í leti þar suður frá. Nýlega láúk töku riiyndar, sem hún lék í undir stjórn leik stjórans Carlo Saura. Myndin heitir „Hawaiians" og er hlut- verk Geraldinu þar sagt svipað því og hún lék í ,,Sívagó lækni“. Geraldína hefur pú leik ið í þrem myndum sem Carlo Saura hefur stjórnað, og eru þau að sögn orðin „mjög nánir vinir“. Og á meðon Geraldina þrosk- ar leikhæfileika sinn, dundar pabbi hennar gamli, Charles Chaplin heima hjá sér i Sviss og segir fátt, en ku mjög stolt- ur af stelpunni. James Bond er dottinn upp fyrir. Nei, hann var ekki drep- inn á hvíta tjaldinu, því mið- ur. George Lazenby, sá er lék hetjuna næstar á effir Sean Connery, stakk bara af, harð- neitaði að leika ófreskjuna, sem hann kallaði svo, aftur. Nú, þeir aðstandendur James Bond virðast eiga allt sitt und- ir því að lífinu sé með ein- hverju móti haldið í 007, og því var þegar í stað hafin leit að nýjum Bond. Það var sú unga, franska leikkona, Annie de Perez sem töfra'ði hann fram á sjónarsvið ið, kom einn daginn með hann og hélt fast um hönd hans. Maðurinn heitir Hans Meyer, og mun sá verða algjörlega nýr Bond-karakter að sögn, en Annie e-r omboðsmaður hans, jafnframt því sem sam- band þeirra er sagt einkar elskulegt, þess utan. En Annie umboðsmanni 007 á ekki að nægja að lifa af um- boðslaunum sínum, því þessi efnilegi umboðsmaður fékk „skipun“ um að vera með í næstu Bond mynd, sem tekin venður í haust og auðvitað var æpt: „Annie get your gun“ — og skjóttu líka! liii ir-.L; r;:-i . j:; . sSM í heilan mannsaldur hefur Charles Chaplin verið ókrýndur konungur kvikmyndanna. Mynd ir hans hafa bæðj vakið tár gleði og sorgir. Endalaust geta menn skemmt sér við a@ horfa á litla manninn sem sjaldnast er mjög heppinn í lífinu. Allir þekkja andlit Chaplins, en það virðist vera óbreytanlegt, jafn- vel ellin vinnur ekki nema tak- markað á því, enda hafa ljós- myndarar um víða veröld mik- inn áhuga á að ná af honum mynd. Einn þessara ljósmynd- ara er Snowdon lávarður, og það var einmitt hamn sem tók meðfylgjandi mynd af meistar- anum. Hinn konunglegi, brezki Ijósmyndari heimsótti Chaplin á heimili hans í Sviss og reyndi með myndavélinni að ná and- rúmsloftinu sem um Chaplin ríkir og svipbreytingum hans. Hann vildi reyna að festa á filmu gáfur meistarans og menntun, en þó fyrst og fremst hinn ódrepandi lífsþorsta þessa ódauðlega meistara kidkmynd- anna, sem nú stendur á átt- ræðu. Speki: Aðeins dauðir fiskar láta berast með straumnum. Speki: Fólk, sem ekker and- lit hefur, er jafnan hrætt við að missa þsð. Speki: Um þaulsetna stjórn- málamenn: Ef enginn vindur blæs, virðist jafnvel vindhan- inn fastmótaður persónuleikl.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.