Tíminn - 04.06.1970, Blaðsíða 11
ÍTMMTUDAGUR 4. júní 1970
TÍMINN
LANDFARI
Leyfum gömlu húsunum
að standa
„Við íslendimgar hrósutn
olkkur af því að vera menn-
ingarþjóð. En því miður berum
við þann titil eikki með mikilli
sæmd, meðam við tröðkum eins
og skynlausar skepnur á list-
og menningarsögulegum verð-
mætum okkar firá fyrri tímum.
Á ég þar við gðmlu húsin í
'hiöfuðborginni. Flestir kunna
vel að meta gömlu munina á
Þjóðminjasafninu og teldu það
óbætanlegan og ófyrirgefanleg
an glæp ef þeim væri tortámt.
En við leitum langt yfir
skammt. Gömlu húsin sem við
höfum fyrir augunum daglega
eiga sér mjög merkilega sögu
og eru að engu ómerkari ea
reizlurnar, askarnir og sverðin
á Þjóðminjasafninu. En hvers
vegna kunnum við að meta
gamla hluti á Þjóðminjasafni,
en elbki gömul hús í borginni?
Ég held að svarið við því sé,
að þegar hlutur er kominn á
safn, þá sé það yfirlýsing á því,
að hann sé einhvers virði og
þá fer hann að vekja hjá okkur
einihverjar þjóðlegar kenndir
og jafnvel tilfinningu fyrir
fegurð. En gömlu húsin hafa
orðið útundan. Lóðir í miðbæn-
um eru dýrar og menn hafa
talið hagfcvæmara að rífa
gömlu húsin og reisa glerhallir
tugi metra upp í loftið. Þannig
hafa menn misst virðinguna
fyrir þessum gömlu húsum. —
Nokkur hús hafa verið flutt
upp að Árbæ og munu flestir
bunna vel að meta þau. En það
þarf af varðveita miklu fleiri
hús og þau hafa lang mest
gildi, séu þau varðveitt á sín
um upprunalega stað og um-
hverfi.
Gtknlu húsin eiga annan
óvin. Við vanrœkjum sjón-
mennt ofckar. Við kunnum ekki
að meta einfaldleifca og hlut-
fallaskyn okkar er harla bág-
borið. Við kunnum einfaldlega
ekfci að sjá. Við göngum um
bæinn eins og blindir kettling-
ar og tökum í mesta lagi eftir
milljón kerta auglýsingaskilt-
um, blossandi og æpandi.
Margir eru formblindir líkt og
aðrir litblindir. Sumir hafa
áunnið sér alls fconar heitnsku
legar hömlur og fordóma, sem
meina þeim að njóta fegurðar.
Slíkir menn ættu ekki að fá
að ráða neinu um útlit borgar-
innar.
Við státum af handritum sem
við fáum bráðum heim og fyll-
umst vandlætingu á bláfátæk-
um forfeðrum okkar, sem not-
uðu þessa dýrgripi í skóbætur,
og hvílífc helgispjöll. Einhver
bjó til sjóstakk úr Njálul/nd-
riti og fór á skak. En hvað
munu afkomendur okkar hugsa
um okkur sem í allsnægtum
með allt okkar landrými dettur
í hug að eyðileggja einu heil-
legu húsaröðina sem til er I
Reykjavík frá síðusfci öld og
um leið eina þá sögufrægustu,
Bifreiðaeigendnr
Getum aftur tekið bifreið-
ar yðar til viðgerða með
stuttum fyrirvara.
Réttingar, ryðbætingar,
grindaviðgerðir, yfir-
byggingar og almennar
bflaviðgerðir.
Höfum sflsa.i flestir gerð-,
ir bifreiða.
Fljót og góð afgreiðsla. —
Vönduð vinna.
BlLASMIÐJAN KYNDILL
Súðavogi 34. Sími 32778.
tíl að hlamma þar niður einu
stjórnarráði.
Iiklega verður aldrei hreyft
við Menntaskólanum, íþöku og
stjórnarráðinu, sem að minni
vitund eru einhver fegurstu
hús í Reykjavík. En það er
engan veginn nóg að hús sé
fallegt, það verður að falla inn
í umhverfi sitt. Ef húsin milli
MenntaSkólans og Stjórnarráðs
ins væru rifin, þá stæðu Mennta
skólinn og Stjórnarráðið eftir
eins og framandi hlutir og
mynduðu enga heild í um-
hverfinu.
Ef við lítum á þessa húsa-
röð sjáum við hreinan stil og
einfaldan (að Gimli undan-
skildu, sem mætti að skaðlausu
hverfa). Klúður eða óþarfa
prjál eru hvergi sýnileg og
hlutföllin samsvara sér vel.
Tuminn í Gunnlaugssenshús-
inu er nokfcuð yngri, reistur
árið 1905. Það var Rögnvaldur
Ólafsson, einn færasti arkitekt.
sem við höfum átt, sem teikn-
aði hann. Það er greinilegt að
Rögnvaldur hafði hinn mikla
stærðarmismun á Menntaskólan
um og Gunnlaugssenshúsi í
huga þegar hann teiknaði turn
inn og reyndi að minnka þessa
spennu með því að hafa þak-
skeggið á turninum í sömu hæð
og þakskeggið á Menntaskólan-
um.
Ég ætla ekki að gera tilraun
til að rekja sögu þessara húsa,
en vil benda á bækur Jóns
Helgasonar biskups, Klemenzar
Jónssonar og Áma Óla um sögu
Reykjavíkur.
Þessi hús eru búin að þjóna
Reykvíkingami um langan tíma
og geyma margar sögur. Það
þarf að lagfæra þau og hlúa
að þeim, því í núverandi
ástandi njóta þau sín engan
veginn. Þau eiga fullan rétt
á að fá " áð standá á sinum
virðulega stað í Ingólfsbrekku
hinni fornu og okfcur ber að
sína þeim virðingu og sóma,
ekki hvað sízt á sjálfri atómöld.
Fyrir hönd ungra áhuga-
manna um verndun gamalla
húsa.
Sigurður Örlygsson.“
FERMINGAUR
Veljið yður í hag • Úrsmíði er okkar fag
OMEGA
!» • • ó* <
Nivada
©lEgBflfÉíll
tllppnn
PIERPOÍIT
Magnús E. Baldvinsson
Laugaveg! 12 — Slmi 22804
s
st=
SE
En ef bófarnir halda að ég sé þú, munu
þeir skjóta . . . varpaðu gervinu áður
en þeir byrja að skjóta!
Heldurðu að Harte geri það sem þú segir
honum?
Við eltum hann til að komast að því.
bráðlega ... Arden, hver andskotinn .
Náið þessum grímumanni!
Þegar steinmennið fellur, heggur
Dreki hann aftur — hann skellur á
jörðina eins og fallandi tré! Að lokum
hefur Dreki komið sterkasta og óvenju-
legasta andstæðingi sínum á kné!
Hreyfðu þig ekki, eða þú ert dauðans
matur!
11
HUÓÐVARP
Fimmtudagur 4. júni.
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnii Tónleikar.
7.30 Fréttir Tóaleikar.
7.55 8æn 8.00 Morgunleik-
fimi Tónleikar 8.30 Fréttir
og veðurfregnir. 9.00 Frétta
ágrip og útdráttur úr for-
us+ greinum dagblaðanna.
9.15 Morgunstund barnanna:
Sæmundur G. Jóhannesson
les „Söguna af honum,
„Gísla (7) 9.30 Tilkynning >
ingar Tónleikar. 10.00 Frétt1
ir Tónleikar 10.10 Veður-
fregnir 10.25 Sjávarútvegs- >
mál: Nýr útvarpsþáttur í
umsjá Ingólfs Stefánssonar.1
Tónleikar 11.00 Fréttir.
Tónleikar
13.00 Á frívaktinni.
Eydís Eyþórsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.40 Við sem 'eima sitjum
Svava Jakobsdóttir talar um .
Benjamír, Franklín og vin-'
konur hans ! París.
15.00 Mfðdegisiítvarp. ,
Fréttir Tilkynningar.
Sigild tónlist:
16.15 Veðurfregnir Létt lög. ,
(17 00 Fréttir).
18.00 Fréttir á ensku.
Tónleikar Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
Dagskrá Inröidsins.
19.00 Fréttir Tilkvnningar.
19.30 Lióð eftir Pétur Sumarliða*
son.
Erlingur Gíslason leikari
les.
t9.40Einsöngur í útvarpssal:
Guðrún L Símonar syngur
við 'indirleik Guðrúnar
Kristinsdóttur á pfanó.
20.00 Leikrit .Skemmtisigling",
gamanleikur eftir Ansteu
Allen.
Þýðandi Stefán Jónsson.
21.35 Vinsæl fiðlutónlist.
Miehaei Rabin leikur með
Hollywood Bowi hljóm-
sveitinni.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan „Tine“ eftir
Herman Bang.
Jóhanna Kristjónsdóttir
íslenzkaði Helga Kristfn
Hjörvar les (2).
22.35 Handboltapistill.
22.50 Létt músik á síðkvöldi.
Flytjendur: Sandor Kóaya,
Útvarpshljómsveitin í
Berlin. Rita Streich og Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna.
23.30 Fréttir i stuttu máli
Dagskrárlok.
*
ÍÞRÖTTATÆKl
VélaverkstæSi
BERNM^ROS HANNiSS., !
Suðurlandsbraut 12.
Sfmi 35810.