Tíminn - 30.06.1970, Page 2
TIMtNN
tY' \\
WEtroJCÐAÍFUR 30. Jfiní 1970.
2
Fangarnir sem struku úr Hegningarhúsinu s. I. laugardag skriðu út um gluggann hægra megin á mynd-
inni. Klefinn innan við þennan glugga var mannlaus og læstur og urðu fangarnir að byrja að brjót-
ast inn í hann áður en þeir brutust síðan út úr honum aftur. Einn af járnrimlunum fyrir glugganum er
sagaður sundur. (Tímamynd GE)
FJÓRIR FANGAR STRUKU
OG NÁÐUST ALLIR AFTUR
OÓ—Reykjavik. mánudag.
Fjórir fangar í Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg struku út s. L
laugardag. Fóru þeir ekki allir út
í einu, heldur tveir saman fyrst
og síðan aðrir tveir. Komust fang-
arnir út með iþeim hætti að brjót
ast inn í fangaklefa sem enginn
var í, en er sá klefi efcki mann-
heldur og skriðu þeir út á miMi
rimla, en einn þeirra var sagaður
sundur og þvi auðvelt að komast
út um gluggann. Glugginn sem
þeir fóru út nm, snýr út að fang
elsisgarði og var engum vandkvæð
um bundið að komast yfir vegg-
inn. Allir stroikufangarnir náðust
og sitja nú inni aftur.
Ekki héldu fangarnir hópinn
eftir að þeir voru komnir út. En
einn var á gangi í Austurstræti síð
ari hluta dags á laugardag og sá
fangavörður þar til hans og bað
manninn að koma með sér í fang-
elsið og gerði hann það mótþróa-
laust.
Tveir fanganna gerðu tilraun til
að stela bíl inni á Suðurlands-
braut. Tókst það svo til að lög-
reglan greip annan þeirra en hin-
ram fókst að stela bílnum og aka
út. Var þetta um bvöldið. Sá sesn
stal bílnum ók út úr bænum og
handtók lögreglan á SeJfossi hann
um þrjúleytið um nóttina. Þá var
sá akandi á austurleið á móts við
Hveragerði. Hann veitti enga mót
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Brotizt var inn í verzlun Carls
Bergmann Skólavörðustig 5 um
miðjan dag í gær. Fólk sem býr
í húsinu hafði farið að heiman.
Fyrst bafa innbrotsþjófamir, sem
liklega hafa verið tveir saman,
reynt áð brjóta upp útidyraar að
úra- og skartgripaverzluninni, en
það tókst ekki. Þá var farið insn
um aðrar dyr rétt við verzlimina
og komizt bakdyramegin inn í
hana með því að brjóta upp tvær
hurðir. Var stolið urum og hring
spymu þegar hann var stöðvaður,
og ók lögreglan honum til Reykja
víkur um nóttina. Og enn einh
þeirra sem struku var sofandi
heima í rúmi á heimili sínu þeg-
ar lögreglan leitaði hans þar á
laugardagskvöld.
um að verðmæti á annað hundrað
þúsund krónur. Hafa þjófarnir
ekki enn náðst.
í gær kærði kona, sem býr í
Vesturbænum, að stolið hefði ver
ið 6 þús. kr. sem geymdar voru
í klæðaskáp í svefnhenbergi henn-
ar. Hafði hún verið heima alla
helgima, nema á laugardaginm brá
hún sér frá í nokkrar mínútur,
Og skildi fbúðina eftir ólæsta, og
em allar líkur á að þá hafi pen-
ingarnir horfið.
Mikíu af úxum og
skartgripum stolið
Laxá í S-Þing með 200 laxa
Nú munu yfir 200 laxar vera
komnir úr Laxá í S-Þingeyjar-
sýslu. Hafa þeir ein-kum veiðzt
neðan við fossana í Laxamýra-
landi. Mikil ganga er nú í ána
og búast veiðimenn þar við
góðri veiði úr henni víðar næstu
daga.
Góð veiði við Laxá í Kjós
Á sunnudaginn veiddust 7 lax-
ar úr Laxá í Kjós, og fyrir há-
degi í dag voru aðrir 7 komnir
á land úr henni. Munu nú vera
liðlega 100 laxar vera komnir úr
ánni og tjáði Páll Jónsson annar
leigutaki árinnar, okkur í dag að
þar muni veiðin vera svipuð og
á sama tíma í fyrra.
f frétt sem birtist í blaðinu á
laugardaginn, var sagt að frábær
veiði væri við ána. Þetta er nokk
uð orðum aukið, og í gær
hringdi til okkar maður er skropp
ið hafði til veiði við ána, og kvaðst
mjög óánægður með veiðiárangur
bar, og þá eðlilega fréttina.
Elliðaárnar, Korpa og Blanda
Á sunnudagskvöld voru 56 laxar
komnir úr Elliðaánum, og var
dauft yfir veiðskap þar á sunnu-
daginn. Þá veiddust 3 laxar fyrir
hádegi og aðeins einn eftir hádeg
ið. Vonandi færist meira líf í
ána eftir mánaðamótin.
Á sunnudagskvöld voru 50 lax
ar kornnir úr Korpu, sem telja
má allsæmilegt. Hins vegar hef-
ur veiðin við Blöndu gengið frem
ur illa það sem af er. Að því er
við bezt vitum, munu aðeins um 8
laxar hafa verið komnir úr ánni,
á sunnudag&kvöld. — EB.
NTB-Stokkhólmi. — Áfcveð-
ið hefur verið að sænskt
sendiráð verði opnað í Hanoi,
höfuðborg Norður-Vietnam.
NTB-Havana. — 123 ung-
menni frá Danmörfcu, Noregi,
Svfþjóð og Finnlandi, fcotnu
til Kúbu í gær til að hjálpa
Kastnó við sykuruppskeruna.
Unga fólfcið mun dveljast á
Kúbu í nokfcrar vifcur.
NTB-Moskvu. — Frétta-
manni bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar CBS hefur verið
vísað úr landi í Sovétríkjun-
um. Hann er sagður hafa gert
hluti, sem hann mátti ekki.
Talið er að þetta sé svar við
því, að fréttamanni Pravda var
vísað frá USA fyrir skömmu,
en það var aftur vegna þess,
að fréttamanni Time var neit
að um framiengda vegabréfs-
áritun.
NTB-Londom. — Harold
Wilson var í gær endurkjörinn
leiðtogi Verfcamannaflofcksins.
Enginn annar var í framboði.
» 1J. /s
NTB-Prag. — Háttsettur
maður í tékkneska kommúnista
flokknum sagði í gær í blaða
grein, að Dubcek hefði, ank
allra annarra skyssa sinna,
ekki rækt skyldur sínar sem
amtoassador í Tyrfclandi al-
mennilega.
NTB-Istambnl. — Anna Dufo-
cek, eiginfcona Dubceks, fyrr-
verandi flokksleiðtoga, kom til
Istambul í fyrrakvöld, eftir að
hafa ekið frá Ankara. Hún fór
aftur frá borginni í bifreið
tékknes-ka sendiráðsins þar, í
gær, og hvert ferðinni var
heitið, veit enginn.
NTB-Hong Kong. — Nú eru
síðustu bandarísku hermennirn
ir farnir frá Kambodíu, en
Nixon forseti hafði iofað, að
þeir færu fyrir mánaðamót
Lon Nol, forsætisróðherra,
sagði, að hann hefði gjaman
viljað hafa bandaríska herlið
ið lengur hjá sér.
NTB-London. — Eiginkoaa
leiðtoga Frjálslynda flokksins
í Englandi, Jermy Thorpe, beið
bana í gær í umferðaslysi. —
Hún var 32 ára og þau hjón
höfðu verið gift í 2 ár og
áttu 14 mánaða dóttur.
NTB-París. — Læknirinn
Jonas Salk, sá sem fann upp
mænuveikibóluefnið, gekk í
gær í hjónabgad með frönsfcu
listakonunni Francoise Gilot,
sem áður fyrr var ástkona
Picassos.
NTB-Uppsölum. — Jarð-
skjálftamælar í Uppsölum
sýndu í gær miMa neðanjarðar
sprengingu, sem talið er víst
að sé kjarnorkusprenging í
Sovétrikjunum,
NTB-Princeton. — Samifcv.
könnun, sem farið hefur fram,
telja stjórnmálamenn, vísinda-
'menn, lögfræðingar, viðskipta-
fræðingar, blaðamenn og há-
sfcólakennarar um aMan heim
víst, að Sviss sé það land í
heiminum, sem bezt er stjóm-
að. Næst í röðinni eru Bret-
land, Svfþjóð, V-Þýzkaland og
Kanada.
Kjördæmisþing Framsóknarmanna
í Vestfjarðakjördæmi
Kjördæmisþimg Framsóknar-
manna í Vestfjarðakjördæmi verð
ur haldið . fsafirði laug rd g og
sunnudag 4. og 5. júlí n. k.
Föstudaginn 3. júlj kemur. jafn
Þakkarávarp
í veikindum mínum s. 1. vetur
réttu margir mér hjálparhönd,
en þá fann ég vel. að sá er vinur,
sem 1 raun reynist. Ég fann hlý-
hug svo margra, bæði einstakl-
inga og allra þeirra. sem vinna á
þeim sjúkrahúsum, er ég dvaldist
á. Fyrir þetta vil ég þakka af
aibug.
SérstaHega vil ég þakka þeim
konum, sem gengust fyrir fjár-
söfnun handa mér, og færðu mér
myndarlega fjárhæð, og víst er,
að það létti mjög þær erfiðu byrð
ar, sem á voru lagðar vegna sjúk
dómslegu minnar og utanfar-
ar í því sambandi.
„Góðar eru gjafir þínar, en
betri vinátta þín og sona þinna“,
er haft eftir mætuim manni. Góð-
ur var hinn fjárhagslegi styrk-
ur, en þó vermdi það hjartað
mest að finna hlýhug og sam-
úð svo margra. Ég held, að ís-
lendingar hafj hjartað á réttum
stað, ef meðbróuir er í þörf.
Miskunnsami^ samverjinn á marga
sína líka á fslandi í dag.
Innilegar þakkir til allra, sem
létt hafa mér byrðörnar í veik-
indum mínum.
Anna Sigmundsdóttir,
frá Hofsósi.
framt saman á ísafirði uppstilling
arnefnd, sú, sem ijörin hefur ver
ið til þess að ganga frá fram
boði á vegum flokksins, við næstu
alþingiskosningar. Eins og kunn-
ugt er fór ‘v.an próflciör á Vest
fjörðum á s. L hausti.
Sunnudagsfcvöldið þann 5. júlí
kL 9 verður almennur fundur í
Alþýðuhúsir.u á fsafirði, þar sem
Ólafur Jóhannesson formaður
Fraimsóknarflokksins og fleiri tala.
Bjarni J. Jó-
hannsson látinn
Bjarni J. Jóhannsson, útsölu-
stjóri á Siglufirði varð bráðkvadd
ur í gærkvöldi. Bjarni fæddist
árið 1910 á Lónseyri í Auðkálu-
hreppi í Vestur-ísafjarðarsýslu.
Foreldrar hans voru Jóhann Jóns
son, skipstjóri og bóndi, og Bjarn
ey J. Friðriksdóttir.
Bjarni J. Jóhannsson var yfir-
lögregluþjónn á Siglufirði 1934—
1947. Síðán stundaði hann verzl-
unarstörf til ársins 1955 er hann
varð útsölustjóri Áfengis- og
tóbaksverzlunarinnar á Siglufirði.
Hann sat í bæjarstjórn Siglufiarð
ar, og var einn af helztu forustu-
mönnum Framsóknarflokksins i
mörg ár og í stjórn Síldarverfc-
smiðju áiglufjarðar. Hann varð
heiðursfélagi Starfsmannafélags
Sigluf jarðar 1956. Eftirlifandi kona
kona Bjarna er Guðlaug Þorgils-
dóttir.
I
I
i
|
l
)
j
)