Tíminn - 30.06.1970, Síða 6

Tíminn - 30.06.1970, Síða 6
8 TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 30. júní 1970. Klaus Rlchter. Maðurinn á bak við forhengið - sem málaði mynd af Hitier og afhjúpaði í því hans innri mann í lok ágústmánaðar 1041 sátu Adolf Hitler og ítalski fastistaleiktoginn, Benito Mu&solini, í garðinum við aðal- aðsetursstað hins fyrnefnda úti á landi, Þeir ræddust við í makindum, en andlát Brunós, sonar Mussolinis skömmu áður setti nokkurn dapurleikablæ á samræðurnar. En skyndilega var Hitler ekki rólegar lengur. Einhver viðstaddra hafði nefnt orðið „Júði“, Gyðingur, og það nægði til að hann fékk æðiskast. Hann froðufelldi og greinilega mátti lesa viðbjóð og ofsa úr andlitsdráttum hans. Andlit Hitlers eins og það var á þessari stund hefur varð veitzt handa síðari kynslóðum. Á bak við forhengi leyndist listmálari frá Berlín, Klaus Richter að nafni. „í miklu skyndí", eins og hann sagði síðar, rissaði hann á pappír andlit „foringjans“, að honum óvitandi. Hitler hafði aldrei fyrr né síðar leyft að láta mála af sér mynd. í stað þess að sitja fyrir skipaði hann Iistamönnum að gera myndir af sér eftir ljós- myndum, sem sérlegur ljós- myndari hans, Hoffmann að nafni, tók. Þessi málverlk urðu saankallaðar glansmyndir af ,4oringjanum“. En( listaverk Klaus Richters var hins vegar mynd „vitfirrts djöfuls, sem kemur um stund fram úr myrkrinu inn í ljósið", eins og listaverkasali í Bad Godes- berg hefur komizt að orði. Aðsetursstaðar Hitlers var vandlega gætt, og Richter hafði fengið að koma þangað til að gera málverk af Her- manni Göring, ríkismarskálki, og átti það að prýða einn vegg inn í aýjum skemmtistað fyrir loftherinn. Göring sat fyrir hjá Richter klæddur baðslopp og með vindil. Venjulega kastaði Göring listmálurom á dyr eftir 10 mínútur eða svo, en Richter fékk hins vegar að halda áfram í tvo klukkutíma. Hann kunni lagið á því að segja Göring skrítlur af stjórnmála- mönnum. Og eitt sinn er Göring var verulega skemmt, bað Richter um leyfi til að fá einnig að mála Hitler. Göring vissi um andúð Hitlers á því að sitja fyrir, en vildi gjarnan verða við bón listamannsins. Þvi fékk hann þá hugmynd að leyfa Richter að felast bak við forhengið svo hann gæti í leyn um gera skissur af „foringjan- um“. Ridhter lauk síðan við olíu- málverk af þeim Hitler og Gör ing í húsi sínu nálsegt Berlín, en það .stóð nálægt stöðuvatni og var þakið sefí. Richter hafði lært málaralist hjá Lovis Corinth í Munchen. Nú er málverkið af Hitler til sýnis almenningi í Berlín. Það er 40x50 cm. að stærð. Eitt Mixnohen-blaðanna hefur kallað það „dýrmætasta, en einnig skelfilegasta sögulega málverkið, sem Þjóðverjar eiga“. Það hangir uppi í húsi við Liitzov-torg, sem nú er not- að ti'l sýningahalds, en þar bjó Riehter frá stríðslokum, þar til hann lézt í janúar 1948, 60 ára að aldri. Mynd þessa telja listsérfræð- ingar nær tveggja milljón kr. virði (ísl.) vegna sérstöðu sinn ar, þótt málverk Richters séu jdirleitt í miklu lægra verði. Á milli 1920 og 1930 málaði Richter Stresemann utanríkis- ráðherra Þýzkalands, á bana- beði og gerði einnig málverk af Löbe þingforseta. Málverkið af Hitler er að miklu leyti í grænbrúnum lit, og er talið sýna vel hans innri mann. Það hefur varðv^itzt yel, þótt Klaus Richter feldi það uppi á háa- lofti til striðsloka vegna hræðslu við Gestapo. Til þess að forðast óþægindi ef ti] húsrannsóknar kæmi, hafði málarinn skrifað þessi orð aftan á málverkið: „Mynd af verkamanni að nafni J P Bemberg, sem er mjög líkur Adolf Hitler“. Áður en hann setti síðasta dökka olíulitinn á myndina, hafði hann hins vegar skrifað framan á hana: „Adolf Hitler 1941“ — og sést nafnið vei í birtu frá kvarz- lampa. Málverkin af Hitler og Gör- ing eru eign ekkja listamanns- ins og hafa henni boðizt millj- ónir fyrir hið fyrrnefnda, að sögn dagblaðanna. í raun og veru hafa henni þó aðeins boð- izt tæpar 200.000 ísl. kr. frá þýzkum áhugamönnum, og til annarra landa vill ekkjan, Hilde Richter-Laskowy ekki selja það. Listráðgjafi Berlínarborgar Friedrich Lambart, sem var vinur Richters hefur hvatt ut- anríkisráðherra Þjóðverja, Walter Seheel, til að kaupa myndina. Scheel spurði hvað ætti að gera við hana. Lambart hefur látið í ljós þá skoðun að málverkið af Hitler ætti að hanga í Þinghúsinu I Berlín, „þar sem brjálæði nazismanns byrjaði — til þess að minna á fortíðina og vera áminning fyrir framtíðina. Það hlyti að fylla hvaða þingmann sem væri skelfingu". Eftir 1945 eyðilögðu Rússar öll málverk af Hitler, sem þeir komu höndum yfir, nema verk Richters. f húsrannsókn hjá honum litu þeir aðeins á mynd- ina ,en létu hana sdðan vera er þeir sáu hinn skelfilega sann leika sem í henni þýr. MálverkiS, sem Richter málaði af Hitler 1941. — „Vltfirrhjr dlfifutt*. Allt í þessu lífi hefur sína jöfnu framvindu. Jafnvel at- burðir eins og Listahátfð, sem óralengi hefur verið tilhlökk- unarefni, rennur sitt skdið og er senn að baki. Nú hyllir und ir síðustu daga hátíðarinnar, og eftir situr áheyrandinn með endurminningar sem sumar hverjar verða óaftnáanlegar, en aðrar dofna og skolast burt. — Sl.l. laugardag þ. 27. júní urðu þáttaskil í framkvæmd Lista- hátíðarinnar. Löngu ákveðin efnisskrá, færðist ti) og André Prévin, sem stjórna átti Sin- fóníuhljómsveit íslands, forfall aðist á síðustu augnablikum. í hans stað kom svo TJri Segal, 26 ára gamall ísraelsmaður, og með honum og hljómsveit- inni lók svo Vladimir Ashke- nasy, fimmta píanókonseit Beethovens. — Það hefur lengi verið mænt á Laugardalshöll- ina, sem „konser*hús“, og áður verið reyndur þar flutningur á Jklassiskri“ tónlist. — Sú viðleitni gaf þó ekki góða raur. og hefur ekki verið endurtek in aftur fyrr en nú. Það var mflt sumarkvöld í Laugardaln um, þegar fólk tók að streyma á tónleikana, og jafn mikinn fjölda áheyrenda minnist und- irrituð ekki að hafa séð saman kominn á tónleikum í Reykja- vík, hvoiiki fyrr né síðar. — Það er líklega ekki margir staðir í veröldinni, sem Ashke- nazy á jafn mögnuð ítök i áheyrendum og hér á íslandi. Það er ekki aðeins að hann sé aðal hvata- og stuðningsmað ur þessarar Listahátiðar, held- ur hefur hann stuðlað að því að fá hingað flest hið heims- þekkta listafólk, auk þess að vera mikilvirikur þátttakandi sjálfur. — Sinfóníuhljómsveit fslands hefur verið stækkuð og styrkt, til að allt mætti sem bezt verða, og var ánægulegt að sjá mörg mjög góðkunn andlit á konsertpalli, sem öll áttu sinn þátt í að breifcka og auka hljómmagn sveitarinnar, sem lengi hefur verið ósk- hyggja, en var nú skyndilega orðinn að veruleika. T.d. voru lægri strengir og þá sérlega víolur mun styrkari stoðir, og var það gleðilegt. Hinir að- komnu hljóðfæraleikarar sveit- arinnar þetta kvöld, fylltu vel upp, bæði hvað hljóm og breidd snerti, og gáfu biust- anda forsmekk um hvers vænta má ef frjálsar hendur era um vai hljóðfæraleikara. — Þótt hinn ungi hljómsveitarstjóri, Segal, tæki við stjóm á síð- ustu stundu, var vel búið að þvi efni er hann tók að sér, og á undirrituð við vinnubrögð Wodiczko, sem vitað er að hef ur lagt hart að sér við allan undirbúning. — Ashkenazy sem lék fimmta píanókonsert Beethovens, á alltaf sinn magn aða tjáningarmáta í túlkun. Tær tórin og voldug uppbygg- ing „keisarakonsertsins" svo- nefnda, var stórbrotin í þeirri mynd, sem Ashkenazy dró upp. Töfrar hans í „Adagio“-þætt- inum, með sinni Óhaggandi innri ró, eru yfirburðatúlkend um aðeins mögulegir. — Sam- leikur hljómsveitar og einleik ara var óþvingaður og lifandi. Tónleikarnir, sem hófust á „Le Corsaire“-forleiknum eftir Berlioz, orkuðu fyrst framan af, sem tilraun, þar sem stjórn andi og hljómsveit Oreifuðu fyrir sér. Þegar á forleikinn leið lifnaði yfir öllu, og dval- inn hvarf. Það var ekki ólíkt með upphaf tilbrigðanna eftir Brahms um stef eftir Haydn. — f fyrstu var um allt að því varikárni að ræða. Smám sam- an færðist myndin í annan ramma, breidd og hljómur hlóð utan um sig, og sá raun- verulegi Brahms varð ijóslif- andi. — f flutningi og túlkun bar þó Eldfugl Stravinsky’s af. Allt var með ævintýrablæ, og styrkleikablutföllin sem Segal byggði upp voru stórkostieg. Þegar litið er yfir tónleikana í heild, setur hljómburður hússins sínar skorður. Hljóm- ur flygilsins og hljómsveitar- innar var aðein brot af því raunverulega. — En þrátt fvrir marga annmarka húsins hefur undirrituð ekki haft aðra eins gleði af að hlýða á svo fjöl- menna tónleika, og skynja það andrúmsloft sem þeim fylgir. Það er ekki fráleitt að álykta að margir þeir áheyrendur, sem þarna voru staddir hafi sumir hverjir verið betar að sér í íþróttaheimi Laugardals- hallarinnar, en tónlistarheim- inum. Hið mikla húsrými tosar kanski um „hjartarými" ein- hverra, til að hlusta á lifandi tónlist í framtíðinni, þótt húsa- kynnin verði tniani. Uri Segal er mikill stjórnandi, og sterk- ur persónuleiki sem óvænt gleði var að kynnast á konsert palli. fslenzkur söngfugl brá á leik í Vatnsmýrinni á sunnudags- morgunn í Norræna húsinu kl. 11 árdegis. Guðrún Tómas- dóttir söngkona flutti þar ísl. þjóðlög með píanóaðstoð Ólafs Vignis Albertssonar. Guðrún helgaði okkar vmsælu þjóð- lagasöngkonu Engel Lund, þessa tónleika og flutti ein- göngu þjóðlög, sem hún hefur fengið úr þjóðlagasafni Bjarna Þorsteinssonar, og vfðar, en F. Rauter útsett. Öll eru þcssi lög svo gróin og kunn, að nær hvert mannsbarn þekkir þau. — Skýringar Guðrúnar á efni laganna á íslenzku og ensba voru mjög greinargóðar en tæplega nógu skýrt fluttar, þrátt fyrir ágætan málróm söngkonunnar. Persónulegur túlkunarmáti Guðrúnar á sér eðlislægan músiksmekk á ljóði og lagi, sem er henni í blóð borinn Klædd ísl. þjóðbúningi, var framkoma hennar látlaus og aðlaðandi, og hið litla „Intermezzo" í Norræna hús- Framhald á bls. 11.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.