Tíminn - 11.07.1970, Qupperneq 6
1
TÍMINN
i
LAUGARDAGUR 11. júli 1970.
ápÉiiB
"I
ÖEItaii
il ;
in '
SiISil i
:
Séö ofan úr hliðinni norðan við bústaðinn, yfir rústirnar, Þingvallabæinn og út á vatnið.
BRUNIRÁDHERRABÚSTAÐARINS
Slökkviliðinu í Reykjavflcv- • < -sSstoSaryfirlögregluþjóim, á- ásamt þeim Nirðj Snæhólm,
Framhald af bls. 3
vatnið, Valhallar og Þingvalla-
bæjarins-
Húsaskipan í bústaðnum var
þannig, að þegar gengið var
inn í hann, um dyrnar, sem
sneru niður að vatninu, voru
tvær stofur á vinstri hönd er
komið var í forstofuna. Á
hægri hönd voru tvö svefnher-
bergi og fyrir miðju var snyrti
herbergi og aftan fyrir miðju
var eldhúsið, og enn aftar
kyndi'klefinn og spennistöðin.
f .eldbúsinu mátti sjá leifar
af búsáhöldum, og þar voru
H hlið við hlið svartir og beygl-
aðir kútar, er eitt sinn voru
slökkvitæki, og gaskútar, sem
höfðu sprungið.
Kyndiklefinn hafði verið
hólfaður af með hlöðnum vegg,
og virtist svo sem eldurinn
hefði ekki leikið mikið þar
um. Stór og mikill olíutankur
stóð aftur úr rústunum, en hús
ið mun hafa verið kynnt allan
ársins hring, nótt og dag, og
þess vegna stór olíutankur.
Norðan við Konungshúsið,
eins og sumarhúsið var löng-
um kallað, hafði fyrir nokkrum
árum verið byggður svefn-
skáli, og sá ekki á honum
eftir brunann, og er skýringin
sú, að vindur yar mjög hvass
að norðan, og stóð af húsinu,
og úrhellis rigning var um nótt ■
ina, og mældist úrkoman heil-
ir 36 millimetrar við Þingvalla
bæinn.
Dr. Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra fór austur í sum
arbústað í gærkvöldi ,og ætlaði
hann. aðeins að gista í húsinu
þessa einu nótt, því í dag var
ferðinni heitið í Vesturlands-
kjördæmi. þar sem forsætisráð
herra ætlaði að maeta á héraðs
mótum. v
barst tilkynning um brunann
klukkan 01,40 í nótt, og.voru
strax sendir tveir slökkvibílar
af stað frá Reykjavík. Síðar
var svo beðið um sjúkrabíl, en
um sex í morgun fór bíll frá
slökkviliiðnu, og sótti jarðnesk
ar leifar hinna látnu, austur á
Þingvöll.
Er slökkviliðið kom á stað-
inn, eftir tæpan klukkutíma,
var húsið fallið og ekki annað
fyrir slökkviliðsmennina að
gera en slökkva í rústunum.
Lögreglumenn frá Reykjavík
voru eystra í dag, og héldu
vörð um rústirnar. Var þar
lengst af Sverrir Guðmundsson
samt öðrum lögreglumanni.
Ingólfur Þorsteinsson, yfir-
lögregluþjónn rannsóknar-
lögreglunnar í Reykjavík,
sagði Tímanum, að sýslumað-
urinn í Árnessýslu, Páll Hall-
grímsson, hefði farið þess á
leit, að rannsóknarlögreglan
í Reykjavík aðstoðaði við rann
sókn brunans.
Strax í nótt fóru rannsókn-
arlögreglumenn austur á bruna
staðinn, og síðan aftur eftir
hádegið í dag
Er fréttamaður Tímans kom
á staðinn aftur eftir hádegið,
var Ingólfur Þorsteinsson þar
aðalvarðstjóra, Jóni Halldórs-
syni, varðstjóra, Sævari Jó-
hannssyni, tæknimanni í rann
sóknarlögreglunni, Ragnari
Vigni, varðstjóra í tæknideild,
og Guðmundi T. Guðmunds-
syni, rannsóknarlögregluþjóni.
Þá höfðu einnig verið kvaddir
á staðinn Rúnar Bjarnason,
slökkviliðsstjóri, rafmagnseft-
irlitsmaður og eldfæraeftirlits-
maður. Rótuðu þeir í rústun-
um og reyndu að gera sér
grein fyrir upptökum brunans,
en að því er Ingólfur Þor-
steinsson sagði Tímanum i
kvöld, þá er ekkert hægt að
segja til um upptök brunans,
svo algjör er eyðiléggingin í
húsinu.
Ingólfur sagði það hinsveg-
ar ljóst, af verksummerkjum,
að þau þrjú, sem voru í hús-
inu, hafi vaknað og verið kom
in úr rúmum sínum í húsinu.
Páll Hallgrímsson, sýslumað-
ur, og yfirlögregluþjónninn á
Selfossi, Jón I. Guðigiundsson,
voru meðal þeirra, sem komu
á brunastaðinn í nótt, en Þing-
vellir eru sem kunnugt er á
þeirra yfirráðasvæði.
I kvöld voru hafnar yfir
heyrslur á Þingvöllum vegna
brunans, og stjórnaði sýslu-
maðurþeim.
Hollendingarnir sjö, sem
fyrst urðu varir við brunann
í sumarhúsi forsætisráðherra
á Þingvöllum, sátu að morgun
verði í Hótel Valhöll, er frétta
tnaður Tímans náði tali af
þeim.
Þeir sögðust hafa komið til
landsins fyrir nokkrum dögum
og ætlað að fara á hestamanna
mótið í Skógarhólum. Tjöld-
uðu þeir við Vatnsvík í gær-
kvöldi, en um miðnættið fauk
tjaldið ofan af þeim, og tóku
þeir þá það til bragðs, að
flytja farangur sinn á bílnum,
sem þeir hafa á leigu, heim *á
hlaðið við Valhöll. Stöðvaði
fólkið bilinn við söluskálann
á hlaðinu, og var klukkan þá
um hálf tvö. Bústaður forsætis-
ráðherra blasir við þama af
hlaðinu, og sáu þeir þá, að
eitthvað óvenjulegt var þar
á seyði. Brá eldslogum fyrir í
gluggunum. Þegar fólkið kom
áð húsinu sá það, að eldur var
laus inni í því Bönkuðu Hol-
lendingarnir á glugea og dyr,
og stafaði þá miklucn hita frá *
húsinu. Nokkrum míaútum eft
Framha' á bis.
W
RáðherrabústaBurinn á Þingvöllum. Myndin var te.<in fyr - nokkrum árum.
(Tímamyndir: Gunnar)