Tíminn - 11.07.1970, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.07.1970, Blaðsíða 7
fcMKxARÐAGUR II. Krli 1970. TIMINN Mikilhæf forsætisráðherrahjón AK, Rvik, 10. júlí. — Þegar þau válegu tíðindi bárust snemma í morgun, a3 forsætisráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, hefði farizt í eldsvoða ásamt konu sxnni og ungum dóttursyni þá um nóttina, er Ráðherrabústað- urinn á Þingvöllum brann, greip djúp sorg og óhugur þjóð ina alla við tiihugsunina um svo sviplegt og liörmulegt slys. Með Bjarna Benediktssyni er fallinn frá mikilhæfur og á- hrifaríkur stjórnmálaleiðtogi, sem markað hefur djúp spor í baráttusögu þjóðai-innar síð- ustu áratugi og ráðið þar mik- ilvægum úrsliíum. Hann var síórbrotinn maður að gáfum og allri gerð og búinn miklum forystuhæfileikum, eins og ferill hans í stjórnmálastarfinu sýnir gleggst. XJm hann stóð oftast stormur og styr, enda var hann sjálfur mikill baráttu maður, en hærra þeim átökum bar virðingu og viðurkenningu fylgismanna sem andstæðinga á gáfum hans. þckkingu og styrk í stjórnmálaatfylgi. Menn virtu hann jafnt sem foringja og andstæðing, og hans mun lengi verða minnzt bæði af þeim, sem áttu með honum sam leið, og hinum, sem skrifa sögu þjóðarinnar. Nánar er rætt um fráfall forsætisráðherrahjónanna í forystugrein blaðsins. • Bjarni Benediktsson var fæddnr 30. apríl 1908 i Reykja vík, sopur hjónanna Guðrún- ar Pétux-sdóttur og Benedikts Sveinssonar, alþingismanns. Hann varð stúdent í Mennta- skóla Reykjavíkur 1926 og tók lögfræðipróf yið HáskóLa ís- lands 1930. Næstu tvö ár stund aði hann framhaldsnám í stjórn lagafræði í Berlín og Kaup- mannahöfn en varð prófessor í lögum við Háskóla íslands 1932, gegndi þvi embætti til 1940, er hann varð borgar- stjóri í Reykjavík. Árið 1947 varð hann utanríkis- og dóms- málaráðherra og gegndi ráð- herraembætti til 1956. Þá varð hann ritstjóri Morgunblaðsins, en 1959 aftur dómsmálaráð- herra. 1961 var hann settur for- sætisráðherra um þriggja mán- aða skéið og skipaður forsæt isráðherra 1963 og gegndi því embætti til dauðadags. Hann var kjörinn á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1942 og átti þar sæti síðan sem þingmaður Reykjavákur. Hann hefur átt sæli í fjölmörgum nefndum og stjórnum félaga, og í miðstjórn Sjálfstæðis- flokksins sat hann frá 1936. Hann var mörg síðustu ár stjórnarformaður Almenna bókafélagsins og í stjórn Eim skipafélags íslands lengi Hann hlaut margvísleg heiðursmerki innlend sem erlend og hlaut doktorsnafnbót við Háskola íslands 1961. Eftir hann’ liggja allmörg rit og_ bækur, einkum um stjórnarfarsleg og lögfræði legi efni en einnig ritgerða um almenn málefni, auk fjölda greina um rnenn og málefni í blöðum og timaritum. Bjarni Benediktsson var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Valgerður Tómasdóttir úr Reykjavík, en hún lézt oftir eins árs sambúð. Síðari kona hans var Sigríður Björnsdótt- ir, skipstjóra í Ánanaustum í Reykjavík, Jónssonar, og áttu þau fjögur uppkomin börn. . Benedikt Vilmundarson, dótt ursonur þeirra hjóna, fjögurra ára drengur, var sonur Valgerð ar dóttur þeirra og Vilmundar Gylfasonar, hið efnilegasta barn. Dr. Bjarni Benediktsson Frú Sigriður Björnsdóttir Fram'haild af bls. 6. ir að þeir komu að bústaðnum kvað við dynkur innan úr hús- inu, og í sömu andrá lyftist þakið um ca. hálfan metra. Er talið að þessi dyn'kur hafi sta£ að frá því, er eldurinn brauzt út úr húsinu, en ekki vegna sprengingar inni í þvi. Séra Eiríkur J. Eiríksson, þjóðgarðsvörður var ekkert far inn að sofa í morgun, er frétta mann Tímans bar að gerði hjá honum. Séra Eirikur sagði, að hann hefði farið í umsjónarferð um þjóðgarðinn, Bolabás og Skógarhóla um hálf eitt í nótt. Er hann kom til baka, fór hann heim á hlaðið á Þingvöllum, og út að Konungshúsinu, en engar mannaferðir var þar að sjá, og allt með eðlilegum hætti. —1 Er ég kom heim, leit ég út um gluggann hérna í húsinu, í áttina til Valhallar. og þá var ckkcrt óeðlilegt að sjá þar. Eftir um þrjá stundarfjórðunga eða svo, sagði svo séra Eiríkur að þau hjón hefðu vaknað vi@, að verið var að reyna að ná til Reykjavíkur í símanum. Aðstoðuðu þau við að ná til Reykjavíkur og í Slökkvistöð- ina. Einnig var hringt í lög- regluna á Selfossi, slökkviliðið þar, og rafmagnsmann. Síðan sagði Eiríkur, að þau hefðu skrúfað úr stofnöryggi, þar sem spennistöðin fyrir svæðið var í sumarhúsi forsætisráð- herrans. Eirikur sagðist af tilviljun hafa vita'ð, að dr. Bjarni Bene- diktsson, forsætisráðherra, hefði verið á Þingvöllum þenn an dag, en sagðist jafnvel hafa haldið, að hann hefði farið það an um kvöldið. Eiríkur sagðist hafa vakið aðstoðarmann sinn, Aðalstein og sent liann á bruna staðinn, þegar hann kom þang- að um tíu mínútur fyrir tvö, var húsið fallið- Virðist því svo sem ekki hafi liðið meira en um stundaríjórð ungur frá því eldurinn var npp götvaður, þar til húsið var fall iö, og nær- allt brunnið, sem brunnið gat. Konungshúsið, en svo var sumarhús forsætisráðherrans nefnt lengi vel, var byggt fyr- ir konungskomuna 1907, er Friðrik konungur áttundi ,kom til íslands. Stóð húsið í fyrstu norður á völlunum, en var flutt árið 1930 á þann stað, sem það hefur staðið á síðan. Húsið var hitað upp með olíukyndingu, og fyrir nokkrum árum var lagt í það rafmagn frá Rafmagnsveit- unum. Var spennistöðin fyrir sumarbúStaðahverfið og Val- höll, bak við sumarhúsið. Skemmdist spennistöðin í brun anu'- i nótt. Af þeim sökum var al!t rafmagnslaust og kalt í Vaihöll fram á dag. Fyrir nokkrum árum var byggt sérstakt hús, við hliöina á gamla Konungshúsinu Var það einskonar svefnskáli, sem notaður var, þegar margt var um manninn. Vindáttin í nótt var þannig, að hvorki sprakk rúða í nýja húsinu né sviðnaði það. Stendur það því algjörlega óskemmt. Jón Eiríksson í Valhöll á Þingvöllum sagði, að klukkan hafi verið rútnlega hálf tvö, þegar Hollendingarnir komu í Valhöll og tilkynntu um eld- inn. Sagðist hann þegar hafa hringt í slökkviliðið í Reykja- vík, en hann fékk ekki sam- band strax í 02, og var móðir hans, eiginkona Eiríks þjóð- garðsvarðar, fljótari að ná til Reykjavikur í gegn um Selfoss. Jón sagðist síðan hafa farið út, og þá hafi húsið staðið í björtu báli og þakið verið fallið. Ávarp forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjárns, í ríkisútvarpið 10. júli 1970 Þau sorgartíðindi spurðust sncmma morguns í dag, að íor- sætisráðherra. dr. Bjarni Bene diktsson. kona hans frú Sigríð ur Björnsdóttir, og ungur dótt- ursonur þeirra Benedikt Vil- mundarson, hefðu látið lífið, er forsætisráðherrabústaður- inn á Þingvöllum brann, þeg- ar skammt var liðið nætur. Slíkur atburður er hörmu- legri en svo, að orðum verði yfir komið. í einu vetfangi er í burtu.svipt traustum forustu manni, sem um langan aldur hefur staðið í fylkingarbrjósti og verið í fyrirsvari í þjóðlífi voru, og með honum ágætri konu hans, er við hlið hans hefur staðið með sæmd og prýði, og ungum sveini, sem var yndi þeirra og eftjrlæti. I-Iér er skarð fyrir skildi, en á þessari stundu kemst ekki annað að í huga vorum en sorg og samúð. Það er stundum sagt að íslenzku þjóðinni sé helzt að líkja við stóra fjölskyldu. Sannleik þeirra orða skynjum vér bezt á stundum mikilla tíðinda, til gleði eða sorgar. Þjóðin er harmi lostin og syrg ir forsætisráðherrahjón sín. Ég mæli fyrir munn allra lands- manna, þegar ég læt í liós djúpa . hryggð mína og votta börnum og allri fjölskyldu þeirra hjónanna samúð, svo og öllum þeim öðrum, er mi syrgja sveininn unga (Erá skrifstofu forseta íslands). Borten: Mikils metinn „Hinar sársaukafullu fréttir um hið skyndilega og átakan- lega fráfall Bjarna Benedikts- sonar, konu hans og barna barns hafa orðið mér mi’kið áfall. Mér finnst sem þetta sé persónulegur missir minn. Bj^rni Benediktsson var á bezta aldri. Allir þekkja vin- áttu hans, gestrisni og bróður- þel. Við mátum hann allir, og konu hans, mikils í norrænni samvinnu. Bjarni Benediktsson hefur haft mikla þýðingu fyr- ir samvinnu Norðurlandanna með áhrifum sínum og vilja til þess að styikja nbrræn bönd. Hann hefur lagt mikið af mörkum á þessu sviði. Norræn samvinna hefur misst mikils. við dauða Bjarna Benedikts- sonar. Þessar fréttir hafa valdið mér mikilli sorg. Ég sendi fjöl skyldu Bjarna Benediktssonar, íslenzku ríkisstjórninni og bjóð inni allri mínar dýpstu samúð- arkveðjur". Baunsgaard: Harmi losfinn „Við Danir urðum harmi lostn ‘ ir, er fréttir bárust af hinum hörmulega dauða Bjarna Bene- diktssonar. forsætisráðherra, konu hans og bai’nabarns Með þessu slysi hefur íslands ekki aðeins misst rnikinn persónu- leika, heldur einnig mjög reynú - an og mikilsvirtan stjórnmála- mann. Iíann hafði um langt árabil gegnt umfangs- og ábyrgðarmiklum emhættum í þágu lands síns og þjóðar. Hann varð þannig strax, sem ungur lögfræðingur, gerður að horgarstjóra Reykjavíkur 1944, eftir að hafa verið pi’ófessor við Háskóla íslands í mörg ár, en úr borgarstjóraembættinu fór hann til þess að taka við embætti utanríkis- og dóms- málaráðherra í íslenzku ríkis- stjórninni. Það var því eðlilegt, að hann yrði eftirmaður Ólafs Thors, sem forsætisráðherra, 1963, enda hafði hann fram til hess tíma gegnt mörgum ráðhcrra- embættum. Fráfalla hans mun vekja djúpan söknuð á íslandi. Bjarna Benediktsson verðui’ saknað hér Danmörku, þar sem hann var kunnur fyrir tryggð sína og hve ráðhollur hann var. Hin jákvæða afstaða. sem Bjai’ni Benediktsson sýndi ávalt varðandi sambandið milli landa okkar, kom einnig í ljós, þeg- Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.