Tíminn - 11.07.1970, Page 9
LAUGARDAGUR 11. júlí 1970.
TIMINN
9
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsso**. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas
Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Ritstjórnar-
skriístofur í Edduhúsinu, símar 18300—18306. Skrii'stofur
Baníkastræti 7 ~ Afgreiðslusími 12323 Auglýsingasími 19523.
Aðnar skrifstofur simi 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuði.
innanlands — í lausasölu kr. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf.
Bjarni Benediktsson
Þegar svo svipleg stórtíðindi og djúp harmsefni verða,
að forsætisráðherrahjón landsins farast í eldi, ásamt ung-
um dóttursyni, setur alla hljóða í djúpri þjóðarsorg.
Þjóðin vaknaði til þeirra váfregna í gærmorgun, að þessi,
mikilhæfu hjón á bezta aldri, með fulla hreysti og starfs-
orku, hefðu þá um nóttina horfið í einni svipan af þeim
starfsvangi, sem einna hæst ber í þjóðlífinu, á vald
þessara örlaga á fornum helgistað þjóðarinnar.
Hvað sem líður ágreiningsefnum, sem tengd eru
dægurbaráttu eða þjóðmálastefnum, viðurkenna allir,
jafnt samfylkismenn sem andstæðingar, að með Bjarna
Benediktssyni, forsætisráðherra, er fallinn í val maður
úr hópi hinna svipmestu og áhrifaríkustu stjórnmála-
manna á þessari öld, maður, sem markað hefur djúp
spor í sögu þjóðar sinnar og átt veigamikinn þátt í bar-
áttu hennar og framsókn, og gegnt úrslitamiklu forystu-
hlutverki, einkum tvo síðustu áratugina, í för hennar
í mikia og minnisverða áfanga.
Bjarni Benediktsson var miklum gáfum og hæfileik-
um gæddur, enda brotinn af traustu og góðu ættarbergi
og hlaut ágæta og fjölþætta menntun. Hann varð snemma
mikill áhrifamaður, bæði 1 félagsmálum og fræðum, sem
hann lagði stund á. Við gáfur hans og menntun bættust
afkastamikill dugnaður og stórbrotin skapgerð til þess
að gera hann að afreksmanni með þjóð sinni. Hann varð
prófessor við Háskóla íslands á miðjum þrítugsaldri og
samdi þegar viðamikil lögfræðirit. Rúmlega þrítugur
varð hann borgarstjóri Reykjavíkur og þá kominn í for-
ystusveit í flokki sínum. Á vettvangi stjórnmálanna hasl-
aði hann sér síðan völl og komst til æ meiri áhrifa, svo
að kalla mátti sjálfsagt, að hann tæki við formennsku
í Sjálfstæðisflokknum af Ólafi Thors og einnig embætti
forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson var einnig um skeið ritstjóri
Morgunblaðsins, og skrifaði jafnan mikið í blaðið fyrr
og síðar. Hann var þróttmikill ræðumaður og gæddur
sérstakri minnisleikni, orðkyngi og skaphita, sem gerði
ræður hans áhrifamiklar, ekki sízt þegar til átaka dró.
Hann hafði mikinn áhuga á almennum málum, einnig
utan stjórnmálahringsins, til að mynda bókmenntum, svo
sem forystustarf hans í Almenna bókafélaginu bendir
til, og hann var víðlesinn og fróður, jafnt um sögu
þjóðarinnar sem innlend og erlend málefni líðandi
stundar.
Um slíkan mann hlaut jafnan að standa stormur, og
að honum vegið með lítilli vægð, enda var hann harð-
fylginn baráttumaður sjálfur, en eigi að síður átti hann
jafnan óskorað traust og virðingu fyrir mannkosti og
hæfileika, sem íslendingar hafa jafnan metið mikils.
Kona hans, frú Sigríður Björnsdóttir, var af öllum,
er til þekktu, óvenjuleg ágætiskona, hófsöm og stillt
vel, greind og rík að forsjá og öðrum þeim kostum, sem
íslenzka húsfreyju mega bezt prýða. Mun hún hafa verið
manni sínum hinn ágætasti förunautur, og hvarvetna
kom hún svo fram að vakti virðingu og vinarþel, og þá
fullvissu, að hún ætti 1 ríkum mæli menningu hjartans.
Þjóðin syrgir af einlægum hug hin mikilhæfu for-
sætisráðherrahjón og ungan dótturson þeirra. Hún kveð-
ur áhrifaríkan leiðtoga sinn og finnur vel hve mikill
sjónarsviptir er að fráfalli hans.
Tíminn vottar börnum forsætisráðherrahjónanna og
öðrum aðstandendum þeirra og hins unga drengs, inni-
lega samúð. — AK
C. L. SULZBERGER:
Ríkisstjórn Sovétríkjanna
fylgir ekki ný-staiínisma
Einræði Stalíns og harðstjórn er enn fordæmd, en þó hefur verið
komið fyrir brjóstmynd af honum á leiði hans og kostir hans sem
styrjaldarleiðtoga eru viðurkenndir.
í BORGINNI Gori í Georgíu
búa 45 þúsund manns. Hún er
eina borgin í Sovétrík.iunum.
sem getur státað af Stalín-
stræti, en það liggur framhjá
Stalínsafni og til Stalíntorgs,
sem .stórt bronz-líkneski ef
Stalín setur svip sinn á.
Ástæða þessarar sérstöðu
Gori er augljós, þar sem hún
er fæðingarborg Stalíns. í aug
um íbúanna er hann enn sá
sojiur borgarinnar, sem náð
hefur mestum frama og tókst
að verða zar yfir öllu Rússa
veldi.
GORI stendur í breiðum dal
hátt til fjalla, milli gnæfandi
tinda í fjarska. Eðlilegt væri
að hugsa sér að betta um
hverfi mótaði opinskárri og
glaðlyndari menn en Stalín,
sem gjarna -iðhafði pukur og
var ákaflega tortrygginn.
Segja má raunar að mynd af
honum sem kátum kórdreng i
kristilega kennaraskólanum
gefi þetta í skyn. Hitt feT þó
ekki milli mála, að lífið tók
snemma að gæða hann hörku.
Marmaragarður umlykur
litla hiúsið, þar sem Stalín
fæddist. í þvi er aðeins eitt
herbergi, sem bláfátækir for-
eldrar Stalíns höfðu á leigu og
þar dvaldi hann hjá þeim í
æsku. Stalínsafnið er nú þar
til húsa, en mikið af safngrip-
unum minnir á ævintýralegan
feril hans og samsærin, sem
hann tók þátt í. Hann gerðist
kennari í Tbilisi og vann jafn-
framt við stjörnuturn þar, en
fór snemma að breiða út kenn
ingar marxismans í laumi.
NOKKRAR tylftir mynda
eru á safninu, þar á meðal fá-
einar myndir af fjölskyldu Sta-
líns, en engin af Svetlönu dótt
ur hans, sem nú er búsett j
Bandaríkjunum. Þó eru þarna
afrit af nokkrum ástúðlegum
bréfum hans til þessarar dott
ur sinnar.
Gori hefur að mestu slopp-
ið við afleiðingarnar af áform-
um Krustjeffs um að eyða
áhrifum Stalíns. Segja má þó
að safnið bendi til þess hiut,-
verks, sem Stalín er ætlað í
sögunni framvegis, — ekki
annað eða meira en að vera
einn af fremstu starfsmönn-
um Lenins, sem gerðist mik-
ill þjóðarleiðtogi í heimsstyri-
öldinni síðan
Við þrepir. upp í safnið stend
ur stór stytta af Stalín og á
hana er letrað: „Ég er ekki
annað en læri'jveinn Lenins og
markmið mict ei að verða verð
ugur lærisveinr hans“ Þavna
getur að líta vitnisburði
margra sovézkra marskálka
ásamt myndum frá viðræða-
fundum hinna „þriggja stóru“
á styrjaldarárunum. Engin
borg ber þó framar nafn Stal-
íns, enda þótt smærri spá-
menn njóti þess hejðurs.
STALÍN hefur verið varpað
út úr Valhöll, en hann er
ekki framar það ómenni, sem
Brjóstmynd af Stalín, sem komið var fyrir á gröf hans og afhjúpuð
án hátíðahalda 25. júní s. L
Krustjeff vildi gera úr nonum.
Lík hans var flutt úr grafhýsi
Lenins árið 1961 og hvílir nú
að baki þess. Þar eru átta
leiði í röð og hafa brjóstmynd
ir úr bronzi af hinum látnu
verið á þeim öllum nema leiði
Stalíns og Voroshilovs, sem
lézt í fyrra. En nú hefur verið
steypt mynd af Stalín og kom-
ið fyrir á gröf hans.
Gerð hefur verið ný kvik-
mynd um Stalín og þar kem-
ur hann fram sem kurteis, lág-
mæltur, vitur en strangur
styrjaldarleiðtogi. Reynt er að
leggja rækt við minningu um
hann einmitt í þessu hlutverki.
Annars er einræði hans og.
grimmd enn fordæmt og þess
gerast jafnvel dæmi, að reist
séu minnismerki um suma for
ustumenn, sem Urðu hremsun
um hans að bráð. Leonid Brez
hnev hélt maraþonræður á
fimmtíu ára afmæli byltingar-
innar og hundrað ára afmæli
að ára afmæli Lenins, en hon-
um tókst þó að sneiða hjá þvj
að nefna nafn Stalíns í þess-
um löngu ræðum.
ÞESS verður að vísu vart.
að tekið sé harðar á efasemd-
um menntamanna en áður
var, en ekkert gefur þó til
kynna að í ráði sé að endur-
vekja Stalínstímann. Efalítiff
eru nokkur hundruð stjórn-
málamanna meira eða mi'ina
óánægðir og hægri sinnaðir
andstæðingar stjórnarinnar
eins og áhangendur V.M. Molo
tovs sita óáreittir í embættum
eða njóta rýmilegra eftirlauna.
Segja má að stjórn landsins
aðhyllist hægfara íhaldsstefnu
(á kommúnistavísu) en geti
þó ekki talizt bein afturhalds-
stjórn. Fátt er um gerræðisleg
ar hapdtökur og pólitísjca
leynilögreglan ber ekki fram-
ar að dyrum hjá þegnunum á
næturþeli Afturhvarfið frá
Krustjefftímanum er fremur
hægfara. Nokkurrar óánægju
gætir meðal menntamanna og
töluvert ar gefið út af leyni-
ritum. Þetta gæti ekki gerzt ef
ný-stalínismi væri ríkjandi.
Harðvítugur einræðisherra
léti ganga milli bols og höf-
uðs á þessum hreyfingum t
einni nóttu
BREZHNEV sem er enginn
sérstakur atkvæðamaður. kem-
ur fram sem eins konar nefnd
arformaður í æðsta ráðinu og
fjarri fer að hann sé alveg
einn um forustuna. Allar meiri
háttar ákvarðanir virðast vera
staðfestar af meirihluta for-
ustumannanna. Þegar ákvörð-
un hefur verið tekin, kemur
jjað hins vegar í hlut Brez-
hnevs sem framkvæmdastjóra
flokksins að tilkynna hana op-
inberlega. Sýnilega hefur ver-
ið ákveðjð að reyna að stækka
hana í augum almennings með
því að gera hann að aðalræðu-
manni flokksins.
Ekki verður séð að verulega
kveði að hernum sem stiórn-
málaafli, Allir mestu marskálk-
arnir eiga sæti í miðstiórn
flokksins, en þess ber að gæta,
að þeir hefðu ekki einu sinni
náð óberstatign ef hylli flokks
ins hefði ekki notið við.
FLOKICURINN líður ekki
að neinn sé á öðru máli en
hann í heyrand'a hljóði. Georgi
Zhukov marskálkur framdi
stjórnmálasjálfsmorð þegar
hann lýsti fyrir hönd hersins
fylgi við Krustjeff í deilum
hans við Molotov. Hann var
horfinn af sjónarsviðinu eftir
nokkra mánuði.
Brezhnev og fylgismenn
hans eru að reyna að koma
á að nýju eðlilegri framvindu
Framhald á bls 15.